Morgunblaðið - 11.05.1967, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1967,
19
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM
KVIKMYNDIR
Kópavogsbíó.
Lögreglan í St. Pauli.
l»ýzk mynd.
Leikstjóri: Júrgen Roland.
MÉR skilst, að þetta eigi öðr-
um þræði að vera „heimildar-
kvikmynd“ um hið illræmda
bæj arhverfi St. Pauli í Hamborg.
Yfirvöldin hafa ekki undan að
taka við kvörtunum frá fólki,
sem hefur orðið fyrir iíkams-
árásum, verið rænt fjármunum
eða prettað á einhvern hátt. Það
er jafnvel kvartað yfir vændis-
konunum fyrir of mikinn af-
greiðsluhraða við roskna menn
eða ölvaða.
Því þarna er gnægð vændis-
kvenna, enda er víst erfitt að
uppræta þá þjóðfélagsstétt víða
íútlandinu og kannski ekki
meira en svo æskilegt, eftir því
sem Jón Kristófer kadet í hern-
um segir, en hann telur að
milliríkjaviðskipti mundu að
mestu leggjast niður, ef gleði-
konur væru ekki til staðar. Svo
hlýjan faðm bjóða þær hröktum
farmönnum, sem leita á þeirra
náðir í einmanaleik sínum.
Stúlka er nefnd Margot, og
verður hún fyrir því slysi að
verða ástfangin af harðsvíruð-
um afbrotamanni, Brúnó Kapp
að ngfni. Brúnó þess er í þann
veginn að losna úr langri fang-
elsisvist fyrir margháttuð
afbrot og þykist eiga lögreglu-
manninum Glantz grátt að
gjalda, þar sem hann hafði átt
manna mestan þátt í því að
koma honum í svartholið. Síð-
ustu dagana í fangelsinu hefur
hann uppi áform um að útvega
sér skammbyssu og kála Glantz,
þegar hann er orðinn frjáls
maður aftur.
Margot unnusta Brúnós er
ekki rónni vegna þessara áforma.
Hún hafði jafnan trúað á sak-
leysi hans, en gerði sér hins veg-
ar réttilega ljóst, að sundurskot-
inn lögregluþjónn mundi reyn-
ast ódrjúgt búsílag til framtíð-
arsambúðar þeirra.
Brúnó losnar úr fangelsinu og
tekur nú til óspilltra málanna
að reyna að útvega sér byssu,
til að slátra lögregluþjóninum.
Margot víkur sér með lagi undan
að útvega peninga til þess, svo
að Brúnó leitar uppi vændis-
konu, sem hann þekkti, lætur
sem hann vilji eiga venjuleg við
skipti við hana, en raunveruleg
ætlun hans er að ná af henni
peningum til byssukaupa. Og
þegar vændiskonan snýst til
varnar fjármunum sínum, lýst-
ur hann hana til bana.
Skömmu síðar kemur til loka-
uppgjörs milli Brúnós og Glantz,
og ásamt með Margot — sem
skyndilega hefur glutrað niður
ást sinni á afbrotamanninum —
eiga þeir þátt í að leiða efnis-
þráð myndarinnar til drama-
tízkra og óvæntra lykta.
maðurinn hætti við að kála lög-
reglumanninum, þegar honum
loks gafst gott tækifæri til þess.
Sízt þar sem meginhluti mynd-
arinnar fjallar um viðleitni hans
til að ná hefndum. Líklega hefur
kjarkurinn bilað á síðustu
stundu, þegar á átti að herða. —
Kannski hefði maður sjálfur
orðið að lúta sama veikleika í
hans sporum.
Talsverð spenna er í mynd
þessari annað kastið, og sem
skemmtimynd mundi hún
standa nærri meðallagi þeirra
mynda, sem „Stórreykvíking-
um“ gefst kostur á að skoða um
þessar mundir.
Ásta og Haraldur á grasaf j alli. (Ljósm. Páll).
Ögmundur, Skugga-Sveinn og Ketill. (Ljósm. Páll).
Dalvík 2 maí 1967.
S J ÓNLEIKURINN Skugga-
Sveinn eftir Matthías Joch-
umsson hefur verið sýndur
undanfarið á Dalvík 9 sinnum
og í öll skiptin fyrir fullu
húsi.
Leikfélag Dalvíkur og Ung
mennafélag Svarfdæla höfðu
samstarf um að setja leikinn
á svið.
Skugga-Svein leikur Stein-
grímur Þorsteinsson og er
hann jafnframt leikstjórL
Leiktjöld málaði Brimar Sig-
urjónsson.
Dalvíkingar hafa að öllu
leyti annast uppsetningu leiks
ins og lega allir, sem að því
hafa unnið mikla þökk skil-
ið fyrir frábæran dugnað við
erfið skilyrði. Góð leiksýn-
ing er vissulega mikil upp-
lyfting í dreifbýlinu eftir snjó
þungan og illviðrasaman vet-
ur.
Sýningum fer nú að fækka
á leiknum.
Afgreiðslustarf
Vantar ungan mann til afgreiðslustarfa
í raftækjaverzlun í Miðbænum. Helzt með
gagnfræðaskólamenntun. Kaup eftir
samkomulagi. Sendið nafn og símanúm-
er til blaðsins fyrir 17. þ.m., merkt: „Raf-
tækjaverzlun 2158.“
Þótt sumum kunni að finnst
það undarlegt um þýzka mynd,
þá er er þessi alls ekki sneydd
húmor, þótt kaldhæðniskenndur
sé hann. Hún er til dæmis ekki
svo galin vændiskonan, sem tók
tuttugu mörk aukreitis fyrir að
spila út tilfinningum sínum. —
Hversu hér er um nákvæma heim
ildarkvikmynd að ræða, hefur
undirritaður ekki þekkingu til
að dæma um. En ég skildi aldrei
almennilega, hvers vegna glæpa
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Sölubörn
Sölubörn
Merkjasala
Slysavarnadeildarinnar INGÓLFS
er í dag fimmtudaginn 11. maí — Loka-
dag — Merkin eru afgreidd til sölubarna
frá kl. 09.00 í dag á eftirtöldum stöðum:
Mýr arhúsaskól a
Í.R. húsinu, Túngötu
Hafnarbúðum
Austurbæj arskóla
Hlíðaskóla, Hamrahlíð
Álftamýraskóla
Laugalæk j arskóla
Breiðagerðisskóla
Siysavarnahúsinu,
Grandagarði
Miðbæjarbarnaskóla
Vörubílastöðinni, Þrótti
Axelsbúð. Barmahlíð
Biðskýlinu, Háaleiti
Langholtsskóla
Vogaskóla
10% sölulaun — Söluverðlaun —
Flugferð Sjóferð
6 söluhæstu börnin fá 20 söluhæstu börnin fá
flugferð í þyrlu. sjóferð út á Faxaflóa.
Foreldrar hvetjið börnin til að selja merki.
MP. miðstöðvarofnar
Vér útvegum
MP. PANEL - OFNA
frá Svíþjóð með stuttum
fyrirvara.
Glæsileg
verð.
vara — hagstætt
Leitið upplýsinga.
Einkaumboð á íslandi fyrir:
A/B FELLINGSBRO VERKSTÁDER, FELLINGS-
BRO:
Hannes Þorsteinsson heildverzlun
Hallveigarstíg 10 — Sími 24455.
Útboð
Byggingarsamvinnufélag Reykjavíkur óskar eftir
tilboði í eftirtalin atriði í 18 íbúða sambýlishús í
Fossvogi:
1. Trésmiðavinnu við mótauppslátt, ásamt
handlöngun, mótarif og mótahreinsun.
2. Fylling í grunn á rúmm. gjaldi. Áætlað
magn 700 rúmm.
3. Handhreinsun fyrir undirstöðum.
4. Saumur, mótavír, girði og önnur smávara
vegna mótasmíði.
5. Allir gluggar með ísettu plasti.
6. Mótatimbur, en félagið leggur til notað timb-
ur sem það hefur, og hefur forkaupsrétt að
timburleyfum samkvæmt nánara samkomu-
lagi í verksamningi.
7. Þak ásamt þakjárni.
Teikninga af húsinu má vitja á skrifstofu félags-
ins, Laugaveg 105. Tilboð verða opnuð þriðjudag-
inn 16. þessa mánaðar, á sama stað, kl. 17.
Byggingarsamvinnufélag Reykjavíkur.