Morgunblaðið - 30.07.1967, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.07.1967, Blaðsíða 10
■y 10 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. JTTLT 1067 SKÁLHOLT ÞAÐ væri verðuigt viðfangs- efni einhverj um manni, lærð- um ved í íslenzkum fræðum, að skrifia þykk.a bók um sögu SkálhyLtinga og Skálhodtsstað- air. í fáeinum blaðagreinum er þess ekki kostur að rekja sög- una af vísindalegri nákvæmni, heldur verða aðeins dregnar fram nokkrar svipmyndir og stiklað á stóru. En þá vandast vadið; hvers skal getið og hverju sleppt? Ætla má, að í því efni myndi engum tveim sýnast hið sama. En menn eru beðnir að virða allt þetta á betri veg, því að þessar grein- ar eru' aðeins ritaðar af leik- manni, sem í dagsins önn vill líta um öxl og rifja upp nokkra liðna atburði úr sögu þjóðarinnar. Það fara tvennar sögur af því, hiver fyrstur reisti bæ í Skálholti. Algengara mun að fara eftir því, sem segir í Land- námu og Hungurvöku, en þar er til nefndur Teitur Ketid- bjarnarson, hins gamla, land- námsmanns að Mosfelli. I Kristni sögu segir að aftur á að Gizurr hinn hvíti, sonur Tedts, bafi verið fyrstur. Upphaflega bar staðurinn nafnið Skálaholt, annaðdivort vegna þess að mönnum hefur þótt holtið líkjast skála að lög- un, eða þar hefur verið reistur skáli, áður en bærinn var gerð- ur, en telja má, að það hafi verið á ofanverðri tíundu öld eða um öldina miðja. Eins og mejm muna, kom Gizur hinn hvíti hingað út um sumarið átrið 1000 og var einn aðalhvatamaður þess, að kristni var lögtekin á alþingi. Líklegt er talið, að hann hafi sama ár flutt út með sér alla viðu tid kirkjugerðar í Skálhodti, sem sýnir, að hún hefur verið með elztu kirkjum á landinu. ísdeifur, sonur Gizurar, er talinn fæddur árið 1006, og seg- ir sagan, að faðir hans hafi fylgt honum uitan og selt hann til læringar abbadísi einni í bong þeirri, er Hertfurða heitir. Abbadísin, sem hér um ræðir, mun hatfa verið Godesdiu eða Godesthi, dóttir Bernlharðls her- toga hins fyrsta af Saxlandi, og borgin Herford í Herford í Padenbornsbiskupsdæmi í West faden. • • Onnur grein Áður en ísleifur sneri heim frá námi var hann vígður tid prests og ta-linn vel lærður. Þegar ísleifur kom heim er líklegt, að faðir hans hatfi ver- ið látinn, svo að hann tók við búi í Skállholti og var jafn- framt goðorðsmaður. Hann kvæntist norðlenzkri konu, ísleifur Gizurarson var nú orðinn hinn fyrsti biskup yfir öllu íslandi, og hófst handa við að beygja landsmenn undir kirkjuagann, og vildi þá ganga á ýmsu. Vegna embættfis síns neyddist hann til að slíta sam- vistum við konu sína, því að ísleifur var maður siðavandur. Eins og fyrr er getið var hann lærður vel, og sendu því marg- ir höfðingjar honum sonu sína til náms og síðar prestvígslu. Þar kemur fram hinn fyrsti vís ir að skólaihaldi í Skállholti. Um sumarið 1080 andaðist fsleifur og va-rð mönnum harmdauði, eins og sjá má af ummælum fóstra hans, Jóns biskups Ögmundssonar, en Ihann sagði um ísleif: „Þá kem- ur mér Ih-ann í hug, er ég -heyri góðs manns getið; hann reyndi I»ing og sögustaðir í hinum f ornu biskupsdæmum. þar skyldi ávallt vera biskups- setur meðaa ísland byggðist og kristni héldist. Um alðvmótin 1100 báðu Norðlendingar Gizur um sér- stakan biskup, og var þá settur á stofn annar biskupsstóll að Hólum í Hjadtadal. Til þessa hafa legið ýmsar ástæður og eru þær sennilega helztar, að Gizur hefur sé'ð, að landið var of víðáttumikið til yfirferðar Séð heim Skálholti su markvöld. Döllu Þorvaldsdóttur, og eign- uðust þau þrjá sonu. Þegar ísl-eifur var kominn um fimmtuigt, hélt ha-nn utfan 9amikvæmt beiðni landismanna og var eftir fyrirmælum páfa vígðiur til biskups a-f Aðalbjarti erkilbiskupi í Brimum á hvíta- sunnudag árið 1056. Sjálfvirka þvottavélin Völund 500 komin aftur. Þeir sem pantað hafa vélar, hafi samband við okkur sem fyrst. ATH.: Aðeins það bezta er nógu gott fyrir yður. gð RAFBLÐ Domus Medica, Egilsgötu 3. Sími 18022. ég sivo að öl'lum hlutum". Það er haft fyrir satt, að Ha-r- aldur Sigunðsson hafii sa-gt, að úr Gizuri ísleifssyni mætti gera þrjá menn: Víkingalhöfðingja, konung eða biskup, og væri hann tii alls vel fallinn. Það er sjaldgætft, að heimildir séu jafnsammála um ágæti eins manns, eins og þegar Gizu-rar er getið. Þess-i ágæti höf-ðingi var vígður til biisikups árið 1082, og eitt fyrsta verk sitt, þega-r heim í Stoálholt kom, lét han.n verða að reisa dómkirkju á staðnum og hel-ga Pétri postuila. Etitt helzta dæmið um reisn og vin- sældir Gizurar er, að árið 1096 fékik hann alla bændur á land- inu til að gangast undir að greiða tíundagjald til kirkjunn ar. Þes-s-u gjaldi var ekki komið á fyrr en nokkr-u síðar annars staðar á Norðurlöndum og kostaði þ-á deilur og mótþróa. Um þetta leyti er taldð, að mannfjöldi á öllu landinu hatfi verið um 77.500. Eftir lát móður sinnar (um 1090) gaf Gizur kirkjunni Skál- holt og mælti fyrir um, að fyrir einn mann og ennfremur minnkuðu líkindi til þess, að landið yrði biskupslaust um tíma, ef biskupar væru tveir. Einnig hefur Gizur séð, að ekki þurfti að bera kvíðboga fyrir tekjum biskupsembættanna, eftir að tíundin var komin á. Á síðustu árum sinum var Gizur sjúkur maður og hneigð- ist nokkuð til meinlæta til bjargar sálu sinni. Hann bann- a’ði mönnum að grafa sig nærri föður sínum, því að hann kvaðst ekki vera þess verður. Eftir að hafa gegnt biskups- embætti í 36 ár, 1082 til 1118, andaðist Gizur, og þá óhlíðn- uðust menn boði hans í fyrsta sinn, því að hann hlaut legstað við hlið föður síns. Næsti biskup í Skólholti var Þorlákur Runólfsson, en hann var reyndar vígður til Reyk- holts, því að þá var Gizur enn á lífi, og erkibiskup kváðst ekki „kunna að setja höfuð á höfuð ofan.“ Þorlákur var af göfugum ættum, kominn af hin um eldri Haukdælum. Fagurt líferni hans er rómað, en hvergi minnzt á rausn ne skörungs- Karlmannaskór — Karlmannasandalar Ódýr strigaskófatnaður kvenna og barna. Ódýr Vinyl stígvél hvít, rauð og svört fyrir börn og fullorðna. Allt í miklu úrvali. Skóbúð Austurbæjar Laugavegi 100. skap. Hann var biskup á árun- um 1118 til 1133, en þá tók við Magnús Einarsson, sem kominn var af Síðu-Halli. Magnús var höfðingi og ör á fé. Hann lét stækka Skálholts- kirkju og hélt í því tilefni mikla veizlu, en til hennar kom Ketill Þorláksson Hólabiskup ásamt fleira stórmenni. Sá váveiflegi atburður gerð- ist í þessari veizlu, að Ketill biskup lét lífið í laug einni, og liggur í augum uppi, að þessi harmafregn hefur komið óþægilega við veizlugesti. En í Hungurvöku segir: „En með fortölum Magnúsar biskups og drykk þeim hinum ágæta, er þar var veittur, þó urðu menn skjótara afhuga hörmum sín- um.“ Ævilok Magnúsar udðu þau, að hann brann inni í Hítardal ásamt um 80 manns, er hann var á ieið heim úr vísitazíu xun Vestfirði. Hann var biskup 1134—1148. Einn Haukdæla, Hallur Teits- son, var næst kjörinn biskup, en hann andaðist á leið tfrá Rómaborg, áður en hann hlyti vigslu. Á árunum 1152 til 1175 var Klængur Þorsteinsson biskup í Skálholti. Hann kom frá Hól- um, en þar hafði hann numið undir handlqjðslu heilags Jóns. Klængur var stórhuga glæsi- menni. Til marks um það má geta þess, að hann lét rífa nið- ur kirkjuna, sem Gizur hafði byggt og Magnús Einarsson ný- lega aukið, reisa dómkirkju svo mikla, að gætnum mönnum ofbauð. Það var jafnvel talið til kraftaverka, að þetta til- tæki hans skyldi fara vel. Sennilega hefur meinlæta- lifnaður biskups leitt hann til bana. Hann gekk berfættur í frostum og misþyrmdi líkama sinum, svo að hann flakti í sár- um. Næsti biskup í Skálholti var einnig strangtrúaður meinlæta- maður. Hann hefur löngum verið talinn sannheilagur og einn merkasti biskup Skál- holts í kaþólskum sið. Þessi maður var Þorlákur Þórhalls- son, hinn helgi, sem var biskup á árunum 1178 til 1193. Þorlákur er fæddur árið 1133 að Hlíðarenda í Fljótshlíð. Hann var fremur ættlítill, en þó fremur tengdur Oddaverj- um en Haukdælum. Hann lærði klerklsg fræði í Odda hjá Eyj- ólfi Sæmundssyni, hins fróða. Sagt er, a‘ð í æsku hafi hann ekki þýðst leika né lausung, en verið löngum við bóknám eða legið á bæn. Hann fór utan og stundaði nám í Parísarborg og í Lincoln í Englandi. Þegar heim kom gerðist hann fyrst einsetumað- ur á Kirkjubæ á Síðu, en því næst príór og ábóti í klaustrinu í Þykkvabæ í Veri, sem þá var nýstofnað. Stjórn hans þar var mjög rómuð og svo fór, að Þor- lákur var kjörinn Skálholts- biskup og vígður um sumarið 1178. Þorlákur biskup var fyrst og fremst kirkjunnar þjónn og lenti því í deilum við hina þjóðlegu hefð, þegar hann heimtaði, að biskupsstólarnir hefðu full yfirráð yfir öllum kirkjum. Einnig lenti hann í miklum deilum við Jón Lofts-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.