Morgunblaðið - 22.04.1967, Page 10

Morgunblaðið - 22.04.1967, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. APRÍL 1967. RÆTT VIÐ FULLTRÚA Á LANDSFUNDI ' / •• ' . Landsíund Sjálfstæðis- flokksins sækja menn alls staðar að. Morgunblaðið hitti að máli nokkra og spurði tíðinda úr héraði, hverndg þeim litist á stjórn málaviðhorfið, auk annars, er bar á góma. ÓLAFUR St. Sigurðsson í Kópavogi komst þannig að orði, er við spurðum hann ihelztu frétta úr kaupstaðn- um: — Eitt helzta áhugamál Kópavogsbúa hygg ég vera gatnagerð í kaupstaðnum, og þá sérstaklega lagning Reykja nesbrautar í gegnum kaup- staðinn. -Sá vegarkafli mun vera langfjölfarnasta leið á landinu. en umtferðin frá Reykjavík til Hatfnarfjarðar og Suðurnesja liggur öll ■þarna í gegn. Skapar þetta •kaupstaðar'búum mikil og sér- stök vandamál. í kaupstaðn- um er einn gagntfræðaskóli, sem staðsettur er í austur- hluta bæjarins og eiga því nemendur skólans úr vestur- bænum yfir Reykjanesbraut- •ina að sækja. Er m.a. af þeim orsökum sérstakur lögreglu- vörður allan daginn á tveim- ur stöðum á brautinni. — Hvernig hafa menn hugsað sér lausn þessa méls? — Að því er ég bezt veit, er búið að ákveða legu nýju brautarinnar, sem að megin- stefnu verður á sama stað og gamli vegurinn, en innan- bæjar. Búið mun vera að ganga frá teikningum og sam kvæmt þeim er gert ráð fyrir þremur akreinum í hvora átt, en ætlunin er, að lagð- ar verði tvær akreinar í hvora átt til að byrja með. Eftir þvi er ég bezt veit hef- ur bæjarytfirvöldum kaup- staðarins verið falið að sjá um framkvæmd verksins og má af því tilefni benda á, að Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn hafa borið fram tillögu um að kosin vérði sérstök fram- kvæmdanefnd í því skyni að hrinda máli þessu áleiðis. — Hvað viltu segja um stjórnmálin í landinu? — Að mínu viti hafa síðast liðin sjö til átta ár verið mesta framfaratímabil í sögu þjóðarinnar og vil ég setja það í samband við þá stjórn- arstefnu, sem ríkt hetfur þessi ár og þá festu í stjórnarfari, sem fylgt hefur setu sömu ríkisstjórnar nú í tvö heil kjörtímabil. Bezta trygging fyrir því að svipuð festa ríki áfram í stjórnmálum landsins, fæst með því að efla Sjálf- stæðisflokkinn sem mest í kosningunum í vor. ~k r SÉRA Andrés Ólafsson, pró- fastur á Hólmavík, segir okk- ur að vegamál í héraðinu hafi verið ofarlega á dagskrá, sem í flestum öðrum sveitum, og séra Andrés segir: — í vegamálum á Strönd- um hefur verið unnið stór- átak á kjörtímabilinu. Vega- samband hefur komizt á við Árneshrepp og var það lang- þráð vegarbót. Vegurinn norð ur Strandir er yfirleitt góður nema elzti hlutinn út með Steingrímsfirði. Nú er ein- mitt í ráði endurbót á þeim vegi. — Land'búnaðurinn er yfir- leitt ekki mjög sveiflukennd- ur. Hann stendur alltatf fyrir sínu, en við sjávarsáðuna hafa verið miklir erfiðleikar und- anfarið. Afli í Húnaflóa hef- ur brugðizt og hetfur það að sjálfsögðu haft áhrif á hag fólksins, sem þar býr. >að sem bjargað hetfur er rækju- veiði í Hrútatfirði. — Ég hef trú á að etfla eigi smáiðnað t.d. á Hólmavík. Það er hæpið að byggja ein- göngu afkomuna á sjónum. Það er von okkar að takast megi að finna einhvern iðn- að, sem vel hentar, í stað þess að fólk eigi allt undir gjaf- mildi sjávarins. — Þá er það milkið áhuga- miál okkar að lögð verði raf- lína til nærsveita Hólmavík- ur, í Bjarnartfjörð og Kolla- fjörð frá Þverárvirkjun. Er þetta mjög brýnt mál. — Við höfum mikinn á- huga á sjónvarpsmálinu og teljum, að þegar það hafi náð til allra landsmanna muni ungt fólk miklu síður flytj- ast úr dreifbýlinu í þéttbýlið. — Jú, við Sjálfstæðismenn erum bjartsýnir. Við treyst- um því að fólk líti með heil- brigðri dómgreind á það, sem áunnizt hetfur á kjörtímabil- inu, og við vonum, að þetta framtfaratímabil sem þegar er hafið megi halda áfram. — Að lokum vil ég svo bera fram þá ósk, að Sjálf- stæðisflokkurinn megi eflast og menn beri gæfu til þess að standa saman í fullíkom- inni einingu, þótt þeir hafi mismunandi skoðanir á ein- stökum málum. ★ Elín Jósefsdóttir í Hafnar- firði vék fyrst að skólamálum bæjarfélagsins og um þau mál fórust henni orð á þessa leið; — 1 skólamálum okkar Hafnfirðinga er það mark- verðast, að fyrirhuguð er bygg ing nýs skólahúss í hverfi, sem verið er að byggja vestast í bænum, við Víðistaðaland. Er þarna gert ráð fyrir að rísi nokkur þúsund manna byggð. Skólinn, sem þarna á að rísa, er ætlaður börnum og ungl- ingum þesa nýja hverfis, en auk þess verður öðrum börn- um og unglingum beint til þessa nýja skóla þaðan úr kaupstaðnum sem henta þyk- ir. Nýi skólinn verður barna- skóli með skyldunámsdeild og er fyrirhugað að flestir ungl- ingar geti lokið þar skyldu- náuninu. Er mikil þörf á þess- um nýja skóla, því að fólks- fjölgun í Hafnarfirði hefur að undanförnu verið örari en gott er að ráða við. — 1 framhaldi af þessu er rétt að geta þess, að horfið hefur verið frá því ráði að stækka Flensborgarskólann, en um eitt skeið hafði verið ráðgert að leysa skólamál Hafnfirðinga með stækkun hans. En nú er ætlunin að Flensborgarskólinn verði ein- göngu gagnfræðaskóli, en taki ekki við skyldunámsnemend- um í framtíðinni. Verzlunar- deild hefur verið starfandi við skólann, sem verður áfram, en annars gæti Flens- borgarskólinn í framtíðinni orðið menntaskóli. Væri þess mikil þörf fyrir þetta ört- vaxandi byggðarlag og eins er Flensborgarskólinn ein elzta og merkasta skólastofnun landsins, og væri vel að þeirri virðingu kominn að verða menntaskóli. — í sambandi við þá miklu fólksfjölgun, sem orðið hefur í Hafnarfirði á síðustu árum hafa einnig mörg önnur vandamál skapazt, sem nauð- syn hefur borið til að ráða fram úr. Mikið hefur verið byggt og hefur bæjarfélagið lagt áherzlu á að úthluta lóð- um til þeirra aðila, sem hafa getið tekið að sér byggingu stórra íbúðarblokka, til að leysa aðkallandi vandamál fólksf j ölgunar innar. — Þá eru stórframkvæmdir framundan í hafnarmálum, en fremsta lífsskilyrði hvers sjávarbæjar er að hafnarmál- in komist í gott horf. Er gert ráð fyrir því á þessu ári, að hafnarbakkinn verði lengdur og viðlegurúm aukið í stórum 'Stíl. Hvað um félagsmál og stjórnmál? — Ég vil byrja á því að leggja á það áherzlu, að ég er þeirrar skoðunar að Sjálfstæð iskvennafélögin eigi að vinna í þágu Sjálfstæðisflokksins að hverju því máli, sem nauð- ■syn ber til að hrinda í fram- kvæmd. Við konur eigum að vera frjálsar að því að velja okkur áhugamál, en við eig- um ekki bara að berjast fyrir þvi, sem okkur kynni að vera úthlutað. Karlmennirnir eiga ekki að skammta okkur bar- áttumálin. Okkur er ekkert óviðkomandi fremur en þeim. Barnauppeldismálin eru mik- ilsverð og brýn, en þau eru ekki bara einkamál okkar kvenna og ekki einu málin, sem við megum láta okkur varða. Það er mín skoðun, að hafi konur áhuga á málum utan heimilis, sé sjálfsagt og raunar skylda þeirra, að beita sér fyrir því að þau nái fram að ganga. Starf okkar Sjálf- stæðiskvenna á að miða að því að efla Sjálfstæðisflokk- inn til áhrifa og til þess eig- um við að beita kröftum okk- ar og starfsorku. Og í kosning unum í vor erum við Sjálf- stæðiskonur ráðnar í því að leggja okkur allar fram til þess að sigur Sjálfstæðis- flokksins geti orðið sem mest- ur. ★ ÞÁ hittum við að máli Valdi- mar Indriðason, forstjóra Síldar- og fiskimjölsverk- smiðjunnar á Akranesi, en það fyrirtæki gerir jafnframt út togarann Víking. Valdimar sagði: — Því er ekki að leyna að hin siðustu ár hefur síldveiði brugðizt nær algjörlega hér sunnanlands og vestan. Er því erfitt um hráefnaöflun og nýtingu verksmiðjanna. Mikið hefur verið rætt um leiðir til úrbóta og nú erum við að athuga hvort ekki verður hagkvæmt að gera tog arann Víking út með hring- nót, láta hann veiða síld og koma með hana ísvarða til Akraness. Reikna má með þvi, ef þetta verður ofan á, að hann geti komið með 700—800 lestir í hvert sinn. Búizt er við að tilraun þessi hefjist í haust. Þessi orð min má þó ekki taka svo, að við höfum ótrú á togveiðum. Ég tel togaraút- gerðina nauðsynlega á íslandi og það spor aftur á bak, ef við hættum við hana. íslend- ingar eiga að eiga skip, sem geta stundað veiðar á úthatf- inu — og það sæmir okkur ekki að láta aðrar þjóðir ein- ar um þær veiðar. Togarafisk ur er mikilvægur liður í rekstri frystihúsa og hann skapar unglingum góða at- vinnu á sumrin. Eitthvað þarf að gera í mál efnum þorpa, sem byggt hafa allt sitt á smábátaútgerð þeg- ar afli bregst. Þessir bátar geta ekki sótt á fjarlæg mið og kæmi þá til greina að skipu leggja veiðar, úthluta smærri bátunum ákveðin svæði og hinum stærri önnur. Á þetta sérstaklega við bolfiskinn. Þá þarf að tryggja betur lín.u- veiðar, en aflinn, sem fæst úr þeim er öruggastur og jafn beztur fyrir frystihúsin. Þá þartf að tryggja léttan iðnað fyrir fólk, sem getur ekki unnið hin erfiðu störf, sem fylgja sjávarútvegi. Við megum-ekki missa þetta fólk til Reykjavíkur. — Já, nýlega fannst heitt vatn á Akranesi. Við tengjum miklar vonir við það og jarð- fræðingar segja, að von sé á meira magni en í þeirri bor- holu, sem nú hefur gefið góð- an árangur. Upp úr henni hef unr komið 120 gráðu heitt vatn. Bæjarstjórnarmeirihlut- inn hefur barizt fyrir þessura borunum, sem verða til mik- illa hagsbóta fyrir kaupstað- inn. Sætir það undrun að framsóknarmenn skuli hafa barizt með oddi og egg gegn þessum borunum, sem við vonumst til að sé vísir að hitaveitu. — Um kosningarnar? Ég get ekki séð annað en við sjálfstæðismenn getum horft bjartsýnir fram til þeirra og ég skil ekki í því að við kora- um ekki vel út úr þeim. ★ Við hittum að máli Ingvar Þórarinsson bæjarfulltrúa á Húsavík og inntum tíðinda. Helzta framfaramál okkar Húsvíkinginga nú er beizlun heita vatnsins. Það er búið að bora nokkrar holur í Húsavík urlandi og verið veitt í þær framkvæmdir nær átta milljónum króna. M. a. hefur Norðurlandsborinn borað 1500 metra djúpa holu í Háhöfða, sem er rétt norðan við Húsa- vík. Er gert ráð fyrir að gerð verði áætlun um nýtingu bor holanna á þessu ári og heitt vatn leitt í 57 hús. En lán hafa ekki fengist til fram- kvæmda enn. — Framkvæmdir vegna Kísiliðjunnar eru í fullum gangi og var nú í vikunni byrjað að vinna við grunn skemma við Húsavíkurhöfn í fyrra sumar var hins vegar unnið að hafnargerð og var gerð mikil uppfylling í norð- urenda hafnarinnar. Og mun það hafa kostað um 3,8 milj. kr. Þá er nýji vegurinn um Hólasand mikil samgöngu bót. Nokkuð hefur verið deilt um það heima í héraði, hvort leggja ætti veginn um Hóla- sand eða eins og hann liggur nú. Einkum hafa menn verið hræddir um snjóþyngsli á Hólasandi. Þó hefur ótti manna minnkað eftir þá reynslu sem, við höfum feng- ið á nýju vegunum í sýslunni sl. 2 vetur, sem hafa verið óvenju snjóþungir — en meg- inatriði er þó að nýi vegur- inn um Hólasand er 26 — 27 km. styttri, en sá um Reykja- og Aðaldal. Þá er verið að byggja sjúkrahús á Húsavík og vil ég í því sambandi benda á, að reynt hefur verið að koma á læknamiðstöð. Nú í sumar réðust tveir ungir læknar til Húsavíkur. Hefur mikil breyt ing orðið á þeim málum, þvi að áður fyrr fengust menn helzt ekki til að leysa lækn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.