Morgunblaðið - 25.11.1966, Side 25
Föstudagur 25. nóv. 1966
MORCUNBLAÐID
25
Sex nýiar bœkur
írú Fróðaútg.
Bókaútgáfan Fróði í Reykja- haft orð á því við höfundinn að
vík hefur sent frá sér 6 nýjar
bækur fyrir þessi jól.
3 þeirra eru barnabækur, og
tvær eftir íslenzka höfunda,
Hugrúnu skáldkonu og Eirík
Sigurðsson skólastjóra. Bók
Hugrúnar heitir Strokubörnin og
er 147 blaðsíður að stærð, prýdd
allmörgum myndum. Torfi Jóns
son teiknaði kápu. Höfundur
segir í formál, að saga þessi sé
skrifuð eftir samnefndu útvarps
leikriti, sem leikið var í barna-
tíma útvarpsins. Margir hafa
— Hrabritunarb.
• Framhald af bls. 12
félags Norðurlands vestra boðaði
í samráði við Valgarð Haralds-
son, námstjóra til aðalfundar fé-
lagsins og námskeiðs í Höfða-
kaupstað dagana 14. — 16. okt.
s.l.
Páll Jónsson fyrrv. skólastjóri
setti námskeiðið föstudaginn 14.
okt. kl. 14.30. Bauð hann fund-
armenn velkomna og þó sérstak-
lega þá Valgarð Haraldsson,
námstjóra og Sigurþór Þorgils-
son, kennara úr Reykjavík, en
hann var leiðbeinandi á mótinu.
Kynnir hann þar undirbúning
og grundvallaratriði starfrænna
kennsluaðferða eftir því, sem
tími vannst til. Hvatti Sigurþór
kennara til að taka þegar á þess-
um vetri upp slíkar kennsluað-
ferðir að einhverju leyti.
Námskeiðið sóttu 26 kennarar
af Norðurlandskjörsvæði vestra.
Kl. 18.00 á laugardag (15. okt.)
flutti Valgarður Haraldsson, nám
stjóri erindi um skólamál. Ræddi
hann nokkuð um próf og nám
barna, taldi hann ekki æskilegt
að fella niður heimanám barna
hér m. a. vegna þess hve skóla-
tími er hér stuttur í mörgum
skólum. Hann vonast eftir góðu
samstarfi milli kennara og hinn-
ar nýstofnuðu skólamálanefndar.
Aðalfundur Kennarafélagsins
var haldinn á laugardaginn kl.
20.30. Auk venjulegra aðalfund-
arstarfa vou samþykkta tillögur
um áskorun á Menntamálaráðu-
neytið að láta semja og gefa út
stutta handbók í háttvísi og holl-
um umgengnisvenjum. Þá var
skorað á yfirstjórn fræðslumál-
anna að hlutast til um, að ráð-
inn verði sem fyrst sérlærður
maður til að annast sálfræðiþjón-
ustu við skóla í Norðurlands-
kjördæmi vestra, og ennfremur
að hraða sem mest byggingu
heimavistarskóla og sameiningu
fámennra skólahéraða í stærri
heildir.
* Loks var skorað á stjórn S.Í.B.
að láta birta , 1 Menntamálum
hvað fólgið er í lið þeim á launa-
miða kennara, sem nefnist annar
frádráttur. Páll Jónsson fyrrver-
andi skólastjóri var kjörinn
heiðursfélagi kennarafélgasins.
Stjórn félagsins skipa nú:
Garðar Jónsson, skólastj. Hofsósi,
Pála Pálsdóttir, kennari, Hofósi
og Svavar Jónsson, skólastjóri
Sólgörðum.
Námskeiðið stóð í þrjá daga
og lauk með kaffisamsæti, sem
hreppsnefnd Höfðakaupstaðar
bauð til.
Barna- og unglingaskólinn í
Höfðakaupstað var settur 6. okt.
Sama kennaralið er við skólana
og s.L skólaár, að því breyttu,
að Páll Jónsson, sem verið hetfur
skólastjóri við skólann frá stofn-
un 1939 lét nú af skólastjórn, en
við tók Jón Pálsson, sem verið
hefur kennari við unglingaskoÞ
ann nú undanfarið. í skólunum
oru nú 70 börn og 50 unglingar
á þrem bekkjum gagnfræðastigs-
ias. Kennarar við skólana eru 5
«g stundakennarar.
láta leikritið koma út í sögu-
formi, og hefur hún nú leitast
við að verða við þeirri ósk. Áð-
ur hefur Hugrún sent frá sér
6 barna- og unglingabækur. Off-
setprent prentaði en bókbindar-
inn hf. batt inn Týndur á Ör-
æfum nefnist bók Eiríks Sig-
urðssonar. Hún er 127 blaðsíð-
ur að stærð prýdd mörgum
myndum eftir Ragnheiði Ólafs-
dóttur. Bók þessi er tileinkuð
Sambandi dýraverndunarfélaga
á íslandi. Sömu aðilar sáu um
prentun og bókband og á bók
Hugrúnar. Bókin fjallar um
Palla og klárinn Rauð, sem voru
miklir vinir. Rauður hverfur og
Palli leitar hans sumarlangt og
finnur hann síðar í eyðidal. Bók
Eiríks er einkanlega ætluð
börnum og unglingum 10-14 ára
að aldri.
Síðasta barnabók Fróða er
Lotta í Ólátagötu eftir Astrid
Lindgren, en íslenzkuð eftir Ei-
rík Sigurðsson. Fjölmargar mynd
ir prýða bókina eftir Ilon Wik-
land. Bókin fjallar um Lottu
fimm ára, sem vaknar einn morg
un í mjög vondu skapi, hafði
dreymt illa, og er reið út í allt
og alla. Önnur bók um Lottu
er til á íslenzku, sem heitir
Börnin í Ólátagötu. Bókin er
72 blaðsíður að stærð og prent-
uð í Offsetprent.
Fjórða bók Fróða er bók eftir
danska háðfuglinn Willy, Brein-
holst og heitir Kysstu konuna
þína. Eiginmannagaman, , og
prýdd fjölmörgum skemmtileg-
um myndum eftir Léon. Andrés
Kristjánsson snéri bókinni frjáls
lega á íslenzka tungu. Bókin er
prentuð í prentsmiðjunni Eddu,
og er bókin 139 blaðsíður að
stærð. Segir á kápusíðu bókar-
innar, að Kysstu konuna þína
sé ólík öllum öðrum bókum.
Þetta er tómstundaiðjufræði
eiginmannsins, en efnið er tekið
sérstæðum tökum. Kápa bókar-
innar er all sérstæð.
Fimmta bók Fróða heitir Leið
in mín eftir norska biskupinn
Kristian Schjelderup, sem mörg j
Hugrún skáldkona.
um íslendingum er að góðu
kunnur, en hingað var honum
boðið fyrir allmörgum árum.
Asmundur Guðmundsson fyrr-
um biskup íslenzkaði bókina,
sem er 206 blaðsíður að stærð,
prentuð í Offsetprent hf. Torfi
Jónsson teiknaði kápu. Höfund-
ur segir í formála, að bók þessi
sé mjög persónuleg. Henni sé
hvorki ætlað að vera vísindarit
né bókmenntaafrek, heldur
fram rétt vinarhönd til með-
bræðra á erfiðum tímum.
Á kápusíðu bókarinnar segir
um höfundinn, að hann hafi far-
ið víða og sé gáfaður og fjöl-
menntaður. Á stríðsárunum var
hann um hríð fangi á Grini og
flutti fagnaðarerindi Krists með
al fanganna. Skömmu síðar varð
hann biskup í Hamarsstifti
Sjötta og síðasta bók Fróða er
bókin Framsýni og forspár Je-
ane Dixon. Ruth Montgómery
segir frá. Sveinn Víkingur ís-
lenzkaði. Bókin er 188 blaðsíð-
ur að stærð, prentuð í Offset-
prenti, og kápu teiknaði Torfi
Jónsson. Frú Jeane Dixon hefur
vakið athygli víða um heim
vegna dulhæfileika sinna. Und-
anfarið hafa forspár hennar birzt
árlega í blöðum Bandaríkjanna,
og þótt rætast ræiklega. Meðal
annars er sagt, að hún hafi séð
fyrir morð Kennedys forseta, og
gerði ítrekaðar tilraunir til að
koma í veg fyrir ferð hans til
Dallas. Mynd af höfundinum er
á kápusíðu bókarinnar.
Bæjorstjóin Hainarijorðar biðni
um stuðning við Norðurstjörnunu
Mbl. barst í gær svohljóð-
'andi frét frá bæjarstjórn
Hafnarfjarðar:
I TIiLEíFNI af viðræðum stjórnar
formanns „Norðurstjörnunnar“
h.f. við bæjarráð hinn 14. þ.m.
og í framhaldi af aðgerðum bæj
arstjórnar, samþykkir bæjar-
stjórn eftirfarandi:
„Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tel
ur að með stofnun niðursuðu-
verksmiðju „Norðurstjörnunnar-1
h.f., hafi þeir einstaklingar og
lánastofnanir, er stóðu að henni,
hrundið í framkvæmd merkri til-
raun til fullnýtingar sjávarafla,
en nauðsyn slíks hefur mjög ver
ið á lofti haldið og hlotið al-
menna viðurkenningu. óhagstæð
verðlagsþróun ásamt ýmsum
byrjunarerfiðleikum, hafa valdið
þessu fyrirtæki miklum fjárhags
örðuglei’kum og leitt til reksturs
stöðvunar um sinn.
Með því hinsvegar að snúizt
hefur til betri vegar um rekst-
ursskilyrði fyrirtækisins, sölu-
verð framleiðsluvara hækkað á
erlendum markaði, afkastageta
verið aukin og lagður grundvöll-
ur að aukinni hagkvæmni í
rekstri, lítur bæjarstjórn það
mjög alvarlegum augum, hvort
heldur frá almennu sjónarmiði
eða að því er varðar atvinnuhorf
ur í bænum, einkum fyrir kven-
fólk, ef þessi merka og að mörgu
leyti vel grundvallaða tilraun
yrði hér með lokið, svo sem allt
útlit er fyrir, og verksmiðjan
leyst upp, ef til vill einvörðungu
vegna stundarerfiðleika. Fyrir
því skorar bæjarstjórn á hið háa
Alþingi og ríkisstjórn að egra
þegar í stað tiltækar ráðstafanir
svo að til slíkra aðgerða þurfi
eigi að koma fyrr en þá að feng-
inni nokkuð lengri reynslu. —
Verði fyrirtækinu veittur nokk-
ur rekstursstuðningur í þessu
augnamiði, svo sem nú á sér stað
um suma aðra þætti atvinnulífs-
ins, sem þó hafa að baki lengri
þróun. Telur bæjarstjórn slíkt
þvi meiri nauðsyn þar sem fyrir-
tækið er búið fullkomnustu tækj
um til framleiðslunnar, hefur
fyrir hana öruggan erlendan
markað og margt bendir til þess
að fyrirtækið geti átt fyllsta til
verurétt og trygga framtíð ef því
yrði komið til hjálpar til þess að
komast yfir þá byrjunarerfið-
leika, sem nú ógna frekari tilveru
þess.“
Stefán Jónsson (sign.),
Árni Gunnlaugsson
(sign).
Hörður Zóphaníasson,
(sign.)
Áttræðis-
afmæli
ÁTTATÍU ára er í dag, frú Þór-
halla Jónsdóttir, Hamarsstíg 33,
Akureyri, ekkja Konráðs Vil-
hjálmssonar, kennara og fræði-
manns.
Saigon, 23. nóv. — NTB
BANDARÍKJAMENN misstu í
dag 27. flugvélina, síðan átökin
í Vietnam hófust. Var sú flug-
vél skotin niður nærri hafnar-
borginni Haiphong, í N-Viet-
nam.
Þriggja manna áhafnar er
saknað. Þetta er þriðja banda-
ríska flugvélin, sem skotin er
niður yfir Vietnam á 11 dögum.
Leiðrétting
í FRÉTT um útgáfubækur Al-
menna bókafélagsins á þessu
hausti hér í blaðinu, laugardag-
inn 19. þ. m., var það ranghermt
að bókin „Þorsteinn Gíslason,
skáldskapur og stjórnmál“, komi
út í janúar nk. Bókin kemur út
nú innan fárra daga. í henni
birtast ljó'ð og ýmsar greinar eft-
ir Þorstein Gíslason og í heild
er prentuð stjórnmálasaga Is-
lands 1896—1918.
ATHUGIÐ
Þegar miðað er við útbreiðslu,
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
JÖMBÓ
Teiknari; J. M O R A
Spori er ennþá mjög æstur. Honum varð
mikið um heimsókn þjófsins og ekki var
gott að rekast á hurðina. En hvernig get-
ur Júmbó verið viss um að þjófurinn var
á eftir honum og vinum hans? — Auð-
vitað getur það hafa verið tilviljun, segir
Júmbó .. .
— . . . en líklegt þykir mér að Álfur og
þorpararnir séu á hælunum á okkur. Þeir
hafa ekki enn gefið upp vonina um að fá
fjársjóðinn í sínar hendur. — Ósköp er
fólk ágjarnt, tautar skipstjórinn.
— En nú langar mig til að fara að sofa,
segir hann og slekkur ljósið. — Ef fleiri
JAMES BOND
James
-X—■
—X-
þjófar skyldu birtast, þá vekur þú tnic,
Júmbó. — Ég skal sjá fyrir því. — Eftir
flugferðina í gegnum gluggann kemur vin
ur okkar, þjófurinn, ekki aftur, segir
Júmbó og býður góða nótt.
Eítii 1AN FLEMING
Hraðlesiin með lik Spang’s innanborðs stakkst fram af hUoarteinunum niður í
fjallshlíðina.
Við skuium fara héðan, James!