Morgunblaðið - 01.10.1967, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. OKT. 1967
MAGINÚSAR
SKIPHOUI21 5ÍMAR 21190
eftir lokun slmi 40381 '
Hverfisgötn 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald.
Bensíu innifalið ' ieigugjaidL
Sími 14970
BÍLALEIGAN
- vakur -
Sundlaugaveg 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
fr---'BflAMteJUW
IrtSUL/yÆP
RAUOARARSTfG 31 SlMI 22022
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
tJtvarps- og sjónvarpstæki
fiafmagnsvi>ru!niðin sf
Suðurlandsbraut 12.
Sími 81670 inæg bílastæði).
Ml im 11111111111 n i ii 1111111 ii |.|;
llett
LEIKFIMI_____
JAZZ-BALLETT
Frá DANSKIN
Búningar
Sokkabuxur
Netbuxur
Dansbelti
•fc Margir litir
•fa Allar atærðir
Frá GAMBA
Æfingaskór
Svartir, bleikir, hvítir
Táskór
Ballet-töskur
^QalletthúíJ in
SÍMI 1-30-76
BWH WM griwilfin IIIH 11111111111
★ „Að skopa skeið“
R. R. skxifar:
„í ctálkum þínum var nýlega
minnzt á orðatiltækið „að
skopa skeið“ í merkingunni að
svífa lágt yfír jörð, og kom
þetta fram í umræðum um
svifnökkvann, sem hér hefur
verið sýndur nýliega.
Þar sem ég ólst upp í Árnes-
hreppi var þetta orðatiltæki
notað eingöngu í annarri
merkingu, t. d. þannig: „Hrút-
urinn skopar skeið á stoðina“
og annað í þeim dúr, og eink-
um það, er hrútar runnu á
hvað sem fyrir var, til að
stanga það með hornum sín-
um.
R. R.“.
Þetta þýðir þannig fremur
að svífa á eitthvað en svífa
yfir einhverju, — renna sér á
e-ð eða taka tilhlaup á e-ð.
^ Skáldin haldi
sér við sitt
Ó. G. skrifar:
„Kæri Velvakandi! -
Mér hefur lengi leikið for-
vitni é að vita hvers vegna
rithöfundar þurfa ætíð að láta
ljós sitt skína í heimili stjórn-
málanna, þ. e. að þeir þurfa
ætíð að fordæma eitthvert
verk stórveldis. Þeirra álit á
ekki meiri rétt á sér en álit
hvers annars sæmilega mennt-
aðs borgara. Rithötfundar telja
sig gáfnamenn almennt eða
halda einhverjum sérgáfum,
sem geri þeim unnt _að skrifa
ódauðleg verk. Álitsgerðir
þeirra um einhvern stórvið-
burð eru ætíð vel prenthæfar,
jafnvel á forsíðu og með stórri
fyrirsögn, enda eru þeir rit-
höfundar. Flestir þeirra
fordæma þátttöku Bandaríkj-
anna í stríðinu í Vietnam, og
margir vildu, að Bandaríkin
berðust með ísraelum gegn
Aröbum. Skáldskapur og stjórn
mál er tvennt ólíkt, og rithötf-
undarnir ættu heldur að vera
heima og miðla almenningi
meira af snilli sinni með góð-
um skáldsögum eða leikritum,
heidur en að vera að reyna að
sletta sér fram í það, sem þeir
hafa sýnt, að þeir hafa ekki
hundsvit á.
Það væri nú gaman, etf ein-
hver gagnrýndi gerðir rithötf-
undanna og sýndi fram á, að
með þessu væru þeir ekki að
stuðla að friði, svo að komandi
kynslóðir rithötfunda geti not-
að starfskrafta sína óskert í
þágu listarinnar.
Ó. G
★ Hafgúan og Haf-
drottningin
IngóMur Biöndal skrifar:
,,Hafgúa“ nokkur skrifar þér
varðandi skemmtisiglingu M/S
Regina Maris fyrra laugardag.
Kvartar hún yfir breyttri ferða
áætlun og þvi að hafa ekki
getað notað 1000 kr. seðla um
borð.
Því miður var þennan dag
mjög lélegt skyggni, og venju-
legum landkröbbum, sem voru
í miklum meirihluta um borð,
þótti illt í sjóinn. Bar þegar á
töluverðri sjóveiki, og var aug-
ljóst, að fæstir mundu njóta
ferðarinnar eða hins ágæta
matar um borð, ef upphafleg
áætlun yrði haldin; vegna
slæims skyggnis hefði vart sézt
til lands á Breiðafirði. Að ráði
skipstjóra var skipinu haldið í
var, og því nutu menn ferðar-
innar, og var því almennt fagn
að, er tilkynnt var um breyt-
ínguna.
Varðandi notkun 1000.— kr.
seðla um borð vísast til reglna
íslenzkra gjaldeyrisyfirvalda
þar að lútandi.
Næturvinna við
Sundahöfn
„Kæri Velvakandi!
Hvernig stendur á því, að
byrjað er að hamast og berja
við Sundahöfn á kvöldin um
það leyti, sem fólk ætlar að
fara að sofa? Máður skyldi
halda, að hægt væri að vinna
þetta á skaplegri tíma sólar-
hringsins.
í næsta nágrenni við stað-
inn eru íbúðarhverfi og einnig
Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna. Er ekkert tillit tekið
til fólksins, sem þar býr?
Ég er enginn fjármálaspek-
ingur, en mér sýnist þó, að
kostnaðurinn ætti sízt að verða
meiri, ef unnið væri að pessu
að deginum. Eða er vísvitandi
verið að gera verkið ,svo dýrt
með eftir- og næturvinnu?
Gaman væri að vita, hver
ræður þessu, og hvort hann
hefur einhverja sérstaka löng-
un til að flæma íbúana burt
úr næstu hverfum.
Það er sjáMsögð krafa þessa
fólks, að slíkum næturbarsmíð-
um verði hætt tafarlaust.
„Einn i eldlínunni“.
★ „Sælan fyrir
austan“
Kæri Velvakandi,
Hinn 7. sept. s.L birtið þér
greinarstúf undir fyrirsögn-
inni „Sælan fyrir austan“ þar
sem einhver fyrrverandi há-
seti á Lagarfossi segir fná. Ég
er honum ekki sammála. Grein
hans er rituð með ótilhlýðilegu
ovðbragði, ruddaskap og ill-
kvittni í aUa staði. Sannleiks-
gilói hennar ekkert. Greinar-
höfundi hefði betur verið
kunnugt um þessi fornu lífs-
sannindi:
Einu sinni kom maður til
Sókratesar og vildi segja sögu
um annan mann, Sókrates
sagði. „Ég tel víst að þú hafir
síað söguna gegnum hin þrjú
sigti“. Maðurinn kvast ekki
þekkja þau. Þá svaraði Sókra-
tes. „Hið fyrsta er sigti sann-
leikans, annað sigti velviljans,
hið þriðja sigti gagnseminnar,
og ef það sem þú vilt segja
hér er hvorki satt, gott eða
nytsamlegt, þá geymdu það
með sjálfum þér.“
Mín reynsla er sú, eftir
margra ára siglingu á sovézkar
hafnir, að fólkið sem við sjó-
menn kynnumst þar, sé ákaf-
lega alúðlegt og vinsamlegtf.
Þar umgengst maður mest
háskólastúlkur og pilta, sem
eru að æfa sig í erlendum
málum með því að tala við út-
lenda sjómenn. Máske hefir
greinarhöfundur heldur viljað
hafa þar gleðikonur!
Vinsemd og alúð einkennir
þetta fólk.
Það sem mér finnst skipta
máli, er það sem snertir mann
persónulega í hvert sinn.
Stjórnarfyrirkomulag þjóða
skiptir mig ekki máli á þess-
um vettvangi. Sinn er siður í
landi hverju og' mörgum
gremst að þurfa að beygja sig
undir !ög og reglur sem þeir
eru óvanir. En í erlendu ríki
verður aðkomuir aður að semja
sig að þeim reglum er þar
gilda. Oft og mörgum sinnum
hafa yfirvöldin séð í gegnum
fingur sér ,og gert gott úr þótt
sjómenn hafi brotið reglur eða
fyrirmæli, og mér er ekki
kunnugt um neitt tiMelIi úr
mínum ferðum, þar sem menn
hafi verið beittir valdi að til-
efnislausu.
B. Thoroddsen
skipstjóri m/s Lagarfoss.
DLW
- PARKET -
PLASTINO KORK.
Litaver sf.
Grensásvegi 22—24. — Símar 30280 og 32262.
Ungur verzlunarstjóri
óskast í sérverzlun, í nágrenni Reykjavíkur nú
þegar. Tilboð merkt: „661“ sendist Mbl.