Morgunblaðið - 09.05.1967, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 09.05.1967, Blaðsíða 32
Lang stœrsfa og fjölbreyffasfa blað landsins Helmingi utbreiddara en nokkurt annað íslenzkt bl^ð ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 1967 Áskilja sér skaðabótarétt vegna sfðari töku Brands AÐ ]>vi er Agnar Kl. Jónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðu- neytisins, tjáði Morgunblaðinu í gær, var Guðmundur í. Guð- mundsson, sendiherra íslands í London, boðaður til viðræðna í brezka utanrikisráðuneytinu sl. miðvikudag vegna töku togarans Brands út af Snæfellsnesi efíir að hann hafði strokið úr Reykja- víkurhöfn. Sendiherrann var boðaður á fundi Mr. Hohlers, sem er einn af æðstu embættismönnum utan- ríkisráðuneytisins. Mr. Hohler taldi töku togarans ólöglega, þar sem hann hefði verið utan fisk- veiðimarkanna, er hann var tek- inn í annað sinn. Var þess kraf- izt, að togarinn yrði látinn laus tafarlaust og áskildu Bretar sér rétt til skaðabóta. Agnar Kl. Jónsson kvað Guð- mund f. Guðmundsson hafa tek- ið við skilaboðunum og málið væri nú til athugunar í utan- ríkisráðuneytinu hér heima. Brezk blöð hafa skrifað mjög mikið um þetta mál, m.a. birti blaðið Observer frétt um það á forsíðu sl. sunnudag. Þar er m.a. haft eftir talsmanni brezka utan ríkisráðuneytisins, að það hafi vakið athygli íslenzku stjórnar- innar á lagalegum staðreyndum málsins. Buschini dæmdur í 300 þús kr. sekt Neskaupstað 8. maí. DÓMUR var kveðinn upp hér kl. 1 eftir hádegi yfir Anthony Alan Buschini, skipstjóra á brezka togaranum Boston Kest- rel FD 256, sem varðskipið Þór tók að meintum ólöglegum veið- um um 2 sjómílur innan fiski- ve.Bimarkanna út af Digranes- fraki sL laugardag. Buschini var dæmdur til að greiða 300 þús. króna sekt til Landhelgissjóðs og komi 8 mán- aða varðhald í stað sektarinnar verði hún ekki greidd innan fjögurra vikna frá birtingu dómsins. Afli og veiðarfæri voru gerð upptæk og skipstjóra gert að greiða allan sakarkostnað, þ.á.m. saksóknarlaun til saksókn ara ríkisins kr. 15 þúsund og málsvarnarlaun til skipaðs verj- anda síns, Ragnars Aðalsteins- Framhald á bls. 31. Sigurður Bjarnasou Matthías Bjarnason Þrír fundir Sjálfstæðis- manna á Vestfjörðum Verba i þessari viku á ísafirði, i Bolungarvík og Hnifsdal SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN á fsa- firði, í Bolungarvík og Hnífs- dal b.oða í þessari viku til þriggja almennra stjórnmála- funda. Verða þeir haldnir sem hér segir: Á fsafirði, miðvikudaginn 10. maí kl. 9 e.h. að Uppsölum. f félagsheimilinu í Bolungar- vik, fimmtudaginn 11. maí kl. 9 e.h. og í félagsheimilinu í Hnifs- dal föstudaginn 12. maí kl. 9 e.h. Frummælendur á öllum fund- unum verða þeir Sigurður Bjarnason alþingismaður frá Vigur, Matthías Bjarnason al- þingismaður og Ásberg Sigurðs- son, sýslumaður. Að loknum framsöguræðum verða frjálsar umræður. Öllum er heimiL aðgangur að fundunum. Sjálfstæðismenn hafa undan- farið haldið almenna 5 stjórn- málafundi í Strandasýslu, Vest- ■w-ÍaaUavXarcvcln Off Norð- ur-ísafjarðarsýslu. Fyrr í vor héldu þeir einnig 2 slíka fundi í Barðastrandasýslu. Allir hafa þessir fundir verið vel sóttir og sýnt áhuga fyrir sigri Sjálfstæð- isflokksins og ríkisstjórnarinnar í alþingiskosningunum. Observer segir einnig, að sam kvæmt samþykktum Genfarráð- stefnunnar frá 1958 sé handtaka á úthafinu því aðeins leyfileg, að eftirför hafi verið hafin inn- an landhelgi og áé óslitin þar til handtaka fari fram. Þá kemur fram í Observer, að Brandur sé væntanlegur til Grimsby síðdegis í dag, þriðju- dag. Newton, skipstjóri, hafi lát- ið loka talstöð togarans og því hafi hann ekki fengið skilaboð þess efnis, að leyfi hafi verið fengið fyrir hann til að selja afla togarans á IslandL Átti 6 lömb - 2 lifðu ÞAÐ bar við á uppstigningar- dag að Bjarmalandi í Grinda- vik að 10 vetra ær átti 6 lömb. Ærin heitir Ófeig og lifðu tvö lömbin. Það þriðja fæddist lifandi, en vanskap- a@ og dó strax. Hin þrjú fæddust dauð. Ófeigur hefur eignazt 22 lörrub alls og eru þau tvö, sem nú lifðu, þá með talin. f hitteð fyrra átti Ófeig 4 lömb, en einu var lógað. Tvö árin þar á undan átti hún þrjú lömb í hvort skipti. Eigandi Öfeigar er ólafur Guðbjartsson, sonur Guðbjart ar Guðbjartssonar að Bjarma- landi. ^ Gengið daglega á fjörur í Eyjum LfK flugmannanna þriggja, sem fórust með Austfirðingi, Douglas DC 3 flugvél Flugsýnar, hafa ékki fundizt ennþá. Gengið er á fjörur f Vest- mannaeyjum daglega. Hefur ýmislegt brak úr flugvélinni rekið. Ekki hefur verið unnt að kafa til að leita flugmannanna vegna brimróts og strauma. Verður það gert svo fljótt sem veður leyfir. Atkvæði talin hjá sáttasemjara í gær. — Ljósm. ÓI. K. M. Báðir aðilar felldu miðlunartillöguna Verkfall lyfjafrœðinga heldur áfram, en það hefur staðið í 4 vikur VERKFALL lyfjafræðinga heldur áfram, en það hefur nú staðið í fjórar vikur. Klukkan 6 síðdegis í gær voru talin at- kvæði um miðlunartillögu sátta- semjara og var hún felld af báðum aðilum. Sáttafundur í kjaradeilu lyfja- fræðinga og apótekara var hald- inn sl. laugardagskvöld og hófst hann kl. 8,30. Um kl. 11 um kvöldið lagði sáttasemjari ríkis- ins, Torfi Hjartarson, fram miðl- unartillögu og hljóðar hún svo: „Miðlunartillaga. Til lausnar yfirstandandi kjara- deilu milli Lyfjafræðingafélags íslands og Apótekarafélags ís- lands ber sáttasemjari fram svo- fellda Miðlunartillögu: Lyfjafræðingafélag Islands og Apótekarafélag íslands gera með sér svofellt Samkomulag: 1. gr. Gerðadómur skipaður fimm dómendum skal ákveða mánaðarlaun, tímakaup og yfir- jvinnukaup lyfjafræðinga (Exa- minati et Candidati Pharrma- ciae). Að öðru leyti framlengiat samningur aðila gerður 18. febr- úar 1966. 2. gr. Gerðardómurinn skv. 1. gr. skal skipaður þannig, að hæstiréttur skipar formann dómsins og tvo meðdómendur en aðilar skipa sinn meðdómandann hvor. Forfallist dómari skipar sá, Framhald á bls. 31. Þorsteinn á Vatnsleysu á flokksþingi Framsóknar: Framséknarflokkurinn hefur svert landbúnaðinn — með sífelldum barlómi um haim EINS og Morgunblaðið hefur áður skýrt frá, var Þorsteinn Sigurðsson, bóndi á Vatnsleysn, einn helzti bændafrömuður landsins, felldur úr 100 manna miðstjórn Fram- sóknarflokksins á flokks- þingi hans í marzmánuði sl. Morgunblaðið hefur nú aflað sér upplýsinga um það, að ein af ástæðunum til þess, að Þorsteinn á Vatnsleysu var felldur úr miðstjórninni er sú, að Asberz Sitrurðsson hann flutti ræðu á flokks- þinginu, þar sem hann mótmælti því fyrir hönd hænda í landinu, að Fram- sóknarflokkurinn ræki sí- felldan áróður um að allt væri á niðurleið í landhún- aðinum. Þorsteinn á Vatns leysu sagði, að þessi áróð- ur hefði þegar haft hin verstu áhrif fyrir landbún- aðinn, og m.a. valdið því að jarðir hefðu ekki byggzt. Hann sagði, að bú- ið væri að sverta svo þenn- an atvinnuveg með stanz- lausum barlómi, að menn vildu ekki leggja hann fyr- ir sig. Slíkur áróður væri neikvæður fyrir landbún- aðinn. Framsóknarmenn á flokksþinginu svöruðu þessum ákúrum Þorsteins með því að fella hann úr miðstjórninni eins og fyrr segir, og flutti hann þá aðra ræðu og segja þeir sem á hlýddu, að hann hafi „hellt sér yfir“ Framsókn- armenn og Framsóknarfor ustuna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.