Morgunblaðið - 13.05.1967, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967.
21
framleiðsla geti hafizt, en þ-ar
er gert ráð fyrir útflutningsverð
mæti á annað hundrað millj.
króna.
Þessi stórfyrirtæki ,sem ég nú
hefi nefnt með álbræðslunni,
annað hvort skapa okkur Is-
lendingum gjaldeyri eða spara
okkur erlendan gjaldeyri, sem
nemur fast að þúsund millj. kr.
áxlega og skapar það vissulega
veigamikið öryggi i efnahagsþró
un landsins. Um fleiri stórfyrir-
tæki af þessu tagi hefur verið
rætt og athuganir farið fram á
möguleikum, til þess að byggja
þau 'hér á landi, svo sem olíu-
hreinsunarstöð, og að rannsókn-
um á öðrum sviðum er unnið svo
«em möguleikum til sjóefna-
vinnslu o.fl.
Grundvöllur og undirstaða
iðnþróunar af þessu tagi á ís-
landi er raforkan. Framkvæmd
stórvirkjana með þeim hætti^ að
aflið eða orkan verði veruíega
ódýrara en ella mundi. Reiknað
hefur verið út, að íslendingar
mundu þurfa að borga u.þ.b.
60% hærra verð á rafmagni
næsta áratug, ef ekki væri virkj
að, eins og nú er gert ráð fyrir,
við Búrfell, í tengslum við stór-
iðju. Verðmismunurinn á árs-
kílówatti mundi nema nærri
1000 krónum á árunum 1973—76
eftir þv(í hvort virkjað væri
með eða án álbræðslu og sjáum
við, hversu miklu munar, þegar
haft er í huga, að Landsvirkj-
un selur árskílówattið nú á
1200 krónur.
Ef við lítum á þróun raforku-
málanna hjá o'kkur, þá liggur
það fyrir, að frá 1959—1966 á
sér stað aukning á raforku úr
121 þúsund kílówöttum í 168
þúsund kílówött eða 38.5%. En
Búrfellsvirkjun ein, sem nú er
gert ráð fyrir að framkvæma í
tveimur samhangandi áföngum,
er 210 þúsund kílówött eða tölu
vert miklu meira, heldur en öll
sú raforka, bæði vatnsaflsorka
og varmaorka, sem nú þegar er
fyrir í landinu, í afli fallvatna
landsins er hið glóandi gull ís-
lendinga og þar höfum við af
miku að taka, því að fram til
þessa höfum við ekki virkjað
nema 2—3% af því afli, sem tal
ið er virkjanlegt í fossum okk-
ar.
„Fljótsins auði
henda í hafið
héruð 'breið og fríð.
Arðlaust fossar aflið þreyta
inn í klettaþröng.“
Þetta var óður íslendinga um
aldamótin. Nú hefur skipt um
tóntegund og í dag slá fslend-
ingar hörpu fram'tíðarinnar í
vir.kjunarmálum. 97% lands-
manna hafa nú þegar fengið raf
magn til einkanota og þar af
95% frá almenningsveitum. All-
ir kaupstaðir og kauptún lands-
ins hafa rafvæðzt og 86% sveita
býla, en gert er ráð fyrir, að
rafvæðingu þeirra verði lokið
árið 1970. Stórvirkjanir til vax-
andi iðnþróunar í landinu eru
orðnar að veruleika.
STEFNA
RlKISSTJÓRNARINNAR:
Núverandi ríkisstjórn og stuðn
ingsflokkar hennar hafa mark-
að stefnu sína til iðnþróunar í
landinu í sem stytztu máli á
eftirfarandi hátt:
Stefnt sé að því, að ríkja megi
jafnrétti milli aðalatvinnuvega
landsmanna.
Stefnt sé að því, að létta toll-
um af vélum og hráefnum iðn-
aðarins samfara því, að tollum
sé almennt aflétt, til þess að
veita almenningi ódýrari vörur
og betra vöru val og draga með
því úr dýrtíð i lanidinu. í þessu
sambandi hefur iðnaðinum verið
heitið eðlilegum aðlögunar
tíma og ráðstöfunum til aðstoð-
ar.
Haldið verði áfram að efla
Iðnlánasjóð, svo að iðnaðinum
skapist viðunandi stofnlánaað-
•taða.
Rikisstjórnin hefur viljað
atuðla að því, að hefjast megi í
landinu nýjar atvinnugreinár á
sviði iðnaðar, þar sem horfur
éru á, að verð og gæði standist
erlenda samkeppni og þjóðhags-
lega mikilvægt, að slíkar at-
vinnugreinar eflist, svo sem inn-
lend stálskipasmíði samfara
endurbyggingu og uppbyggingu
gamalla og úreltra dráttar-
brauta.
Stefnt hefur verið að því, að
stórefla rannsóknarstofnanir í
'þágu iðnaðarins.
Stefnt hefur verið að virkjun
stórfljóta landsins, byggingu
stórra raforkuvera, er veiti
landsmönnum ódýrara rafmagn
og verði grundvöllur og orku-
gjafi fjölþættrar iðnvæðingar í
landinu. Orkuver landsins verði
eign fslendinga. En til þess að
virkja megi í stórum stíl, und-
ir lántökum verði risið og styrk
ari stoðum rennt undir atvinnu-
líf landsmanna, þá verði erlendu
áhættufjármagni veitt aðild að
stóriðju, ef hagkvæmt þykir
samkvæmt mati hverju sinni og
landsmenn brestur fjárhagslegt
bolmagn.
Á grundvelli þessara megin-
stefnu munu Sjálfstæðismenn
halda áfram að vinna að vax-
andi iðnþróun í landinu,
MÁLSLOK:
Ágætu fundaxmenn!
Ég mun nú ljúka máli minu.
Eins og ég gat um í öndverðu
hefur verið stiklað á stóru, en
ég vænti þó, að mönnum dylj-
ist ekki, að margháttuð og merk
iðnþróun hefur átt sér stað í
landi voru og mun halda áfram
að vaxa, en fjölþættari iðnþró-
un er eitt veigamesta verkefni
þessarar litlu þjóðar í framtíð-
inni.
í því sambandi bið ég menn
að hafa í huga, að íslending-
ar eru ört vaxandi þjóð og gert
er ráð fyrir, að um næstkom-
andi aldamót búi hér nálægt
400 þúsund manns, eða með
öðrum orðum, að tala þjóðarinn
ar nærri tvöfaldaðist á þessu
tímabili. Og ef litið er lengra
fram í tímann, þá er gert ráð
fyrir því, að upp úr miðri næstu
öld, eða árið 2050—2060, verði
tala íslendinga orðin um það bil
1 millj. manna. Hvar á þetta
fólk að leita atvinnuöryggis sins
til framhaldandi efnahagslegrar
velmegunar? Við vanmetum á
engan hátt hina gífurlega miklu
þýðingu sjávarútvegsins fyrir
efnahagslega afkomu þjóðarinn-
og landbúnaðarins til styrktar
sjálfstæðri tilveru og menningu
hennar. Hitt leynist ekki, að
fiskimiðin í kringum landið eru
ekki ótæmandi, heldur öllu frem
ur, að ekki verði áfram ausið
úr þeim, svo sem verið hefur, án
þess að ganga of nærri fiski-
stofnunum.
Hitt er mönnum ljóst, að við
getum sjálfsagt í framtíðinni
stóraukið verðmæti sjávarútvegs
framleiðslunnar með meiri hag-
nýtingu hráefnis en við höf-
um haft lag á fram til þessa,
og er þá um að ræða meiri
iðnaðarframleiðslu einnig á
þessu sviði,
Fjölþættari iðnvæðing með
hagnýtingu orkulinda landsins,
vatnsfalla og jarðvarma, er fram
tíð komandi kynslóðar þessa
lands samfara eflingu þeirra
eldri höfuðatvinnugreina okkar,
sjávarútvegs og landbúnaðar.
Iðnvæðing framtíðarinnar
mun eflast i skjóli vaxandi
tækni og vísinda. Á þvi sviði
þurfum við íslendingar að leggja
hart að okkur, auka menntun,
menningu og sérþekkingu. Það
er verðugt verkefni komandi
kynslóða þessa lands.
Skrifstofustúlka
Óskum eftir að ráða stúlku til vélritunar
og annarra afgreiðslustarfa sem fyrst.
Umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og fyrri störf sendist okkur fyrir 16.
maí n.k.
Sparisjóður Kópavogs.
Aðalfundur
Flugfélags íslands h.f. verður haldinn
fimmtudaginn 1. júní n.k. í Súlnasal
Hótel Sögu og hefst kl. 13:30.
DAGSKRÁ:
1. Samkvæmt félagslögum.
2. Lagabreytingar.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða
afhentir hluthöfum á aðalskrifstofu fé-
lagsins, Bændahöllinni, 4. hæð frá og með
29. maí.
STJÓRNIN.
MADE IN U.S.A.
• • • • í PíPUNA!
FERSKT BRAGÐ
- SVALUR REYKUR
MEST SELDA PÍPUTÓBAK í AMERÍKUl
PRINCE ALBERT