Morgunblaðið - 13.05.1967, Side 22

Morgunblaðið - 13.05.1967, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967. Kve nnadá I k -1 Elizabet Arden: Ég minnist þess enn, hve ég heyrði talað um Elizabeth Arden snyrtivörur með mikilli lotn- ingu, þegar ég var barn. Skild- ist mér þá, að þetta væri eitt- hvað alveg sérstakt. Margskon- ar snyrtivörur hef ég heyrt minnzt á síðan, og skal ekki lagður dómur á, hvaða tegund er bezt. Hór var stödd fjrrir nokkru á vegum fyrirtækisins Sápu- húsið h/f, Vesturgötu 2, frú Anne Wilkie, sölustjóri frá „Eiizabeth Arden“ í London, og er hún að minnsta kosti sann- færð um, að ekkera jafnist á við Arden vörurnar. Fræddi hún okkur um ýmislegt varðandi rannsóknir, framleiðslu, notkun og sölu snyrtivara frá þessu víðfræga fyrirtæki. Fyrirtækið „Elizabeth Arden“ var stofnað árið 1910, er það því orðið rótgróið og vörur þess þektotar um allan heim. Frú Anne Wilkie er hagfræðingur að mennt og hefur unnið 17 ár hjá fyrirtækinu, annast hún sölu til margra landa Evrópu, Ameríku og Afríku. Er hún þar af leiðandi mikið á ferðalögum, heimsækir hinar ýmsu borgir þar sem Elizabeth Arden snyrti- vörur eru seldar og kynnir nýj- ungar í framleiðslunni. Má geta þess, að Elizabeth Arden snyrti- vörur hafa verið seldar hér á landi frá árinu 1930, og var það Lyfjabúðin Iðunn, er fyrst flutti þær inn. Meðal landa þeirra, sem frú Wilkie sér um sölu til, eru 8 kommúnistalönd, þar sem snyrti- vörusala er að vísu ekki mjög mikil, og Saudi-Arabía, en sala þangað hófst fyrir 7 árum og fer stöðugt vaxandi. Kemur það manni talsvert á óvart, að þess- ar hlédrægu og hálf-ósnyrtilegu konur skuli vera smurðar mikl- um fegurðarlyfjum bak við slæð- urnar. Sýnir það bezt, hve kven- legt eðli er samt við sig. Frú Wilkie leggur á það mikla áherzlu, að snyrtivörur þessar séu fyrst og fremst fram- leiddar með það í Ituga að bæta og fegra húðina. Ekkert er sent á markaðinn án þess að hafa verið þrautreynt í langan tíma. Meðan Elizabeth Arden lifði, hafði hún sjálf yfirumsjón með öllu, er að framleiðlunni laut, allt frá efnasamsetningunni að umbúðunum, og átti það til að stöðva sölu á því, sem hún áleit ekki vera nógu gott. Nú er fyrirtækinu stjórnað af foráða- mönnum hinna ýmsu deilda, sem hittast á þriggja mánaða fresti til skrafs og ráðagerða. Þar á meðal er systir Elizabeth Arden, sem er yfir Parísardeild- inni. í London einni saman vinna hjá „Eliztbeth Arden um 1000 manns, og má sjá af því, að þetta eru engin smá umsvif. Frú Anne Wilkie kveður konur hér hafa góða húð, og finnst hafa orðið framför í snyrtingu þeirra á þeim þrem árum, sem liðin eru frá síðustu heimsókn hennar hingað til J J þyngd og útivist, sem skapi gott útlit kvenna. Það, sem telja má til nýjunga í sumar er, að nú á að vera betra jafnvægi milli augnsnyrt- ingar og varalits, þ.e.a.s. fölu varirnar eru á uandanhaldi og jafnvel búizt við dökkrauðum varalit í tízku með haustinu. I sumar mun aðalliturinn vera kanil-silfur lit'ur (cinnanion- si'lver). Einnig er von á nýjum gerðum af „make-up“ og á það að heita hvorki meira né minna en„fullkomið útlit“ (perfect finish). En það gildir enn sem fyrr að nota eingöngu það, sem er tU bóta, alls ekki annað. — ★ — En hver er svo konan á bak við fyrirtækið „Elizabeth Ard- en“? Um sjálfa sig sagði hún, að það væri aðeins ein önnur Eliza- fVnne Wilkie. eigið nafn og taka upp nafnið Elizabeth Arden, en það' setti hún saman úr tveimur bókatitl- ' ARDEN ON TIME COVER, MAY Elizabeth Arden: Um 19 26 — Forsíðumynd í Xime 1946 Arið lands. Eldri konur hér finnst henni óþarflega íhaldssamar í notkun snyrtivara, finnst að þær mættu gjarnan nota að minnsta kosti varalit og púður. En hún bendir á og það rétti- lega, að það séu fyrst og fremst hollir lifnaðarhættir, nægur svefn, rétt mataræði, hæfileg beth, sem kæmist í hálfkvisti við sig, og það væri drottningin. Réttu nafni hét hún Florence Nightingale Graham, og var dóttir aðflutts bónda í Ontario. Hún var lítil vexti, lagleg, brún- hærð, og staðráðin í því að korni- ast áfram í heiminum. Hún byrjaði á því að leggja niður sitt um (Elizabeth and Her Ger- man Garden og Enoch Arden). Það var árið 1910, sem Eliza- beth fann upp töfrasamsetningu sína, og hóf snyrtivörufram- leiðslu fjórum árum áður en aðaikeppinautur hennar, Helena Rubinstein, kom til Bandaríkj- anna. Þetta var á þeim tíma, „ÞAÐ ER RÉTTUR HVERRAR KONU AB VERA FÖGUR“ þegar konur þvoðu og settu sjálfar upp á sér hárið, fegrun- arlyfin takmörkuðust af rósa- vatni og talkúm-púðri, glyserini á hendurnar og það hræðileg- asta, sem hægt var að segja um virðulega konu var, að hún mál- aði sig. Fyrir lánsfé setti hún upp fyrstu snyrtistofuna á 5th Avenue og viðskiptavinirnir voru aðallega efnaðar konur 1 New York. Innan fárra ára komu á markaðinn andlitskrem, og ilmvötn, og árið 1915 gerðist hún svo djörf að flytja inn frá Frakklandi augnaháralit og augnskugga. Snyrtistofum hennar, sem all- ar voru auðkenndar rauðum úti- hurðum fjölgaði, og þar auglýsti hún hispurslaust, að það væri réttur hverrar konu að vera fögur, og að í engu ætti að spara til að viðhalda útlitinu. Er tím- ar liðu, jókst fjölbreytni fram- leiðslunnar og nú munu gerðirn- ar verða á fjórða hundrað, seld- ar til 44 landa, og tekjurnar voru fyrir nokkrum árum yfir 15 milljónir dollara á ári. Fyrir utan snyrtistofurnar rak hún nokkurs konar hvíldarstaði fyrir konur, annan í Mount Vernon og hinn í Phoenix. Þar geta konur bókstaflega fengið alla hugsanlega meðferð og eru settar á strangan matarkúr, ef þurfa þykir, fyrir um 800 doll- ara á viku. Annar þessara svo- kölluðu hvíldarstaða komst mjög í hámæli á forsetatíma Eisenhowers, er Mamie kona hans dvaldist þar um tíma. Vildu þá amerískir skattgreiðendur fá að vita, hver borgaði „hvíld- ina“. En Elizabeth Arden var þekkt af fleiru. Hún festi kaup á fyrsta veðhlaupahestinum ár- ið 1931 og árið 1945 átti hún marga góða gæðinga, sem voru í fremstu röð. Var dekrað og dekstrað við hestana jafnmikið og viðskiptavinina á snyrtistof- unum — þeir jafnvel nuddaðir uppúr Arden-kremi. Vegna þessarar meðferðar — eða ef til vill þrátt fyrir hana — vann hestur hennar „Jet Pilot“ Ken- tucky veðreiðarnar árið 1947. Arden var tvígift, fyrst frá 1915—1935 bandarískum kaup- sýslumanni, Tom Lewis, seinna rússneskum prinsi Michael Evlanoff, en það hjónaband stóð aðeins í 13 mánuði 1942—3. Florence Nightingale Graham, öðru nafni Elizabeth Arden, lézt í október 1966, 82—84 ára gömul, stórefnuð kona, sem hafði til hins síðasta haldið fast við lífs- skoðun sína, að fá það bezta út úr lífinu og útlitinu. BLAÐBURÐARFOLK OSKAST í EFTIRTALIN HVERFI: Aðalstrætl Lambastaðahverfi Miðbær Talið við afgreiðsluna sámi 22480 Anstarierðir Grasfræ. garðábúrður. Ferðir f Hrunamannahrepp þrisvar I viku, burtfarartími kl. 1. Daglegar ferðir, Gull- foss, Geysir, Reykjavík, Gríms nes, Laugarvatn, Geysir, Gull- foss og Reykjavík, Selfoss, MA “= Skálholt, Gullfoss, Geysir, Laugarvatn. Alla daga. Burt- farartími kl. 1. Lóð Bifreiðastöð íslands Sími 22300 - ólafur Ketilsson. Falleg útsýnislóð til sölu í Mýrarhúsalandi á Sel- tjarnamesi. Samþykkt teikning að einbýlishúsi. Til greina kemur að gera húsið fokhelt í samráði við væntanlega kaupanda. Uppl. I símum 22607 og 13850.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.