Morgunblaðið - 11.05.1967, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1967.
Tilkynning
Athygli innflytjenda skal hér með vak-
in á því, að samkvæmt auglýsingu við-
skiptaráðuneytisins dags 11. janúar 1967,
sem birtist í 7. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1967, fer önnur úthlutun gjaldeyris
— og/eða innflutningsleyfa árið 1967 fyr-
ir þeim innflutningskvótum, sem taldir
eru í auglýsingunni.
Umsóknir um þá úthlutun skulu hafa
borizt Landsbanka íslands eða Útvegs-
banka íslands fyrir 10. júní næstkomandi.
Landsbanki fslands.
Útvegsbanki íslands.
Námskeið
í meðferð vinnuvéla, svo sem jarðýtu,
lyftikrana, vélskóflu eða skurðgröfu verð-
ur haldið í Iðnskólanum (gengið inn frá
Vitastíg) dagana 17., 18., og 19. maí, kl.
20.30 til 22.30 alla dagana.
Þeir einir, sem sækja slíkt námskeið geta
öðlast réttindi til að fá skírteini, sem
heimilar þeim að vinna með vinnuvélum.
Þeir, sem ætla að sækja námskeiðið láti
skrá sig á skrifstofu Dagsbrúnar innan
16. maí. Símar 13724 og 18392.
Athygli skal vakin á því, að ný reglugerð
um réttindi til vinnu og meðferðar vinnu-
véla er gengin í gildi.
Öryggiseftirlit ríkisins.
BRÆÐURNIR KAMPAKÁTU -------TEIKNARL JÖRGEN MOGENSEN
Sumarnám-
skeiðin að
Jaðri
Frá Unglingareglu IOGT:
ALLTAF fögnum við íslendingar
komu sumarsins eftir langan og
dimman vetur. En þá vaxa lika
áhyggjur margra foreldra hér í
borginni, vegna óvissunnar um
að koma börnum sínum í sveit,
til þess að njóta þar sólar og
sumars. Allir vita, að hér eru
þúsundir barna, sem þyrftu að
komast í sveit á sumrin, en nú
er löngu liðin sú tíð, að hægt
sé að koma þeim öllum í vist á
venjuleg sveitabýli.
Ýmis félög reyna að bæta úr
þessari þörf með því að stofna
sérstök sumarheimili í sveit
fyrir borgarbörnin og leysir það
nokkurn vanda. Meðal annars
höfum við góðtemplarar haldið
sumarnámskeið. fyrir börn 1
húsakynum okkar að Jaðri mörg
undanfarin ár. Þau námskeið
hafa verið mjög vinsæl og eftir-
sótt, og má m. a. þakka það því,
hve við höfum verið heppin með
starfsfólk. Því miður hefur orðið
að visa mörgum frá árlega, vegna
rúmleysis. Reynt er að hafa vist-
gjöld sem allra lægst, og barn-
mörgu fólki er oft gefinn afslátt-
ur.
En það er dýrt fyrirtæki að
halda svona námskeið, enda þótt
Reykjavíkurbær hafi veitt góðan
styrk til starfseminnar undanfar-
in ár. Það ríkir því árlega nokk-
ur óvissa um fjárhaginn. Tekna
er aflað meðal annars með
merkjasölu fyrsta sunnudag 1
maímánuði ár hvert.
Þess má geta, að fyrir löngu
er farið að spyrja um þessi vin-
sælu námskeið að JAÐRI.
Leiðrétting
1 MINNINGARGREIN um Ingi-
björgu Friðriksdóttur í blaðinu
í gær, urðu mistök, þegar getið
var barna hennar. Karl póst-
meistari á Akranesi er kvæntur
Ástu Sighvatsdóttur, banka-
stjóra. Nafn Ingólfs féll niður,
en han er kvæntur ólafíu Guð-
jónsdóttur frá Þórustöðum í
Bitru.
BÍLAR
Höfum til sölu notaða bíla,
þar á meðal:
Scout jeep '67
Volvo FavoriLe '66
Zephyr 4 '66
Hillman Imp ’66
Dodge Dart '66
Rambler Classic
’65
Willy’s Jeep ’64
Opel Rekord ’64
Simca Arianne '63
Opið til kl. 4 í dag
Skipti möguleg.
Rambler-umboðið
Jón Loftsson hf.
Chrysler-umboðið
Vökull hf.
Hringbraut 121.
Simi 10600 og 10606.