Morgunblaðið - 04.02.1967, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. FEBRÚAfl 1067.
— Umbúðir
Framhald af bls. 15
kassaumbúðanna á markaðinum
(10. og 25 lítra) fékk hana lán-
aða til eins áirs. Nú er liðið hálft
annað ár frá þvi þetta skeði og
Ihefur Mjólkursamsalan enn ekki
gefið innlendum neytendum
kost á að reyna þessar umbúðir.
Ef Mjólkursamsalan notar vélina
fyrir alla þá, sem kassaumbúða
óska, en ekki aðeins fyrir varn-
arliðið er ekkert þvi til fyrir-
stöðu að hún fái hana keypta,
enda tökum við á okkur tals-
verðar skuldbindingar með sölu
Ihennar, þar sem við verðum að
tryggja henni efni til áfyllingar-
innar. í>ess er í leiðinni að geta,
að vél sú, er Mjólkursamsalan
hefur að láni er af nákvæmlega
sömu gerð og hinar tvær vél-
arnar, sem í notkun eru hér á
landi og því ekkert því til fyrir-
stöðu, að nota hana til áfyllingar
10 lítra kassa jafnt sem 25 lítra
kassa eins og hún er nú notuð
til“.
Við skýrðum Gylfa nú frá því,
að mjólkurbústjórarnir hafi látið
vel af notkun þessara tækja og
spyrjum hvað hann vilji um
vinsældirnar segja:
„Þetta sannar að umbúðirnar
eru góðar“, segir Gylfi, „og við
vitum, að margir hér í höfuð-
staðnum hafa reynt þessar um-
búðir með því að fá þær sendar
að norðan og þá er þess enn-
fremur að geta að kassarnir
vöktu mjög mikla athygli og
mikið var um þá spurt á Iðnsýn-
ingunni í haust“.
Að öllu þessu athuguðu verð-
ur ekki betur séð, en kassamjólk
in sé það sem koma skal, að
minnsta kosti samhliða öðrum
umbúðum, sem fyrir eru. Kassa-
mjólkin hefur sýnilega mjög
marga kosti fram yfir aðrar um-
búðir og sérstaklega þó þann
kost, að hægt kann að vera á til-
tölulega ódýran hátt að flytja
hana heim til neytenda og kem-
ur það sér sérstaklega vel fyrir
þá, sem mikla mjólk þurfa að
kaupa í senn. Þetta gæti einnig
haft í för með sér að Mjólkur-
samsalan í Reykjavík gæti fækk-
að að miklum mun eða jafnvel
lagt flestar mjólkurbúðir alveg
niður. Og er sýnilegur sparnað-
ur við það. Um það mál gefst ef-
laust tækifæri til að ræða í ann-
arri grein um þetta mál, en til
þess að gera því veruleg skil þarf
frekari athugana við og rann-
sókna.
Þá er á það að benda, að það
væri mjög hagkvæmt, að senda
kassamjólk til Vestmannaeyja í
stað mjólkurinnar, sem þangað
fer nú. Þetta er ákaflega vinsælt
á Siglufirði og I þessu tilefni
viljum við birta umsögn Guð-
mundar Jónassonar, forstjóra
Mjólkursamsölunnar á Siglu-
firði, um þetta efnL Það hljóðar
svo: „Að gefnu tilefni vil ég lýsa
yfir því, að mínu áliti, að 10
lítra mjólkurkassarnir frá
Mjólkursamlagi Eyfirðinga, sem
seldir hafa verið hér í Mjólkur-
samsölunni á annað ár gera
mjólkurdreifingu ódýrari og
auðveldari, jafnvel svo að mun-
að gæti að hafa einni stúlku
færri við afgreiðslu í meðal-
stórri verzlun.
Auk þessa hefur fjöldi hús-
mæðra látið í ljos ánægju með
það, hvað þessar umbúðir spari
sér ferðir í mjólkurbúðir og að
kassarnir fari vegna einangrun-
arhæfni pappakassans vel í ís-
skápnum. Það liggur einnig ljóst
fyrir, að ver hann mjólkina vel
fyrir birtu og hita og þar af leið-
andi heldur mjólkin sínu rétta
góða bragði". Þetta hafa Sigl-
firðingar um kassamjólkina að
segja. Nú þá er að geta þess, að
gífurlega stórir verktakar svo
sem verktakar við Búrfell, vænt-
anleg álverksmiðju og fleiri
myndu eflaust þiggja með þökk-
um mjólk í þessum umbúðum.
Ótalin eru svo sjúkraihúsin öll og
stór mötuneyti, sem víða hefur
tui verið komið á fót í fyrirtækj-
um í höfuðborginni og víðar.
Af umsögnum allra þessara
aðila er ekki annað að sjá, en
að innan skamms tíma megi
vænta gagngerðra umibóta á
þessu sviði. Forstjóri Mjólkur-
samsölunnar hefur skýrt ástæð-
urnar fyrir því að Mjólkursam-
salan hefur farið sér hægt í
þessu máli, en við verðum að
vona, að það fái góðan endi og
allir aðilar verði ánægðir, ekki
síður framleiðendur og þelr, sem
mjólkina setja í umbúðir en
neytendur, sem hana fá síðan í
hendur.
Loks er þess svo að geta, að
áfyllingarvélarnar, sem notaðar
eru fyrir kassamjólkina munu
vera einhverjar þær allra ódýr-
ustu, sem fáanlegar eru á
heimsmarkaði, til þess að fylla
á mjólk í loftþéttar umbúðir.
vig.
Kjötbúð Suðurvers
tilkynnir:
Tökum að okkur veizlur, kalt borð, smurt
brauð, snittur, kokteilsnittur og brauð-
tertur.
KJÖTRÚÐ SUÐURVERS,
horni Stigahlíðar og Hamrahlíðar.
Sími 35645. — Pantið tímanlega.
Síldveiöisjómenn
Framhaldsstofnfundur félags síldveiðisjó
manna verður haldinn í Slysavamafélags-
húsinu Grandagarði, sunnudaginn 5. febr.
kl. 14. — Dagskrá: Lög félagsins og
önnur mál.
Undirbúningsnefndin.
BlómaverzSun Michaelsen
Suðurlandsbraut 10.
POTTABLÓM — AFSKORIN BLÓM
BLÓMASKREYTINGAR — GJAFAVÖRUR
Blómaverzlun Micliaelsen
Suðurlandsbraut 10. — Sími 31099.
Póst- og símamálastjórnin vill ráða
nokkra laghenta menn
til starfa á BirgSavörzlu pósts og síma.
Umsóknir skulu sendar póst- og símamálastjórn-
inni fyrir 15. febrúar 1967.
Nánari upplýsingar 1 síma 11000.
Póst- og símamálastjórnin.
3ja herh. íbúð í Vesturhæ
..v r ~ T 'j - " ' * T.
Höfum til sölu 3ja herbergja ibúð á 4. hæð í blokk
við Kaplaskjólsveg. íbúðin er ca. 85 ferm., með
harðviðarhurðum, harðviðarskápum í svefnher-
bergi, harðviðareldhúsinnrétting og harðviðarvegg
ur í stofu og holi. — Teppi á stofu og holi.
Mjög glæsileg íbúð, laus eftir ca. mánuð.
Útborgun kr. 700 þúsund.
Tryggingar og Fasteignir
Austurstræti 10A. — 5. hæð.
Sími 24850 og helgarsími 37272.
Almennur félagsfundur um
ST J ÓRNMÁLA VIÐHORFIÐ
verður haldinn í Samkomuhúsinu, laug-
ardaginn 4. febrúar, kl. 16.
STYRMIR GUNNARSSON, lögfræðingur,
hefur framsögu.
Sjálfstæðisfólk í Vestmannaeyjum er hvatt
til að fjölmenna.
STJÓRNIN.
Góð bílastæði.
Bræðurnir kampakátu
OKKUR þykir leiðinlegt að þurfa að tilkynna ungum lesendum
blaðsins, að ævintýrum Jumboe og félaga hans er lokið — að
minnsta kosti að sinni. En maður kentur í manns stað. í dag
hefst ný myndasaga fyrir börn, BRÆÐURNIR KAMPAKÁTU,
eftir Jörgen Mogensen. Bræðurnir kampakátu eru tveir litíir
kettlingar. Þetta er ekki framhaldssaga, hver myndasamstæða
er sjálfstæð og án orðaskýringa, á sama hátt og t.d. Ferdinant.
— Við vonum að yngstu lesendur blaðsins hafi ánægju af þeim
félögum — og veiti foreldrum sínum kannski hlutdeild í ánægj-
unni með þvi að segja þeim sögunna, sem myndirnar hafa að
geyma.
BRÆÐURNIR KAMPAKÁTU —-K— —K —
TEIKNARI: JÖRGEN MOGENSEN