Morgunblaðið - 10.10.1967, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.10.1967, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKT. 1967 ITALSKUR STRAHATTUR eftir Eugene Labiehe og Mare-Miehel Þýðing: Arni Björnsson Leikstjóri: Kevin Palmer Leikmynd og búningar: Una Collins Arnar Jónsson, Árni Tryggvasson og Flosi ólafsson. ARISTÓTELES og Plató eru í skrifum sínum um leikhúsið al- gerlega á öndverðum meiði um það, hver áhrif hluttekning áhorfenda hafi á þá. Plató hélt því fram, að þegar við sjáum t.d. persónur leiks verða fyrir harmi eða beita ofbeldi ti'l að hefna harma sinna og fyl'lumst meðaumkun eða refsigleði, þá leysist úr læðingi tilhneigingar, sem okkur sé nauðsynlegt að bæla niður, — sú reynsla að taka þátt í tilfinningum annarra yfirfæriát á sjálfa okkar og erf- iðara verði að hafa hemil á þess- um tilhneigingum, þegar svipað- ir atburðir henda í lífi okkar. Á sama hátt kvað hann áhiorfand- ann otft njóta þess að horfa á fíflalæti á leiksviði, sem hann mundi skammast sín fyrir að verða vitni að- í raunveruleik- anum, hvað þá heidur að taka þátt í þeim. „í hverjum manni er galgopatilhneiging, sem hann hefur haldið í skefjum af eðlileg- um ótta um að verða talinn fífl. En nú hefur hann gefið henni lausan tauminn, og með því að hafa siíka ánægju af því í leik- húsinu, kann hann að láta óvart ti’l þess leiðast að bregða sér í gerfi trúðsins í einkalífi sínu“. (10. bók Lýðveldisms). Líklega hefur Plató þó gert fullmikið úr þessari hættu, og sem betur fer, hafa beztu leik- húsmenn allra tíma árætt að láta í verkum sínum kenna fleiri þátta í eðli persónanna en þeir berjast fyrir að áhorfendur hríf- íst af og þroski með sjálfum sér. Þá hafa aldrei verið færðar á það neinar sönnur, að unnendur gamanleikja bregði sér oftar í fíflsgerfi en þeir, sem aldrei hafa heyrt getið um Moliére eða Ionesco. Hins vegar hafa menn, sem geta greint milli hugmyndaiflugs og veruleika, lært það, að hægt er að láta eftir sér í huganum ýmsan munað, sem samvizkan eða lögin mundu stemma stigu við „í raunvenulega lífinu“. Og Aristóteles setti fram þá skoðun, að við fáúm einmitt heppilega útrás fyrir ýmsar tilhneigingar okkar með því að upplifa þær í leikhúsí. Samskonar kenningu um útrás tilfinninga (eða „ka- þarsis", — gríska orðið er al- mennt notað) tók Sigmund Freud upp í sálgreiningu sinni. í leikhúsi hafa þau verk, þar sem hugmyn-daflugi í samsetn- ingu skoplegra orða og athafna er gefinn hvað lausastur taum- inn, hlotið nafnið „farsar". Sam- einkenni skemmtilegra farsa er að beita öllum brögðum við að fá áhorfendur til að hlæja, en leggja enga áherzlu á „að skilja eittíhvað aftir“. Helzt þessara bragða eru ýktur skopleikur, án tilraunar til „heilsteyptrar per- sónusköpunar“, hröð atburðarás, án tilraunar til „að spegla vanda- mál mannkynsins“, og fljótvirk fyndni án tilraunar til að gefa til kynna nokkur „dýpri sannindi". Farsi er sem sagt „skemmti- atriði" tengd í samfeilda atburða- rás. Þungamiðja alvarlegs leikhús- verks, hvort sem það nefnist harmieikur eða gamanleikur, er sú hugmynd, sem liggur að baki verkinu. Þótt gáfaðir og hæfi- leikafullir túlkendur flytji efnið og skýri með leik og samhrifum, er grundvöllurinn innihald hug- verks höfundar. En þungamiðja farsa er ekki innihaldið, heldur ytra borðið, — það ytra borð, sem leikhúsið leggur honum til. Oft heyrast menn nota orðið „farsi“ sem skammarheiti á sýn- ingum, sem þeim þykja ómerki- legar. Sýning farsa er hins veg- ar, af áðurtöldum orsökum, hvorki betri né verri en frammi- staða þess fólks, sem að henni stendur. Og þveröfugt við það, sem almennt er talið, gerir farsi mjög harðar kröfur til hæfileika og tækni leikendanna. Franski farsinn „ítalskur strá- hattur“ var frumsýndur sl. föstu- dag í Þjóðleikhúsi íslendinga. Leikstjóri er Ástralíumaðurinn Kevin Palmer, en búninga og leikmynd gerði Una Collins frá Englandi. Leikritið t‘r eftir helzta farsahöfund Frakka á 19. öld. Það er líklega frægasta verk höfundar ög hefur verið sýnt í mörgum útgáfum víðs vegar um Evrópu síðustu áratugi. Þar sem tilgangur farsa er sá einn að vekja kátínu, þykir mér ti'lhlýðilegt að skýra frá því, að það tókst vel á sýningu Þjóð- leikhússins. Þótt. ekki væri af öðru en heyranlegum undirtekt- um áhorfenda að dæma, þ.e.a.s. hlátri þeirra, hygg ég, að leik- húsinu sé vænlegra að setja slíkar sýningar á svið en ýmsa gamanleiki með ákveðnum boð- skap og miðlungsathyglisverðri lifsskoðun höfundanna, sem þarna hafa verið reyndir til að hæna að nýja og trega áhorfend- ur og safna þannig fé í kassa hússins. Sýningin er fyrir margra hluta sakir skemmtileg, en leikur í einstökum hlutverkum ærið misjafn, og ekki sízt þessvegna er það mér mikið aðdáiunarefni, hversu vel Palmer leikstjóra hef- ur tekizt að vinna heildarsvip- inn. Ágæta áferð sýningarinnar ber þó ekki síður að þakka af- bragðsgóðum tjöldum og bún- ingum Unu Collins. Hún notar ólitaðan striga, strengdan á grind, í leikmyndina, svo að skrautlegir búningarnir njóta sín miklu betur en þeir mundu gera, ef bakgrunnurinn væri margbrotnari og litfleiri. Þó ber nýting sviðsins vott um þá kunn- áttu og hugkvæmni, sem þau hafa reyndar áður sýnt hér, t.d. í „Lukkuriddaranum“. Helzti dragbítur sýningarinn- ar er sá, að flestir leikendanna ná heldur litlu út ú: hlutverk- um sínum, þótt sviðsreynsla þeirra og umsjón leikstjórans komi í veg fyrir að þeir eyði- leggi beinlínis fyrir þeim, sem betur gera. Þetta kemur vel í ljós af samanbuiði við einn leikendanna, Rúrik Haraldsson, sem lék heldur lítið hliutverk, en ætlaði að trylla leikhúsgesti af hlátri í hvert sinn sem hann birtist á sviðinu. Af hluverki hans og frammistöðu má gera sér grein fyrir efniviði og heppnaðri sýningu farsa. — Rúrik hefur nánast engan texta til hjálpar, segir næstum allta.f sömu setningar og fsér alltaf hlátur, ekki vegna endurtekn- ingarinnar, heldur þeirrar skop- legu persónu, sem hann hefur skapað. Snilli Rúriks kemur kannski bezt fram í því, að þrátt fyrir ýkt gervi og ótrúlegt fas, sýnist leikur hans hógvær, vegna þess hvp leikur hans er inn- byrðis sjálfúm sér samkvæmur. Það er ómögulegt að verjast vangaveltum um það, hve sam- felld sigurganga sýning „ítalska stráhattsins“ hefði getað verið, ef öll smáhlutverkin hefðu ver- ið unnin þótt ekki væri nema eitthvað svipað hlutverki Rúr- iks. „ Aðalhlutverkið, ungan hús- eiganda í París, sem neyðist til að eyða öllum brúðkaupsdegi sínum í leit að ítölskum strá- hatti, leikur Arnar Jónsson. Hann hefur áður sýnt hæfileika sína á þessu sviði í „Tveggja þjóni“ hjá Leikfélagi Reykjavik- ur í fyrra og bregzt ekki vonum áhiorfenda. Arnar hefur óvenju- mikið til brunns að bera sem leikari, — gott útlit, afbragðs- léttar hreyfingar og laglega söng- rödd. Þetta kemur allt að góðu haldi, og þykir mér óihætt að fullyrða, að ekki hefði verið hægt að fá annan leikara hér, sem gert hefði hlutverki þessu viðunandi skil. Flestir aðalleikarar Þjóðleik- hússins fara með stærri og minni hlutverk, en ég sé ekki ástæðu til að telja þá alla upp hér. Frammistaða þeirra var hvergi m.jög slæm, en fellur öll í tals- verðan skugga af leik Rúriks Haraldssonar. Grunar mig, að sumir þeirra hafi ekki lagt mikla alúð við vinnu sína, þar sem leikur þeirra er heldur dauf mynd af þeim hæfileikum, sem þeir hafa oft sýnt leikhús- gestum. Texti leikritsins er hvergi merkilegur, en þó skiptir nokkru máli, að hann sé fyndinn og fari vel í munni. Þýðing Árna Björnssonar virðist mér öll heldur stirð og bókmálsleg á köflum, en þó voru textar söngv- A aðalfundi Kvennabandsins í Ves'tur-Húnavatnissýslu vorið 1966 var því hreyft, að nauð- synlegt væri, að læknishéraðið hér hefði ráð á sjúkratoíL Að forgönigu Kvennatoandsins var svo hafin fjársöfnun á- vegum kvenfélaganna í sýslunni ásamt kvenfélagi Bæjarhrepps í Strandasýsilu til kaupa á sjúkra- , bíl. Alls sötfnuðust um 270.000 kr. f gær var vo bíllinn afhentur Sýslus'jóði Vestur-Húnavatns- sýslu. Sýlumaður Húnavatns- sýslu, Jón fberg, veitti gjöfinni viðtöku og þakkaði hana. Bíll- inn er af Chevroletgerð og kost aði alls með talstöð og öðrum nauðsynlegum útbúnaði um 350 til 360 þúsund krónur. Það sem Útföi Davíðs ú Ambjargarlæk Akranesi, 7. október, ÚTFÖR Davíðs á Arnbjargar- læk var gerð frá Norðurtun.gu í Þverárhlíð í Borgarfirði í da,g. Séra Einar Guðnason, prófast- ur í Reykholti, jarðsöng með að- stoð kirkjukórs Borgarness. Miik ið fjölmenni frá Reykjavík, Akranesd, Borgarnesi og víðs veg ar a'ð úr sveitum var mætt tii að heiðra minningu þessa mæta héraðshöfðingja. Að lokinni at- höfn voru góðar veitingar fram bornar í Norðurtungu, að göml- um og góðum sið, og naut allur þessi hópur þeirra. — H. J. Þ. annan langverstir. Söngtextar verða annaðhvort að vera hnyttnir, eða svo klaufalegir, að það út af fyrir sig nægi ti'l að vekja hlátur. En þetta tókst ekki. Tónlistin eftir André Cadou í hljómsveitarbúningi Ma-gnúsar Ingimarssonar var ekki sérstaklega athyglisverð, en féll vel að leiknum. Hljóm- sveitinni stjórnaði Carl Billich og get ég ekki fundið að starfi hans. Sýningunni var, sem fyrr seg- ir, mjög vel tekið. Örnólfur Árnason. á vantaði, að söfnunarfé dygði til kaupanna hefur Kvennaband- ið greitt, en það hefur atflað fjáir með skemimtunum og fleiru und- anfarin ár til nauðsynjamála í sýslunni. Mest hefur það fé gen,g ið til byggingar sjúkrahússins hér og kaupa á ýmsum tækjum til þess. — S T. - HAFIÐ HEFUR Framhald af bls. 17 sókn sín til Lincolns væri eins konar pílagrímsför og sagði: „Sérhver íslendingur veit, að einn hinna miklu leíð toga íslenzku kirkjunnar á miðöldum, Þoriákur helgi, hlaut menntun sína að nokkru leyti í Lincoln. Það hefur verið von mín í iangan tíma, að fara í pílagrimsför til þess- arar dómkirkju og til háskóla þess, þar sem þessi heilagi maður þjónaði guði og nam í æsku sinni“. Að loknum aftansöng gekk biskupinn hina stuttu íeið frá dómkirkjunni, einni af mestu byggingum Bretlands, til guð- fræðideildar háskólans í Lincoln, þar sem mynd af Þorláki helga er í steindiu gleri í glugga kapellu háskól- ans. Þóra Friðriksdóttir, Rúrik Haraldsson og Arnar Jónsson í hlut- verkum sínum. - / 3 Sýslusjóði V-Húnavatns- sýslu gefinn sjúkrabill Hvammstanga, 9. öktóber.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.