Morgunblaðið - 20.09.1967, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. SEPT. 1987
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI 21 SIMAR 21190
eftir lokun simi 40381
»“ 1-44-44
m/UFim
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 1L
Hagstætt leigugjald.
Bensín innifalið í leigugjaldi.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Síml 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
RAUÐARARSTÍG 31 SfMI 22022
Hesl til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
(Jtvarps- og sjónvarpstæki
Rafmagnsvörubúðin sf
Suðurlandsbraut 12.
Simi 81670 (næg bílastæði).
Skólaritvélin
BROTHER
KR. 2750.-
|
Skóla- og ferðaritvélin
BROTHER frá Japan er
létt, falleg og sterk.
Vélin er öll úr stáli og í
léttri leðurlíkistösku.
Birgðir takmarkaðar.
BORGARFELL H.F.
Laugavegi 18
(gengið frá Vegamótastíg).
Sími 11372.
★ Svifa
Velvakanda hafa borizt
margar uppástungur um heiti
á hinn nýstárlega farkost, sem
fleytti kerlingar, skopaði skeið
eða sveif á ölduföldum milii
lands og eyja hér á dögunum.
Svifnökkvi mun elzta tillögu-
orðið, og sjálfur hefuir Velvak-
andi verið að burðast með
orðið, og sjálfur hefur Velvak-
í hug vegna líkingar við bif-
reið, en það orð hefur þó aldrei
festst almennilega í málinu,
og líklega mundu svifreiðar-
innar bíða sömu örlög; þ. e.
einungis verða notuð í vissum
samsetningum, hátíðlegu og
opinberu máli og af blaða-
mönnum, þegar þeir vilja
vanda sig.
Nú hefur Velvakandi frétt,
að Högni Torfason, ritstjóri á
ísafirði, hafi stungið upp á
orðinu „svifa“. Þetta er veikt
kvenkynsorð; beygist eins og
svipa eða rifa. Högni mun vera
höfundur orðsins þota (í nú-
tímamerkingu þess) og fleiri
ágætra nýyrða, og er því ekki
ólíklegt, að svifa festist í mál-
inu. — Eignarfall fleirtölu
mundi e.t.v. vefjast fyrir ýms-
um, en það er auðvitað
„svifna". Þetta er tekið fram,
af því að útvarpið segir alltaf
af einhverjum ástæðum „þota“
í stað ,þotna“, þegar um ef. flt.
er að ræða.
ií Samkomurnar
í Atlavík
Sér Einar Þ. Þorsteins-
son skrifar:
„Kæri Velvakandi:
Vegna skrifa „Ferðalangs" í
pistlum þínum frá 8. þ.m. leyfi
ég mér að gera þessa athuga-
semd.
Það hefir löngum verið talið
óheiðarlegt og lélegt að eigna
öðrum skoðanir, sem þeir hafa
ekki, eins og „Ferðalangur"
þessi gerir í minn garð.
Hann þykist vera biblíu-
fróður maður, en samt virðist
hann ekki muna eftir orðun-
um „Dærnið ekki“, því að
annars hefði hann vart Verið
með tilefnislausar dylgjur, enda
felur hann sig svo bak við dul-
nefni.
En ef hann efast um sann-
leiksgildi þeirra orða minna,
að „tekizt hafi að bæta sam-
komuhald“ o.s.frv., þá ætti
hann að tala við þá Austfirð-
inga, sem sóttu samkomur í
Atlavík fyrir um sjö árum og
svo aftur nú.
Hann býsnast mjög yfir ein-
hverri „fjárplógsstarfsemi okur
karla“. Það er rétt að upplýsa
„Ferðalang" um það, að gjald
á Atlavíkursamkomumar var
jafnt því ódýrasta á líkum
samkomum í sumar ,eins og
t. d. í Galtalækj arskógi, og allt
að helmingi minna en var í
Húsafellsskógi. Á þessu sést, að
„Ferðalangur" þarf að gera
víðreist um landið, ef hann
ætlar sér að komast fram hjá
þeirri staðreynd, að það þarf
meira en óskhyggju eina, ef
halda skal mannsæmandi úti-
samkomur, þar sem reynt er
að útiloka Bakkus frá því að
ræna fólk viti og peningum.
Eða saknar „Ferðalangur" þess,
ef til vill?
Um rétt til leitar 1 bifreið-
um vita lögreglustjórar betur
en ég. En ég get bent „Ferða-
langi“ að að kynna sér 19. gr.
áfengislaganna nr. 58 frá 1954
og reglugerð fyrir Suður-Múla-
sýslu um löggæzlu á skemmt-
unum, nr 112 í Stjórnartíðind-
um frá 1962.
Vil ég svo ráðleggja honum
góðfúslega að koma á næstu
Atlavíkursamkomu, því að þar
getur hann komizt í gott skap
í fögru umhverfi á góðri
skemmtun.
Læt ég svo þessu lokið.
st. Reykjavík, 14. sept. 1967,
Vinsamlegast
Einar Þ. Þorsteinsson“.
TÍt' Mjólkurumbúðir
„G. Jd.“ skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Nú heyrir maðuT, að Mjólkur
samsalan sé eitfihvað að taka
við sér og bráðum eigi að fara
að selja mjólk í almennilegum
umbúðum. Sá hængur er þó á,
að því er mér skilst á blaða-
fregnum, að nýju umbúðirnar
eiga bara að vera tveggja
potta. Vegna þess að endilega
þarf að verzla við einhver
gamaldags fyrirtæki í Svíþjóð
(af hvaða ástæðum eiginlega?
og koma Svíar þannig fram við
okkur í Loftleiðamálinu, að við
eigum að vera að kaupa af
Stúlka
óskast til afgreiðslustarfa í skóverzlun. — Upplýs-
ingar um aldur, menntun og fyrri störf, sendist afgr.
Mbl. fyrir 22. sept. merkt: „Skóverzlun — 2825“.
Fosskraft
Óskum að ráða nokkra vana járnamenn.
Upplýsingar að Suðurlandsbraut 32.
Sími14226
6 herb. sérhæð í Kópavogi. Sérþvottahús, sér
þeim úrelta og vonde vöru?),
þá er bara hægt að fá tveggja
potta kassa, en áfram á að
halda að selja algengustu
stærðir, þ. e. einn pott, í hyrn-
unum óvinsælu.
Þetta fin>nst mér nú ófært
svona út af fyrir sig, en annað
er þó verra. Það er, að tveir
pottar í nýju uir.búðunum eiga
að kosta meira en tveir pottar
í tveimur hyrnum! Hvers kon-
ar verzlunarmáti er þetta, sem
Mjólkursamsalan leyfir sér að
bjóða okkur upp á? Viðtekin
venja í viðskiptum er alls stað-
ar, að verðið lækkar hlutfalls-
lega, eftir því seim meira magn
er keypt, að ég tali nú ekki
um, þegar einar umbúðir koma
í stað tveggja. En hér er farið
öfugt að. Hvers vegna?
^ Einkasölur
Mér finnst það alveg
makalaust, hvað allar þessar
einkasölur okkar eru mislukk-
aðar, og eigum við Reykvík-
ingar a.m.k. ekki að láta bjóða
okkur þessa framsóknar-
mennsku í viðskiptaháttum.
Mjólkursamsalan er langt á
eftir litlum mjólkurstöðvum í
smáþorpum úti um allt land,
sem allar eru að koma sér upp
(eða eru búnar að því) nýtízku
umbúðum og verzlunarháttum.
Hér er verið að paufast við að
selja handónýtar hyrnur frá
SÍS- og SAS-ríkinu Svíþjóð 1
litlum búðarholum í stað þess
að láta kaupmenn annast dreif-
inguna. Viðtækjaeinkasöluna
er búið að leggja niður, sem
betur fer, en ennþá blómstrar
Framsóknarmennskan í Tóbak-
inu (sbr. eldspýturnar) og
Grænmetinu (sbr. kartöflurn-
ar). Þessir herrar virðast
halda, að þeir séu hafnir yfir
gagnrýni almennings, því að
ekki svara þeir gagnrýni.
, — G. Jd“.
Engar sannanir
Dr. Stefán Einarsson,
fyrrv. prófessor, sendir eftir-
farandi viðbót við bréf sitt um
meinta hrossaníðslu á Norður-
landi, sem birtist hér fyrir
skömmu:
„Athugasemd við Velvak-
anda um hrossin í Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslu: Ég tek
allt til baka, sem ég hef sagt
um hrossin í þessum sveitum,
þar sem ég hef ekki sannanir
fyrir neinu.
Stefán Einarsson..*
kynding. íbúðin öll teppalögð. Lóð fullfrágengin.
Bílskúrsréttur, mikið og víðsýnt útsýni. Útb. 250
þús. Mjög hagstæð lán geta fylgt.
Tóbaksveski
SKIPA og FASTEIGNASALA,
KRISTJÁNS EIRÍKSSONAR,
Laugavegi 27 — Sími 14226.
Tóbaksveskin eftirspurðu með fjöðrinni eru komin.
Tilvalin til tækifæris- og afmælisgjafa.
VERZLUNIN ÞÖLL, Veltusundi 3 (gegnt Hótel
ísland bifreiðastæðinu), sími 10775.
4