Morgunblaðið - 02.12.1966, Síða 11
Föstudagur 2. des. 1966
MORGUNBLAÐIÐ
11
Guðfinna Jónsdóttir
Minning
f DAG verður borin til hinztu
trvílu frú Guðfinna Jónsdóttir,
lem lézt að Elliheimilinu Grund
•1. laugardag á 90. aldiursári.
Guðfinna var fædd 7. ágúst
1877, að Skipholti í Hruna-
mannahreppi. Foreldrar henn-
ar voru Jón Ingimndarson,
hreppstjóri og kona hans Þor-
björg Jónsdóttir.
Heimili Jóns og Þorbjargar
var orðlagt myndarbeimili ,og
|>ar ólst Guðfinna upp í stór-
um, glaðværum systkinahópi. —
l>ar ríkti söngur, gleði og gam-
an, enda átti Guðifinna þær end-
wrminningar um æskilheimili
Bitt, sem ylju'ðu henni um
hjartarætur til æviloka. Aðeins
eitt þeirra Skipholtssystkina er
enn á lífi, hin kunna hestakona
Jóhanna Blöndal.
Guðfinna var að eðlisfari sér-
lega hjartahiý og ástúðleg. Söng-
elsk var hún og iistræn svo sem
hiún átti kyn til. Kímnigáfu átti
hiún í ríkum mælL Alltaf var þó
gamanið græskulaust, því slík
var góðvild hennar og umburðar
lyndi að hún færði allt í fari
og gjörðum manna til betri veg-
•r. Hún bar aLdrei kala til nokk-
«irs manns, en umvafði menn og
málleysingja elsku og ástríkL og
|>á ekki sízt börnin. Sjálfsagt eru
ekki fá börn, á öllum aldrL sem
geyma dýrar minningar um
kærleiksþel þessarar góðu konu.
Um aldamótin bregður faðir
Guðfinnu búi að Skipholti .Mun
hafa verið ætlun hans að flytjast
búferlum til Kanada, en þar
hafði elzta dóttirin, Valgerður,
sezt að nokkru áður. Úr þeim
áfiormum varð þó eigi. Þess í
stað fluttist fjölskyldan vestur í
Feigsdal í Arnarfirði og báru
foreldrar Guðfinnu beinin þar.
Árið 1905 giftist Guðfinna
Ólafi Jónssyni f. á Staðarhóli 1
Selárdal 1882. Hann lézt árið
1964 og höfðu þau þá búið sam-
an í farsælu hjónabandi í nær
60 ár. Þessi hugljúfu hjón hafa
ætíð verið slík samstæða i huga
mínum að erfitt reynist að minn
ast annars þeirra án þess að
geta hins. Ég vildi því leyfa mér
að minnast Ólafs heitins hér
Lítillega.
Samskipti karls og konu
eftir HANNES JÓNSSON, félagsfræðing
er heilbrigð og þörf bók um fjölskyidu- og hjúskaparmál,
sem á erindi til karla og kvenna á öllum aldri.
Foreldrum, unglingum og trúlofuðu og nýgiftu fólki er
sérstaklega bent á bókina.
Einnig vekjum við athygli á bókinni FJÖLSKYLDUÁÆTL-
ANIR og SIÐGÆÐI KYNLÍFS en hún fjallar á heilbrigðan
og hispurslausan hátt um fjölskylduáætlanir, frjóvgunar-
varnir og siðfræði kynlífs. 60 skýringarmyndir.
Af öðrum bókum í bókasafninu bendum við sérstaklega
á úrvarlsbókina KJÓS ANDINN, STJÓRNMÁLIN OG
VALIÐ, sem er tvímælalaust merkasta rit sinnar tegundar,
er út hefur komið á íslandi enda er hún samin af forystu-
mönnum stjórnmálaflokkanna og þjóðkunnum fræðimönn-
um.
Bækurnar fást hjá bóksölum og beint frá aðalumboðinu.
JL BÓKASAFN
WApJNF FÉLAGSMÁLASTOFNUNARINNAR.
*** Aðalumboð BÓKABÚÐ NORÐRA
Hafnarstræti 4, Pósthólf 73, Reykjavík. Sími 14281.
Vatonenni var hann og veitti
jafnan lítilmagnanum lið, enda
komst hann þegar í bernsku í
kynni við erfiðleika og umkomu
ileysi Hlutskipti munaðarleys-
ingja á öldinni sem leið er gam-
alkunn raunasaga ,sem óþarft
er að rekja hér. Annaðihvort
bugast lítill drengur í barátt-
unni fyrir tilveru sinni ellegar
hann magnast og býður öllu
byrgin. SMkur var Ólafur.
Þrár, kartinn og kvikaði ekki
frá sannfæringu sinni. Sjálfstæð-
ur, stoltur og stóð fast á sínu.
Hlýr, ljúfur og ávallt heilL —
Minnisstæður persónuleiki.
Þau Guðfinna og Ólafur flutt-
ust til Reykjavíkur árið 1912.
Bjuggu þau fyrstu árin hjá góðri
vinkonu Margréti Thorlacius að
Nýlendugötu 20. Ólafur stundaði
sjóinn og hverskonar störf, er til
féllu, af stakri elju og trú-
mennsku.
Guðfinnu og Ólafi varð ekki
barna auðíð en tóku ungan í
fóstur Jónas Halldórsson ,sund-
kennara ,sem naut mikils ástrfk-
is þeirra ,og reyndist hann þeim
hinn ágætasti sonur.
Árið 1924 fluttust þau Ólafur
og Guðfinna að Laugalæk við
Kleppsveg í nágrenni við bræð-
ur Guðfinnu, þá Ágúst á Lauga-
læk og Þorgrím í Laugarnesi.
Þar bjuggu þau 28 ár og eígn-
uðust marga góða vini meðal
nágranna sinna, og mörg börn
hændust að þeim ljúfu hjónum.
Árið 1952 fluttust þau að
Kvisthaga 29 á heimili Jónasar
sonar sín-s og tengdadóttur og
nutu þar ástúðlegrar umönnun-
ar þeirra og sonarsonarins Ólafs,
sem var augasteinn afa og
ömrmu.
Guðfinna var mikil trúkona,
heit og einlæg í trú sinni á llf
eftir jarðneskan dauða.
Ástkæra vina, nú að leiðar-
lokum kveð ég þig klökkum
huga og þakka allar okkar sam-
verustundir. Ég bið Guð að ver*
þér leiðarljós á vegferð þinni
til aðra tilverusviða.
Blessuð sé minning þín.
Guðný Gestsdóttir.
H. BRIDDE
Sími 35280.
Háaleitisbraut 58—60.
Ingólfsstræti 16.
Barnakörfustólar kr. 500,00.
Brúðuvöggur frá kr. 450,00.
Bréfakörfur, margar stærðir.
Vöggur, reyrstólar og borð
fyrirliggjandi.
Kaupmenn !
tryggið
Jólavarninginn
sérstaklega
med pvi að taka
trqggingu
til skamms tíma.
spqrjizt Syrir um
skilmála og kjor.
ALMENNAR
TRYGGINGAR HF.
PÓSTHÚSSTRÆTI 3
SÍMI 17700
LEIKFÖNG Á TVEIM HÆÐUM
Stærsti og fjölbreyttasti leikfangamarkaður landsins
1+
V
Sími 21901 NÓATÚNI Sími 17270.