Morgunblaðið - 04.02.1967, Side 12

Morgunblaðið - 04.02.1967, Side 12
12 MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAR 1967. Þoirsteinn Jósepsson blaðamaður - IMinning í DAG er gerð frá Dómkirkj- unni útför Þorsteins Jósepsson- ar blaðamanns. Hann andaðist að kvöldi 29. janúar sl. í Lands- spítalanum, eftir ianga og erfiða sjúkdómslegu. Með Þorsteini er genginn til moldar einn af listfengustu blaða mönnum landsins, margfróður rit höfundur og mikilvirkur bóka- safnari. Hann féll frá um aldur fram, enn ekki fullra sextíu ára. í hinum fámenna hópi íslenzkra blaðamanna mun sæti hans reyn- ast vandfyllt og raunar á miklu víðari vettvangi, vegna þess hve óvenju fjölþættum hæfil^kum hann var gæddur. Þorsteinn Jósepsson fæddist 18. júlí 1907 á Signýjarstöðum í Borg arfirði, sonur hjónanna Jóseps G. Eiiesersonar bónda þar og Ást- ríðar Þorsteinsdóttur, bónda á Húsafelli Jakobssonar. Æskuár- in dvaldist Þorsteinn í föðurhús- um, en hleypti heimdraganum skömmu eftir tvítugsaldur, fyrst hingað suður til Reykjavíkur og og síðan utan. Ferðaðist hann víða um Evrópu á næstu árum, kynntist mönnum og málefnum og eignaðist fjölda vina; er hann hélt jafnan tryggð við síðan. — Lengstar viðstöður gerði hann á þessum árum í Þýzkalandi og Svisslandi. Frá ferðum sínum og ævintýrum þar sagði hann m.a. í bókinni „Ævintýri förusveins", scm varð uppáhald ungra manna, þegar bún kom út. Þessi ár munu hafa orðið Þorsteini furðu lær- dómsrík. Þau voru sá skóli, sem hann naut æ síðan, og hefi ég fáa sjálfmenntaða menn hitt gagnmenntaðri en hann. Sannað ist þar hið fornkveðna að veldur hver á heldur. Allt frá unglingsárunum í sveitum Borgarfjarðar mun hug- ur Þorsteins hafa staðið til rit- starfa og bókiðju. í blaða- mennskunni fann hann starf, sem honum var að skapi og veitti hon um jafnframt tóm og tækifæri til annarra ritstarfa og þeirrar end urnýjunar andans sem í ferða- lögum, innan lands og utan, felst. Réðst Þorsteinn blaðamaður að Vísi árið 3939, liðlega þrítugur að aldri, og starfaði þar óslitið síðan til æviloka. Árið 1947 kvæntist hann Jósefínu Gísladótt ur og varð þeim einnar dóttur auðið, er heitin var Ástríður í höfuð ömmu sinni. Frú Jósefína andaðist árið 1962. Síðari kona Þorsteins var Edith Wischatta frá Innsbrúck í Austurríki. — Höfðu þau aðeins verið í hjóna- bandi í rúm tvö ár, er Þorsteinn lézt. Þegar Þorsteins Jósepssonar er minnzt, kemur fyrst í hugann starf hans að blaðamennsku. Þar íór hann jafnan á kostum. Auk ágætrar þekkingar á íslenzkri tungu leyndi sér ekki í greinum hans og viðtölum, að þar hélt i penna maður, sem kunni skýr skil á samtíð jafnt sem sögu og hafði leyndardóm hinnar lifandi frásagnar á valdi sínu. Gilti einu hvaða verkefni Þorsteinn tók þar að sér, að jafnan var um þau fjallað af því yfiriætisleysi, sem honum var eiginlegt. í erli og þys dagblaðsins hélt hann öllum átt- um óbrengluðum, og dómgreind hans var siík í staríi, þar sem oft þarf að rita um viðkvæm mál. að ekki gleyrnist. Er mér sjálfum í fersku nunni, hve drjúgur og- hugheili liðsmaður Þorsteiim reyndist öli þau ar, sem við voruin samstarfsmenn á sviði blaðamennskunnar, og hve rikan þátt hann átti í ritsoórn og eíl- ingu Vísis, allt frá því kynni okk,- ar þar h 'fust. í íámennu þjóð- félagi, sem liinu ís'enzka, eru áhrif blaðanna einatt meiri en í hinum fjölmennari, þar sem fleira tekur hugann fanginn. Á blaðamanninum hvílir þar því meiri ábyrgð en margur gerir sér í fljótu bragði ljóst. Það duldist Þorsteini Jósepssyni hinsvegar aldrei þann aldarfjórðung, er hann vann að því starfL Þótt blaðamennskan væri að- alstarf Þorsteins og dagsverkin þar oft ómæld, átti hann ýmis þau önnur hugðarefni, sem raun ar mundu hvert og eitt nægja til þess að halda nafni hans á lofti. Þegar hann kom heim eftir ferða lög sín erlendis, gaf hann út tvær ferðabækur frá Þýzkalandi og Svisslandi, sem báðum var ágæt- lega tekið af lesendum. Áður var minnzt á „Ævintýri förusveins", sem út kom árið 1934, en síðari bókina nefndi hann „Undir suð- rænni sól“, og kom hún út 1937. Fyrsta bók hans var raunar smá sögusafnið „Tindar“, sem út kom árið 1934, og annað smásagna- safn, „Týrur“, kom frá hans hendi 1946. Það sama ár gaf hann út bókina „I djörfum leik“, sem fjallaði um íþróttasigra og íþrótta garpa. Ritaði Þorsteinn þar um eigin áhugamál, því að fyrr á árum var hann knár íþróttamað- ur og keppnismaður. Síðasta bók in, sem hann ritaði var hið ýtar- lega og veigamikla staðfræðirit „Landið þitt“, sem út kom nú fyrir jólin. Sú bók var frumverk hér á landi, frásögn af höfuðból- um og merkisstöðum allt frá landnámsöld til þessa dags. í þeirri bók kom glöggt í ljós, hve vel Þorsteinn þekkti landið, sögu þess og sérkenni. Sjálfur var hann ötull og óþreytandi ferða- maður, hafði komið í allar byggð ir landsins, og var það honum vitanlega mikil stoð við ritun bókarinnar. Mun fátt hafa glatt hann meir síðustu vikurnar, sem hann lifði, en þær frábæru und- irtektir, sem þetta gagnmerka brautryðjandaverk hvarvetna hlaut. Enda þótt Þorsteinn hafi í þeirri bók fjallað um byggðir landsins, gátu fáir sagt honum fréttir af óbyggðum. Þar varði hann fjölmörgum stundum í góðra vina hóp, glaðvær og hress sem var hans vandi. Fjallaferð- irnar, hygg ég, að hafi verið Þor steini tvöföld ánægja. Ferðalagið sjálft, einveran, friður og fegurð íslenzkra öræfa. En einnig það að sinna þá öðru helzta áhuga- máli sínu, ljósmyndun. í því efni stóð hann í fremstu röð allra manna hér á landi, og ég hygg, að ekki sé ofmælt, þótt sagt sé, að Þorsteinn hafi verið sérstæður listamaður linsu og ljósops. Mynd ir hans úr íslenzkri náttúru bera vott um næmt fegurðarskyn og sýna glöggt, hve hugþekkt hon um var landið í sínum óteljandi litbrigðum. Raunar eru þó um það áhöld nokkur, hvort Þorsteinn kunni betur við sig í einveru fjallanna eða með vinum sínum, bókunum. Bókasöfnun hóf hann skömmu eftir 1940 með þeim árangri að bókfróðustu menn munu lúka upp einum munni um, að safn hans hafi verið eitt stærsta og glæsilegasta bókasafn landsins í einkaeigu. í því er að finna eitt bezta safn íslenzkra fornrita, sem prentuð hafa verið hér á landi og erlendis frá upphafi, m.a. öll fornritin, sem prentuð voru ■ í Skálholti. Þar er og eitt stærsta safn ferðabóka um ísland á er- lendum málum, og einnig hafði Þorsteini tekizt að ná saman meira safni rita og ritlinga um náttúrufræði landsins en víðast annars staðar getur að líta. Er hér þó aðeins á fátt eitt minnzt. Að bókasafninu vann Þorsteinn allt til hins síðasta, og er óhætt að segja, að fátt hafi hann til sparað, frétti hann af bók, sem hann hafði hug á erlendis sem hérlendis. í bókasöfnun sinni lagði Þorsteinn ríka áherzlu á að ná jafnan í sem vönduðust eintök og lét binda bækur sínar í það band, sem hverri hæfði. Því má um safn hans segja, að það sé bæði fágætt og fagurt, og bar það snyrtimennsku eiganda síns órækt vitni. Bókamenn voru tíð- ir gestir á heimili Þorsteins, sem að líkum lætur. Sjálfur var hann einnig manna bókfróðastur og hafði yndi af að rekja feril og sögu nýfenginna gersima safns- ins. Um bókfræði gaf hann út tvær sérprentanir fyrir fáum árum, sem hann nefndi „Gamlar bækur og bókamenn". Safn tón- listar átti hann einnig gott og var mikill únnandi þeirrar listar. En það voru fleiri en bóka- menn, sem sóttu Þorstein heim að Bollagötu 9. Hann var manna gestrisnastur, sannur höfðingi heim að sækja og kunni skil á lífsins lystisemdum í góðu hófi. Að eðlisfari var hann dulur mað ur og hégómalaus, vinfastur og hreinskilinn. Hann hafði myndað sér sínar eigin hugmyndir um eðli mannlífsins og tilverunnar, en reyndi ekki að þröngva þeim upp á aðra, því að hann var einn ig manna óáreitnastur. Allt víl og vol var honum fjarri skapi, og hann sló jafnan á hina léttari strengi, þótt með fullri íhygli væri. Þótt engan hafi í grun rennt, að lokastundin væri svo skammt undan, má þess minnast, nú að leiðarlokum, að síðustu árin voru Þorsteini mikill hamingjuauki. Frú Edith bar nýja gæfu inn í hús hans, og okkur vinum hans þótti sem hann yrði ungur í ann að sinn. Hann hafði líka enn mikils að vænta af lífinu, og mörg áform voru honum hug- stæð. En sköpum sínum verður hver að taka, svo sem hann er maður til. Það duldist Þorsteini allra manna sízt, og raunir síð- ustu mánuðanna bar hann af frá- bærri karlmennsku. Minningin um hugprúðan dreng og hreinskiptinn vin mun lifa í hugum allra þeirra, er hann þekktu. Gunnar G. Schram. t VIÐ LÁT Þorsteins Jósepssonar finnum við félagar hans í stjórn Ferðafélags íslands, að þar er nú skarð fyrir skildi, sem hann var, en hann sat í stjórn félagsins frá því árið 1942. Hann hafði þá um nokkurt skeið verið blaða- maður og Ijósmyndari við Dag- blaðið Vísi, og vakti hann fljótt athygli með greinum og myndum frá ferðalögum hér á landi og er- lendis. Ungur að aldri hafði hann farið utan og dvalið þar lang- dvölum, einkum í Þýzkalandi og Sviss. Þar hafði'hann orðið fyrir miklum áhrifum frá ferðahreyf- ingu, sem vildi beina fólki til úti vistar og gönguferða. Slíkar ferðir taldi hann ekki síður æski legar hér heima og landið lítt nuinið á því sviði. Þorsteinn var sjálfur harðduglegur ferðamaður og einkum voru gönguferðir um fjöll og óbyggðir honum hugleikn ar. Tók hann mikinn þátt í slík um ferðum fyrr á árum og var stundum fararstjóri í ferðum fé- lagsins. Þórsteinn skrifaði greinar í sumar árbækur félagsins, en oft- ar kom þó í hlut hans, að semja frásagnir af ferðum og aðrar til- kynningar og skýrslur, sem birt- ust í dagblöðum og sýningar- skrám, en slík störf léku í hönd um hans. Miklu meira ber þó á ljósmyndum hans í Árbókunum, en hairn var afburða snjall ljós- myndari, svo að óhætt er að full yrða, að hann hafi haft veruleg áhrif á ljósmyndalist og ljós- myndasmekk hér á landi, eink um hvað snertir landslagsmynd- ir. Það liggur því í augum uppL hvílíkan hauk í horni félagið átti, þar sem Þorsteinn var, enda var hann ætíð boðinn og búinn að hjálpa félaginu um myndir ef á þurfti að halda. Við undir- búning Ijósmyndasýninga Ferða- félagsins vann hann einnig mikið og gott starf. Vissulega var allt þetta félag- inu mikils virði. Ilitt kemur þó fyrr í hugann, hvað hann var til logugóður á fundum, lipur í sam starfi, ótrauður til verka og skemmtilegur félagi á góðri stund. Við vinir hans, sem áttum þess kost að ferðast með honum, á meðan það þótti hæfa, að taka föggur sínar á bakið og leggja á lítt troðnar slóðir, eigum marg- ar ljúfar minningar frá þeim ferð um. Bjartsýnn var hann og æðru laus og þá helzt er örðugleikar steðjuðu að. Þá var honum eink- ar lagið, að halda uppi glaðværð í áningarstað, sagði þá stundum merkilegar sögur, sem hann raun ar samdi um leið. Og nú að leiðarlokum þökkum við honum allar góðar samveru- stundir og sendum konu hans og dóttur og öðrum ættingjum hug heilar samúðarkveðjur. Gísli Gestsson. t LEIÐIR okkar Þorsteins Jóseps- sonar blaðamanns, lágu fyrst saman fyrir mörgum árum, er við skrifuðum báðir lögreglufréttir, — hann fyrir sitt blað, Vísi, og ég fyrir Morgunblaðið. Snemma á mínum lögreglufréttaritara- ferli sagði Sveinn Sæmundsson, yfirlögregluþjónn rannsóknar- lögreglunnar, eitt sinn: Þú getur séð um þetta innbrot í Vísi, ég gaf honum Þorsteini allar upp- lýsingar um það í morgun. — Er mér óhætt að styðjast við þá frá sögn? spurði ég, og Sveinn sagði: Þér er það óhætt, því Þorsteinn tekur alltaf rétt upp eftir okkur hér og gætuð þið yngri blaða- menn margt lært af honum í þeim efnum. Lýsing Sveins reyndist mjög rétt. Þorsteinn var ákaflega sam vizkusamur blaðamaður, og leið réttingar við frásagnir hans, sem urðu margar og margvíslegar, voru óþekkt fyrirbrigði. Því kynntist ég enn betur er við störf uðum saman á Vísi í rúmt hálft ár. Áhuga Þorsteins á allskonar þjóðlegum fræðum og áhuga hans á bókum, gafst mér eitt sinn tækifæri til að kynnast, er við höfðum verið í „sviðamessu** hjá Ferðafélaginu uppi í Skíða- skla. Bauð hann mér >á ásamt nokkrum gestum öðrum heim til sín, og stendur sú heimsókn mé.r enn fyrir hugskotssjónum. — Þar kynntist ég annarri hlið Þor steins. Miðlaði hann mér þessa kvöldstund miklum fróðleik af lífsstarfi sínu, bókasöfnuninnL og þá komst ég á snoðir um hið stórmerka ljósmyndasafn hans, en að baki því liggur mjög mik- ið og vel unnið starf. — Það gæti verið skemmtilegt viðfangsefni fyrir Blaðamannafélag íslands, að fá leyfi til, einhverntíma á merkum tímamótum, að halda sýningu á ljósmyndasafni Þor- steins. Blaðamaðurinn með ljós- myndavélina ferðast um ísland, gæti sýningin heitið, því þar myndu sameinuð þrjú mikil á- hugamál þessa virta blaða- manns, sem við kveðjum f dag: Frásagnargleði hans í myndum, ferðalög og auga hans fyrir feg- urð og tign landsins. Þegar við blaðamenn kveðjum Þorstein hinztu kveðju í dag sjá um við að það skarð, sem eftir er í okkar fámennu stétt, verður vandfyllt. Sverrir Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.