Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967.
5
ef þessir dreifarar gætu leyst
vanda þeirra, sem hafa lokaðar
haug- og þvaggeymslur. Verð
þeirra er 80 þús. kr. Innflytj-
andi: Véladeild SÍS, Reykjavík,
Á sýningunni skoðaði ég sláttu
vél af nýrri gerð. Var það svo-
kölluð sláttuþyrla. Þrjár verk-
smiðjur sýndu þarna framleiðslu
sína á þessum vélum. Voru það
P. Z. verksmiðjurnar í Hollandi;
umboð fyrir þær hér á landi
hefur Véladeild SÍS, Fahr verk-
smiðjurnar í Þýzkalandi; umboð
fyrir þær hefur Þór h.f., og
Bamfordverksmiðjurnar. Sláttu-
vél þessi er þannig gerð, að hlið
við hlið standa fjórir sáir lóð-
réttir, utan um hvern þeirra er
sívalur hólkur, en neðan á hólk-
ana eru hnífarnir festir, tveir á
hvern. Hólkarnir eru gírdrifnir
áfam með miklum hraða og slá
þá hnífarnir grasið. Vélin er
borin uppi af þrítengi dráttar-
vélarinnar, að aftan eru svo eins
konar diskar undir vélinni til
þess að koma í veg fyrir að hún
skemmi túnið. Sagt er, að hægt
sé að slá með þélinni 2 hektara
á klst. Allt frá því sláttuvélín
kom fram, fyrir rúmri öld, hefur
hún byggt á sama meginskipu-
laginu, það er að grasið er skorið
við fingur greiðunnar. Þessi vél
er tilraun i þá átt að endurbæta
það. Véladeild SÍS flutti síðast-
liðið sumar inn tvær vélar af
þessari gerð og lét reyna þær
hjá Verkfæranefnd ríkisins á
Hvanneyri og Grasmjölsverk-
smiðjunni á Hvolsvelli. Bkki hefi
ég séð umsögn þessara aðila um
vélina en hefi Heyrt að þær hafi
reynzt vel. Verð þeirra er áætl-
að yfir 25 þúsund krónur.
Ford sýndi dráttarvél, sem
kölluð er County, 100 hestöfl,
með drifi á öllum hjólum. Eru
hjólin jafnstór bæði að aftan og
framan, dekkjastærð 15x30. Hún
er með vökvastýri svo hún læt-
ur auðveldlega að stjórn. Um-
boð fyrir þessar vélar hér á
landi hefur Þór hf. Hafa þegar
verið fluttar inn 4 vélar af þess-
ari gerð. Þessi vél vakti mikið
umtal hjá okkur. Það eru líkur
til, að hún geti að einhverju
leyti komið í stað jarðýtu í um-
ferðavinnu hjá ræktunarsam-
böndum. Væri að því mikill vinn
ingur. Bæði er, að vélin er mikið
ódýrari en jarðýta og svo mundi
viðhald hennar verða margfalt
minna. Að sjálfsögðu gæti vél
þessi ekki leyst ýturnar að fullu
af hólmi í umferðavinnunni, en
hún getur vafalaust unnið mikið
af því, sem þær eru nú látnar
vinna.
Á vélinni er hægt að hafa jarð
ýtutönn, og er talið að hægt sé
að jafna til í öllu sæmilega
þuirru og grjótlausu landi með
henni, einnig að ryðja snjó af
vegurn. Skurðgröfu er hægt að
fá með henni. Taið er að vélin
kosti hingað komin um 400 þús.
kr. Hús á hana kostar 30 þús.,
ýtan 45 þús. Hægt er svo að fá
með vélinni diskaherfi, sem kost
ar 65 til 70 þús. kr. Þetta herfi
er mjög auðvelt í flutningi á
milli staða; á því eru gúmhjól,
er herfið lyftir sér á með vökva-
lyftu. Er það mjög hentugt, hafi
dráttarvélin fest sig í flagi; þá er
herfinu lyft upp á hjólin.
Vinnslubreidd herfisins er 3,3
m. Herfið er tvöfalt með 16
diska í hvorri röð ,og eru disk-
arnir í fremri röðinni tenntir.
Mér finnst, að ræktunarsam-
böndin ættu að kynna sér þessa
vélasamstæðu, ef hægt væri að
lækka vélakostnaðinn með
henni.
Á margar aðrar athyglisverð-
ar landbúnaðarvélar væri að
sjálfsögðu hægt að minnast, en
ekki er hér rúm til þess.
Mörg fyrirtæki sýndu líkön af
allskonar húsum, bæði gripahús-
um, fóðurgeymslum, færibönd-
um til flutnings á fóðri í geymsl-
ur og færibönd til sjálffóðrunar.
Þá voru og sýnd líkön af margs-
konar jötum til þess að láta
gripi eta úr úti. Tvær sýningar-
stúkur voru með ýmsum smá-
áhöldum til að nota við sveita-
búskap; mest voru þar allskon-
ar dýralækningaáhöld. Var að-
eins verið með sýnishorn en
ekki voru þau seld þarna. Marga
hluti sá ég, sem bændum mundi
koma vel að eiga, en fátt af þeim
hefi ég orðið var við í búðum
hér. Þar sá ég t.d. fæðingartöng,
sem notuð er við sauðfé, sagði
Einar Þorkelsson mér, að Þór
hf. hefði flutt inn slíka töng og
teldu þeir, sem hana hefðu not-
að, sig hafa haft af henni góða
raun. Þar voru spenahnífar,
margar gerðir af sogvörnum,
bæði á kýr og kálfa, margar
gerðir af kömbum og brenni-
mörkum. Mikið var þar af núm-
eraplötum til þess að setja í
eyru 'bæði á nautgripum og sauð
fé, en ekkert af þeim gat ég
séð að tæki álmerkjunum fram,
sem notuð hafa verið hér í lengri
tíma, nema ef það væri lítið
áhald til að tattóvera númerið i
eyra á lömbum. Er stöfunum
þrýst á eyrað og borið blek á
eyrað á eftir og kemur þá talan
út, sem óskað er eftir.
— O —
Svona ferðalag hlýtur að koma
íslenz'ka bóndanum til þess að
reyna að gera sér grein fyrir
því hvernig landbúnaður okkar
stendur í dag, miðað við næstu
nágranna okkar. Margar spurn-
ingar gerast áleitnar. Höfum við
fært íslenzkan landbúnað í það
horf, sem vera ætti? Hefur fjöl-
breytni hans aukist eins og æski
legt væri? Er mögulegt að inn-
leiða hér margar tækninýjungar,
sem komnar eru fram á seinustu
árum, en ekki hafa náð hing-
að? Svona mætti lengi spyrja,
en ég hefi ekki á reiðum höndum
nein svör við þessum spurning-
um.
Það fer ekki milli mála, að
bændastéttin þarf að fylgjast
mjög vel með þeim nýjungum,
sem eru að koma fram, því að
það er sýnlegt, að ekkert lát
er á tæknibyltingunni í heimin-
um. Ég held að við eigum fyrst
og fremst að skoða búskap hjá
þeim, sem leggja megináherzlu
á að fóðra gripi sína á grasi.
Nú gerast allir atburðir með svo
miklum hraða, að menn verða
að hafa sig alla við að átta sig
á hvað er að gerast á hverjum
tím og vera búnir að átti sig á
breytingunum áður en þær eru
orðnar úreltar.
Það er mjög nauðsynlegt að
bændur hafi tækifæri til þess aB
sækja alþjóðlegar vélasýningar
og atihuga nýjungarnar og þar
eig þeir, í samvinu við vélainn-
flytjendurna, að athuga nýjar
véla-r, sem ástæða er til að
kynna sér.
í framhaldi -þessarar greinar
verður sagt frá heimsókn til -
enskra bænda.
Wilton teppadreglar frá
Firth Carpets Ltd. Englandi
Útstilling i anodyri verzlunarinnar Persía Laugavegi 31
Wilton frá Englandi.
Það fallegasta og bezta sem þér fáið á gólfið.
Breiddin er 366 cm. svo engin samskeyti myn last á míðju gólfi.
Við tökum mál og leggjum teppin frá eigin verkstæði með stuttum fyrirvara.
Verzlunin Persia hf. Laugavegi 31 Simi 11822
-------------------------------------------------------------------------------------------