Morgunblaðið - 13.05.1967, Side 29

Morgunblaðið - 13.05.1967, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1967. / 2!) > Séra Pétur Magnússon: Horft á mynd eftir Kjarval 1ÉG ER að horfa á stóra mynd, eftir Kjarval, sem hangir á 'veggnum andspænis mér. Litir inyndarinnar láta ekki sérlega mikið yfir sér, en yfir henni 'allri hvílir leyndardómsfullur *blær, og allt er þar meira og minna hjúpað. í myndinni er éins og maður sjái sköpunina að verki — ummyndun Kaos í Kosmos — ummyndun frumþok Unnar í ákveðin gerfi. — Efst fil hægri stígur út úr þokunni höfuð og herðar karlmanns. Grannur handleggur er vafinn Um háls mannsins, en sú, sem á handlegginn grúfir andlitið við Vanga hans. — Stúlkan hefur Sýnilega verið að kyssa hægra eyra mannsins, eða þá að hvísla í það ástarorðum, því að það er talsvert rauðara en hitt eyrað. i— Yfir faðmlagi stúlkunnar hvílir mikill hreinleiki, og and- litssvipur mannsins ber vitni um tfullkomið eignarhald og góða samvizku. — Næst dregst auga éhorfandans að sterklegri hönd, sem er að ná taki á öxl stúlk- unnar. Svipur handarinnar er í- mynd ásælni og tillitsleysis. Höndin tilheyrir manni, sem stíg UT líka út úr þokunni og ekki sést annað af en þessi frekjulega hönd, sterklegur handleggur og íixl, og loks andlitið með svip, sem sver sig í ætt við svip hinnar Pétur Magnússon. ésælnu handar. Augu mannsins hvíla á stúlkunni, og úr þeim logar ásetningur, sem er ekki meira í ætt við himininn en það, að einn af öndum loftsins hefur verið sendur á vettvang, 1 fuglslíki. Eldur brennur úr augum fuglsins og nef hans er i ógnandi nálægð vði annað auga mannsins. — Manni flýgur í hug ritningarstaður, þar sem talað ér um að auga sem hneykslar, skuli rifið út — og það fer um mann hrollur. Við lítum af þessum hluta myndarinnar og horfum neðan. .— Þarna geysar skararveður — tfárviðri. Ungur maður og kona eru að brjótast áfram í óveðr- inu. Þau lúta bæði fram, til að tforða andlitinu frá meiðslum, tfara samstiga og sækja knálega gegin veðrinu. — Með örfáum einföldum dráttum, hefur lista- manninum tekizt að draga fram tfegursta veruleikann, er getur að líta á þessari jörð — mann- verur, sem eru staðráðnar í þvi að standa saman, og berjast sam an, hvað em á dynur. — Maður inn ungi virðist vera litt búinn að skjólklæðum, gegn hamför- um veðursins, og það mótar ó- Ijóst fyrir horni á klæði, sem hönd konunnar við hlið hans er að draga fram honum til skjóls. — f huga áhorfenöans fer 6- sjálfrátt að óma kvæðið og lag- ið gamalkunna: „Ef stæðir þú á heiði í hríð, þar hvassast er. !Ég breiddi út mína skikkju að skýla þér“. Við látum augum hvarfla til Jóhannes Kjarvl. vinstri, — þar kemur út úr þok- unni þrekleg hönd, sem gefúr stöðvunarmerki: — Enga umferð hér! — Þegar við förum að huga nánar að því sem er að gerast þarna á miðfleti myndarinnar skiljum við þegar í stað ástæð- una til stöðvunarmerkisins. Karl maður með austurlenzkan vefj- arhött á höfði, en fáklæddur að öðru leyti hvilir á bólstruðu hæg indi. Lítil, en hnellin stúlka hef- ur kastað sér í fang mannsins með þeim afleiðingum, að hæg- indið er að fara úr Skorðum. Þetta út af fyrir sig, virðist nú raunar naumast gefa fullgilda ástæðu til að umferðin sé al- veg stöðvuð. — En sagan er ekki tfullsögð. Það viðsjálverða við á- etandið er, að það sézt á höfuð og handlegg annarar stúlku sem hvílir líka á hægindinu. — ög hefur sýnilega verið þar fyr- ir, þegatr hina bar að. — Báðar Virðast drósirnar vera mjög ung ar að árum, og kemur það að vissu heim við stefnu dálítið kyn legs aldarháttar — og þá ekki síður vefjarhötturinn, sem gæti Verið höfuðbúningur indversks fursta. — Höfundur myndarinn- ar lætur þetta ástand á hægind- inu ekki ótalið. Rétt fyrir ofan Vettvang hneykslisins er móðir að flýja burt með unga dóttur sína, allt annað en blíð á svip- inn. Og til hliðar, ekki alllangt frá, standa átta svanir £ hóp, er líta allir yfir bak sér, og góna á hægindið ofsetna. — Svipur þessaria skírlífu fugla sýn ir glögglega hve undrandi þeir eru yfir því, hvemig æðsta skepna jarðarinnar á til að haga sér í ástamálum. En það eru fleiri, sem hafa áhuga fyrir því sem er að gerast á miðfleti myndarinnar. Litlu ofar til vinstri kernur út úr þokunni andlit karlmanns, sem er þarna á hnotskóg. Sterkur vilji heldur andlitssvipnum í ró, en augun þrástara á það, sem er að gerast á hinu ofsetna hæg- indi. Blikið í augunum er tví- rætt, eins og brosið á vöruro Monu Lisu, en áhuginn leynir sér ékki. — En svo virðist sem þessum áhugasamia náunga mimi ekki gefast langur tími til að Vera bara áhorfandi. Rétt til hlið ar við hann stendur ung stúlka t— með lítið annað á kroppn- Um en bara baðhettu, snýr að honum og horfir á hann ástleitn um augum. — Allt í svip hennar ■segir: — „Maður, líttu þér nær“. — Ertu sjónlaus maður! — — — En neðst í horni myndarinnar til vinstri getur að líta enn einn áhorfenda að at- bur'ðinum, sem er að gerast í miðfleti myndarinnar. — Þarna kemur í ljós fölleitt andlit og Vofulegt, en þó jafnframt næsta mikilúðlegt. — Engum fær dul- ist. hve þetta andlit ber sterkan svip af myndum af Goethe. — (Þýzki skáldjöfurinn gýtur aug- unum ólundarlega í áttina til hægindisins fyrrnefnda. Það er ■eins og varnirnar hafi skekkst í glotti, sem hefur dáið í fæð- ingunni. — Út úr hinum ólund- -arlega og vandlætingarfulla and litssvip má lesa: „Sturm und Drang“ tuttugustu aldarinar! Það er verra en það var á Blakksbj argi á Jónsmessunótt! -----Bæði viðhorf hinna skír lifu fugla, sem ég gat um fyrr, og vandlætingarsvipurinn á and- •liti tvífara hins þýzka skáld- mærings — sem ekki var þó ævinlega við eina fjölina felld- ur — hlýtur að verka sterklega, jafnvel á ístöðumikinn áhorf- anda og knýja hann til að leggja fyrir sig eftir farandi spurningu: — Er listamaðurinn að láta skína í það, að tuttugustu ald- ar maðurinn sé kominn full- langt í — við skulum segja „víð- sýni“ sinni — á sviði ásfamál- 'anna? Á hægindið, sem er að 'færast úr skorðum undir ofur- þunganum, sem á það er lagð- ur, e.t.v. að tákna það, að hin rnikla sókn nútímamannsins á vegur Erosar fari fram á reik- andi grunni? Allskonar erfiðar hugsanir af þessu og svipuðu tagi, sen?. hljóta um stundarsakir að sæ'kja að á- horfandanum, gera það að verk- um, að hann finnur til mikils léttis, er hann lýtur upp og fer að horfa á hinn óskoðaða hluta myndarinnar yzt til vinstri. — Alls ráðandi á þessum fleti er Vera, sem er auðsjáanlega ekki af þessum heimi. Höfuð og and- lit sést frá hlið, og býr svip- ■urinn yfir einhverju, sem gef- ur hugboð um að veran sé gædd yfirj'arðneskri vizku og mætti. "— Manni kemur í hug, að þetta sé jarðarandinn, sem sagt er frá 1 Faust. En hann birtist hér í langt um viðfeldnari mynd en 'fyrrum. — Hér eru engin eld- leg augu, sem vekja ofboð og ótta. — Alger ró og friður hvíl- ir yfir svipnum, og augu ver- •unnar, sem virðizt fylgjast með 'öllu, sem er að gerast á hinum ýmsu flötum myndarinnar, lýsa í senn óumræðilegu umburðar- lyndi, samúð og skilningi á erf- iðleikum og freistingum, baráttu 'og brekum jarðarbarnanna. — 'Upp við brjóst verunnar hvíla tvö mannsbörn í reifum í full- komnu öryggi, en einn af önd- Um loftsins er að koma í fugls- líki, færandi hendi, með grænt laufblað í nefinu — sem minn- ir á þátt blaðgrænunnar í sam- Starfi loftsins og moldarinnar um það, að sjá jarðarbömunum fyr- dr nauðsynlegri næringu. — Eftir stutta stund er áhorf- andinn orðinn þátttakandi í hin- um mikla friði og himnesku ró, isem hvílir yfir þessum hluta myndarinnar. — Gleymd er höndin ásælna, augað, sem Ihneykslar og nef fuglsins, sem ætlar að fara að framkvæma hina hræðilegu læknisafSgerð. Gleymt er skararveðrið og mann tverurnar tvær, sem eru að ber}- ast fyrir lífi sínu. Gleymt er hægindið ofsetna — hinn tál- dragandi vettvangur stundar lífs ins. Gleymt er hið dómsjúka auga og stjarfa glott á vörum. sem eru ef til vill skældar út af því að þær eru orðnar of kaldar til að geta lengur verið þátttakendur í stundargleðinnL Hinn ríki skilningur og samúð með lífinu, sem geislar úr aug- um jarðarandans, hefir um ‘stund náð tökum á áhorfandan- •um. Hann finnur, að inn í sál hans er byrjað að seitla eitt- hvað af hinni takmarkalausu þolinmæði og biðlund sem hlýt- ur að ríkja á bak við tjaldbúð- ‘irnar, sem slegið hefur verið upp handa jarðarbörnunum til að stunda tilraunir sínar á veg- um leitarinnar að þroska og var 'anlegri hamingju. — Leitarinn- 'ar, sem hefir iðulega skilað svo. tfátæklegum árangri, vegna þess hve áhuginn fyrir stundargleð- inni hefur gert hana frátatfsama. — — — Ég hefi aldrei séð Jóhannes Kjarval að verki, þar Sem hann hefir verið að draga upp hinar frægu myndir sínar. En ég geri mér í hugarlund að þegar hann er í essinu sínu, þá séu vinnubrögð hans eitthvað svipað því og þegar höfuðskepn- urnar eru að verki. Ég er þeirr- ar trúar, að á þeim stundum sé líka að verki ósýnileg hönd, 'sem stýrir höndinni sem heldur ‘á penslirxum. — Sama ósýnilega höndin, sem var að verki, þeg- ar fyrstu drögin að hnettinum, sem við stöndum á, voru að Verða til úr frumþokunni. —• Enginn skyldi því furða sik á svipnum, sem hvílir yfir mörg- um myndum Kjarvals. — — Ég Vona, að þessar tvær hendur — hin sýnilega og ósýnilega — eigi eftir enn um nokkura ára skeið að vinna saman og draga upp tfyrir okkur myndir, á vegum 'sannrar og ódauðlegrar listar — myndir, sem standa ekki að baki fyrri verkum meistarans um það, að megna í senn að gleðja auga áhorfandans — og fá hann til að hugsa. íbúð til leigu Fjögurra herbergja íbúð (92 ferm.) við Hraunbág er til leigu nú á næstunni. Tilboð sendist Mbl., merkt: „Hraunbær — 920“, fyrir þriðjudagskvöld. Söluskattur Þar sem annan dag hvítasunnu ber nú upp á 15. þ.m., sem er eindagi söluskatts 1. ársfjórðungs þessa árs, hefur ráðuneytið ákveðið, að eigi skuli heimtir dráttarvextir af skattinum, sé honum skilað í síð- asta lagi þriðjudaginn 16. þ.m. Reykjavík, 11. maí 1967. FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ. Elisabeth Arden Ný sending af hinum viðurkenndu Elísabeth Arden snyrtivörum er komin. Mikið úrval. tá- Vesturgötu 2 — Sími 13155. Stundið veiðarnar með Olympíumeistara Það er hægt með því að nota ANSCHUTZ sport- riffilinn caiiber .222, sem byggður er eftir ANS CHÚTZ MATCH 54 formúlunni, en með þeim teg- undum hafa unnizt fleiri alþjóða- og Olympíukeppn ir fyrir minni hlaupvíddir en með nokkrum öðrum. Einstiga gikkur, sem hægt er að stilla fullkomlega. Hlaupið er rennt af nákvæmni og yfirfellt. Riffil- skeftið er úr fallega útskorinni franskri valhontu. Verð aðeins kr. 7.950,— Póstsendum. SPORTVÖRUHÚS REYKJAVÍKUR Óðinsgötu 7 — Sími: 1-64-88. — Elzta sportvöruverzlun landsins —•

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.