Morgunblaðið - 09.05.1967, Side 15

Morgunblaðið - 09.05.1967, Side 15
MORGUNBLAlpIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967. 15 Mikill áhugi á geðverndarmálum AÐALFUNDUR Geðverndarfé- lags íslands var haldinn í Tjarn- arbúð þriðjudaginn 25. apríl, og bar fundarsókn ótvíræðan vott mikillar grósku í félagsstarfi og áhuga á geðverndarmálum al- mennt. Formaður geðverndarfélagsins, Kjartan J. Jóhannsson héraðs- læknir, stjórnaði fundi, og kom fram í ársskýrslu hans, að fé- lagatalan hafði aukizt um nær 60% á starfsfárinu. Margir gengu í félagið á fundiinum. Formaður skýrði framkvæmda áætlun félagsins, en þar er byggt á nánu samstarfi við SÍBS að Reykjalundi. Yfirstjórn Reykja- lundar hefur ávallt sýnt málefn- um geð- og taugasjúklinga í aft- urbata mikla velvild, og veitt þeim sjúklingum sem öðrum ó- metanlega aðstöðu til endurhæf- ingar. Nú er ákveðið enn nánara sam starf SÍBS og Geðverndarfélags íslands að Reykjalundi. Þórður Benediktsson, fram- kvæmdastjóri SÍBS, kvaddi sér hljóðs á aðalfundinum, og kvað hann það mikinn heiður, að hin útrétta hönd SÍBS beindist nú að baráttumálum geðverndarfé- lagsins. Samstarfið væri heils hugar, og öskaði Þórður Bene- diktsson geðverndarfélaginu og hugsjónum þess blessunar. Mætti hið jákvæða samstarf og bróður- Gólfteppi - teppakgiiir Er með sýnishorn af íslenzkum, enskum og dönsk- um teppum. Fjölbreytt litaval, hóflegt verð. Sé um máltöku og lagnir. Vilhjálmur Einarsson, sími 34060. Geymið auglýsinguna. EYKUR HEILDSÖLUBIRGÐIR )) M (d^f hönd verða þjóðfélaginu öllu til góðs. Fyrir tilstuðlan velvildar- manna hins afskipta hóps geð- og taugasjúklinga hefði nú góðu verið komið til leiðar, allri þjóð til blessunar. Þórunn Pálsdóttir, sérmennt- uð hjúkrunarkona á sviði geð- sjúkdóma, þakkaði styrk og upp- örvun, er félagið hafði veitt henni til framhaidsnáms. Kynnti hún námsskipulag, og var hér varpað ljósi á atihyglisvert fram- tíðarverkefni félagsins, en það er sérmenntun nátengd öðru því uppbyggingarstarfi, sem geð verndarfélagið hefur á Stefnu- skrá sinni. Frú Áslaug Sívertsen, gjald- keri félagsins, gerði grein fyrir batnandi hag þess, en í sjóði voru um sl. áramót kr. 476 þús- und Þá bar frúin kveðju nokk- urra fjarstaddra velunnara. Tilkynnt var um sjóðstofnun til minningar um Kjartan B. Kjartansson lækni, eins og áður hefur komið fram í blöðum. Hafði Kjartan heitinn, sonur þeirra frú Jónu Ingvarsdóttur og Kjartans J. Jóhannssonar, helg- að sig sérsviði geð- og tauga- lækninga, en foreldrar hans stofna sjóð þennan. Var hins látna læknis minnzt á fundinum. Erindi prófessors Tómasar Helgasonar um ÞJÓNUSTU VIÐ GEÐSJÚKLINGA vakti óskipta athygli fundarmanna. Var hér varpað skýru Ijósi á almennar framfarir innan geðlæknisfræð- innar, svo og nauðsyn þess að fylgja þeim fast eftir, bæði með aukinni sérmenntun, almennu kynningarstarfi, aðhlynningu og endurhæfingu sjúkra. Þetta mætti aðeins takast með sam- hæfðu átaki allra, er láta sig málefnið á einn eða annan hátt varða, en þann hóp jákvætf hugsandi fólks vildi prófessor- inn sjá sem fjölmennastan. Fagnaði hann athyglisverðri fundarsókn og áhuga fundar- manna. Þá þakkaði formaður fri- merkjanefnd störf við frímerkja- söfnun og alla aðstoð við sjúkl- inga í því sambandL Minntist hann sérstaklega starfs þeirra frá Jóhönnu Baldvinsdóttur, frú Kristínar Jóhannesdóttur og Sverris Sigurðssonar, en Svérrir Sigurðsson tók einnig til máls. Þakkaði hann öllum, er lagt hefðu hönd á plóginn. Ákveðið var að tímaritið GEÐ- VERND kæmi enn út á þessu ári í umsjá Kristins Björnsson- ar sálfræðings. Vonazt var til, að félaginu Skapaðíst nokkur tékjustofn af sölu auglýsinga á s.n. eldspýtna- bréf, sem í undirbúningi er að komi á markaðinum hérlendis. Framkvæmdastjóri og félags- ráðgjafi sinntu störfum fyrir fé- lagið á starísárinu. Það skal tékið fram, að öllum er heimil félagsþótttaka í Geð- verndarfélagi íslands. TILBOÐ óskast í eftirtaldar bifreiðir og tæki, sem verða til sýnis- fimmtudaginn II. maí 1967 kl. 1—4 í porti bak við skriístofu vora Borgartúni 7: Ford Galaxie fólksbifreið .. .... .. árgerð 1961 Land Rover diesel........................ — Land Rover diesel........................ — Austin Gipsy diesel...................... — Austin Gipsy diesel...................... — Gaz 69 jeppi............................. — Citroén sendiferðabifreið ........ — Austin seven sendiferðábifreið .... — Austin seven sendiferðabifreið .... — Austin seven sendiferðabifreið .... — Skoda station .. .. — Volkswagen sendiferðabifreið .... — Ford pic up . i ......................... — Chevrolet 20 manna fólksbifreið .. — Ford Trader vorubifreið 4 tonn .. — Ford 14 manna fólks/vörubifreið .. •— Ford loftpressubifreið Le Roi .... — 2 stk. Sullivan loftpressur 126 ten fet/mín. 2 stk. Junkers loftpressur 126 ten fet/mín. Vatnabátur trefjaplast Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Borgar- túni 7, sama dag kl. 5 e.h. að viðstöddum bjóð- endum. Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISIT 1963 1962 1963 1963 1958 1965 1964 1964 1962 1961 1961 1952 1955 1964 1951 1947

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.