Morgunblaðið - 13.05.1967, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 13.05.1967, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967. 19 Úr einum af vinnusölum Súkkulaðiverksmiöjunnar Lindu. lána og rekstraælána, sérstök 'hag ræðingarlán, meiri samvinna eða samræming og jafnvel samruni á starfsemi hinna litlu iðnfyrir- tækja, aukin tækniaðstoð og ým- islegt annað, sem ég hefi áður vikið að. Félag íslenzkra iðnrékenda fór þess á leit við iðnaðarmálaráðu- neytið, að það hlutaðist til um, að fengnar yrðu frá erlendum aðila sérfræðilegar ráðleggingar um það, hvort ætla mætti, að samruni eða aukin samvinna ís- lenzkra fyrirtækja gæti verið æskileg og með hverjum hætti henni yrði fyrir komið. Af þessu tilfeni var Iðnaðar- málstofnun fslands falið að hafa forgöngu í þessu máli, og fyrir hennar milligöngu kom hingað á sl. ári á vegum ríkisstjórnarinnar norskur sérfræðingur, sem reynd ar hefur komið hingað áður, Arne Haarr, til þess að athuga þetta mál í samvinnu við Iðnað- armálastofnunina, og hefur hann síðan látið í té all ýtarlegt nefnd arálit og tillögur í þessu máli, sem verið hafa til athugunar í Iðnþróunarráði. Til þess að varpa nokkru ljósi á það viðfangsefni, sem hér um ræðir, skal ég tilfæra nokkur atriði úr hugleiðingum og til- lögum hins norska sérfræðings. Hann segir m.a.: „Að ósk iðnaðarmálaráðherra hefi ég í því, sem hér fer á eft- ir, reynt að setja fram hug- myndir og tillögur varðandi op- inberar ráðstafanir, til þess að móta aðlögunar- og þróunarferil íslenzks iðnaðar á komandi ár- um'. Grundvallarhugmyndirnar hljóta eðlilega að vera mjög mótaðar af reynslu Norðmanna. Ef menn telja æskilegt að beita samsVarandi tækjum í íslenzkri hagstjórn, er alla vega nauðsyn- legt að gera viðeigandi hagnýt- ar breytingar á þeim. Samt sem áður leikur ekki vafi á því, að grundvallarvandamálin eru svo lík, að skipti á hugmyndum og reynslu mundu bera góðan ávöxt. Fyrst og fremst má benda á, að meginhluti fyrir- tækja í norskum iðnaði, á sama hátt og í íslenzkum iðnaði, er myndaður af minni og meðal- stórum einingum, sem flestar eru í eigu stjórnenda. Miðað við fjölda hafa um 30% af norsk um iðnaðar- og handverksfyrir- tækjum færri en 20 starfsmenn. Um það bil helmingurinn af vinnsluvirðinu kemur í hlut fyr irtækja með færri en 50 manns. Margt er likt með hinu mann lega og sálræna þætti í íslenzk- um og norskum iðnaði.“ Síðan víkur hinn norskí sér- fræðingur að því, að stefnan í iðnaðarmálum í Noregi hafi í æ ríkara mæli beinzt að því að undirbúa aðlögun iðnaðarins að nýjum markaðskjörum og nýj- um tæknilegum aðstæðum. Hann telur mikilvæga þætti í þessari stefnu stofnun hins svokallaða „Aðlögunarsjóðs heimaiðnaðar- ins“ árið 1903 og stofnun „Sjóðs til stuðnings rannsóknar- og þróunarstarfsemi í iðnaðinum" árið 1965. Þá segir hinn norski sérfræð- ingur ennfremur: „Ef íslenzkur iðnaður á að halda velli yfir lengri tíma, verður hann ótvírætt að laga sig að þeim miklu breytingum, sem eiga sér stað í iðnaði vestrænna landa. Hér við bætist hin hlut- fallslega mikla aukning í vinnu- launakostnaði, sem íslenzkt at- vinnulíf hefur búið við á síðust.u árum. Verðbólgan hefur í för með sér aflögun á samkeppnis- aðstöðunni gagnvart útlöndum, sem svarar í raun áhrifum til mjög mikillar lækkunar á toll- vernd. í nokkru minna mæli höfum við haft sömu verðhækk- unarvandamál í Noregi." Síðan víkur þessi norski sér- fræðingur að þeim möguleika fyrir iðnþróun, sem hann talur, að enn hafi ekki verið fullnýtt- ir, og segir í því sambandi: „Mest áberandi þróunartæki- færi virðast liggja á þessum sviðum: Vinnsla sjávarafurða. Framleiðsla á útbúnaði til sjávarútvegs (m.a. fiskibátar, veiðarfæri o.s.frv.) og þjón- ustu iðnaður fyrir sjávarút- veg. Notkun vatnsafls (áliðnaður o.fl.). Vinnsla íslenzkrar ullar. Sút- un og verkun skinna. Hins vegar má engan veginn vanmeta tækifærin á öðrum sviðum. Sá þáttur, sem ræður úrslitum í iðnþróuninni, er fram lag einskalingsins. Á síðustu ár- um höfum við í Noregi orðið vitni að því, að þróttmiklir og skilningsgóðir stjórendur hafa verið færir um að byggja upp gróskumikil og lífvænleg fyrir- tæki á sviðum, þar sem menn höfðu áður talið öll fyrirtæki dauðadæmd. Það er einnig hægt að segja, að norsk iðnaðarmála- stefna hneigist nú frekar inn á þá braut að leggja meira upp úr dugmiklum stjórnendum iðnfyr- irtækja en þeim gæðum, sem við höfum fengið frá náttúrun-nar hendi. Það er hugvit og þekk- ing „skills and wits“, sem at- hyglin beinist að.“ Þessi norski sérfræðingur bendir einnig á, að jafnframt því, sem uppistaðan í norskum iðnaði hafi verið að meiri hluta smáar og meðalstórar einingar, þá hafi samkeppnisþrýstingur- inn utan frá og þau mörgu verk- 'efnið, sem aðlögunin til nýrri markaðsaðstæðna kallar á, smám saman þvingað fram mjög umfangsríkt samstarf. í tillögum sínum víkur hinn norski sérfræðingur m.a. að nauðsyn þess, að stofnaður verði eins konar aðlögunar- eða þró- unarsjóður fyrir iðnaðinn, að nokkru leyti eftir fyrirmynd hins niorska Aðlögunarsjóðs fyr- ir heimamarkaðinn. En á því sviði eru um hliðstæðar tillög- ur til sjóðsmyndunar að ræða og fram koma í tillögum tækni aðstoðarnefndarinnar, sem ég hefi áður gert grein fyrir. Tel ég, að vel mætti samræma þær hugmyndir. Á sama hátt og varð andi álit og tillögur tækniaðstoð arnefndarinnar tel ég ekki tíma- bært að gera nú nánár grein fyrir áliti og tillögum hins norska sérfræðings og að hve miklu gagni sé líklegt, að þær komi, en hér er án efa einnig um mikilvægt úrlausnarefni fyr ir íslenzka iðnþróun _að ræða. Ég vil í þessu sambandi víkja að því, að það er misskilningur, þegar því er haldið fram, að ís- lenzkur iðnaður eigi nú almennt í erfiðleikum vegna tollalækk- ana, sém hafi verið látnar skella yfir fyrirvaralítið og iðnfyrir- tækin þannig verið látin sæta óeðlilegri samkeppni erlends iðn varnings. Lög um tollskrá eru frá 1963, en sú nýja tollskrá fól í sér kerfisbreytingar en ekki afnám verndartolla iðnað- arins. Þessum lögum var breytt á næstu þingum. Tollabreyting- ar 1964 voru einkum fólgnar í tæknilegum lagfæringum og samræmingu tolla á skyldum vörum, er stefndu yfirleit!t í lækkunarátt, en höfðu í fæst- um tilfellum áhrif á iðnaðar- framleiðslu innanlands. Breyt- ingarnar 1965 voru til hags'bóta fyrir iðnaðinn, fólu í sér lækk- un tolla á vélum til iðnaðarfram leiðslu. Lækkuðu vélatollar þá almennt úr 36% í 25% og véla- tollar til útflutningsiðnaðar nið ur í 15% og 10%. Tollabreyt- ingarnar á þinginu 1966 fólu í einkum í sér lækkun tolla á til- búnum húsum og húshlutum í samræmi við áætlanir um lækk- aðan byggingarkostnað. Þó að tollabreytingar hafi sums stað- ar torveldað samkeppni íslenzks iðnaðar, þar sem lækkaðir hafa verið mjög háir tollar á full- unnum vörum, má ætla, að tollalækkanir til hags fyrir iðn aðinn vegi þar fyllilega á móti. Minni ég t.d. einig, til viðbót- ar 'því sem áður var sagt, á en<l urgreiðslu tolla, á ýmsum efni- vörum til- iðnaðar, að tollum hefur verið létt af efni til bygg- ingar íslenzkra dráttarbrauta f sambandi við íslenzka fiskiskipa smíði, á vélum til niðursuðu fisk afurða til útflutnings og fleira mætti nefna. Ennfremur vil ég í þess.u sambandi minna á, að í nefnd embættismanna, sem unnið hefur að tillögugerð um þær, tollabreytingar, sem gerðar hafa verið á undanförnum ár- um, hafa iðnrekendur haft sér- stakan fulltrúa, til þess að fylgj- ast með öllu því, sem þar hefur farið fram. Ekkert hefur í því sambandi verið aðhafzt nema 1 fullkomnu samráði við iðnrek- endur, og í mörgum tilfellum hefur verið hnikrað til að‘ þeirra óskum og felldar niður áður ráð gerðar breytingar, ef þær töld- ust koma iðnaðinum of óþægi- lega. Að svo hefur verið farið að, er í samræmi við fyrirheit ríkisstjórnarinnar um það að hafa samráð við iðnaðinn I þessu máli og veita honum eðli- legan aðlögunartíma. RANNSÓKNARMÁLEFNI: Þegar litið er á rannsóknar- málefni iðnaðarins, má segja, að þau skiptist aðallega í tvo meginþætti, þ.e. rannsóknar- stofnanir og einstök rannsókn- arefni. Rannsóknarsto-fnanirnar eru tvær, Rannsóknarstofnun bygg- ingariðnaðarins og Rannsóknar- stofnun iðaðarins, en báðar þessar rannsóknarstofnanir voru stórefldar með lögum um rann- sóknir í þágu atvinnuveganna frá 1965. Þá voru þeim tryggð meiri fjárráð en áður og skipu- lagi þeirra breytt til verulegra muna, sem allt ætti að gera þær mikilvirkari en áður í þágu þeirra verkefna, sem þeim er ætlað að sinna. Efnt hefur verið til ýmissa einstakra rannsókna, annað hvort á vegum iðnaðarmálaráðu Garðlircppingar Skátaskeyti afgreidd í Goðatúni 2 og í síma 50000. íbúð til sölu Þriggja herbergja kjallaraíbúð er til sölu við Sigtún. Nýstandsett og laus nú þegar. Upplýsingar í síma 33594. Hótel Bifröst smiðja — 924“ sendist Mbl. fyrir 17. þ.m. Sumarstarfsemin hefst 20. júní. Pöntunum veitt móttaka í síma 19259. HÓTELSTJÓRINN. IíeiWsölufyrirtæki óskar að ráða vélritunarstúlku. Góð þýzkukunn- átta nauðsynleg. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist blaðinu merkt: „814“. ungir velja VALASH hreinna ávaxtabragð frá tjj®|

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.