Morgunblaðið - 17.06.1967, Síða 28

Morgunblaðið - 17.06.1967, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. JÚNÍ 1967. EFTIR KRISTMANN GUÐMUNDSSON skjálfta. Síðan fóru að hrynja steinar úr veggjunum og heyrð- ust dynkir að innan. Leið þá ekki á löngu áður en fólkið tók að streyma út. Komu fyrst konur og börn og Líumenn, en síðast hinir kápuklæddu höfðingjar, ásam.t konungi sínum. Foringi árásarsveitarinnar ávarpaði þá enn Jöfur, og spurði hvort han vildi nú veita honum áheyrn. En kóngur lét sem hann heyrði það ekki. Var þá vélin látin halda áfram eyðileggingar starfi sínu, og innan stundar var allur kastalinn hruninn í rúst. Nú voru Meiámenn farnir að streyma að, hópum saman, úr hinum köstulunum, og höfðu þeir með sér mikinn fjölda risa- fugla. Sendi Tamas sjónhvrfinga maður á móti þeim fjöldi af eld- fuglum, en síðan var pípum vél- arinnar einnig beint að þeim, og flýðu þeir þá samstundis. Miro Kama útskýrði fyrir Óm ari náttúru vélar þessarar, og kvað hana framleiða einskonar ýlfur, er væri svo hátt, að menn heyrðu það ekki. Aftur á móti gerði það flest dýr örvita, og verkaði þannig á hin svonefndu dauðu efni, grjót gler og málma, að allt leystist í sundur, og mátti jafnvel rífa niður með því fjöll. Foringi árásarsveitarinnar kom nú til þeirra. Kvað hann sýnt að hér þyrfti frekari að- gerða við, áður en konung'ir Meiamanna vildi við þá ræða. „Ég hef þegar talað við stjórn- endur stjörnuskipsins, og hafa þeir ákveðið að sigla því niður hingað, og sýna þessum þráhaus um í tvo heimana." Nú varð alllöng bíð. En loks tóku að heyrast þrumur miklar í háloftunum, og hinn ógurleg- asti gauragangur, svo sem himn ar allir væru að hrynja. Glotti þá foringinn og sagði að bezt væri að geimfararnir kæmu inn í diskinn, því að það væri ekki þægilegt fyrir hljóðhimnur manna, er svona stórt skip nálg- aðist í fleygiferð. Fóru þeir að ráðum hans, og heyrðu þá ekki lengur neitt, er diskurinn var HÓTEL BORG SUNNUDAGUR 18. JÚNÍ Opið til kl. 1 ekkar vlnsala KALDA BORÐ kl. 12.00, elnnlg alls- konar heitlr róttir. Fjölbreyttur matseðill allan daginn alla daga. Haukur Morthens M Bishop OG HLJÓMSVEIT ★ HINN HEIMSFRÆGI SKEMMTA SONGVARI skemmtir í síðasta sinn í kvöld. xxxxxxxxx SÖNGUR OG STEMNING FYRIR ALLA. Opið í kvöld til kl. 1. — Sælar frú mín, ég þekkti yð ur á augabragði, eftir lýsingu Aðalsteins. lokaður, en stóðu við gluggana og horfðu á hina gífuxlega stóru himnaferju, sem kom brunandi ofan úx fjólubláu himinhvolf- inu og stefndi beint á kastala- þyrpinguna. Það var mikilfeng- leg sjón og ægileg, því að svo virtist sem skipið al.lt logaði í gulum og rauðum eldblossum, og líktist það brennandi fjalli, er steyptist niður úr geimnum. Allir, sem úti stóðu, fleygðu sér nú niður, tóku um höfuð sín og engdust sundur og sam- an. En hið eldlega ferlíki, hálfur annar kílómeter á lengd og efHr því umfangsmikið, geystist yfir hásléttuna, skammt fyrir ofan kastalana, svo að allt hristist og nötraði. Flaug það nokkra hringi yfir þeim á ægilegri ferð, en lenti síðan skammt frá rúsum konunugshaUarinnar. Stigu geimfararnir þá aftur út úr diskinum, en jöfur og höfð ingjar hans voru að rísa á fæt- ur, og sýnu hógværari en áður. Störðu þeir allir skelfdir á stjörnuskipið, er enn virtist um lukið eldi. Foringi árásarsveitar- innar, sem var frekar lágvaxinn, en snaggaralegur maður, Danó að nafni, frá jarðstjörnunni Lai spurði konunginn hvort hann vildi veita honum viðtal, áður en meira væri að gert, og var það nú auðsótt. „>ið hafið heyrt,“ mælti for- inginn, ,að forfeður ykkar komu hingað á logandi skýi. Nú er ský þetta komið aftur, eins og þið sjáið, og mun nú flytja ykk- ur alla til hins versta verustað- ar úti í myrkri geimsins, ef þið hlýðið ekki héðan í frá, alveg skilyrðislaust, þeim lögum er við setjum yktour. Skuluð þið nú vel'ja þegar í stað hvern kost inn þið kjósið, því að þolinmæði okkar er á þrotum, og éldskýið mun ekki dvelja hér lengi." „Ekki viljum við héðan fara,** svaraði konungurinn, „en mega Líúmenn ekki vinna fyrir okk- ur ef þeir gera það af frjálsura vilja?" „Nei! Það skal vera hegning ykkar fyrir ósæmilegt framferði gagnvart þeim, að héreftir hljót- ið þið sjálfir að ynna að hendi öll ykkar störf, og má enginn Líúmaður nokkru sinni vera 1 þjónustu ykkar.“ Það var auðséð að jöfur og höfðingjar hans voru óánægðir með þessi fyrirmæli, en sam- þykktu þau þó allir, því að ekki var annars kostur. Gutu þeir illum augum til stjörnuskipsins, en þrjóskuðust ekki framar við árásarsveitina, og féll nú allt i ljúfa löð. Danó leyfði þá að Líú- menn mætbu byggja konungs- höllina upp aftur, ef þeir vildu gera það sjálfviljugir, og yrði það síðasta starf þeirra í þágu Meiá. Var mál þetta borið undir forystukonur borganna, er þar voru næstar, ogg áfu þær sam- þykki sitt. Mikill fögnuður var hvarvetna meðal Líúfólksins, er það heyrði hvernig farið hafði fyrir koungi Meiá, og að aflétt var nú oki því er öldum saman hafði þjiakað borgarbúa. Stjörnuskipið flaug næstu daga, með þrumium og eldingum yfir allar byggðir Meiámanna, og skaut þeim miklum skelk 1 bringu. Síðan hvarf það aftur út fyrir gufuhvolfið, og beið þar diskanna. Árásarsveitin fór borg úr borg, og sá um að hin settu lög væru framkvæmd án nokk- urs undandráttar. En hinir geim fararnir biðu hennar í borg- inni, er þeir fyrst höfðu komið til, og fór vel á með þeim og Hnattbúum. Ómar Holt og Míro Kama reiki uðu um skógana í dalnum, og alloft voru meyjarnar tvær, Me-lú Ga-la og ímenna Kha, ! fylgd með þeim. Sögðu þær Om- ari sitt af hverju frá heimkynn- um sínum, en þær voru báðar upprunnar langt inni í sólna- hverfinu, á unaðslegum jarð- stjörnum. íslendingurinn hlust- aði á mál þeirra frá sér numinn, því að þær til'heyrðu báðar mann kynjmm sem komin voru óra- langt á undan Jarðarbúum, 1 andlegum vexti og þroska. Þær sýndu honium einnig kvikmynd- ir frá þessum hnöttum, þar sem allt Ijómaði af dýrðlegrl fegurð og allsstaðar gætti fyllsta sam- ræmis, en gleði og kærleikur ríkti manna á meðal. Honum var fyrir löngu orðið ljóst að hann var ástfanginn af Me-lú (hinni fögru. En hin bjarta og stórgáfaða ímenna Kha hreif hann einnig með töfnum sínum. Og báðar voru þær mjög elsku- legar við bann, ekki sízt Me-lú er hann hafði frelsað úr klóm hinna andstyggilegu kattmenna. Og eitt sinn er þau sátu ein á bakka árinnar, vafðd hún hand- leggjunum um höfuð hans og kyssti Ihann á ennið. Þá fann hann steyma frá henni svo mikla ástúð og hreina fegurð að hann varð gjörsamlega ringlað- ur. En þegar ímenna tók hönd hans og leiddi hann um hljóðan skóginn, þótti horaum einxúg Dansað til kl. 1 í kvöld S I G T Ú N . Sjálfstæðishúsið í Kópavogi 17. júní DANSLEIKUR verður haldinn frá kl. 9-2 ÖLL NÝJUSTU LÖGIN. FJÖRIÐ VERÐUR MEÐ M O D S Gestum gefst tækifæri að reyna hæfni sína í dægurlagasöng.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.