Morgunblaðið - 17.06.1967, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JONl 1967.
Guðni Pálsson skip-
stjóri — Minningarorð
GUÐNI Pálsson skipstjóri and-
aðist að Hrafnistu 9. þ.m. 76 ára
að aldri. Hann verður jarðsettur
frá Fríkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 19. þ.m. Guðni var
fseddur 29. apríl 1891 að Götu í
Selvogi, sonur Páls Pálssonar
bónda þar og konu hans Svan-
t
Eigiramaður minn,
Jón Hallgrímsson
Hjúki, Vatnsdal,
andaðist að Héraðshælinu,
Biönduósi 15. þ. m.
Steinunn Jósefsdóttir.
t
Hjartkær eiginkona min,
Guðrún E.
Guðmundsdóttir,
Fálkagötu 24,
lézt fimmtud. 15. júní. Jarð-
anför ákveðin síðar.
Sigurður Helgason.
t
Sonur oklkar,
Sveinn Þórir Hauksson,
Langholtsveg 154,
andaðist í Borgarspítalanum
14. þ. m.
Hólmfríður Sölvadóttir,
Haukur Sveinsson.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Halldóra Sigríður
Guðmundsdóttir,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 20.
júní kl. 10.30 fyrir hádegi. —
Athöfninni verður útrvarpað.
Fyrir hönd aðstandenda.
Leopoldína Bjamadóttir.
t
Eiginmaðu-r minn,
ísieifur Högnason,
framkvæmdastjóri,
verður jarðsettur frá Foss-
vogskirkju þriðjud. 20. júní
kL 13.30.
Helga Rafnsdóttir.
t
Innilegt þakklæti til allra
hinna mörgu nær og fjær
sean sýndiu obkur samúð og
viarhug rraeð kveðjum, blóm-
um og minningargjöfum við
andlát og útiför,
Kristjáns Snorrasonar,
fyrrv. símaverkstjóra.
Eiginkona, böm og
tengdabörn.
hildar Gísladóttur bónda á Núp-
um í Ölfusi Sæmundssonar. For-
eldrar Guðna bjuggu um skeið
að Eyvindarstöðuim á Álftanesi
og síðar að Fífuhvammi í Kópa-
vogi, en er Guðni var 14 ára að
aldri missti faðir hans sjónina og
varð að hætta búskap, Fjölskyld-
an fluttist þá á mölina til
Reykjavíkur, og hér í Reykja-
vík átti Guðni heima upp frá
því, að nokkrum árum undan-
teknum, er hann var skipstjóri
á togaranum Brimi frá Nes-
kaupstað, að hann þau ár, var
þar til heimilis. Hugur Guðna
stefndi fljótt til sjósóknar, en
þó réðu atvikin því svo, að hann
hóf prentnám í Gutenberg-prent
smiðjunni 9. des. 1905 og lauk
þar námi 9. des. 1909.
í prentarastarfinu kynntist
Guðni mörgum mætum manni,
en hugstaeðastur þeirra allra
var honum jafnan Jón heitinn
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlót og útför
Frímanns Tjörvasonar,
Reynimel 48.
Ása Frímanns,
Karl Frímannsson.
t
Hjartanlega þökkum við
auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útlför föður
ökikar, tengdaföður og afa,
Bjarna Nikulássonar,
fyrrv. bónda að Böðvarsholti,
Snæfellsnesi.
Börn, tengdabörn og
barnabörn.
t
Innilegt þakklæti til allra
hinna mörgu nser og fjær sem
sýndu samúð og vinarhug
með kveðjum, blómum og
minningargjöfum við hið svip
lega aradlát og jarðarför elsku
sonar okkar og bróður,
Vignis Sævars
Guðmundssonar.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Ögmundsðóttir,
Guðmundur Sigurjónsson,
Ragnar Guðmundsson.
t
Þökkum innilega samúð og
vinsemd sem okkur var sýnd
vegna fráfalls móður okkar,
tengdamóður og ömmu,
Guðbjargar Bjarnadóttur,
Vanabyggð 2B, Akureyri.
Elisabet Bogadóttir,
Jón Kristjánsson,
Sólveig Kristjánsdótt'ir,
Jón Júlíusson,
Soffía Kristjánsdóttir,
Sverrir Ólafsson,
Kristjana Kristjánsdóttir,
Eiiif Nielsen,
Eva Kristjánsdóttir,
Kristján Jónsson
og barnabörn.
Baldvinsson, og oft hafði hann
orð á því, hve mikilhæfur stjórn
málaleiðtogi sér hefði fundizí
Jón Baldvinsson vera, og af
kynnum sínum við Jón Baldvins-
son sagðist Guðni hafia hdotið
þann áhuga fyrir þjóðmálum,
sem entist horaum til hinztu
stundar. Ég hefi tæplega kynnzt
manni, sem almennt hafði meui
áhuga á þjóðmálum en Guðni,
og ávallt er fundum okkar bai
saman, hóf hann umræður um
stjórnmálin, og öllu tryggari
fylgismann en Guðna hefur
jafraaðarstefnan og Allþýðuflokk
urinn vart átt, og svo var þjóð-
málaáhugi hans mikill og and-
legt þrek, að hann aðeins örfá-
um stundum fyrir andlát sitt
ræddi væntanleg úrslit þeirra
alþingiskosninga, sem nú er ný
lokið.
Þótt Guðni væri orðinn prent-
ari að iðn, óx í æ ríkari mæli
þráin til sjósóknar. Hugurinn
.eitaði jafnan til fangbragða
við dætur Ægis.
Því var það, að 1911 hvarf
hann frá prentstarfirau og hóf
sjómennsku, fyrst á skútu og
sv-o á togurum, en á þeim var
hann flest sín manndómsár, og
oftast sem skipstjóri eða stýri-
maður. Hann var þá oft með
enska togara, og mikið var
Guðni með Þórarni Olgeirssyni,
þeim þekkta togaraskipstjóra og
aflamanní.
Guðni starfaði þó á ný á árinu
1915 við prentverk í Félags-
prentsmiðjunni en hvarf fljót-
lega frá því aftur tíl sjómennsk-
unnar, er hann stundaði æ síðan
meðan heilsan entist.
Árið 1922 tók Guðni farmanna-
próf og upp frá því var hann
megin hluta sjómannisævi sinnar
skipstjóri á ýmsum skipum, eink
um togurum, innlendum og er-
lendum. Um tíma var Guðni
meðeigandi í togaranum Ver frá
Hafnarfirði og var þá skipstjóri
á honum, en 1935 var sá togari
seildur til Norðfjarðar og hlaut
þá nafnið Brimir, og var Guðni
skipstjóri á honum fram til
1938. Þann tíma átti hann heimili
sitt á Norðfirði, eins og fyrr er
frá greint.
Vorið 1940 nokkru eftir her-
nám Breta á íslandi, réðst Guðni
túlkur og lóðs á enskan togara,
sem breytt hafði verið í herskip
til að leita uppi kafbáta, og var
skip þetta vopnað fallbyssum,
loftvarnabyssum og djúpsprengj
um, en ágreiningui um kaup-
greiðslu milli Admiral West og
Guðna olli því, að Guðni lét af
starfi hjá ensku krúnunni fljót-
ar en hann hafði ætlað í fyrstu.
Árið 1946 réðist Guðni til
Skipaútgerðar ríkisins og var á
strandferðaskipum þar til 1950,
að hann fór á varðskipin, og
byrjaði hann á Óðni sem stýri-
maður. Auk þess, sem Guðni var
á Óðni, var hann á öðrum skip-
um landhelgisgæzlunnar, en
lengst af á Maríu Júlíu sem troll-
kapteinn á fiskirannsóknum,
einnig var hann á Þór með
Eiríki Kristóferssyni, þá til
skiptis sem annar eða þriðji
stýrimaður.
Guðni Pálsson, skipstjóri,
sigldi svo að segja allt tímabil
fyrstu og allt tímabil annarrar
heimsstyrjaldanna og tók af
fulilum krafti á varðskipunum
þátt í „Þorskastríðinu" við
Breta.
I síðustu heimsstyrjöld sigldi
Guðni fimmtfu fisksöluferðir til
Bretlands ýmist sem skipstjóri
eða stýrimaður, og alls mun
hann hafa siglt um þrjú hundr-
uð sinnum yfir hafið án þess að
verða fyrir tjóni á mönnum eða
skipi, slik var gæfa hans í því
starfi, er hann kaus sér sem ævi
starf.
Það þarf mikla karlmennsku
og óvenju þrek til að koma
hvorki beygður né brotinn út úr
hildarleik stríðsins. en ég gat
aldrei séð þess merki á Guðna,
að hann hefði bognað né brotn-
að í átökum við hættur þær, „r
styrjaldirnar ógnuðu sæfarend-
um, enda var hann hraustmenni
til sálai og likama, svo af bar.
Gæfudísirnar voru Guðna um
fleira hliðhOllar, en komast
klakklaust gegnum ógnir og
hættur þær, sem sjómenn búa
við í starfi sínu. Honum auðnað-
ist oftai en einu sinni að bjarga
öðrum úr sjávarháska, bæði skip
um og áhöfn, en að hjálpa öðr-
um var hans aðalsmerki alla tíð.
Sjómannadagsráð sæmdi Guðna
heiðursmerki sjómannadagsins
1965, og munu allir, er til
þekkja sammálla um, að til slíks
hafði hann unnið, og mér er í
minni hversu þetta gladdi hann
og yljaði honum, er þá var hann
orðinn sjúkur og ekki fær uim að
hitta kunningja sína, er í önn
da,gsins áttu fáar stundir í heim
sókn.
Þann 18. júní 1918 kvongaðist
Guðni Jórunni Þórey Magnús-
dóttur sjómanns í Reykjavík,
Pálssonar, af hinni kunnu Bergs
aett. Guðni taldi ávallt að þá
hefði gæfan verið sér veitulust
er festar tókust með þessari
fríðu, hugþekku konu og honum.
Jórunn og Guðni eignuðust sex
böm. Eitt þeirra, stúlka að nafni
Rannveig, dó á fyrsta ári. Hin
fimm eru á lífi. Oll manndóms-
og dugnaðarmikið fóák, eins og
þau eiga ætt til. Þau eru: Ragn-
ar, sjómaður, Páli bankafulltrúi,
Magnús, prentsmiðjustjóri, Svan
hildur, húsfrú, öll búsett í
Reykjavík og Gyða, húsfrú, bú-
sett að Rauðalæk. Þá ólu þau
Guðni og Jórunn upp eina dótt-
urdóttur sína, Jórunni Elíasdótt
ur. Fjölskyldan var stór og þarf
irnar margar, enda stóð ekki á
húsföðurnum að leggja sig fram
um að láta einskis ófreistað til
atvinnuöflunar, en á þeim árum
var allt slíkt meiri erfiðleikum
bundið en nú, Og eins og áva.lt
innan sjómannsfjölskyildunnar
var það hlutskipti húsmóðurinn-
ar að annast uppeldi barnanna,
vaka yfir þroska þeirra, heilsu
og menntun.
Þetta erfiða hlutverk ber öll-
um þeim er til þekkja, saman
um, að frú Jórunn hafi annast
með prýði.
Persónuleg kynni mín af
Guðna og frú Jórunni tókust
fyrir tæpum áratug, er við urð-
um sambýlingar í fjölbýlishús-
inu Stigahlíð 18. Kynni milli
fjölskyldna okkar urðu brátt að
vináttu, er aldrei hefur neinn
skuggi fallið á.
Þegar kynni okkar tókust var
Guðni að hætta á sjónum og
gerðist vaktmaður hjá landshelg
isgæzlunni og eftirlitsmaður
með möskvastærð dragnóta.
Þrátt fyrir bilaða heilsu rækti
Guðni starf þetta, sem önnur,
af kostgæfni og samvizkusemi.
En heilsunni hélt áfram að
hraka og að því kom að Guðni
varð að hætta allri vinnu og
halda sig heima, eða dvelja 1
sjúknahúsi tíma og tíma.
„Ég fer nú að fara Helgi
minn“, sagði hann stundum við
mig, ,og ég ætti að vera farinn,
en læknarnir segja að hjartað
sé svo sterkt, maður“. Já, Guðni
hafði áreiðanlega sterkt hjarta
— en það var ekki bara sterlct
— það var líka gott hjarta og
það var viðkvæmt hjarta, sem
sló í brjósti hans, hjarta, sem
ekkert aumt mátti vita án þess
að reyna að hugga og veita úr-
bót.
En nú er Guðni Pálsson, skip-
stjóri allur. Síðustu æviárin
voru honum erfið vegna van-
heilsu, en andlegu þreki hélt
hann til hinztu stundar.
Þessi ár voru einnig erfið fyr-
ir frú Jórunni, er af mikilli al-
úð og umhyggju stundaði hann
sjúkann í heimahúsi og lagði á
sig erfiði langt umfram það sem
þrek hennar leyfði.
En Guðni undi betur heima en
í sjúkrahúsi og meðan þess var
nokkur kostur lá hann hekna, en
síðustu mánuðina var hann á
sjúkradeild Hrafnistu, þar sem
hann lézt 9, þ.m. eins og fyrr
segir. Með Guðna er genginn
góður drengur og mætur maður,
sem átti að baki happasæl og
gifturík störf í þágu alþjóðar.
Kæri vinur, ég kveð þig aS
sinni með þökk fyrir aillt sem þú
varst mér og mínum. Frú Jór-
unni, börnum Guðna, tengda-
börnum, bamabörnum og öðr-
um ættingjum hans og vinum
flyt ég dýpstu samúðarkveðjur
fjölskyldu minnar og mín.
Helgi Hannesson.
Innilegt þakklæti sendi ég
öllum þeim sem heimsótbu
mig og sýndu mér margvís-
legan sóma á 75 ára aifmæli
mínu.
Rannveig Jónsdóttir,
Laufásvegi 34.
Innílegar þaikkir og bless-
unarós'kir færi ég ölium þeim,
sem á margrvíslegan hótt
sýndu mér vinsemd á sjötugs-
aiHjmælii rnínu 1. maí sL
Ásta Sighvatsdóttir.
Við sendum innilegar þakk
ir ölluim þeim, sem sýndu
okkur vinarhug með heim-
sóknum, heillaóskum og höifð-
inglegum gjötfum 6. júní sL
Lifið heiL
Ásthildur Teitsdóttir og
Gunnar GuSbjartsson,
HjarðarfellL
Notaðir miðstöðvarkatlar
3 — 5 ferm. óskast til kaups ásamt sjálfstilltum
kynditækjum. Verðtilboð er tilgr</ ii aldur og
gerð katla og tækja sendist Morgunblaðinu fyrir
23. þ.m. merki: „Katlar — 643“.
Tilboð óskast
í Saab 1963, skemmdan eftir árekstur. Bifreiðin
verður til sýnis á bifreiðaverkstæðinu Rétti
Höfðatúni 4 mánudaginn 19. júní. Tilboðum skal
skilað til Ábyrgðar h.f., Skúlagötu 63 fyrir 17. sama
dag.