Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967. 9 Stýrimannaskólanum i Reykjavik slitið: 44 Ijúka fiskima nnaprófi 28 farmaiiitaprófi Stýrimannaskólamun í Reykja vík var sagt upp hinn 11. maí í 76. sinn. Viðstaddir skólauppsögn voru allmargir af eldri nemend- um skólans. í upphafi gaf skólastjóri, Jón- as Sigurðsson, yfirlit yfir starf- semi skólans á skólaárinu og gat þess jafnframt, að þeir farmenn og fiskimenn, sem nú lykju prófi, væru hinir síðustu sem braut- skráðust samkvæmt eldri lögum og reglugerðum. Á þessu skóla- ári komu til framkvæmda ný lög og reglugerðir fyrir stýri- mannaskólann. Samkvæmt þeim verða fiskimannaprófin 2, þ.e. fiskimmannapróf 1. stigs, sem tekið er upp úr fyrsta bekk fiski- mannadeildar, og fiskimannapróf 2. stigs, sem tekið er upp úr 2. bekk. Fiskimannapróf 1. stigs veitir skipstjórnarréttindi á fiski skipum allt að 120 rúmlestum á heimamiðum. Fiskimannapróf 2. stigs veitir hinsvegar skipstjórn- arréttindi á íslenzkum fiskiskip- um af hvaða stærð sem er og hvar sem er. Farmannaprófin verða 3, þ.e. farmannapróf 1. stigs, sem veit- ir sömu réttindi og fiskimanna- próf 1. stigs, farmannapróf 2. stigs, sem veitir tímabundin rétt indi sem undirstýrimenn á verzl unar- eða varðskipum farmanna próf 3. stigs, sem veitir skip- stjórnarréttindi á verzlunar- eða varðskipum atf hvaða stærð sem er og hvar sem er. Síðustu dagana í marz, meðan stóðu yfir skrifleg próf í yngri deildum, var haldið þriggja daga námskeið fyrir eldri deildir, þar sem eingöngu var kennd með- ferð og nobkun fiskileitartækja. Kennarar á námskeiðinu voru Hörður Frímannsson, rafmagns- verkifræðingur, og Þorsteinn Gíslason, skipstjóri. Þá fluttu þar fyrirlestra fiskifræðingarn- ir, Jón Jónsson og Jakob Jakobs son. Að þessu sinni luku 28 nem- endur farmannaprófi og 44 fiski mannaprófi. Við farmannaprófið hlutu 6 ágætiseinkunn 17 fyrstu einkunn og 5 aðra einkunn. Við fiskimannaprófið hlutu 7 ágæt- iseinkunn, 28 fyrstu einkunn, 8 aðra einkunn og 1 þriðju eink- unn. Efstur við farmannapróf var Vilmundur Víðir Sigurðsson, 7,68, og hlaut hann verðlauna- bikar Eimskipafélags íslands, farmannabikarinn. Efstur við fiskimannapróf var Guðmundur Andrésson, 7,56 og hlaut hann verðlaunabikar öldunnar, öldu- bikarinn. Hámarkseinkunn er 8. Bókaverðlaun úr veirðlauna- og styrktarsjóði Páls Halldórs- sonar skólastjóra hlutu eftir- taldir nemendur, sem allir höfðu hlotið ágætiseinkunn. TJr far- mannadeild: Bjarni Jóhannes- son, Guðmundur ICristinsson, Gunnar örn Haraldsson, Ing- var Friðriksson, Óskar Þór Karls son og Vilmundur Víðir Sig- urðsson. Úr fiskimannadeild: Er- lendur Jónsson, Guðmundur And résson, Halldór Kristinsson, Jón Már Guðmundsson Pétur Hall- steinn Ágústsson, Reynir Jóhannsson og Þórður Eyþórs- son. Bókaverðlaun frá Skipstjóra félagi íslands fyrir hámarks einkunnina 8 í siglingareglum við farmannapróf hlutu: Bjarni Jóhannesson, Gunnar örn Har- aldsson, Ingvar Friðriksson, Vil- mundur Víðir Sigurðsson og Ægir Björnsson. Skólastjóri ávarpaði síðan nemendur og ós'kaði þeim til hamingju með pró-fið. Benti h-ann þeim á ábyrgð og skyldur yfir- manna á skipum og brýndi fyrir þeim að viðhalda þeim fræðum, sem þeir hefðu lært við skólann, og tengja þau þeirri reynslu, sem þeir mundu öðlast í starfi. Þá ræddi hann nokkuð þá erfið leika, sem að útgerðinni steðj- uðu nú, m.a. vegna verðfalls sjávarafurða á erlendum mark- aði. Benti hann þeim á þýðingu þess að vanda sem bezt með- ferð afla svo að verðmæti hans yrði sem mest. Þrátt fyrir nokkra örðugleika taldi hann, að þeir gætu þó litið björtum augum til framtíðarinnar, skipastóll þjóð arinn væri glæsilegur og nóg verkefni framundan bæði fyrir farm-enn og fiskimenn. Þá lét hann í ljós ánægju yfir þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar ,sem miðaði að endurnýjun togara- flotans, og vonaði að togaraút- gerðin hæfis-t aftur upp úr þeim öldudal, sem hún hefur verið í undanfarin ár. Að lokum þakk- aði hann nemendum samveruna og árnaði þeim heilla í framtíð- inni. Að lokinni ræðu skólastjóra kvöddu sér hljóðs tveir af eldri nemendum skólans. Orð fyrir 40 ára prófsveinum hafði Eyþór Hallsson, forstjóri, Siglufirði. Færðu þeir Styrktarsjóði nem- enda Stýrimannaskólans mjög myndarlega fjárupphæð. Þórður Þorsteinsson á Sæbóli einn af 40 ára prófsveinum færði skól- anum fallegan blómvönd. Gunnar Ma-gnússon, skólastjóri Reykjavík, sem átti 20 ára próf- afmæli, hatfði orð fyrir 10, lö og 20 ára prófsveinum. Tilkynnti hann, að þeir hefðu í sameiningu stofnað sjóð, sem héti Tækja- sjóður Stýrimannaskólans í Reykjavík. Tilgangur sjóðsins er að efla tækj-akost skólans. Gat hann þess, að það væri vilji stofnenda að sjóður þessi væri opinn ölium nemendum skólans, er vildu leggja þessu máli lið. Skólastjóri þakkaði góðar gjaf- ir og hlýbug til skólans. Að lok- um þak-kaði hann kennurum og prófdómendum störf þeirra á liðnu skólaári og gestum kom- una og sagði skólanum slitið. Þessir menn luku farmanna- prófi: Aðalsteinn Finnbogason, Hafn arfirði, Ásgeir Ásgeirsson, Rvik, Bjarni Halldórsson, Bolungavík, Bjarni Jóhannesson, Akranesi, Guðmundur I. Guðmundsson, Rvík., Guðmu-ndur Kristinsson, Akranesi, Guðmundur Kr. Kris-t- jánsson, Rvík, Guðmundur Lár- usson, Stykkishólmi, Gunnar Örn Haraldsson, Rvík, Gylfi Guðna- son, Rangárvallasýslu, Hafliði Baldursson, Rvk Hálfóán Henrýs son, Rvík .Ingólfur Ásgríms- son, Hornafirði, Ingvar Friðriks- son, Akranesi, Jón Guðnason, Rvík., Jón Herbert Jónsson, Rvík, Kári Valvesson, Árskógsströnd, Kristján Pálsson, Rví-k Lúðvík Friðriksson, Keflavík, Óskar Þ. Karlsson ólafsfirði. Sigtu'ður Ein arsson, Garðahr., Sigurður Gunn- laugsson Rvík., Sigurður Péturs- son, Rvík., Símon Guðmundsson, Seltjarnarnesi, Vilmundur Víðir Sigurðsson, Rvík, Þórhallur Joh- ansen, Rvík, Þorvaldur Ómar Hillers, SelfossL Ægir Björnsson, SiglufirðL ' Þessir menn luku fiskimanna- prófi: Arnþór Atlí Skaftason, Fá- skrúðstf., Ásgeir G. Kristjánsson, Bolungav. Bernhard Överby, ísatf. Einarr Kristjánsson, AkranesL Erlendur Jónsson. Gaulverjabæj* arhreppi, Eyjólfur Pétursson, Kópavogi, Grétar M. Kristjáns- son, Súðavík, N-ÍS. Guðbjartur Einarsson, Garða-hrppi, Guðfinn- ur Karlsson, Þoxlákshöfn. Guð- laugur Þ. Lárusson, Sandgerði, Guðmundur Andrésson, Fáskrúðs firði, Guðmundur S. Guðleifs- son, Rvík., Guðmundur Helga- son, Rvik., Guðmundur In-gi Hild- isson, Gerðum, Garði, Gunnar Gunnlaugsson, Rvík., Gunnar Sigurjónsson, Hellissandi, Hall- dór Kristinsson, Eskifirði. Hörð- ur Ó. Guðjónsson, Rvík., Jóhann Guðbrandsson, Sandgerði, Jó- hannes Sigarðsson, Keflavík, Jón Garðarsson Reyðarfirði, Jón M. Gu-ðmundsson, Innri Nj arðvík, Jón M .Guðröðsson, Kálfavík, N-ís., Jón Lo-gi Jóhannsson, Garðathre-ppL Jósef Gunnar Ing- ólfsson, Reykjavík, Lýður Svein- björnsson, Hafnarfifði, Magnús Sig-urðsson, HellissandL Marteinn M Jóhannsson, Neskaupstað, Ólatfur Si-g-urðsson, Grindavík, Páll Erlin.gur Pálsson Reykjavík, Páll Jónat-an Pálsson, Skaga- strönd, Pétur Ágústsson, Stykkis hólmi, Reynir Jóhannsson, Grindavík, Sigurður A. Hreið- arsson, Rey-kjavík, Sigurjón Ævar Hólmgeirsson, Flatey, S-Þing. Stetfán Björnsson Aspar, AkureyrL Stefán R. Einarsson, Garðahreppi, Stefán Jónas Guð- mundsson, ÁkureyrL Tómas G. H-assing, Reykjavík, Trausti Guð mundsson, Þórs-höfn, LanganesL Victor Jónsson, SiglutfirðL Vig- fús Jóhannesson, Árskógsströnd, Þórður Eyþórsson, GarðahreppL og örnólfur Hálfdánarson, Bol- ungavík . Tökum að okkur uppsetningu sjónvarps- og radíoloftneta fyrir einbýlis- og fjölbýlishús. Góð þjón- usta, úrvals efni. Gerum tilboð ef óskað er. Upplýsingar í símum 51771, 52102. HEIMSSYNINGIN í M0NTREAL FARGJÖLD 0KKAR ERU ÞAU LÆGSTU, SEIVI VÖL ER A Hín sérstöku fargjöld okkar á heimssýninguna í Montreal eru þau lægstu, sem völ er á frá Islandi. Auðvelt-væri að hafa viðkomu í borgum innan Bandaríkjanna og Kanada gegn tiltölulega litlu viðhótargjaldi, þar sem millilandafarþegar Pan American njóta sérstakra kjara þegar um fram- haldsflug innan Bandaríkjanna og Kanada er að ræða. AFSLÁTTUR AF ÖÐRUM FARGJÖLDUM: UNGMENNI Á flugleiðum frá íslandi til Evrópulanda - og ð öðrum flugleiðum innan Evrópu - er veittur 25% afsláttur af fargjöldum ungmenna á aldrinum 12-22 ára. NÁMSMENN Allir þeir, sem stunda nám erlendis, f einhverju Evrópulanda fá 25% afslátt af fargjöldum sínum, með því að uppfylla ákveðin skilyrði. 14-21 DAGAR Þeir sem eru 2-3 vikur í ferð til Bandarílcjanna og/e5a Kanada fá sér- stakan afslátt, sem getur numið allt að 50%. V0R 0G HAUST Sérstök 30daga fargjöld eru í giidi vor og haust á flugleiðum milli íslands og margra Evrópuborga 25% afsláttur. FJÖLSKYLDUFARGJÖLD Á flugleiðum innan Bandaríkjanna eru fjölskyldufargjöld f gildi allt árið, en á tímabilinu frá 1. nóvémber til 31. marz frá Íslandi til Norðurlanda. Hvert viljið þér fara ? Nefnið staðinn. Við flytjum yður, fljótast og þægilcgast *

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.