Morgunblaðið - 09.05.1967, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967.
Hvítasunnuferð
frá ísafirði
SUNNUKÓRINN, ísafirði og
Karlakór ísafjarðar hafa leigt
m/s ESJU um Hvítasunnuhelg-
ina og áætla að halda söng-
skemmtanir á þrem stöðum
norðanlands.
Lagt verður af stað frá ísa-
firði um miðnætti fimmtudag-
inn 11. maí og haldið til Húsa-
víkur og sungið þar á föstudags-
kvöld. Til Akureyrar verður
komið á laugardag og haldin þar
söngskemmtun á laugardags-
kvöld. Á heimleiðinni verður
komið við á Siglufirði á Hvíta-
sunnudag og sungið þar um
kvöldið. Áætlað er að koma
heim til ísafjarðar um hádegi á
2. í Hvítasunnu.
Söngstjóri kóranna er Ragnar
H. Ragnar, sem verið hefur söng
stjóri kóranna í nær 20 ár, eða
allt frá því að Jónas Tómasson
lét af þeim stöfum. Undirleikari
er Hjálmar Helgi Ragnarsson,
en einsöngvarar eru Herdís
Jónsdóttir, Margrét Finnbjarn-
adóttir, Gunnar Jónsson og
Gunnlaugur Jónasson. Á hljóm-
leikunum koma fram einsöngv-
arar, kvennakór, karlakór og
blandaður kór. Söngfélagar eru
samtals um 60 talsins, en efnis-
skráin í söngferðinni er að
mestu sú sama og á hljómleik-
um kóranna á ísafirði 12., 13.
og 14. apríl s.l. Má þar m. a.
nefna Dónárvalsana eftir Jo-
hann Strauss, en um þessar
mundir eru liðin 100 ár frá því
þeir voru fyrst fluttir.
Nokkrir farmiðar, sem kór-
arnir ekki nota, verða til sölu
á skrifstofu Ríkisskip á ísafirði
n.k. mánudag og þriðjudag 8.
og 9. maí kl. 10—12 f.h. og kl.
5—7 e.h. Fargjald er kr. 650.00
til 700.00 á sólarhring með fæði,
en ferðin tekur 3% sólarhring.
Fararstjóri í söngferðinni er
Einar B. Ingvarsson, banka-
stjóri. Formaður Karlakórs ísa-
fjarðar er Hreinn Þ. Jónsson en
fonm. Sunnukórsins er Gunn-
laugur Jónasson. — H.T.
Aðalfundur Fé-
lags garðyrkju-
manna
Aðalfundur Félags Garðyrkju-
manna var haldinn sunnudaginn
23. þ.m. að Óðinsgötu 7. Frá-
farandi formaður Steingrimur
Benediktsson var endurkjörinn
formaður félagsins og aðrir í
stjórn voru kjörnir:
Guðjón Björnsson, varaform.
Guðjón Bjarnfreðsson ritari, Þórð
ur Birgir Þórðarson gjaldkeri
Gunnar Tómasson meðstjómandi
Fundurinn samþykkti meðal
annars, að félagið gengist fyrir
námskeiði fyrir félagsmenn sína
um meðferð og notkun varnar-
lyfja við útrýmingu meindýra og
snýkjugróðurs í skrúðgörðum
og gróðurhúsum.
Atviíma
Óskum eftir að ráða húsgagnasmið og lagtæka
menn. — Upplýsingar í síma 35252.
Ung stúlka
með vélritunarkunnáttu óskar eftir vinnu eftir
hádegi. Margt kemur til greina. Upplýsingar 1 síma
36878 eftir hádegi miðvikudag og fimmtudag.
RACNAR JONSSON
Lögfræðistörf
og eignaumsýsla.
hæstaréttarlögmaður.
Hverfisgata 14. — Sími 17752.
EF ÞÉR EIGIÐ MYNDIR
— stækkum við þær og mál-
um í eðlilegum litum. Stærð
18x24. Kostar ísL kr. 100,00.
Ólitaðar kosta kt. 50,00. —
Póstsendið vinsamlega mynd
eða filmu og segið til um liti.
Foto Kolorering, Dantes Plads
4, Kóbénhavn V.
HILMAR FOSS
lögg. skjalaþ. og dómt.
Hafnarstr. 11. Sími 14824. i
LAVENITE TVÍLITU hreinlætistækin eru víðfræg fyrir
fegurð og hreinan stíl, enda framleidd af hinum viðurkennda
ítalska fyrirtæki
Richard-Ginori
(Stofnsett 1735).
LAVENITE (skrásett vörumerki) er fyrsta flokks gæðavara úr
keramik.
Þessi tegund af glerkenndu postulíni einkennist af því að glerung-
urinn nær mjög langt inn í leirinn, þolir vel högg og er ónæm fyrir
snöggum hitabreytingum og áhrifum frá sýru (hitaveituvatni) og
litum.
Richard-Gmori verksmiðjurnar eru einnig heims-
þekktar fyrir framleiðslu sína á gólf- og veggflísum og alls konar
borðbúnaði úr postulíni.
Einkaumboðsmenn: S. ÁRMANN MAGNÚSSON
, Hverfisgötu 76 — Sími 16737.
heildverzlun.
Söluumboð:
BYGGINGAVÖRUVERZLUNIN
NÝBORGl
HVERFISGÖTU 7ó
SfMI 12817
ÉG er alltaf að reyna að trúa, en mér ætlar víst ekki að
takast það. Getið þér hjálpað mér?
HÆTTIÐ að reyna. Treystið! Allt of margir lifa lífinu
í baráttu, sem skapar innri spennu, þar sem engin
ætti að vera. Hér á það við, sem Kristur sagði við Pál
í sálarstríði hans: „Erfi-tt verður þér að spyrna á móti
broddunum“. Þegar Páll gafst upp, hætti að strita og
berjast, þá streymdi friður Krists um sál hans, og
hann varð að nytsömum starfsmanni hans.
Merkur geðlæknir hefur sagt: „Menn þurfa að
slaka á, gefast upp, hætta öllum tilraunum, svo að
þeir komist inn að kjarna vandamála sinna“.
Fyrir mörgum öldum sagði Guð fyrir munn
Davíðs: „Hættið og viðurkennið, að ég er Guð“. —
Trúin verður ekki tii fyrir ofsalegt erfiði eða árang-
urslitlar tilraunir okkar. Hún kemur, þegar við hætt-
um glímunni, gefumst upp — og treystum Guði“.
Trúin kemur hljótt og eðlilega, þegar ekkert er
framar, sem hindrar hana. Hafi sektarkennd, iðrun
eða þrermóðska lamað líf yðar, skuluð þér segja eins
og Páll: „Drottinn, hvað vilt þú, að ég gjöri?“ Hann
mun taka yður sér við hönd og vísa yður hina björtu
braut til trausts og trúar.
Kristniboðsflokkur K.F.U.K.
heldur samkomu í húsi félaganna við
Amtmannsstíg í kvöld kl. 8.30. Gísli Arn-
kelsson kristniboði sýnir myndir frá
Konsó. Frásöguþáttur: Katrín Guðlaugs-
dóttir. Hugleiðing: Jóhannes Ólafsson
kristniboðslæknir. Kvennakór syngur.
Gjöfum til kristniboðsins veitt móttaka.
Allir velkomnir.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Guðjóns Steingrímssonar, hrl., Björns
Sveinbjörnssonar, hrl., Axels Kristjánssonar, hrl.,
Hafþórs Guðmundssonar, dr. juris, Iðnaðarbanka
íslands h.f. og Útvegsbanka Islands verður hús-
eignin Merkurgata 8, Hafnarfirði, þinglesin eign
ívars Þórhallssonar, seld á nauðungaruppboði, sem
háð verður á eigninni sjálfri föstudaginn 12. maí
1967, kl. 4 e.h.
Uppboð þetta var auglýst í 3., 6. og 8. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1967.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.
Lærið ensku —
í Englandi
The Pitmans School of English (viðurkenndur af
mennta- og vísindamálaráðuneyti Bretlands) býð-
ur yður yfirgripsmikla enskukennslu allt árið um
kring.
Á námskeiðunum er kennt enskt talmál, hljóð-
fræði, verzlunarbréfaskriftir, bókmenntir og und-
irbúningur undir háskólagráðu, o.s.frv.
Einnig eru haldin stutt en erfið sumarnámskeið
í London, Oxford og Edinborg í júlí, ágúst og
september.
Útvegum nemendum húsnæði þeim að kostnað-
arlausu, — ókeypis aðgangur að Pitman-klúbbn-
um (skemmtanir, útilíf og listir).
Skrifið til T. Steven, Principal, og biðjið um upp-
lýsingabækling.
THE PITMAN SCHOOL OF ENGLISH
46 Goodge Street, London, W.l.