Morgunblaðið - 13.05.1967, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. miAÍ 1967.
Chandos Olivier Tynan
Hochhuth Sikorski Irving
viðurkenndur gagnrýnandi,
viðurkenndur stjórnmájlamað-
ut og kaupsýslumaður, viður-
kenndur umboðsmaður og leik-
stjóri og tveir menn úr Verka-
mannaflokknum. Gæti nú ekki
verið, að þessi samkunda hefði
rétt fyrir sér en hinir — þ.e.
Sir Laurence Olivier og Kenn-
ebh Tynen — lýðræðið virðist
komið á það stig, að meirihlut-
inn hljóti alltaf að hafa rangt
fyrir sér“.
Chandos, lávarður, hefur lýst
því yfir, að sér finnist leikritið
gott- en þar komi fram mjög
alvarlega ákæra á mikilhæfan
stjórnmiálamann, hlægileg á-
kæra raunar, sem ekki eigi við
nein rök að styðjast en svo
alvarleg, að ekki verði við-
unað, m.a. vegna eftirlifandi
aðstandenda. Hann bendir
einnig á, að öll gögn varðandi
rannsóknina á slysinu, þegar
Sikorski fórst, séu geymd í
svissneskum banka og rnegi
ekki opnast fyrr en eftir hálfa
öld. „Mér finnst það í sjálfu
sér fullkomin ástæða til þess
að bíða í fimmtíu ár með að
sýna þetta leikrit" sagði lá-
varðurinn. „Ég neita því, að
ég sé gamall þverhaus. Ég
mundi leggja líf mitt að veði
fyrir málfrelsi, en þar með er
ekki sagt, að ég taki þátt í því
að svívirða hvern sem er“.
„Ég geri ráð fyrir því, að sá
tími komi — hélt Chandos á-
fram ,að eitrið verði óvirkt.
Shakespeare til dæmis kann að
hafa sýnt Ríkharð III í verra
Ijósi en réttmætt er. En þegar
leikrit hans um Ríkharð kom
fram, hafði það ekki þau á-
hrif á samtíma stjórnmál, sem
leikrit Hochhuths mundi hafa
nú.
Aðrir úr leikhúsráðinu hafa
látið í ljós svipaðar skoðanir
— og ef til vill er það einmitt
afstaða þeirra, sem gerir þeim
Sir Laurence — og þó eink-
um Tynan svo graint í geði.
Hann kveðst geta skilið Chand-
os lávarð, því hann stóð Chur-
chill svo nœrri“ en hinir. . . .
hversvegna hinir“? spyr hann.
Meðal „hinna“ eru tveir lög-
fræðingar. Annar þeirra M.
Mischon bendir á, að hann
mundi ekki samþykkja leikrit,
þar sem gert væri hróplegt
grín að Jesú Kristi — og það
segi ég ekki sem kristinn mað-
ur heldur sem Gyðingur —
Væri hinsvegar sett fram rök
með eða móti Kristi eða ein-
hverju, sem hann varðaði,
gegndi öðru máli. Eins er með
þetta miá!. Ef þarna kæmu
fram rök með eða móti því,
að Churchill hefði staðið fyrir
fráfalli Sikorskis, gegndi öðru
Jones
kronor
* Lyftigeta frá
í.ooo kg ta
35.000 kg.
Sterkíi
Liðlegir
Fljótvirhir
Jones bílkranar frá 8000 kg til 35000 kg.
TIL
ÚT- 0G UPPSKIFUNAB
OG
ALLSKONAB VEBKLEGBA
FBAMKVÆMDA
Jones Cranes Ltd., Bretlandi eru stærstu verk-
smiðjur sinnar tegundar í Evrópu. Jones kranar
eru viðurkenndir um allan heim fyrir hversu
sterkbyggðir, fljótvirkir og liðlegir þeir eru í
notkun.
Jones kranar eru framleiddir í mörgum stærðum
Margar gerðir og stærðir af bómum eru fáan-
legar ásamt margvíslegum útbúnaði til lyftinga.
Leitið upplýsinga.
Einkaumboð:
máli. Rithöfundurinn hefði get-
að gert úr þessu iam leik-
rit þannig, finnst segir
Mischon.
Tynan skýrir leikritið á þá
leið, að í því séu tvö meigin-
stef. Fyrsta: loftárásir á íbúð-
arsvæði óbreyttra borgara í
þessu tilfelli Dresden. í pðru
lagi: Lát Sikorskis.
„Hér er verið að fjalla um
dráp eins manns annarsvegar
og fjöldamanndráp hinsvegar.
Höfundur lítur svo á að í báð-
um tilfellum hafi verið drepið
í góðum tilgángi þess að sigra
Hitler. En spurningin, sem
hann varpar fram, er þessi:
Höfðu Bretar rétt tij þess og
væri hægt að réttlæta slíkar
gerðir nú?“
Ekki vill Tynan segja að
hvaða niðurstöðum Hochuth
kemst og höfundur hefur sjálf-
ur ekkert látið uppi um það.
Hinsvegar hefur Hochhuth
sjálfur gert þá grein fyrir leik-
ritinu í blaðaviðtali ,að hann
sé með því að sýna og undir-
strika, að Churchill hafi því
aðeins geta gert góða hluti
sem leiðtogi á stríðstíma, að
hann var einnig fær um að
gera það sem var illt. „Attlee
hefði til dæmis aldrei getað
eyðilagt Hitler", segir Hoch-
huth.
f>á kernur fram hjá báðum
aðilum deilunnar, að sú mynd,
er Hochhuth dragi upp af Chur
ehill, sé um margt frábær. En
Chandos, lávarður, fellst ekki
á þessa hlið málsins, segir hana
falsgyllingu. „Það getur aldrei
orðið annað en alger eyðilegg-
ing á orðstír manns, ef hann
reynist sekur um að hafa átt
aðild að morði vinar síns og
leiðtoga bandalagsríkis".
★ ★ ★
Rithöfundinum Hochhuth er
svo lýst, að hann sé óskaplega
feiminn maður, viðkvæmur og
auðmjúkur. Maður, næstum
smásmugulegur, er líti á alla
hluti sem séu %>eir stórir og
alvarlegir. Sagt er að Hoch-
huth bafi hugmyndina að leik-
riti sínu frá bókinni „The des-
truction of Dresden" eftir þrí-
tugan, brezkan sagnfræðing Da-
vid Irving að nafni. Upphaf-
lega hafi leikritið átt að fjalla
eingöngú um Dresden en svo
hafi Hochhuth af tilviljun hitt
mann, ónafngreindan, sem
kvaðst hafa verið flæktur í Si-
korskimálið og sagði Hochhuth
eitt og annað um það mál.
Þannig hafði leikritið smám
saman tekið breytingum. Ifving
segir, að Hochhuth hafi borið
þessar upplýsingar undir sig,
en þá þegar verið svo sannfærð-
ur, að hann hafi einungis vilj-
að fá hann til að samþykkja
allt sem hann vissi.
Irving kveðst siálfur hafa
heimilidir fyrir því, að það
hafi ekki verið eðlilegt flug-
banaslys sem varð Sikorski að
bana, enda hafi á þeim tíma
komið upp sá kvittur, að Rúss-
ar hefðu haft þar hönd í bagga.
Irving segir hinsvegar, að
böndin berist að Bretum og
kveðst hann eiga geymdar á
vísum stað 600 blaðsíður af
upplýsingum um mál þetta og
ætla að skrifa bók um það á
hausti komanda.
Siiraanívöl barna að Jaðri
Tekið verður á móti umsóknum á námskeiðið
16., 17. og 18. maí kl. 3—6 í Góðtemplarahúsinu.
JAÐARSNEFNDIN.
Lyle&Scott.r.
HAWICK SC0TLAND
Lyíe&Scoff™
HAVVICK SC0TLAN0
Karlmannapeysur
/v^v\
Austurstræti 22 og Vesturveri.