Morgunblaðið - 04.02.1967, Síða 1

Morgunblaðið - 04.02.1967, Síða 1
28 SÍÐUR Mynd þessl var tekin við útför geimfarans Roger Chaffee. Geimfarinn Eugene Cernan reynir að hugga fimm ára gamlan son Chaffees. Sitjandi frá vinstri eru ekkja Schaffees, systir hans átta ára gömul, foreldrar geimfarans og Johnson Bandaríkjaforseti. 100.000 verkamenn lögðu niður vinnu — en Ryan var hengdur í Melbourne Melboume, 3. febr. NTB. MEIRA en hundrað þúsund verkamenn í Melbourne lögðu niður vinnu í tvær mínútur, þegar hinn dauðadæmdi, Ron- ald Ryan, var hengdur í Pent- ridge fangelsinu á föstudags- morgun (að staðartima). Telja margir líklegt, að þetta verði síðasta sinn, sem maður er hengdur í Ástralíu. Ryan þessi var dæmdur til dauða fyrir að hafa myrt fanga vörð, er hann reyndi að sleppa úr fangelsi í desember 1965. Tví- vegis hefur verið frestað að fullnægja dóminum. Bæði vegna öflugra mótmæla gegn henging- unni í Victoria ríki og vegna þess, að verjendur hans höfðu sagt ýmislegt nýtt hafa komið fram í máli hans. Til óeirða kom úti fyrir'Pent- ridge fangelsinu i gærkveldi og voru 97 manns handteknir. Sið- ustu mínúturnar áður en Ryan var hengdur krupu um 1200 manns á kné í bæn úti fyrir fangelsinu, en þegar tilkynnt var, að aftakan hefði farið fram hélt fólkið á brott. Pakistan mótmæfiir Karachi Pekistan. 3. febr. NTB. STJÖRN Pakistans hefur sent indversku stjórninni harðorð mótmæli vegna þess atburðar, er flúgvél frá Pakistan var skot- in niður yfir indversku landi. Segir stjórnin í Karachi að vél- in, eins hreyfils Cessna hafi ver- ið frá flugmannaklúbbi í I.ahore og greinilega merkt sem slík. Ilafi verið algerlega ástæðulaust að skjóta vélina niður, — enda hafi flugmaðurinn ekkert getað gert sér til varnar, þar sem hann hafi verið vopnlaus. f orSsendingu Pakistan stjóm ar segir, að ljóst sé að flugvélin hafi farið yfir indverskt land af Loftbrú á milli Peking og Moskvu misgáningi og er farið fram á, að stjórnir Pakistans og Ind- lands skipi sameiginlega rann- sóknarnefnd til þess að ganga Mao kemur fyrst fram opinberlega á 10 vikum Samband Sovétmanna og Kinverja hangir nú á b/ójbræð/ K.ÍNVERSKA sendiráðið í Moskvu sakaði í dag sovézka Jögreglumenn um að hafa barið 30 starfsmenn sendi- ráðsins í átökum, sem urðu fyrir framan það, er sovézkir lögreglumenn rifu niður and sovézkar ljósmyndir, sem Kínverjarnir höfðu stillt upp fyrir utan sendiráðið. Sýndu myndir þessar kínversku stú dentana, sem harðast urðu úti í átökunum við sovézka lögreglumenn við grafhýsi Stalíns á Rauða torginu í fyrri viku. Sagði kínverska sendiráðið að 100 Iögreglu- menn hefðu komið til að taka myndirnar niður og ef Kínverjarnir reyndu að hindra þá í því, hefðu lög- reglumennirnir ráðizt á þá. Stjórnmálafréttaritarar í Moskvu segja nú að svo virð ist, sem stjórnmálaslit land- anna séu yfirvofandi. Sovézka utanrikisráðuneytið hefur vísað ásökunum Kínverj- anna á bug og sagt þær ómerki- lega lýgi, uppspuna og hreina ögrun frá upphafi til enda. Ut- anríkisráðuneytið hafði fyrr um daginn beðið Kínverjana um að fjarlægja myndirnar, en þeir sinntu því engu og sögðu að myndirnar sýndu aðeins sann- leikann. Sovézka fréttasfrofan Tass sagði Yfirlýsingar Hanoistjórnar ræddar Saigon, Waghington, Bangkok og London, AP-NTB. SÍÐUSTU yfirlýsingar N-Viet- nammanna um hugsanlegar leiðir til friðarviðræðna eru nú mjög tii athugunar meðal vestrænna stjórnmálamanna. Yfirlýsingar þessar stinga mjög i stúf við fyrri yfirlýsingar stjórnarinnar í Hanoi um að Bandaríkjamenn yrðu að hætta öllum hernaðarað- gerðum og vera á brott með allt sitt herlið úr Vletnam, áður en friðarumræður gætu hafizt. Þá eru menn á Vesturlöndum mjög í vafa enn, um hver hin raun- verulega stefnubreyting N- Vietnammanna sé. Háttsettur embættismaður Honoistjórnar sagði i dag á fundi með fréttamönnum i Phan om Pen.h, höfuðborg Kambódiu, að ef Bandaríkiamenn hættu loft árásum og öðrum hernaðarað- gerðum gegn N-Vietanm gæti stjórn hans failizt á viðræður við Bandaríkjamenn. Bandarískar hersveitir hófu í dag á nýjan leik hernaðaraðgerð ir á yfirráðasvæði Viet Cong fyr ir norðan Saigon. í síðasta mán- uði gereyddu Bandarikjamenn Járnþríhyrningnum svonefnda. Talsmaður bandarísku herstjórn- arinnar sagði að bandarísku her- mennirnir væru fyrstu menn, sem stigu fæti inn í hið þétta og torfæra skóglendi 45 km. frá höfuðborg S-Vietnam. Banda- rikjamenn álíta að í þessum skógi séu aðalbækistöðvar skæru liða, bæði hernaðar- og stjórn- málalegar, sem stjórni öllum að- gerðum í S-Vietnam. Banda- rískar risaflugvélar af gerðinni B-52 vörpuðu í dag sprengjum á betta svæði. Hefur verið ákveð- ið að flugvélarnar fari þrjár slík ar árásarferðir. Aðrar bandarískar sprengju- flugvélar vörpuðu sprengjum á ýmsar samgönguleiðir í N- Vietnam í dag, þrátt fyrir mjög erfið veðurskilyrði. M.a. eyði- lögðu þær 6 brýr og eina ratsjár- stöð fyrir vestan Thanlh Hoa. Stjórnin í S-Vietanm lét í dag lausa 30 norður-vitnamíska fanga í tilefni áramótalhátíðalhaldanna og vopnahlésins í kringum þau, sem hefst 8. febrúar n.k. Var föngunum sleppt skammt suður af hlutlausa svæðinu milli N- og S-Vietnam. Tveir fanganna kusu að verða kyrrir í S-Vietnam. Útvarpsstöðin í Hanoi sagði um þennan atburð, að hann væri hlægileg leiksýning. Tilkynnt var í Bangkok í dag, að um 30000 Thailendingar heifðu boðizt til að fara sem siálfboða- liðar til S-Vietnam. Munu um 2300 þeirra verða sérbjálfaðir áður en þeir fara til Vietnam. 1 dag, að mótmælaaðgerðirnar fyrir framan sovézka sendiráðið í Moskvu væru nú orðnar brjál- æðiskenndar og að aldrei hefði Sovétríkjunum verið sýndur jafn skefjalaus fjandskapur í Framhald á bls. 2 úr skugga um þetta mál. Stjórn Pakistans áskilur sé rétt til að krefjast bófra fyrir flugmanninn, sem að sögn indverskra yfir- valda beið bana, er vélin var skotin niður. Fimmburafæöing í smáþorpi í Mexico — Eitt barnib fæddist andvana Mexico City, 3. febr. NTB—AP. Dagblaðið „Excelsior** f Mexico City, segir frá því í dag, að Maria Flores de Ortiz, 26 ára og þriggja barna móðir hafi fætt fimmbura sl. mið- vikudag, — fimm stúlkur en ein þeirra fæddist andvana. Börnin fæddust í litlum kofa. með tveimur herbergj- um og moldargólfi, í þorpinu Chavarria, skammt frá hin- í pm kunnu Cacahumilpa hell- um, sem fjöldi ferðamanna heimsækir árlega. í þorpinu er enginn simi, ekkert raf- magn og lifnaðarhættir að öðru leyti afar frumstæðir. Faðirinn, Pablo Ortiz, er þrítugur bóndi. Þau hjón áttu þrjá syni fyrir. Móðirin og börnin voru flutt til Mexico City á siúkra hús, en að sögn blaðsins er ekki unnt að segia um bað ennþá, hvort börnin fjögur lifa. Barnið, sem fæddist and- vana, hafði verið látið í tvo sólarhringa, að sögn lækna. ★ Þetta eru aðrir fimmbur- arnir sem fæðast í vikunni. Á fimmtudag fæddust fimm- burar í Brooklyn í New York og einnig einn þeirra fæddist andvana, — en börnin fjögur, sem eftir lifðu, eru nú öll við góða heilsu og bú- izt við, að þau muni lifa. Börnin hafa þegar verið skírð, telpurnar þrjár heita Lisa, Lianna og Lalitha en drengurinn Lionel. Móður- inni, h.iúkrunarkonunni Hild- erane Harris, sem er 31 árs blökkukona vegna vel. Henni hafði verið gefið nýtt frjó- semilyf í fjóra mánuði, áður en hún varð barnshafandi, þar eð hón hafði ekki getað eienast hqrn í fimm ára h’ónabandi. Mun þess all- mörg dæmi. að lyf þetta leiði til fleirhurafæðinga.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.