Morgunblaðið - 06.05.1967, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MAÍ 1967.
Erfiðleikar þorsk-
veiðiflotans
MBL. barst í gaer svohljóð-
ajzdi fréttatilkynning frá
Útvegsmannafélagi Suður-
nesja:
ALMENNUR félagsfundur Út-
vegsmannafélags Suðurnesja,
haldinn í Keflavík 1. maí 1967,
samþykkir eftirfarandi ályktun:
Vegna langvarandi erfiðleika
þorskveiðiflotans, hefur yfir-
standandi vetrarvertíð, með ó-
gaeftum, aflatregðu og veiðar-
færatjóni, lamað greiðslugetu
fyrirtækja, sem starfrækja þá
útgerð.
Vill fundurinn beina áskorun
til þeirra, sem ráða núverandi
efnahagsstefnu, að endurskoða
þær forsendur, sem þeir byggja
starfsgrundvöl bátaflotans á, m.
a. með því, að taka meira tillit
til íslenzkra staðhátta þ. e. a. s.
ógæfta, sveiflum á aflabrögðum
og verðlagi á erlendum mörkuð-
um, en styðjast ekki um of við
efnahagsstefnur háþróaðra iðn-
aðarlanda, sem hljóta að búa við
allt önnur grundvallarskilyrðL
Telur fundurinn of lengi hafa
dregizt að hefja varanlegar að-
gerðir vegna þorskveiðanna, og
er afleiðingin sú, að hér er burð-
arás undirstöðu-atvinnuvegarins
brostinn, eftir aðeins eina ógæfta
vertíð.
Verði ekki fullnægjandi ráð-
stafanir gerðar fljótt til lausnar
þessum vanda, blasir algjör upp-
gjöf við hjá mörgum á þessu
svæði.
Fundurinn samþykkir að kjósa
þriggja manna nefnd, sem færi
með málefni fundarins til stjórn-
ar LÍÚ. Þessari nefnd verði fíMið
að túlka og fylgja eftir skoðun
og samþykkt fundarmanna við
stjórn LÍÚ til lausnar þeim
vanda er blasir við.
Jafnframt verði nefndinni fal-
ið að rita forsætis- og sjávarút-
vegsmálaráðherra bréf um sam-
þykktir fundarins.
. Kvenfélag Hallgrímskirkju
hefur kaffisölu d morgun
KVENFÉLAG Hallgrímskirkju
átti nýlega aldarfjórðungsafmæli.
Margan góðan kaffisopann hafa
Reykvíkingar þegið hjá félaginu
á þessum árum, og því efast ég
ekki um, að fólk muni fjölmenna
1 Silfurtunglið á morgun, þá mun
félagið hafa sína árlegu kaffi-
sölu til ágóða fyrir starfsemi
sína. Ef að vanda lætur, þarf
enginn að efast um, að þar fáist
góð hressing og gott bragð í
munninn. Og svo auðvitað góð
samvizka að auki, því að hér
er verið að styðja gott málefni,
sem öll þjóðin er raunar aðili
að. Húsráðendur í Silfurtunglinu
hafa undanfarin ár lánað kven-
félaginu húsið endurgjaldslaust,
og með því gengið á undan með
góðu eftirdæmi. Fyrir það ber
að þakka.
^ En það eru fleiri, sem hugsa
vel til kvenfélagsins. Ekki alls
fyrir löngu var þess getið í blöð-
um, að rúmlega 5% þess bygg-
ingarkostnaðar, sem búið er að
verja til Hallgrímskirkju í Rvík,
hafi borizt um hendur kvenfé-
lagsins, að undanskildum öllum
gjöfum, sem félagið hefir gefið,
svo sem orgeli, höklum og silfri.
— Nú er bráðum lokið smíði
norðurálmunnar, en þar verður
félagsheimili safnaðarins. Kven-
félagið hefir séð um innréttingu
eldhússins, og lagt til þess ýmsar
peningagjafir, sem því hafa bor-
izt bæði fyrir og eftir afmælið.
Og fyrir fáum dögum gaf Rafha
í Hafnarfirði stóra kaffikönnu
til hins nýja eldhúss. Er það
rausnarleg gjöf, sem verðskuld-
ar sérstakt þakklæti. Þegar kven-
félagið fer að kaupa inn, gleyma
kaupmenn öllum öðrum reikn-
ingsaðferðum en frádrætti. —
Allt þetta sýnir mikla góðvild í
garð félagsins og til kirkjunnar.
(Það mætti skjóta því hér inn í,
að enn er ek’ ‘ búið að kaupa
húsgögn til félagsheimilis kirkj-
unar eða í viðtalsherbergi prest-
anna!).
Nú þegar er Hallgrímskirkja
farin að setja svip á bæinn, eins
og alltaf hefir verið til ætlazt.
En þær, sem enn hafa sett mest-
an svip á safnaðarstarfið, er
kvenfélagið. Þess skulum vér
minnast með þakklæti við kaffi-
söluna á morgun. Opnað verður
kl. 3 e. h. — Ég veit, að ég tala
fyrir munn margra, þegar ég
þakka félagskonum fyrir vinnu
þeirra og framlög — og væntan-
legum kaffigestum fyrir sinn
góða hug, sem fram kemur í
verki.
Jakob Jónsson.
C.A. 8 HEKTARA
sumarbústaðarland
til sölu. Landið er um 17 km. frá Reykjavík. Upp-
lýsingar í síma 41343 frá kl. 9—12 f.h. og eftir
kl. 18.00.
V erkst æðisf agmaður
Kaupíélagið Þór vantar bifvélavirkja með meistara-
réttindi nú þegar. Húsnæði fyrir hendi.
Upplýsingar gefur kaupfélagsstjórinn.
KAUPFÉLAGIÐ ÞÓR- Hellu.
Sumarbústaður
Til sölu sumarbústaður í lándi Miðfelis við Þing-
vallavatn. Tilboð óskast og miðist við staðgreiðslu.
Upplýsingar í dag í síma 12684.
tekin 1964.
Til Ásgeirs Longs
Svar við opnu bréfi
Kæri Asgeir!
Sannarlega er ekki til of mikils
mælzt af þér að fá svar við
opnu bréfi. Það er leiðinlegt að
skrifa bréf og vera ekki virtur
svars. Ég vil biðja þig að virða
á betri veg, að mér hefur láðst
að svara tveim greinastúfum frá
þér. Af einhverjum ástæðum
hefur mér skotizt yfir aðra grein
ina, en sú, sem ég sá, fannst
mér varla gefa tilefni til svars.
Hinsvegar máttu ekki ætlast
til þess að ég svari nafnlausri
grein í Þjóðviljanum, þar sem
þú á sínum tíma birtir sömu
myndina og hinn 28. apríl í
Morgunblaðinu.
En snúum okkur að málinu.
Rásirnar í Skriðufellsskógi virð-
ast valda þér áhyggjum. En
þær eru ekki eins hættulegar
og þú telur þær vera og það er
heldur ekki reglugerðarbrot að
höggva þær upp þegar plantað
er í þær. Sem betur fer er það
heldur ekki rétt að súgur standi
eftir þeim, sem drepi ungviðið.
Síðasta atriðið hefirðu getað
kannað sjálfur með því að setj-
ast eða leggjast í rásimar þegar
vindur blæs í sömu stefnu og
þær liggja. Þá mundir þú furða
þig á, hve kjarrið á milli rás-
anna deyfir vindinn.
Lögin um skógrækt kveða svo
á, að við, sem að henni vinnum,
eigum að planta skógi. Til þess
að ungviðið fái nóg Ijós er okk-
ur nauðugur sá kostur að grisja
kjarr. Unnt væri að gera það
á ýmsa vegu, en rásahöggið er
lang ódýrasta aðferðin. Skurðir
í mýrum og vegir er hvort-
tveggja haft sem beinast, og telja
engir það til náttúrulýta. Um
rásirnar er það að segja, að fari
svo, að ungviðið þrífst ekki eða
deyr, þá kemur birkið aftur upp
í rásunum, svo að þær hverfa
með öllu á skömmum tíma.
Það, sem þú segir um vanhöld-
in í rásunum, er meira en ýkjur
einar. Ég hef að vísu ekki athug-
að vanhöldin í rásunum í Þjórs-
árdal sl. tvö sumur. En skóg-
arvörðurinn þar hefur sagt mér
í dag í síma, að þau séu yfirleitt
lítil. Þess ber að gæta, að mikið
af plöntunum er ungt og smátt
Kaifisolo
sóknar í
FRÁ því á fyrsta starfsári sínu
hefur Kvenfélag Háteigssóknar
haft kaffiveitingar til fjáröflun-
ar — einu sinni á ári. Lengi voru
þær í borðsal Sjómannaskólans,
en reynslan sýndi að stærra hús-
rýmis var þörf.
Á síðasta ári var kaffisala fé-
enn sem komið er. Óvant auga
getur átt erfitt með að sjá þær.
Mér þykir líklegt að þú hafir
séð fallegu grenitrén í Selhöfð-
um, skammt innan við rásirn-
ar, sem þú birtir mynd af. En
sé svo ekki, þá fylgir grein þess
ari mynd af þeim, tekin fyrir
þrem árum. Hæstu trén eru nú
allt að fimm metrum en fjöldi
frá 2 og upp í 4 metra. Þessi tré,
sem plantað var 1948, voru mörg
ár að vaxa úr grasi. Það var
erfitt að koma auga á þau að
sumarlagi allt fram til ársins
1956.
Sjálfsagt er að virða þér til
vorkunnar, að þú skulir ekki hafa
skoðað rásirnar betur. Það hef-
ur komið fyrir fleiri málsmet-
andi menn en þig að segja plönt
ur dauðar, sem síðar hafa náð
ágætum þroska. Búnaðarmála-
stjórinn okkar sagði bæði í út-
varpi og skrifaði um það í Tím-
ann í byrjun þesa árs, að urm-
ull trjáa hefði drepizt í Hauka-
dal veturinn 1965 til ’66. Þurra-
næðingar og ofsastormur vetrar
ins höfðu sviðið barr á fjölda
trjáa, svo að þetta óx í augum.
En viti menn, plönturnar lifðu
allar, og í haust stóðu þær græn
ar og bústnar. Það er ansi hæp-
ið, að láta óskhyggjuna ráða
því, hvað menn tala og skrifa.
Af því þú minnist á fjárveit-
inganefnd og spyrð, hvenær
henni verðí boðið í Þjórsárdal
eins og að Hallormsstað, skal ég
geta þess, að fjárveitinganefnd
hefur verið í boði mínu þar fyr-
ir nokkrum árum, og ekki verð-
ur þess langt að bíða að henni
verði boðið þangað aftur.
Að öðru leyti er þetta mál út-
rætt af minni hálfu. Hvað við-
víkur félagatölu Skógræktarfé-
lags Reykjavíkur vil ég vísa
þér til stjórnar félagsins. Þetta
er sjálfstæð stofnun, og ég kem
ekki við sögu í starfi þess.
Hugleiðingar þínar um náttúru
íslands, veðurfarsbreytingar og
„jökulhjúpa“ verð ég einnig að
leiða hjá mér. Ég tel mig ekki
hafa vit á þessu á borð við þig.
En ég tel víst, að ef þú færir
fram haldgóð rök fyrir „kenn-
ingum" þínum, verður þú fræg-
astur allra íslendinga.
Reykjavík, 1. maí 1967.
Hákon Bjarnason.
lagsins i samkomuhúsinu Lídó.
Er það mjög ákjósanlegur ð-
ur, miðsvæðis í prestakanuiU.
Þangað sótti síðast á kaffisölu
félagsins mikill fjöldi fólks, ung-
ir sem aldraðir, heilar fjölskyld-
ur.
Og nú hefur félagið sína ár-
legu kaffisölu í Lídó á morgun,
og hefst hún klukkan 3 e. h.
Munu félagskonur sjá um, að
þar verði hinar beztu veit-
ingar.
Fé sínu hefur kvenfélagið ráð-
stafað til ýmissa þarfa safnaðar-
ins og þó að mestu til hinnar
veglegu, nýju kirkju — Háteigs-
kirkju — og þannig veitt mjög
mikilvægan stuðning. Auk þess
hefur kvenfélagið gefið hina veg
legustu kirkjugripi — messu-
skrúða, altarisklæði og altaris-
silfur. Síðasta gjöf félagsins til
kirkjunnar var mjög vandað há-
talarakerfi, sem tekið var i
notkun á síðustu jólum. Og enn
er þörf stuðnings við óleyst
verkefni.
Þá hefur félagið sýnt það 1
verki að það hefur ekki gleymt
aldraða fólkinu í söfnuðinum.
Má í því sambandi minna á sam-
komurnar fyrir aldraða bæði i
Sjómannaskólanum og síðustu
tvö árin í Lídó, þar sem fjöl-
menni hefur verið þakklátra
gesta félagsins.
Ljóst er því söfnuðinum, að
kivenfélagskonurnar eru góðs
stuðnings maklegar í miklu og
fórnfúsu starfi þeirra.
Safnaðarfólk og aðrir Reyk-
víkingar, fjölmennum því til
kaffisölunnar í Lidó á morgun.
J. Þ.
Keflvíkingar —
Keflvíkingar
Við höldum ÍRLANDSKYNNINGU á
morgun sunnudag kl. 3 e.h. í samkomu-
húsinu STAPA.
THE DRAGOONS
syngja og spila írsk þjóðlög.
Sérstaklega viljum við benda þátttakend-
um í hópferðir okkar á þessa ÍRLANDS-
KYNNINGU.
LÖIMD & LEIÐIR
Kveniélags Hóteigs-
Lídó ó morguo