Morgunblaðið - 25.11.1966, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 25. nóv. 1966
Til sölu
Opel Reckord ‘63
nýkominn til landsins.
Sem nýr, ekinn aðeins 43 þús. km.
ECSJa 11 bávélasslan
við Miklatorg. — Sími 2-31-36.
■pi«ra • • n
Til smu
Lítið iðnfyrirtseki, 120 ferm. húsnæði á bezta stað
í borginni, með hagkvæmum leiguskilmálum. —
Nafn og heimilisfang leggist inn á afgr. Mbl. fyrir
kl. 6 á mánudag, merkt: „Iðnaður — 8576“.
Einkaumboð
— Gœðalökk
Erlend málningarverksmiðja fyrir heimsþekkta ryð
varnarmálningu, óskar eftir einkaumboðsmanni,
sem er þekktur hjá skipasmíðastöðvum, vélsmiðj-
um og venjulegum iðnfyrirtækjum. Krafa er gerð til
kaupa í fastareikning ásamt vörulager. —
Mikill árságóði. — Skrifið eftir upplýsingum.
Einkaumboð á Norðurlöndum:
M. BRO. KEM. TEKN. FABRIK,
Kong Georgsvej 19, Kpbenhavn F.
Frá Bernharð Laxdal
Kjörgarði
Verzlunin verður opnuð að nýju í dag
með fjölbreyttu úrvali af:
HÖTTUM
LOÐHÚFUM
HÖNZKUM
TÖSKUM og
KULDAJÖKKUM
Vetrarkápur væntanlegar um næstu
mánaðamót.
Bernharð Laxdal
Kjörgarði.
100 ára minning:
Sigurgeir Jónsson
söngkennari
í DAG, 25. nóvembex 1966, eru
eitt hundrað ár liðin frá því að
Sigurgeir Jónsson, söngkennari á
Akureyri, fæddist. Hann var í
heiminn borinn á Stóruvöllum í
Bárðardal og alinn þar upp. AHa
ævi naut hann hins góða upp-
eldis, er hann fékk í föðurhús-
um og mátti segja, að hann væri
vel að heiman búinn, er hann
lagði „út í lífið“.' Um 10 ára
skeið bjó hann á hluta Stóru-
vallajarðar, en árið 1904 fluttist
hann með konu sinni, Friðdiku
Tómasdóttur, tiil Akureyrar, og
í 50 ár mátti segja, að hann helg-
aði starfskrafta sína og hæfi-
leika tónlistinni, eftir því sem
hann métti því vfð koma vegna
annarra starfa. Hann var mjög
hljómvís, og mun hafa kennt nær
700 manns bljóðfæraleik á sinni
ilöngu ævi. Kirkjiuorganisti á Ak-
ureyri var hann frá 1911—1940.
Hann kenndi auk þess söng við
barnaskólann og gagnfræðaskól-
ann þar í bæ.
Sigurgeir var einlægur bind-
indismaður og starfaði mikið í
Góðtemplarareglunni — var þar
organleikari. Gekk hann jafnan
heill að hverju verki, er hann
taldi þess vert að vinna.
Eins og áður er á drepið, var
Sigurgeir kvæntur Friðriku Tóm
asdóttur, merkri konu og mikilli
húsmóður. Eignuðust þau hjón 9
börn. Átta þeirra eru á lífi, og
eru þau: Páll kaupmaður, Vigfús
ljósmyndari, Gunnar píanókenn-
ari, Hermína píanókennari, Eð-
varð ljósmyndari, Jón iðnskóla-
stjóri, Hörður ljósmyndari og
Haraldlur skrifstofumáður. Ein
dóttir — Agnes------dó 15 ára
gömul. Allt er þetta fclk vel
gefið og gjörfulegt og kippir í
kyn til föður síns um listrænt
eðli. — Barnabörnin eru orðin
19 og barnabarnabörn 31.
Árið 1921 var Sigurgeir tekinn
úr umferð af örlagavöldunum.
Vann hann þá að húsbyggingum
og féll af vinnupailli, svo að hann
braut annan fótinn. Lá hann í 10
mánuði vegna þessa slyss, en nú
gafst honum næði tii að iesa og
hugsa. Las hann mikið guðspeki-
rit og gerðist guðspekisinni.
Gekk hann síðan í guðspekistúku
Akureyrar og mátti segja, að
síðan hafi hin gúðspekiiegu fræði
verið eitt af aðaláhugamálum
hans tifl. æviloka. í erfiljóð, er ég
orkti eftir hann, er meðatt annars
komizt svo að orði:
„í dagsins önn, í draumsins
móðu,
dísir tvær vfð hlið þér stóðu:
Söngsins dís við hægri hönd
hjarta lyfti hátt og vilja.
Hin þér kenndi líf að skilj-a,
brekkusækin, vinavönd“. —
Hér er átt við sönglistina og
guðspekina.
Helztu skapgerðareinkenni Sig
urgeirs voru að mínum d-ómi frá-
bær ljúfmennska og hrifnæmi.
Hann var gæddur vfðkvæmri
listamannslund. En jafnfra-tm var
hann reglufastur,- svo að af bar,
vandvirkur o-g n-atinn við allt,
er hann tók sér fyrir hendur.
Dáðist hann að öllu, sem vel var
gerit. Ég hygg, að hann hafi haft
bæði smiðsa-ugu og smiðshendur.
Ei-tt vax það, er einkenndi Sig-
urgeir og ég hygg mjög fátítt
vera, ef ekki með eindæmum. Ef
honum þótti skrifað eða prentað
erindi gott, tók hann sér fyrir
hendu-r að skrifa það eigin h-endi
frá upphafi til enda. Átti hann
stóra syrpu slíkra erinda. Með
þessu vannst tvennt: Hann festi
í hug sér efni erindisins, sem
h-ann skrifaði, og gat um leið
hugsað um þáð og látið það
frjóvga huga og hjarta. Þetta var
einskonar „medita-tion" eða íhug-
un, sem hann iðkaði með penna
í hendi.
í stuttu máH má segja, að Sig-
urgeir hafi verið einn af hin-um
merkilegu „aldamótamönnum“
— mönnunum, sem um og eftir
síðustu aldamót gerðu margan
„garð“ fræ-gan.
Þannig var Sigurgeir. — Hann
var góð og listræn sál, og mér
finnst viðkynningin við hann
hafa auðgað líf mi-tt eigi all-lítið
og minningin um h-ann vera „sól-
skinsblettur í heiði“, s-em ég
hv-erf alltaf tH með gle'ði, þegar
mér verður -til hans hugsað.
Grétar Fells.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 59. og 61. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á Básenda 6, hér í borg, þingl. eign
Guðmundar Kristjánssonar, fer fram eftir kröfu
Iðnaðarbanka íslands h.f., Guðmundar Ingva Sig-
urðssonar hrl. og Jóhanns Þórðarsonar hdl., á eign-
inni sjálfri, mánudaginn 28. nóvember 1966, kl.
2,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 49., 50. og 52. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á Bjargarstíg 15, hér í borg, þingl.
eign Jóns Aðalsteins Jónassonar o. fl. fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, á eigninni
sjálfri, miðvikudaginn 30. nóv., 1966, kl, 2 síðd.
Við höfum leikföngin
Leikfangasalan Hafnarstræti 7
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 57., 59. og 61. tbl. Lögbirtinga-
blaðsins 1966 á hluta í Hverfisgötu 100, hér í borg,
RÝMINGARSALA
þingl. eign Einars Jónssonar, fer fram eftir kröfu
Skúla J. Pálmasonar hdl., og Lúðvíks Gizurarsonar,
hrl., á eigninni sjálfri, mánudaginn 28. nóv. 1966,
kl. 3,30 síðdegis.
Síðasti dogur rýmingarsölunnar í Listu-
mnnnnghnlnnnm er í dug. Mikið Úrvul
uf mjög ödýrum vörum Opið Ird kl. 1—7
Listamannaskálanum.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Elýmingarsala
vegna lokunar á „
verður haldin útsala á snyrtivörum stof-
unnar út þessa viku.
40% afsláttur af öllum vörum.