Morgunblaðið - 02.12.1966, Qupperneq 2
2
MORCr>"*' **%IÐ
Föstudagur 2. des. 1966
Biskup íslands í
opinbera heimsókn
til ensku biskupakirkjunnar
BISKUPINN yflr íslandi, Sigur-
björn Einarsson, bemur til Lond-
on 5. desember í opinbera heim-
■ókn til Ensku biskupakirkjunn-
«r, símar AP-fréttastofan til Mbl.
Mun biskup íslands dvelja í
▼ikutíma í Englandi, fyrrstu tvo
messu I St. Dunstan I London
og hinn kirkjulegi Mikean-
klúbbur mun hafa móttöfcu fyrir
hann í Lambeth höll. Einnig mun
biskupinn flytja fyrirlestur í
Nottingham háskóla.
Viðleitni til nánari tengsla
XÆbl. hafði samband við biskup,
seim staðfesti að hann vaeri á
förum til Englands á laugardag-
inn ásamt konu sinni. l>að væri
nokfcuð langt síðan hann hefði
þegið þetta boð. En það er í
fyrsta skipti sem íslenzka kirkj-
an þiggur opinbert boð af þessu
tagi til Englands. Er það liður
í viðleitni til nánari tengsla
landa og kirkna i milli, sagði
biskup. Enska kirkjan hafði full-
trúa hér við biskupsvígslu hans
fyrir 7 árum, og var það full-
trúi erkibiskups af Cantaraborg.
I>á sagði biskup að hann mundi
í ferðinni ' heimsækja brezka
Biblíufélagið, en íslenzka Biblíu-
félagið hefur haft mikil viðskipti
við það biblíufélag. Að öðru
leyti væri skýrt frá áætlun heim-
sóknarinnar í ofannefndu skeyti.
„Síldin varð sem heljar-
mikið bjarg í nótinni"
Rætt við skipstjórann á Rerki MK.
Neskaupstað 1. desember.
EINS og skýrt var frá í Mbl.
í gær var síldarskipið Börkur
frá Neskaupstað hætt komið
aðfaranótt miðvikudags vegna
geysistórs kasts, sem það fékk
50 sjómílur ASA af GerpL
Fréttaritari Mbl. í Neskaup-
stað Ásgeir Lárusson átti í
gær samtal við skipstjórann
á Berki, Sigurjón Valdimars-
son, sem er kunnur aflamaður
og bað hann að skýra frá
þessum atburði.
— Við fórum út frá Nes-
kaupstað fyrr um kvöldið og
köstuðum fyrst kl. 1 um nótit-
ina og fengum um 50 lestir.
Nokkru seinna köstuðum við
aftur og fengum þá geysistórt
kast. Veður á þessum slóð-
um var þá sæmilegt og okkur
gekk greiðlega að draga nót-
ina inn. Við byrjuðum síðan
að dæla síldinni um borð og
eftir 45 mínútur voru komin
um 280 lestir í lest skipsins,
en þá dundu ósköpin yfir.
— Hvað heldurðu að hafi
verið mikið eftir í nótinni?
— Það er efcki auðvelt að
segja nákvæmlega fyrir um
það, en ég gizka á að það hafi
verið um 300—400 tonn, ég
hef aldrei séð jafnmikið magn
af síld í nót áður.
— Hvað var það sem skeði?
— Við getum ekki séð
neina skýringu, en að síldin
hafi drepizt svona snögglega
í nótinni, því að eins og ég
sagði áðan, höfðum við dælt
um 230 tonnum um borð, þeg-
ar síldin lagðist snögglega í
nótina og samstundis hallaðist
skipið mikið í stjór.
— Þetta hefur allt skeð á
svipstundu?
— Já, það var eins og síid-
in væri orðin að heljarmifclu
bjargi. Við hættum strax að
dæla og lokuðum lúgunni sem
opin var og hvalbaknum og
síðan setti ég á fulla ferð
áfram og beygði hart í stjór,
til þess að reyna að keyra
skipið upp og lét jafnframt
skera nótina af síðunni. Þetta
dugði ekkert og því var ekki
um annað að gera en að láta
skera nótina úr blökkinni.
Þið hafið þá séð á eftir
500—600 þúsund króna verð-
mæti í hafið?
— Já, það var eins og ég
sagði áðan ekkert annað úr-
ræði og við þetta rétti skipið
sig strax aftur, en nótarpok-
inn sökfc eins og steinn. Það
má segja að þetta hafi allt
gengið giftusamlega, enda
gerðum við það eina sem
hægt var að gera við slíkar
aðstæður, en ég vil endurtafca
að síldarmagnið í nótinni var
gífurlega mikið.
Sigurbjörn Einarsson
dagana sem gestur erkibiskups-
ins af Cantaraborg, sr. Michaels
Ramseyis, í Lambth höll. Á mið-
vikudag og fimmtudag munu sr.
Sigurbjörn og kona hans dvelja
hjá biskupnum í Birminglham,
dr. Leonard Wilson og það sem
eftir er af vifcunni hjá Savage
biskupi í Sauthwell.
Þetta er í fyrsta skipti sem
biskup íslánds kemur í heimsókn
til Englands, þó hann hafi komið
til Cambridge til náms við há-
skólann áður en hann gerðist
prófessor í samstæðilegri og
kennimannlegri guðfræði við
Háskóla íslands, segir í skeytinu.
Meðan sr. Sigurbjörn Einars-
*on dvelst í London, mun hann
predika við sérstaka hádegis-
Listi framsóknar
á Suðurlandi
TÍMINN hefur birt lista Fram-
■óknarflokksins við alþingiskosn
ingarnar í sumar. Eru fimm efstu
menn listans: Ágúst Þorvaldsson,
bóndi á Brúnastöðum, Björn Fr.
Björnsson, sýslumaður á Hvols-
velli, Helgi Bergs, verkfræðingur
í Reykjavík, Sigurgeir Kristjáns
son, lögregluvarðstjóri í Vest-
mannaeyjum og Mattlhías Ingi-
bergsson, lyfsali á SelfossL
Nýr fundur um Loftleiða-
málið fyrirhugaður í Höfn
Einkaskeyti til Mbl.
frá Kaupmannahöfn, 1. des.
Á FUNDI forsætis- og utan-
ríkisráðherra Norðurlandanna í
Kaupmannahöfn var ákveðið, að
hinni nýi danski samgöngumála
ráðherra, Svend Horn, beiti sér
fyrir því, að haldin verði í Kaup
mannahöfn ný ráðstefna um ósk
ir Loftleiða um að nota RR-400
flugvélar sínar á flugieiðinni um
Norðurlönd.
fram og fylgdust íslendingar af
áhuga og ánægju með þeirri
stefnu, sem málið nú hefði tek-
ið. Taldi forsætisráðherrann að
líta yrði með athygli og áhuga
á þá möguleika, sem þessi nýja
fyrirhugaða ráðstefna samgöngu
málaráðherranna hefði í för með
sér.
Jens Otto Krag, forsætisráð-
herra Danmerkur, sagði, að hann
vonaði, að sem fyrst yrði fund-
Á ráðstefnu þessari er gert ráð in lausn á þessu vandamáli.
fyrir, að samgöngumálaráðherrar
og embættismenn frá Noregi,
Danmörku, Sviþjóð og íslandi
reyni að leysa deiluna um far-
gjöldin — á þeirri forsendu, að
sé það vandamál leyst, leysist
önnur deilumál sjálfkrafa.
Frá því fulltrúar íslendinga
og hinna Norðurlandanna rædd-
ust við síðast, hafa viðhorfin í
þessum efnum breytzt nokkuð
þar sem bandaríska flugfélagið,
Pan American, hefur haft for-
göngu um ný og langtum lægri
fargjöld á flugleiðinni yfir Norð-
ur-Atlantshaf en til þessa hefur
tíðkazt. Vegna samkeppninnar
hefur SAS talið nauðsynlegt að
gera slíkt hið sama — en far-
gjöld þessi gilda þó aðeins fyrir
sérstakar hópferðir.
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra, sagði á blaðamanna-
fundi, sem haldinn var að lokn-
um ráðherrafundinum í dag, að
þar hefði komið margt nýtt
Skaffárhlaupið
• •
m§og i renun
Hægt oð komast nyrðri veginn austur
FLÓÐIÐ er niú minnkandi í
Skaftá. Þó er mikið vatn í henni
enn, að því er fréttaritari blaðs-
ins á Síðu sagði í gær. Viröist
hlaupið í ánni búið. Er því aift-
ur farið að flytja mjólkina að
eustan, en snjólaust er að kalla
austan við Vík og allir vegir
íærir þess vegna.
Brúarskemmdir urðu á vegin-
um vegna flóðanna. Á gömlu leið
inni austur, þ. e. á nyrðri vegin-
um, tók af gamla brú, en niú
er búið að lagfæra að henni og
komast stórir bílar yfir farveg-
inn. Hin brúin á þeirri leið er
í lagi Aftur á móti er syðri
leiðin alveg lokuð vegna þess að
nýju brúna þar tóík a£ í flóð-
unutn.
Markaðsmálin.
Meðal umræðuefna á fundum
forsætis- og utanríkisráðherr-
anna og forsætisnefndar Norður
landaráðs var fyrirhugað þing
Norðurlandaráðs í Helsingfors.
Þar verða markaðsmálin aðal-
umræðuefni. Á blaðamannafund
inum í dag spurði einn blaða-
mannanna Bjarna Benediktsson
um afstöðu íslendinga til Frí-
verzlunarsvæðisins — EFTA og
svaraði hann því til, að EFTA
fjallaði ekki að neinu verulegu
leyti um fiskimál — og því væri
áhugi íslendinga ekki sérlega
mikill. Hinsvegar kvaðst forsætis
ráðherrann ekki geta sagt til um
það hvort íslendingar fengju síð
ar meir áhuga á einhvers konar
tengzlum við EFTA.
Á fundunum í dag var einnig
rætt um fund þann, sem stjórn
Englands hefur boðið til í Lond
on, vegna hugsanlegra samninga-
viðræðna Breta við Efnahags-
bandalag Evrópu. Krag, forsætis
ráðherra Dana, lagði á það á-
herzlu, að norrænu forsætisráð-
Háskóla-
fyrirlestur
ÞÓRHALLUR Vilmundarson pró
fessor flytur fjórða og síðasta
fyrirlestur sinn um náttúrunafna
kenninguna í hátíðasal Háskóla
íslands sunnudaginn 4. desember
kl. 2.30 e.h. Fyrirlesturinn nefn-
er heimill aðgangur.
ist: Bárður minn á JöklL Öllurn
herrarnir væru á einu máli um
að leitast við í framtíðinni að
varðveita og efla samvinnu
Norðurlandaþjóðanna á sviði við
skipta- og efnahagsmála.
Auk markaðs- og tollamála
mun þing Norðurlandaráðs í vet
ur ræða um samræmingu skóla-
löggjafa Norðurlanda, samvinnu
Norðurlanda í sjónvarpsmálum,
samræmingu á hjúskaparlögum,
sameiginlega stefnu varðandi
leiguflug og samvinnu á sviði vís
indarannsókna.
— Rytgaard.
nesi í kvöld
LEIKFÉLAG Borgamess fmm-
sýnir í kvöld gaman-söngleik-
inn Deleríum Búbónis eftir bræð
uma Jónas og Jón Múla Áma-
syni í Samkomuhúsinu í Borgar-
nesi. Leikstjóri er Jónas Áma-
son, og fer hann einnig með eitt
hlutverkanna .Var leikur þessi
sýndur í Reykjavík fyrir nokkr-
um árum við met-aðsókn.
Uppselt var á frumsýninguna
i gær og langt komið sölu að-
göngumiða að annari sýningu,
sem er á sunnudag.
Vegna jólaanna leikenda verð-
ur sýningarfjöldi takmarkaður,
og ekki er gert ráð fyrir því að
ferðast með leikinn til nærliggj-
andi sveita.
Drengur lærbrotna&i
stúlka skrámaðist
í FYRRAKVÖLD um kl. 20 varð
það slys á móts við húsið nr. 178
við Laugaveg, að ekið var á 17
ára gamla stúlku, Erlu Guðjóns-
dóttur til heimilis að Hrauni við
Kringlumýrarveg. Dróst hún
með bifreiðinni út fyrir götuna,
en mun ekki hafa slasazt veru-
lega.
Slys þetta varð með þeim
hætti, að tvær bifreiðar voru á
leið inn Laugaveg á sitt hvorri
akrein. Sú bifreið, sem var á
hægri akrein var aðeins rétt á
eftir hinni, en er kom að biðstöð
strætisvagna, var strætisvagn að
fara af stað og hélt bifreiðar-
stjórinn aftari bifreiðarinnar, að
fremri bifreiðin hefði stöðvazt
vegna þess og ók hann því áfram
á lítilli ferð.
Er fremri bifreiðin hafði
stöðvazt hljóp stúlkan í veg
fyrir bifreiðirnar og reyndi bif-
reiðarstjórinn á bifreiðinni, sem
verið hafði aftar að reyna að
forðast árekstur með því að
sveigja aftur fyrir konuna, en
þá sneri hún við og lenti fyrir
bifreiðinni og dróst með henni.
Lá hún undir bifreiðinni fram-
anverðri og voru fætur hennar
á milli hjólanna. Mun hún hafa
náð taki á höggdeyfi bifreiðar-
innar. Hún skrámaðist á fótum
og í andliti, og var flutt á slysa-
varðstofuna.
I gærdag um kl. 11.35 varð
fjögra ára gamall drengur, er
var á þríhjóli og kom niður Há-
braut í Kópavogi fyrir b;f-eið,
er kom akandi austur Kársnes-
braut. Lærbrotnaði drengurinn.
Slysið varð með þeim hætti,
að drengurinn kom niður Há-
braut sem er brött gata, en bif-
reiðin var í þann mund að beygja
upp Hábrautina, og var á litilli
ferð. Hjólaði drengurinn á hægra
afturhjól bifreiðarinnar, sem var
stór áætlunarvagn.
Lögreglunni í Kópavogi var
ekki gert aðvart um slysið og
frétti hún ekki af því, fyrr ea
slökkviliðið í Reykjavík sagði
henni frá því, að hún hefði flutt
drenginn af slysavarðstofunni á
sjúkrahús. Vill lögreglan taka
það fram að tilkynna ber þegar
í stað öll slys, er verða, og sé
viðkomandi slasaður má ekki
hreyfa við honum fyrr en sjúkra
lið kemur á vettvang.