Morgunblaðið - 11.05.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.05.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1967. SÆNSKI tundurspillirinn HMS Halland er væntanlegur til Reykjavíkur 25. þ.m. og mun hafa hér þriggja daga viðdvöl á leið sinni vestur til Kanada. Tundurspillirinn sem er 3300 tona skip er allvel vopnum búinn fallbyssum, loftvarnarbyssum og tundur- skeytabyssum svo og djúp- sprengjum gegn kafbátum. Áhöfn herskipsins er um 275 menn og eru yfirmenn alls 26. Tundurspillirinn Halland var tekinn í notkun í árs- byrjun 1955. Hann er 120 m á lengd og ganghraði 35 hnút ar. Myndin er af HMS Hall- and á siglingu og skipherra tundurspillisins kommandör- kapten Folke von Celsing. Russell-iéttaihöldunam lokið Stokkhólmi 10. maí NTB BANDARÍKIN eru sek um árás I Vietnam og hafa brotið með því þjóðréttarreglur, segir í yf- irlýsingu Russeldómstóisins svo nefnda sem lauk störfum í Stokk h. í dag. í yfirlýsingunni seg- ir, að Bandarikin hafi í miklu maeli og á kerfisbundinn hátt varpað sprengjum á skotmörk, sem væru einungis borgaralegs eðlis. Hinir 17 meðlimir „dómstóls- ins“ en forseti hans er franski rithöfundurinn Jean Paul Sartre, voru allir á sama máli um þessa Sjúlfstæðisíólk FÉLAGAR í Heimdalli, Verði og Óðni, sem fengið hafa senda happdrættismiða í Landshapp- drætti Sjálfstæðisflokksins, eru vinsamlega beðnir að gera skil, sem allra fyrst, því að óðum styttist sá tími þar til dregið verður. Kosningaskrífstofur Kópavogur KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf- stæðisflokksins er í Sjálfstæðis- húsinu, Borgarholtsbraut 6, Kópavogi. Símar 40708, 42576 og 42577. Skrifstofan er opin frá kl. 9—22. Sjálfstæðisfólk er hvatt til þess að koma á skrifstofuna og gefa upplýsingar varðandi kosningarnar. Hafnarfjörður KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf- stæðisflokksins er í Sjálfstæðis- húsinu, Strandgötu 29. Skrifstof- an verður opin frá kl. 9—22. Sjálfstæðisfólk er hvatt til þess að koma þan^að og gefa upplýsingar varðandi kosning- arnar. Sími skrifstofunnar er 50228. niðurstöðu eftir að hafa ráð- fært sig saman í einn dag. Því var haldið fram, að yfirlýsing dómsins væri byggð á Kellog- sáttmálanum frá 1928, sáttmála Sameinuðu þjóðanna, Núrnberg reglunum og Genfarsamningnum frá 1954. „Dómstóllinn" lýsti því einn- ig yfir að Bandaríkin hefðu hvað eftir annað gert ólöglegar árás- ir á Kambodsja. Ástralía, Nýja- Sjáland og Suður-Kórea voru lýst samsek í árás Banaaríkj- anna, en „dómstóllinn" kvaðst ekki hafa haft efnisheimildir til þess að úrskurða, hvort líta ætti einnig á Thailand sem samsekt. Theheran, 10. maí. AP I dag var afhjúpuð í Shoraz í suðvesturhluíta frans stytta af Farah keisaradrottningu lands- ins, og er það í fyrsta sinn í hinni 2,500 ára gömlu sögu þjóð arinnar að gerð er stytta af drottningu landsins. Styttan var reist í virðingarskyni við starf- semi drottningarinnar á sviði fé lagsmála og stuðning hennar við kvenfélagshreyfinguna í íran. Tókst að ná Há- varði af strand- stað f FYRRADAG tókst að ná á flot v.b. Hávarði, sem strandaði fyrir rúmum þremur vikum á Meðallandssandi. Var það varð- skipið Þór, sem dró bátinn út, óg tókst það í alla staði vel. Hávarður er tryggður hjá Sam ábyrgð, og fól tryggingarfélagið Björgun hf. að sjá um björgun bátsins. Hefur verið unnið að undirbúningi björgunarinnar nú í rúmlega tvær vikur, og voru ýmsar stóvirkar vinnuvélar fengnar á strandstaðinn til þess að grafa undan bátnum. Og í gær tókst, eins og áður segir, að ná bátnum út af strandstaðn- um, og var honum þá siglt til Vestmannaeyja, þar sem hann er gerður út. Báturinn mun vera lítið sem ekkert skemmdur. — 5 i Reykjaneskjördæmi FRAMBOÐSFRESTUR rann út kl. 24.00 á miðnætti í gær um land allt. í Reykjavík komu fram 6 framboðslistar, frá Sjálf- stæðisflokknum, Alþýðuflokkn- um, Framsóknarflokknum, tveir listar frá Alþýðubandalaginu og frá Óháða lýðræðisflokknum. I Reykjaneskjördæmi komu fram 5 framboðslistar, frá Sjálfstæð- isflokknum, Alþýðuflokknum. Framsóknarflokknum, Alþbl. og Óháða Lýðræðisflokknum. Að öðru leyti er Mbl. ekki kunnugt um annað en 4 framboðslistar hafi komið fram í öðrum kjör- dæmum, hverju um sig, frá fyrst nefndu fjórum flokkum hér að ofan. Efstur á lista Óháða Lýðræðis- flokksins í Reykjavík er Áki Jakobsson hrl. Listi Hanníbals Valdemarssonar er skipaður eft- irtöldum konum og körlum: 1. Hanníbal Valdemarsson, al- þm., 2. Vésteinn Ólason, stud. mag., 3. Haraldur Henrysson, dómarafulltrúi, 4. Jóhann J.E. Kúld, fiskmatsmaður, 5. Krist- ján Jóhannsson, starfsmaður Dagsbrúnar, 6. Jón Maríasson, formaður Samb. matreiðslu- og framreiðsl'um., 7. Bryndís Schram, leikkona, 8. Margrét Auðunsdóttir, form. Starfs- stúlknafélagsins Sóknar, 9. Ingi- mar Sigurðsson, járnsmiður, 10. Helgi Þ. Valdimarsson, læknir, 11. Guðvarður Kjartansson, for- maður Starfsmannafélags SÍS, 12. Einar Jónsson, múrari, 13. Sigríður Björnsdóttir, mynd- listarkennari, 14. Ingólfur Hauksson, verkamaður, 15. Halldór Magnússon, útgerð- armaður, 16. Hólmfríður G. Jónsdóttir, hjúkrunarkona, 17. Matthías Kjeld, læknir, 18. Sig- ríður Hannesdóttir, frú, 19. Krist ján Jensson, bifreiðastjóri, 20. Bergmundur Guðlaugsson, toll- vörður, 21. Bergþór Jóhannsson, grasafræðingur, 22. Guðgeir Jónsson, bókbindari, fyrrum forseti ASÍ, 23. Alfreð Gíslason, læknir, 24. Sigurður Guðnason, fyrrum form. Dagsbrúnar. Mbl. er kunnugt um að meðal meðmælenda með lista þessum eru Sigurður Guðgeirsson, starfs maður Verkamannasambandsins, Guðjón Jónsson, form. Félags járniðnaðarmanna, Magnús Torfi Ólafsson fyrrv. formaður Al- þýðubandalags Reykjavíkur og Þórir Daníelsson, frkvstj. Verk? mannasambandsins. Kjósendufundur í Búðurdul í hvöld SJÁLFSTÆÐISMENN á Vest urlandi efna til almenns kjós- endafundar í Búðardal í kvöld kl. 20,30. Magnús Jónsson, fjár- málaráðherra heldur ræðu og einnig tala þrír efstu menn á fram-boðslista Sjálfstæðisflokks- ins í Vesturlandskjördæmi, þeir. Jón Árnason alþm., Friðjón Þórðarson, sýslumaður og Ás- geir Pétursson, sýslumaður. Kjósendur í Vesturlandskjör- dæmi og þá sérstaklega Búðar- dal og nágrenni eru hvattir til þess að fjölmena. Myndin var tekin af ítölsku sýn ingarstúlkunum við komuna ti 1 Reykjavíkur. * llölsk tízkusýning Á VEGUM forráðamanna „ítölsku sýningarinnar", sem um þessar mundir stendur yfir í Reykjavík, verður haldin tízku- sýning í Súlnasal Hótel Sögn í kvöld, fimmtudag 11. maí og á morgun föstudag 12. maí. Hefst sýningin bæði kvöldin kl. 9. Verður sýningin mjög fjöl- breytt. Sýnt verður það nýjasta og helzta á ítölskum tízkumark- aði í dag. Auk þess sem dag- kjólar, síðir og stuttir samkvæm iskj. verða sýndir, verður sýnd sumartízkan ’67, sundfatnaður, kvensíðbuxur o. fl. Sýningar- stúlkur verða alls 12, 6 ítalskar og 6 íslenzkar. Berfin, 10. maí. NTB Ernst Vollweber, fyrrverandi yfirmaður austurþýzku leyni- þjónustunnar lézt 3. maí 68 ára að aldri. Var fyrst vitað um dauða hans í dag, er þar var skýrt stuttlega frá andláti hans í kommúnistamálgagninu „Neues Deutschland". P- f Framboðsfrestur útrunninn: 6 framboislistar í Reykjavík Kjósendulundur í Bolungorvík Suðurnes KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf- stæðisfélaganna er að Hafnar- götu 46, Keflavík, sími 2021. Skrifstofan er opin kl. 2—6 og 8—10 síðdegis alla daga. Sjálf- gtæðisfólk vinsamlega gefið gkrifstofunni upplýsingar varð- andi kosningarnar. Keflvíkingar, vinsamlega gerið skil í Lands- happdrættinu. Vestmannaeyjar KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálf- stæðLsflokksins í Vestmannaeyj- um er í Samkomuhúsinu, sími 1344. Afgreiðsla Landshapp drættisins er á samr stað SJÁLFSTÆÐISMENN á Vest- fjörðum efna til almenns kjós- endafundar í Félagsheimilinu Bolungarvík í kvöld kl. 21,00. Frummælendur verða Sigurður Bjarnason alþm. frá Vigur, Matthías Bjarnason, alþm. og Ás berg Sigurðsson, sýslumaður. Að loknum framsöguræðum verða frjálsaí umræður og er öllum heimill aðgangur. V esti jar ðak jördæmi AÐALKOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum er að Uppsölum, ísafirði, sími 232. Skrifstof- an veitir allar upplýsingar í sambandi við utankjörstaða- atkvæðagreiðslu og annað er að kosningunum lýtur. VESTFIRÐINGAR Hafið samband við kosningaskrifstofuna. Þeir, sem verða fjarstaddir á kjördegi, eru beðnir að kjósa í tæka tíð, strax og það er leyfilegt, og senda atkvæði sín. SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN A VESTFJÖRÐUM *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.