Morgunblaðið - 02.12.1966, Side 5
Föstudagur 2. des. 1968
MORGUNBLAÐIÐ
5
AÐ venju gengust stúdentar
eldri og yngri fyrir marg-
háttuðum hátíðaiiöldum í til-
efni fullveldisdagsins sem var
í gær. Hófust hátíðahöld
þeirra með guðsþjónustu í há
skólakapellunni í gærmorgun
en þar prédikaði Halldór
Gunnarsson stúd. theol. Kl.
2 hófst svo fuUveldissam-
koma í hátíðasal Háskólans
með því að Sigurður Björns-
son stud. med. setti hátíðina.
Síðan lék Anna Áslaug Bagn-
arsdóttir stud philol. á píanó
og Böðvar Guðmundsson
stud. mag. las upp frumort
ljóð. Síðan flutti séra Þor-
grímur Sigurðsson prófastur
að Staðarstað ræðu dagsins er
nefndist: Andlegt sjálfstæði.
Að lokum söng svo stúdenta-
kórinn 5 lög undir stjórn Jóns
Þórarinssonar.
Þá gekkst StúdentaPélag
Reykjavíkur fyrir veizlufagn-
Frá samkomu í hátíðarsal Háskólans í gær.
Andlegt sjálfstæði -
frá hátiðahöldum stúdenta 1. desember
aði í fyrrakvöld. Þar fllu>tti
Bai'ði Friðriksson lögfræðing-
ur ávarp, stúdentakórinn söng
og Ómar Ragnarsson fór með
gamanmál. Einnig annaðist
Stúdentaflélagið dagskrá í Riík
isútvarpinu í gærkvöld og
JUutti þar Birgir ísl. Gunnars-
son lögfræðingur ávarp, en
síðan flutti Þór Villhjálmsson
borgardómari ræðu er hann
nefndi: Lýðræði á íslandi. —
Ennfremur var úitvarpað frá
veizlufagnaði flélagsins kvöld-
ið áður. Þá efndu stúdentar
er stóðu að B-lista við kosn-
ingar í Stúdentafélag Háskól-
ans til samkomu í Þjóðleiklhús
kjallaranum og voru þar flutt
ávörp, Hjörtur Pálsson og
Böðvar Guðmundsson lásu
frumort Ijóð, Heimir Pálsson
og Kristinn Jóíhannesson
sungu Glúnta og sfðast var
fluttur nýr leikjþáttur eftir
Magniús Jónsson stúd. pihilol.
sem nefndist: Eg er afi minn.
Þá kom ennflremur s'túdenta
blaðið út, fjöibreytt að efni.
Meðal Iþeirra er það rituðu að
þessu sinni vonu Ármann
Snævarr háskólarektor, Sig-
urður A. Magnússon .Böðvar
Guðmundsson, Eri'k Siemen-
sen ,Björn Teitsson, Vésteinn
Ólafsson, Eggert Hanksson
og Jón Þ. Þór.
Eins og áður segir flutti
séra Þorgriímur Sigurðsson
prófas'tur aðalrœðuna á Há-
skólalhátíðinni í gær, og neflnd
Lst ræðan: Andlegt sjálfstæði.
Ræddi sér Þorgrímur m.a.
um efnahagslega uppbygg-
ingu landsins og sagði hana
hafa hafizt stirax og fulLveldið
var fengið, þó að sumurn fynd
ist sem hún öll hefði skeð eft-
ir síðara stríð. Því væri reynd
ar ekki að neita, að sl. 20 ár
hef'U verið mestu velgengis-
ár þjóðarinar hvað hið ytra
áhrærði og ótrúlega miklu
hefði verið komið til leiðar.
En samhliða uppbyggingunni
hefði hafizt kapphlaiup um
lífsþægindi og kröfiur á þjóð-
félagið. Prósentuxeikningur
og þríliða væri nú notað til
þess að sýna mönnum hvað
til þeirra friðar heyrði. Sagt
hefði verið, að enginn gæti
orðið andlega sjálfstæður,
sem væri öðrum háður efna-
hagslegaog mætti því draga
þá ályktun að andleg reisn
ætti að vaxa í hlutfalli við
efnahagslega viðreisn. Svo
væri þó ekki hérlendis og
kæmi berlega í ljós, að menn
væru háðir fleiru en fátækt
sinni, og mætti til nefna
valdadrauma, erlenda tíziku,
flökkaskiptingu og stóra bróð
ur hvort sem hann væri að
finna í austri eða vestrL
Taldi séra Þorgrímur flokks-
aga of mikinn hérlendis því
að svo virtist svo það kæmi
aldrei fyrir að opinberlega
væri ræddur ágreiningur
sem upp kæmi í stjórnmála-
flokkunum. Að lokum vék
séra Þorgrímur að erlendri
hersetu í landinu og sagði að
þjóðin hefði ekki verið spurð
hvað hún vildi í því máli.
Það mæti segja, að það sam-
ræmdist ekki andlegu sjálf-
stæði hennar þó að enginn
þingflokkur hefði treyzt sér
til að afnema það jafnvel þó
að þeir hefðu haldið því á
lofti fyrir kosningar að þeir
mundu láta verða af fram-
kvæmdum yrði (þeim veitt
brautargengi. Minntist hann
einnig á afstöðu íslands á
þingi Sameinuðu þjóðanna
þegar rætt var um aðild Kína
að samtökunum og vitnaði
í samþykkt sem gerð var í
stjórnarnefnd alkirkjuráðsins
í Genf í febr. sl., en þar segir
m.a. að gera skuli allt sem
unnt sé til þess að þær 700
milljónir Kínverja sem nú
eru í Kínverska alþýðulýð-
veldinu fái aðgang að Sam-
einuðu þjóðunum svo að
stjórn þess beri sinn hluta
ábyrgðarinnar.
Þór Vilhjálmsson borgar-
dómari flutti svo í gærkvöldi
útvarpserindi á vegum Stúd-
entafélags Reýkjavíkur og
nefndi hann erindið: Lýðræði
á íslandi.
Frumvarp um höfunda-
greiðslur á þessu þingi
DR. GYLFI Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra skýrði Mbl. frá þvi
í gær að frumvarp um greiðslu
til rithöfunda vegna vegna út-
lána bóka úr bókasöfnum ríkis-
tais væri til athugunar hjá ríkis-
stjórninni og yrði það flutt á
þessu þingi, sem nú situr. Ekki
kvaðst dr. Gylfi geta sagt hvem-
ig greiðslurnar yrðu fram-
kvæmdar, því að enn hefur ekki
verið tekin um það ákvörðun.
1 þessu sambandi má geta þess
Hóf Þór mál sitt með því
að rekja nokkur atriði úr
söðu lýðræðis á fslandi. Sagði
að það ætti hér stutta sögu,
en það væri trúa sín að sú
skamma saga væri aðeins
upphaf samfelldrar þróunar
um ófyrirsjáanlega framtíð
og að öll líkindi væru fyrir
því, að íslenzkt lýðræði
mundi taka breytingum hér
eftir sem hingað til.
Síðan sagði Þór m.a. að ef
talað væri um lýðræði sem
aðferð við að taka ákvörðun
um málefni þjóðfélagsins,
sera stjórnarfyrirkomulag,
þar sem flestir borgarar ráða
sem mestu um þjóðonálin, leið
ir af því, að lýðræðið getur
lengi batnað, það er mismik-
ið, misþróað og nær sennilega
aldrei því stigi að geta kallazt
fullkomið. Svo er þessu einnig
farið í okkur landi. Við skul
um ékiki efast um, að stjórnar
hættir okkar séu ómetanleg
trygging þess, að hér verði
vel stjórnað, ef fólkið vill, en
ekki heldur loka augunum
fyrir því, sem í mínum aug-
um er augljóst, að lýðræðið
má lengi bæta, líka á íslandi.
Við og við heyrðust á opin-
berum vettvangi tillögur um
breytingar á stjórnarháttum,
sem segja má, að varði bein-
línis lýðræðið í landinu. Vék
Þór síðan nokkuð að breyt-
ingum sem gerðar voru á
kjördæinaskipan 1942 og 1959,
og vék síðan að öðru atriði
sem lýðræðið varðar og hann
sagði að hefði nokkuð verið
til umræðu, en það væri þjóð
aratkvæðagreiðslu. Gerð hefði
varið tillaga um þjóðarat-
kvæði um aðild íslands að At
lantshafsbandalaginu 1949 og
álsamningunum á sl. vetri. í
hvorugt skiptið hefði tillaga
um þjóðaratkvæði verið sam
þykkt á Alþingi. Hinsvegar
hefðu verið greidd þjóðarat-
kvæði Um t.d. sambandslögin
1918, niðurfellingu sambands-
lagsins og lýðveldisstjórnar-
skránna 1944. Ef unnt væri að
draga nokkrar almennar álykt
anir af því, sem fram hefði
komið á síðustu árum um
þetta efni, virtist helzt mega
ætla, að talsverð andstaða
væri gegn þjóðaratkvæða-
greiðslum, en stuðningur við
þær nokkuð óviss.
Þór sagði, að sér virtist að
það væri lýðræðislegra að
greiða úr málum með þjóðar
atkvæðagreiðslu, en með á-
kvörðun kjörinna fulltrúa og
að æskilegt væri að ákvæði
hér að lútandi væru sett á ís-
landi. Hins vegar væri þess að
geta, að slíkar þjóðaratkvæða
greiðslur væru óframkvæman
legar nema um stórmál væri
að ræða. Sjálfsagt væri það
umdeilanlegt, en frá sínu
sjónarmiði væri það svo, að
þjóðaratkvæðagreiðlsla um
sjónvarpið á Keflavíkurflug
velli væri eðlilegri en t.d.
um álsamninginn, og stafaði
það af því, að álmálið væri
pólitískara og meira í hinum
venjulega verkahring Alþing-
ismanna en sjónvarpsmálið.
Væri því líklegt, að svipuð
sjónarmið mundu ráða í al-
mennum þingkosningum og í
atkvæðagreiðslu um álmálið,
en óvíst að svo mundi verða í
atkvæðagreiðslu um sjónvarps
málið.
Þór ræddi síðan efnahags-
málin í tengslum við lýðræði
og sagði að það hefði verið
reynsla hér að um ráðstaf-
anir er gerðar hefðu verið á
Alþingi í efnahagsmálum
hefðu yfirleitt leitt af sér á-
tök, sem lyktað hefði með
ýmsum hætti, en í þeim hefði
glögglega komið fram, að að-
staða til að framkvæma á-
kvarðanir sem Alþingi hefði
tekið væri oft hvergi nærri
góð. Þannig hefði aðilum,
sem væru ákvörðunum and-
vlgir, oft tekizt að eyða áhrif
um dýrtíðarráðstafana sem
gerðar hefðu verið eftir á-
kvörðun Alþingis. Með breyttu
stjórnarfyrirkomulagi ætti að
vera hægt að koma í veg
fyrir áframhald þessarar þró-
unar, og tryggja að ákvarð-
anir sem teknar væru í efna
hagsmálum yrðu framkvæmd-
ar. Liklegasta aðferðin til að
gera slíkt mögulegt væri sú
að treysta ríkisvaldið, tryggja,
að lög um efnahagsmál, sem
samþykkt væru á Alþingi
yrðu framkvæmd, hvort sem
t.d. launþegasamtökunum,
vinnurekendasamtökunum,
einstökum stjórnmálaflokkum
eða öðrum aðilum geðjaðist
að þeim eða ekki. Til þess að
slíkt gæti þó gerzt þyrfti
hvort tveggja að koma til, til-
lit meirihlutans til minnihlut
ans og hollustu minnihlutans
við þióðarheildina, skilning-
ur á því, að aðstöðu sína
mætti haann ekki nota til að
koma í veg fyrir að stjórnað
væri eftir þeim meginsjónar-
miðum, sem meirihlutinn
hefði fengið umboð til í kosn
ingum. Sagði Þór það sitt á-
lit, að hér á landi hefði stjórn
arandstaðan um langt skeið
gengið of langt í því að ónýta
aðgerðir, sem meirihluti Al-
þingis hefði tekið og að æski
legt væri að á því yrði breyt-
ing, sem bæði myndi styrkja
þjóðfélagið og efla lýðræðið.
mgi
em
at- 4
að í The Sunday Times hinn 20.
nóvember sl. birtist grein, sem
fjallar um tillögu, sem hefur
verið til umræðu innan brezika
rithöfundasambandsins þess efn-
is, að tekin verði upp greiðsla
til höfunda fyrir útlán bóka
þeirra úr almenningsbókasöfn-
um. Er talið líklegt, að frum-
varp um þetta mál verði lagt
fyrir brezka þingið á hausti kom-
andi.
Blaðið skýrir síðan frá því,
hvernig fyrirkemulag er hjá
skandinavisku þjóðunum á þessu
máli og segir, að brezka rithöf'
undasambandið hallist helzt að
því að taka upp sams konar
fyrirkomiulag og Danir hafL
Segir það, að ef uim hliðistæðar
greiðslur ti'l brezkra rithöfunda
og danskra kæmi til, mundu
brezkir ritihöfundar fó árlega um
eina milljón punda í sinn hlut.
AT.T.T MEÐ
EIMSKIP
A NÆSTUNNI ferma skip
vor til íslands, sem hér segir:
Brottfarardagar:
ANTWERPEN:
Dux 8. des.
Mánafoss 13. des.**
Skógafoss 22. des.
HAMBORG:
Goðafoss 10. des.
Askja 14. des.**
Seeadler 16. des.
Skógafoss 28. des.
Gullfoss 6. jan.
ROTTERDAM:
Goðafoss 5. des.
Seeadler 13. des.
Askja 16. des.**
Skógafoss 23. des.
LEITH
Gullfoss 16. des.
Gulfosis 9. jan.
LONDON:
Agrotai 2. des.
Dux 6. des.
Mánafoss 16. des.**
Marjetja Böhmer 27. des
HULL:
Agrotai 6. des.
Dux 12. des.
Askja 19. des.**
Marjetne Böhmer 30. des.
GAUTABORG:
Lagarfoss 7. des.
Bafekafoss 14. des.**
K AUPM ANN AHÖFN:
Lagarfoss 5. des.
Gullfoss 14. des.
Bakkafoss 16. des.**
NEW YORK:
Tungufoss 13. des. *
Brúarfoss 23. des.
Selfoss 6. jan.
KRISTIANSAND:
Lagarfoss 8. des.
Bakkafoss 17. des.**
KOTKA:
Dettifoss 5. des.
Rannö 10. des.
VENTSPILS:
Dettifóss 7. des.
GDYNIA:
Dettifoss 9. des.
* Skipið losar á öllum aðal
höfnum, Reykjavík, ísa
firði, Akureyri og Reyðar
firði.
•* Skipið losar á öllum aðal
höfnum og auk þess
Vestmannaeyjum, Siglu
firði, Húsavík, Seyðisfirð
og Norðfirði.
Skip, sem ekki eru merk
með stjörnu, losa í Reykja
í Árbæjarhverfi.
ALLTMEÐ
EIMSKIP