Morgunblaðið - 20.04.1967, Síða 1
60 slður (Tvö blöð)
,4c
54. árg. — 89. tbl.
FIMMTUDAGUK 20. APRÍL 1967
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Þinglausnir fóru fram í gær
— Alþingi rofið frá 71. júní - Almennar þingkosningar fara fram þann dag
FORSETI Hæstaréttar, Giz-
ur Bergsteinsson, rauf Al-
þingi í gær frá og með kjör-
degi 11. júní. Á fundi sam-
einaðs þings gaf Birgir
Finnsson, forseti sameinaðs
Alþingis, yfirlit um störf
þingsins. Stóð það í 147 daga
og haldnir voru 73 fundir í
hvorri deild og 39 í samein-
uðu þingi. Þingið afgreiddi
61 frumvarp sem lög og eitt
frumvarp til stjórnskipunar-
laga. Samtals tók þingið fyr-
ir 201 mál. Forseti gat þess í
ræðu sinni, að mikil manna-
skipti hefðu orðið, og hefðu
fimm þingmenn horfið af
þingi á kjörtímabilinu. — Þá
flutti forseti árnaðaróskir til
þingmanna og starfsfólks Al-
þingis og þakkaði Eysteinn
Jónsson fyrir hönd þing-
manna.
Að því loknu las Gizur
Bergsteinsson, forseti Hæsta-
réttar, hréf handhafa valds
forseta íslands um þingrof,
almennar kosningar til Al-
þingis og þinglausnir. — Þá
hylltu þingmenn forseta
vorn og fósturjörð.
Samkvæ-mt yfirliti Birgis
Sjá greinar og myndir á bls.
12, 13, 14 og 15.
Rhöndorf, 19. apríl NTB-AP.
DR. Konrad Adenauer, fyrr-
um kanzlari Vestur-Þýzka-
lands lézt í dag, 91 árs að
aldri. Hann lézt í svefni að
heimili sínu í Rhöndorf, þar
sem hann hefur legið sjúkur
vikutíma — eða frá því hann
veiktist af inflúenzu og
lungnakvefi sl. miðvikudag.
Þá þegar þótti sýnt, að hverju
stefndi.
• Útför Adenauers verður ger'ð
frá dómkirkjunni í Köln næst-
komandi þriðjudag — á kostnað
ríkisins 4ður verður minningar-
athöfn í þinghúsinu í Bonn en
að lokini athöfninni í dómkirkj-
unni verður kista hins látna flutt
á báti eftir Rínarfljóti til Rhön
dorf, heimaþorps hans, þar sem
hann verður jarðsettur. Fjöl-
margir virðingarmenn hvaðan-
æva að verða við athöfnina i
Köin — en aðeins nánustu ætt-
ingjar og vinir við jarðsetning-
una í Rhöndorf. Er haft cftir
áreiðanlegum heimildum að Ad-
enauer hafi óskað eftir því sjálf-
ur að útförin yrði með þessum
hætti.
Finnssonar, forseta sameinaðs
Alþingis, hefur þingið staðið í
147 daga. Haldnir voru 185 fund
ir. Fyrir þingið voru lögð 61
stjórnarfrumvarp og 72 þing-
mannafrumvörp. Þingið afgreiddi
sem lög 61 frumvarp og eitt frv.
til stjórnskipunarlaga. Eitt frv.
var afgreitt með rökstuddri dag-
skrá. 70 frumvörp urðu ekki út-
Framhald á bls. 31
• Búizt er við, að margt er-
lendra stjórnmálaleiðtoga komi
til Þýzkalands til þess að vera
við jarðarförina. Þegar í dag
höfðu þcir Lvndon B. Johnson,
forseti Bandaríkjanna og for-
sætisfáðherra Bretlands, Harold
Wilson, sagt að þeir myndu vænt
anlega fara til Þýzkalands til
þess að vera við útför Adenauers.
Fjölskylda Adenauers var við
banabeð hans,. er hann lézt kl.
1.21 að staðartíma (12.21 GMT).
Sonur hans, Paul Adenauer,
hringdi fréttina til skrifstofu
Kristilegra demókrata í þingnús
inu í Bonn og þaðan var hún
birt opinberlega. Skömmu síðar
blöktu fánar við hálfa stöng
víðsvegar um Vestur-Þýika-
iand.
• Við banabeð Adenauers voru
einnig læknarnir. sem stunduðu
hann í veikindunum und:r leið-
sögn Adoíphs Heymers, prófess-
ors við háskólasjúkrahúsið i
Bonn. Þar var einnig heimilis-
læknir hans dr. Ella Bebber-
Buch. Undanfarna daga hefur
verið margmenni við húsið við
Zennigsweg 8a, þar sem dr. \d-
enauer lá banaleguna, en þegar
hann lézt voru þar fáir aðrir en
fréttamenn og ljósmyndarar, um
ÞESSA mynd tók Ólafur K. }
Magnússon, ljósmyndari Mbl. %
af þingflokki Sjálfstæðisflokks t
ins í Alþingishúsgarðinum i
skömmu fyrir þinglausnir í J
gær. Á myndinni eru talið frá 1
v.: Jónas Pétursson, Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson, Pét-
ur Sigurðsson, Guðlaugur
Gíslason, SiguiWur Óli Ólafs-
son, Axel Jónsson, Ragnar
Jónsson, Sigurður Bjarnason,
Ingólfur Jónsson, Auður
Auðuns, Bjarni Benediktsson,
Jóhann Hafstein. Bjartmar
Guðmundsson, Magnús Jóns-
son, Jón Árnason, Jónas G.
Rafnar, Matthías Bjarnason,
Sigurður Ágústsson, Ólafur
Bjömsson, Ósknr Levý,
Sveinn Guðmundsson, Jón
fsberg, Sverrir Júlíusson og
Matthías Á. Mathiesen.
hundrað talsins. Þeir komust
fyrst að raun um, að hann væri
látinn, þegar lögreglumaður í
varðstöð þar skammt frá dró
upp fána í hálfa stöng.
Sá, sem fyrstur minntist Aden-
Framhald á bls. 2
Landsfundur
Sjálfstæðisflokksins
settur í kvöld
í KVÖLD kl. 20.30 mun Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins, setja 17. lands
fund Sjálfstæðisflokksins í Háskólabíói. Mun
Bjarni Benediktsson flytja yfirlitsræðu um
stjórnmálaviðhorfið og gera grein fyrir gangi
þjóðmála síðan síðasti landsfundur var hald-
inn fyrir tveimur árum. Lúðrasveit mun
lcika frá kl. 20.00.
Mjög áríðandi er að þeir fulltrúar á lands-
fundinum, sem ekki hafa þegar framvísað
kjörbréfi og vitjað fulltrviaskírteina sinna
geri það fyrir kl. 19.00 í kvöld í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu.
Adenauer látinn
♦