Morgunblaðið - 10.10.1967, Side 17

Morgunblaðið - 10.10.1967, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. OKT. 1067 17 Tage Erlander forsœtisráðherra Svía í t amtali við Mbl. LOFIIfDUM BER BETRI KJðR FLUEFÉLOGUM iitan norourlanoa SÍÐDEGIS á sunnudag náði blaðamaður Mbl. snöggvast tali af Tage Erlander for- sætisráðherra Svía og fer Tage Erlander á fundi forsætisráðherranna í Reykjavík samtalið sér á eftir: — Hvert teljið þér mikil- vægast af þeim málum, sem rædd hafa verið á forsætis- ráðherrafundinum að þessu sinni? — Á þessum fundi hafa verið rædd mörg mikilvæg mál, en það sem mér finnst þýðingarmest er, að ræddir hafa verið möguleikar á þvi að löndin hefðu samstöðu í væntanlegum samningavið- ræðum við markaðsbandalög- in. Hvað íslandi viðvíkur hlýt ur auðvitað sérstaða þess að valda því að það g-etur ekki að fullu tekið þátt í slíkri samstöðu, en mér virðist við- skiptamúrinn í Evrópu gera íslandi erfitt fyrir. Nú ber auðvitað að hafa það í huga, að við erum ekki á þessum fundi til að taka endanlegar ákvarðanir, heldur til að undirbúa Norðurlandaráðs- fundinn, en hér kemur þó vel fram ' hvað einstök lönd leggja mesta áheizlu á. — Þið hafið rætt mál SAS og Loftleiða hér. Er nokkurra tíðinda að vænta frá þeitn umræðum? — Það er yfirlýst stefna okkar í löndunum þremur, sem hér eiga hlut að máli, að efla norræna samvinnu, og á þeim grundvelli hefur verið til þessara viðræðna stofnað. Á ráðherrafundinum í Kaup- mannahöfn var gengið nokk- uð lengra til móts við Loft- leiðir, en almennt hafði verið búizt við. Þessu ber að fagna því að Loiftleiðir eru norrænt fyrirtæki og það á að veita því betri kjör en flugfélögum utan Norðurlanda. Hiniu er ekki að leyna, að það er erfið- leikum bundið að ganga mikið lengra en gert var á fundinum í Kaupmanna- höfn. En ég verð að segja það, að forsætisráðlherra ís- lands hefur sýnt það í þess- um viðræðum. að hann er mjög snjall málafylgjumað- ur. í þessu máli er um að ræða n-okkur atriði, sem ekki voru útrædd í Kaupmanna- höfn og þarf að ganga endan- lega frá, en annars er það mitt álit, að Kaupmanna- hafnarviðræðurnar hafi ver- ið hagstæðar fyrir Loftleiðir. — Nú eru alþingiskosning- a-r í Svíþjóð á næsta ári, sem væntanlega er hafinn undir- búningur að. Hverju spáið þér um þær kosningar? — Ég spái aidrei um kosn- ingaúrslit. En hitt er annað mál, að kosningaundirbúning- ur er ha-finn af fullu kappi. Við Sósíaldemókratar töpuð- um í síðustu kosningum og nú leggjum við kapp á að byggja upp fylgi að nýju. Ég treysti mér hins vegar ekki til að segja um hvernig það tekst. — Hvað er annars efst á baugi í sænskum stjórnmál- um? — Norðurlönd munu öll hafa við svipuð vandamál að stríða á stjórnmálasviðinu. Það er alltaf þessi sami vandi að láta útgjöldin ekki fara fram úr tekjunum og þetta reynum við aliir enda þótt að ferðirnar séu ekki alis staðar þær sömu. Þá reyna Svíar eins og hin Norðurlöndin að leggja- sitt lóð á vogarskál- ina fyrir afvopnun og friði í heiminum. Nauðsynlegt er að reyna að koma á friði í Víet- nam og eins þarf að leysa mál ísraelsmanna og Egypta. biskups íslands til Englands Frá heimsókn Biskupinn prédikaði einnig í dómkirkjunni í Linooln á sunnudagskvöld, en það er heimakirkja stærsta biskup- Grimsby og Lincoln, Englandi, 8. okt. AP. BISKUP íslands, herra Sigur- b.iörn Einarsson prédikaöi í skoðanir um, hvernig nýta beri fiskiimiðin. Þannig hefur hafið 'bæði skilið oss og sam- einað oss“. Biskupihn lagði Biskupinn í Grimsby við vígslu St. Andrewskirkju, dæmis Bretlands. í ræðu sinni sagði biskupinn m.a., að kirkj- ur kristinna manna væru í m-eginatriðum ein og hin sama, þrátt fyrir hinn mikla sögulega -mun, sem þær ættu að baki sér. „Sameiginlega eigum við ríkulegan arf“, sagði biskupinn. Han-n sagði ennfremur, að á liðmum tím- um h'efðu kristnir menn átt er.fitt með að viðurkenna hverjir aðra, en sameimuðust nú af endurn-ýjuðum álhuga í bæn og starfi fyrir nánari samski-ptum og gagnkvæmum skilningi milli mismunandi trúflokka. „Kirkja England-s hefur á margan hátt t-ekið forystuna á þessu sviði og kristnir m-enn í öllum löndium og öll- um kirkjum eiga að vera þakklátir fyrir starf ensku kirkjunnar á þessu sviði“. Sú skoðun fer vaxandi, að vér höfum þörf hver fyrir annan, þurfum að taka þátt í reymslu hver annars og bæta oss með tilliti til reynslu annarra. Það er vissulega löng og erfið 1-eið framundan, unz takm-arki trúarinnar hefur verið náð. En vér skuium af þolinmæði ala þá von og vinna að því m.arki“. Biskupinn sagði, að heim- Framh. á bls. 14 Biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson, blessar kapellu heilagrar guðsmóður í hinni nýju St. Andrewskirkju í Grimsby á fimmtudagskvöldið. dag í st. James kirkjunni í Grimsby á hinni árlegu þakk- arhátið sjómanna vegna sjáv- arafla (Harvest of the Sea). Sl. föstudag aðstoðaði biskup- inn við vígslu á nýrri sjó- mannakirkju í Grimsby, sem Islendingar höfðu gefið 1000 sterlingspund til og nefnist St. Andrews kirkja. í ræðu sinni sagði bLskup- inn m,a.: „Leiðir sjómanna okkar liggja saman og það eru stundum mismunandi áherzliu á meiri auðmýkt og virðingu fyrir .heilagri ritn- ingiu og sagði: „Það er þetta, sem þörf er á í heiminum nú, annars er hætta á því, að hin djarfa sjófierð tækninnar endi með skipbroti". Séra Dennis Hawker, sókn- arprestur við St. James kirkju ba-uð biskupinn velkominn o,g sagði, að þetta væri í fynsta sinn í 850 ára sögu kirkjunn- ar, að íslenzkur biskup hefði k-omið þangað. íslenzku sendiherrahjónin í Bretlandi voru einnig viðstödd vígslu kirkjunnar. Á myndinni er talið frá vinstri: Carl Ross, ræðismaður íslands i Grimsbyog kona hans, frú Rósa Ingólfs- dóttir sendiherrafrú, Guðmundur í. Guðmundsson sendiherra og borgarstjórahjónin í Grims- by, hr. og frú Petchell, en hún er af íslenzkum ættum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.