Morgunblaðið - 11.05.1967, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 19«7,
27
Allgóð ferð víðast á
aðalvegum landsins
HvÖrf geta jbó ver/ð komin i vegi
um hvitasunnu
MORGUNBL.AÐIÐ hafði í gær!
samband við Hjörleif Ólafsson
hjá Vegamálaskrifstofunni og
fékk hjá honum upplýsingar um
færð á vegum landsins.
Allgóð færð er nú um aðal-
vegi á Suðurlandi, en þó eru
ýmsir vegir sem ekki eru fær-
ir nema jeppum, og má þar
nefria Grafningsveg, veginn upp
að Gullfossi og Lyngdasheiði er
lokuð öllum bifreiðum. Þá eru
komin talsverð hvörf í ýmsa út-
vegi, og geta þvi verið varasam-
ir nú um hvítasunnuna.
Þá er ágæt færð upp í Hval-
fjörð og enfremur um aðalvegi
í Borgarfirði, en ýmsir vegir,
sem liggja fram dalina eru vara
samir. Þá er allgóð færð um
Snæfellsnes, og eins vestur í
Dali.
Víða á Vestfjörðum getur vart
heitið að fært sé orðið milli
byggða, en þó er sæmileg færð
umhverfis Patreksfjörð, og úr
Reykhólasveit er jeppum fært
í SkálmardaL Þá er fænt frá
ísafirði í Bolunarvík og til Súða
víkur. Eitthvað hefur verið unn
ið við snjómokstur á Breiðadals
heiði, og sæmileg færð er um
Önundarfjörð. Fært er jeppum
um Gemlufallsheiði og allgóð
færð er í Dýrafirðinum sjálfum.
Á Þorskafjarðarheiði hafa verið
athugaðir möguleikar á snjó-
mokstri, en það þykir ekki tíma
bært enn, og sömu sögu er að
segja um RafnseyrarheiðL
Sæmilega greiðfært er norður
um Holtavörðuheiði og eftir að-
alveginum til Akureyrar, en bú
ast má við að ástandið versni
fremur, ef hlýindin haldast. Á
hinn bóginn eru ýmsir útvegir
t.d. í Skagafirði ekki færir nema
jeppum, og má þar nefna Skaga
fjarðarveg, Skagaveg og Siglu-
fjarðarveg, en þar er aðeins
fært jeppum frá Haganesvík að
Hraunum. Þá er rétt að ta'ka
fram, að búið er að lækka leyfð
an öxulþunga á flestum útveg-
um á Norðurlandi.
Frá Akureyri er aðeins fært
jeppum og létthlöðnum vörubíl-
um um Dalsmynni til Húsavík-
ur. Enfremur er jeppum fært
um Axarfjörð, Núpasveit og Mel
rakkasléttu. Sömu sögu er að
segja um.hina leiði'na frá Þórs-
höfn til Vopnafjarðar.
Á Austfjörðum er orðið fært
á jeppum yfir Oddskarð, og eins
suður með fjörðum frá Reyðar-
firði. Hins vegar gildir þar hið
sama og á flestum öðrum út-
vegum á landinu, að leyfður
öxulþungi hefur verið lækkað-
ur. Á Suðausturlandi er allgóð
færð víðast umhverfis Horna-
fjörð, og jeppafært er þaðan og
austur á Djúpavog.
- BRETAR OG EBE
Framhald af bls. 1.
er Shinwell fyrrum varnar-
málaráðherra, sem nú er 82
ára gamall og hefur sagt af
sér formennsku þingflokks
V erkmannaf lokksins.
Engin brezk ríkisstjórn h-ef
ur fengið slíka traustsyfirlýs-
ingu á friðartímum og þykja
úrslit atkvæðagreiðslunnar
benda eindregið til þess að
fóLk í Bretlandi sé nú al-
mennt mun hlynntari aðild
Breta að EBE en þegar mál-
ið var rætt í Brússel 1961—
1963.
Öruggir um upptöku
George Brown utanríkisráð-
herra tók til máls í Neðri mál-
þessu sinni fáum við inngöngu
í bandalagið. Við hefðum hvorki
gengið eins langt né komist eins
langt ef við hefðum ekki alla tíð
tökið það sem gefið mál.“ Og
utanríkisráðherrann bætti við:
„f umsókn okkar eru engin „ef“
eða „en“, engin skilyrði sett né
nbkkurra sérréttinda krafizt —
við ætlum blátt áfram að sækja
um aðild að bandalaginu og vilj-
um að það sé lýðum ljóst að hér
fylgir hugur máli“.
Brown sagði skilyrði þau er
Bretar hefðu sett fyrir fjócum
árum er þeir sóttu fyrsta sinni
um upptöku í bandalagið hafa
valdið mestu um að þá varð
ekki af upptöku og kvaðst bjart-
sýnn á að nú myndi allt ganga
að óskum. Hann sagðist vera
fullviss um að De Gaulle Frakk-
landsforseti myndi ekki leggjast
gegn aðild Breta að bandalag-
okkar í von um að báðir kunni
að hafa þar nokkurn hagt af.
Við vonum að aðildin verði
okkur til gagns en við vitum
líka hvað við leggjum af mörk-
um á móti“. Utanríkisráðherrann
lagði áherzlu á að Bretar vildu
fúsir taka þátt í viðræðum
innan Efnahagsbandalagsir.s um
stjórnmálaeiningu Evrópu, þótt
af þeim viðræðum yrði áður en
Bretland væri orðið aðildarríki
bandalagsins. Brown ítrekaði
fyrri ummæli Wilsons um að
Bretland gæti því aðeins keppt
við Bandaríkin og Sovétríkin á
sviði tækninnar að það væri
aðildarríki EBE og vísaði alger-
lega á bug öllum aðdróttunum
Frakka um að Betar myndu láta
sér nægja auka-aðild. „Það væri
svona rétt eins og að vera far-
þegi í járnbrautarlest sem aðrir
stjórnuðu, án þess einu sinni að
mega ráða því hvar farið sé úr
lestinni". Brown vísaði sömu-
leiðis á bug öðru-m hugsanleg-
um leiðum s. s. að Bretar
reyndu að sjá um sig sjálfir eða
tækju þátt í einhvers konar frí-
verzlunarsvæði Atlantshafs-
ríkja.
Frakkar láta sér vel lika
Georges Gorse, upplýsinga-
málaráðherra frönsku stjórnar-
innar sagði í dag að Frakkar
fögnuðu því að Bretar skyldu
nú beina hug sínum æ meir í
átt til meginlandsins og sagði
það allt tíð hafa verið ósk
Frakka að nánari samvinna tæk-
ist með Bretum og öðrum
Evrópuríkjum en þeir gerðu sér
ljósa grein þess vanda sem upp
skyti kollinum í þessu sambandi.
Gorse sagði að de Gaulle for-
seti myndi flytja yfirlýsingu um
Bretland og EBE á fyrirhuguð-
um fundi með fréttamönnum
þriðjudaginn 16. maí n.k. og lét
þess jafnframt getið að málið
hefði síðast verið rætt á ríkis-
stjórnarfundi í dag.
stofunni í dag er þar hófust loka
umræðurnar um upptökubeiðni
Bretlands í EBE og sagði: „Við
gerum fastlega ráð fyrir að
inu nú. „Við viljum taka þátt
í efnahagslegri samvinnu Evrópu
landanna án tafar“, sagði
Brown, „og leggjum fram tilboð
FÁAR þrýstilínur eru á
veðurkortinu í dag, enda er
vindur hægur á öllu því
svæði, sem það nær yfir.
Hér á landi var hægviðri og
mjög víða léttskýjað. Aust-
anlands var þó skýjað, og á
svæðinu frá Hrútafirði norð-
ur á Hornstrandir var þoka,
enda var hitinn þar við frost-
mark. Sunnan lands var
hins vegar 8—11 stiga hiti
um nónbilið, en 2—6 stig á
N- og A-landi.
SKODAUMBOÐIÐ hefur
fengiff meira en 150 Skoda-
bifreiffir til landsins í lok
apríl og í byrjun maí. Hin-
lr fyrstu þessara bíla komu
24. april, en hinir síðustu nú
fyrir fjórum dögum. Komu
bílar þessir með Lagarfossi
og leiguskipum Eimskipa-
félags ísland^, Öskju, Atz-
maut og Victor.
Allir þessir bílar hafa þeg-
ar verið seldir, og er sem óð-
ast verið að afgreiða þá til
væntanlegra eigenda frá nýju
afgreiffsluverkstæffi umboffs-
ins. Skodaumboffiff á von á
um 50—100 bifreiðum til
landsins í þessum mánuði.
Afgreiðslufrestur er til júní
n.k.
■Í|PÍp:i||l|
í DAG fara utan til Heimsýn-
ingarinnar í Montreal hjónin á
Sæbóli, Helga og Þórður Þor-
steinsson. Helga fer utan í ís-
lenzkum búningi, gulli prýddum,
og með möttli utan yfir.
„Já, ég er með ágætar millur að
íslenzkum sið. Hér þótti ekki ann
að hæfa, allt úr skíra gulli.“
„Þannig er það með þennan
búning, að hér hefur ekki verið
tilsparað. Ég fékk mér starf skor-
inn út í birki af Sveini Ólafs-
synþ en Halldór Sigurðsson
hefur hjálpað upp á sakirnar
við málmsmíðina“ sagði Þórður.
„Af hverju vantar þig hjálm,
atgeir og skjöld“, spyrjum við
í fákænsku okkar.
„Það er nú vegna þess, að
þetta er elzti íslenzki hátíða-
búningurinn, og hér geturðu séð
mynd af honum í Laxdæluút-
gáfu Fornritafélagsins, svo að
það er sem fornmenn hafi ekki
þurft á þessum hlutum að halda,
þegar þeir skörtuðu sínu feg-
ursta. Og sjáðu þessa rauðu
skikkju og þennan bláa klæðn-
að úr Álafossefni. Er það ekki
stórkostlegt, að þessir litir eru
enn í heiðri hafðir á íslandi eftir
rúm 1000 ár? Skórnir eru úr ís-
lenzku eltiskinni og ég held þér
takigt illa með að binda upp á
mér skóna, blaðamaður góður.“
Samt batt blaðamaðurinn upp
á honum skóna með prýði, ein-
hver aldagömul erfðavenja hélt
uppi þessum sjaldgæfa sið.
Og sem sagt gott, eins og mað-
urinn sagði, fara þessir íslend-
ingar til Heimsýningarinnar
í Montreal í dag, og við notum
tækifærið að óska þeim góðrar
ferðar, og góðrar heimkomu, og
öfundum þau svo sannarlega af
ferðinni. — Fr. S.
r
Ovisso í
Kennedy-við-
ræðunum
Genf, 10. maí NTB.
FULLTRÚAR þeir, sem þátt
taka í hinum svonefndu
Kennedy-viðræðum, ráðfærðu
sig í dag við ríkisstjórnir sínar
um endanlegar ákvarðanir í
sambandi við viðræðurnar, sem
munu skera úr um, hvort nokk-
ur árangur náist eða ekki í því
skyni að gera heimsverzlunina
frjálsari.
Aðalsamningamaður Efna-
hagsbandalagsins, Jean Rey, er
nú í Brússel til þess að gefa ráð-
herranefndinni skýrslu um hið
alvarlega ástand, sem komið
hefur upp í viðræðunum um
tollalækkanir. Efnahagsbanda-
lagið og Bandaríkin hafa ekki
enn náð samkomulagi um tvö
aðal vandamálin, þ. e. tolla á
efnaiðnaðarvörum og á kornL
Amman 10. maí NTB
Stjórnin í Saudi Arabíu vís-
aði í dag tveimur sýrlenzkum
sendistarfsmönnum úr landi og
voru þeir beðnir að yfirgefa land
ið og höfðuborgina Jeddah inn-
an sólarhrings.
IVIáiverka-
*
sýning í As*
mundarsal
ÍSLEIFUR Konráðsson, listmál-
ari, opnar í dag sýningu í Ás-
mundarsal við Feryjugötu. Er
þetta fjórða sjálfstæða sýning
ísleifs, hefur hann haldið tvær
í Bogasalnum og eina í Lindar-
bæ. Á sýningunni eru 25 land-
lagsmyndir og 13 blómamyndir,
allt olíumálverk. Eru öll mál-
verkin til sölu og kosta frá 2500-
5000 kr. Verður sýningin opin
dagega til 20. þ.m. frá kL
2—10.
Hjóli stolið
S.l. sunnudag var reiðhjóli
stolið frá 10 ára dreng, sem var
að fylgjast með knattspyrnu-
keppni á Melavelli. Reiðhjól þetta
er svo að segja alveg nýtt, og
þykir drengnum að vonum sárt
að hafa misst hjólið sitt. Skorar
hann á þann, sem tók hjólið, að
skila því á lögreglustöðina og
biður þá sem einhverjar upp-
lýsingar geta gefið um hjól-
stuldinn að snúa sér til rann-
sóknarlögreglunnar.
Hafnarfjörður
KOSNINGASKRIFSTOFA Sjálfstæffisflokksins er í Sjálfstæffis-
húsinu, Strandgötu 29. Skrifstofan verður opin frá kl. 9—22.
Sjálfstæðisfólk er hvatt til þess aff koma þangað og gefa upp-
lýsingar varðandi kosningarnar.
Sími skrifstofunnar er 50228.
Þeir, sem fengiff hafa miffa í landshappdrætti Sjálfstæðisflokks-
ins, eru vinsamlega beffnir aff gera skil sem fyrst í skrifstofu
flokksins, Strandgötu 29. Skrifstofan er opin frá kl. 9—22.