Morgunblaðið - 20.04.1967, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. APRÍL 1007.
15
í desember 1951 fór Adenauer í opinbera heimsókn til Bret-
lands. Var mynd þessi tekin er hann ræddi við þáverandi
forsætisráðherra Bretlands, sir Winstoo Churchill.
Konrad Adenauer sver embættiseið sem fyrsti kanzlari Sam-
bandslýðveldisins Þýzkalands í september 1949.
Tveir fallnir foringjar. Hinn 23. júní 1963, fimm mánuðum áður en hann var myrtur í Dallas,
kom John F. Kennedy til Bonn. Tók Adenauer þá á móti honum á flugvellinum, þar sem
mynd þessi var tekin.
Stórstígar breytingar til hins betra urðu á sambúð Frakka og Þjóðverja í stjórnartíð Adcnau-
ers. Hér er kanzlarinn með de Gaulle Frakklandsforseta, þegar sá síðarnefndi kom í heim-
sókn til Bonn í september 1962.
Adenauer var borgarstjóri í Köln árin 1917—1933, og aftur rétt eftir heimsstyrjöldina sið-
ari. Þessi mynd var tekin í Köln árið 1928 er franski ráðherrann Edouard Herriot (í miðjuj
kom í heimsókn til borgarinnar. Lengst til hægri er þýzki ráðherrann dr. Wilhelm Kúlz.
ÚR LÍFI ADENAUERS