Morgunblaðið - 14.10.1967, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. OKT. 1967
23
Bragi Geirdal, bóndi
— Minningarorð
í D A G verðiur gerð frá Akra-
nesskirkj.u útför Braga Geirdals,
fyrr bónda á Kirkjubóli í Innri-
Akraneshreppi Hann lézt í
sjúkrahúsiinu á Akranesi 5. þ. m.
Bragi var fæddur á Húsavik
19. marz 1904. Fluttist hann með
foreldrum sínum kornungur til
Gnímseyjar, þar sean foreldrar
hans settust þá aið og mörkuðu
á langri ævi gifturiík ispor i end-
urreisn og framförum þessa af-
-skekkta byggðarlags
Móðir Braga var Hólmfríður
Sigurgeirsdóttir, komin af aett-
stólpa kjarnafólks í Suður-Þing-
eyjarsýslu. Faðir Braga var
Steinúlfar Eyjólfsson Geirdal,
Tæddur og uppalin.n í Gilsfjarðar
múla í Geiradal í Barðastrandar-
sýslu. Tók hann upp aettarnafnið
'Geirdal og sömuleiðis tveir
yngstu bræður hans, G.uðmund-
ur og Hreiðar.
Ætt Steinólfs vestur þar er
mjög kynsæl. Voru þau systkin-
in 16, börn Eyjólfs Bjarnasonar
og Jóhönnu Halldórsdóttur í
Gilsfjarðarmúla. Meðal þeirra
systkiina var Halla, húsfreyja á
Laugarbóli við Isafjarðardjúp,
skáld gott og rausnarkona, Guð-
mundtur skáld Geirdal og Stefán
bótndi á Kleifum í Dalasýslu. Við
Kleitfa er kenndur einn af beztu
sauðifjárstofnum á landi hér.
Fórst Stefáni á Kleifum vel úr
hendi viðhald og fróun stofnsins,
sem fyrir fjárskiptin var dreifð-
Ur víða um héruð og enn held-
iur velli.
Eftir að Steinúlfur fluttist til
Gnímseyjar tók hann að sér
Ibarnafræðslu í eynni Hann var
maður greindur og fróður vel.
Hafði hann aflað sér staðgóðrar
sjálfsmenntunar.
Þá rak hann þar útgerð og var
frumkvöðull að því að færa út-
'gerð þar ag fiskverkun í nútíðar
horf. Forsenda þess að viðleitni
í þessa átt gæfi góða raun voru
lendingarbætur og viðieguskil-
yrði. Unnu eyjarskeggjar að
tþessum umbótum af miklum
dugnaði og var Steinúlfur þar
jafnan framarlega í flokki.
Það er stutt á miðin í Grím.sey
og fengsælt flesta tdma árs. Svo
hafði í tíð Steinúlfs sótzt í átt-
ina til úrbóta í fiskveiða- og
'fiiskverkunarmálium að síldar-
'söltun var þar vel á veg kom,in
meðan síldveiði hélzt á nær-
•liggjandi slóðum.
Grímsey er um margt sérstæð
að því er tekur til atvinnuhátta.
Ber þar hæst bjargfuglaveiðin.
Hátt strandberg með óteljandi
sillum og þræðingum umlykur
eyna að mestu. Frá blaiutu barns-
be.ini venjaist æskumenn þar við
bjargsig til fuglafanga. Bjargsíg-
ið er íþrótt sem leiðir til leikni
við þrótt endurtekna æfingu,
stælir viljaiþrekið og kjark og
karlmennsku, mú þeim ekki
vera vænt er bjargsi.g stunda.
En þarna fellur til mikil björg í
.... og er eggjatakan annar
þáttur þess bjargræðis sem þeir
eyjabyggjar sækja I þessi risa-
björg. Við þessar lifsbjargarað-
stæður allar, fiskveiðar, bjarg-
sig og landbúnað ólst Bragi Geir-
dal upp fram á þroskaár. Var
það visisulega góður skóli til
undirbúnings lífsbaráttu þrosk-
aðs mamns. þótt viðfangsefnin
yrðu önnur siðar. Bragi naut
góðrar me-nntunar í uppvextin-
um. Fyrst undir handleiðslu föð-
ur síms, síðar í Eiðaskólanum cng
eitt ár dvaldi hann við bústörf
í Noregi.
Þeim hjónum, foreldrum
Braga, varð 10 barna auðið, sem
öll báru goðanöfn, þriggja sona
og sjö dætra. Tvær dætur
þeirra dóu á barnsaldri, en hin
systkinin komust öll til fullorð-
ins ára. Systkinum þessum hef»ur
nokkur útfþrá verið i blóð borin,
því öll hafa þau yfirgefið æsku-
stöðvarnar i Grímsey. Heilbrigð-
ur, framgjarn og stórhuga æsku-
maður leitar ósjálfrátt þangað
sem framfarir oig umbætur hafa
reynzt þroskavænlegastar og
rnest hefiur áunnizt á skeiði
framfaranna. í leit þessara syst-
kina að stærri verkefnum og fjöl
breyttari en fyrir hendi voru þá
á hinum afskekkta stað, tóku
bræðurnir sér allir bóltfestu á
Akranesi og ein systranna i
Borgarfjarðarhéraði. Var byggð-
arlögum þessum mikill fengur í
komu þeirra. Bragi hóf búskap á
góðri jörð í næista nágrenni við
Akranes, Óðinn, sam er ágæt-
lega bókhaldsfróðuir maður, er
nú skrifstofustjóri hjá Rafveitu
Akraness, og þriðji bróðirinn,
Freir, er járnsimiður, en Edda,
systir þeirra, er velmetin og at-
hafnasöm húsfreyja á ylræktar-
jörð í hinu frjóisama Bor.garfjarð
arhéraði.
Bragi Geirda] reisti skjótt eft-
ir komu sína að norðan bú á
Kirkjubóli í Innri-Akranes-
'hreppi. Kvæntiist hann þá mikil-
hæfri konu, Hel,gu, dóttur Páls
Guðm,undssonar, óðalsbónda og
hreppsnefndaroddvita í Innra-
Hólmi. Reyndist sá þáttuir í upp-
vaxtarstarfi Braga í Grímsey,
landbúnaðurinn, sterkust itök í
eðli hans og skapgerð.
Hann gekk heilshugar að
startfi í búskapnum. hóf þegar
byggingar og ræktun á ábýlis-
og eingarjörð sinni og jók bú-
stofininn að sarna skapi. Búsfor-
sjá hans og húsfreyju kom og
fra,m í því að hann fór vel með
skepnur sínar og í hendur við
það ihélzt að hann hafði jafnan
gagnsamt bú og hagstæðan bú-
rekstur. Engan veginn stóð
Bragi einn að verki i búverki í
búskaparhátt.um sínum, Hin dug-
mikla og forsjála kona hans lét
ekki sitt eftir liggja að hlúa að
hagsæld heimilisins og segja má
að hún hafi til jafns við bónda
sinn haldið þar öllu á framfara-
braut og gætt heimilið þeirri
hliýju og hugfró, sem er á færi
góðrar og umhyggjusamrar hús-
móður einnar að gera.
Bragi var mjög félagslyndur
maður. Kunni hann á því góð
skil hve samstarf megnar mik-
ils um framgang og heilbrigða
þróun einstakra mála er nauð-
syn ber til að hrundið sé í fram-
kvæmd og ekki er á færi hvers
einstaklings að fá til vegar kom
ið. Var Braga samvinnan á þvi
sviði einkar kær og þess mjög
hvetjandi að slíkum framtaks-
mætti væri beitt.
Bragi var, þótt nokkuð gæti
hann verið ör í geði, mjög hóf-
samur í kröfum sínum í ann-
arra garð. Sanngirni og bróður-
lund var mjög ríkur þáttur í
skapgerð hans. Gaf hann því
ekki tilefni til þess að reitt
væri til höggs við hann vegna
samskipta við aðra menn, en
ef á því hefði örlað, var hann
hverjum manni líklegri til þess
að halda fast á rétti sínum og
láta ekki troða sig um tær. En á
þetta reyndi lítið eða ekki því
Bragi var vinsæll af þeim sem
hann hafði samskipti við. Góð-
ur nágranni var hann og jafnan
boðinn og búinn að leysa hvers
manns vandræði eftir því sem
kostur var á.
Bragi kom mikið við sögu í
málefnum sveitar sinmar. Vár
hann lengst af dvöl sinni í Innri-
Akraneshreppi í hreppsnefnd
þar, skólanefnd og sóknarnefnd.
Þá studdi hann af ráði og dáð
ungmennafélagsstarfsemii>a í
hreppnum. Honum var hugleik-
ið að efla og glæða skemmtana-
og fþróttalíf í sveit sinnL Studdi
af alefli byggingu félagsheimil-
is hreppsins og barnaskólabygg-
inguna. Hann studdi að því að
keypt var land undir iþrótta-
völl við félagsheimilið og hafði
af því mikla ánægju að sjá hve
sú fyrirhyggja styrkti aðstöðu
unga fólksins í hreppnum til
íþróttaiðkana. Við hugleiðingar
um lát þessa vinar okkar og sam
starfsmanns um nær aldarfjórð-
ungsskeið rifjast upp fyrir oss
hreppsbúum hans í hve mikilli
þakkarskuld vér stöndum í við
hann fyrir hvatningu hans og
samstarf um þau mál er til fram
fara horfðu meðan hans naut
við.
Það olli miklum særindum hjá
hreppsbúum hans þegar heilsu-
brestur hjá honum steðjaði að.
Heilsubrestur sem olli því að
hann varð að bregða búi og
flytja í kaupstað. En hér varð
engu um þokað. Bragi sat með-
an sætt var. Lagði í það alla
orku sína að láta ekki bugast.
Rætur lífs hans og starfs voru
tengdar við bújörð hans eins og
töðugrösin sem hann hafði rækt
að á Kirkjubóli. Fyrir 10 árum
fluttist Bragi á Akranes og segja
má að hann hafi aldrei á heil-
um sér tekið þennan áratug. Það
er sjrangt áfall fyrir hraustan
og starfsglaðan mann að hlýta
á miðjum aldri dómi slíkra for-
laga. Aldrei kom það betur í ljós
en eftir það að Bragi missti heils
una, hve frábært hiutskipti hon-
um féll í skaut er hann gekk að
eiga Helgu konu sína. Hefir um
önnun hennar og umhyggja fyr-
ir hinum sjúka maka verið slík
að lengra verður trauðla komist
í kærleika og fórnfýsi. Þetta
kunni Bragi vel að meta og varp
aði þetta í sál háns á þrauta-
stundum endurskyni starfsgleð-
innar frá þeim tíma er allt lék
í lyndL
Þau Bragi og Helga eignuðust
6 dætur, sem allar eru á lífi.
Sjöfn, gift Skúla Þórðarsyni,
starfsmanni hjá Sementsverk-
smiðju ríkisins. Sigfríður, gift
Þorsteini Hjartarsyni, vélsmið.
Ásdís, gift Bjarna Guðmunds-
syni, sem stundar búfræðinám
við búnaðarháskólann í Asi í
Noregi. Sigrún, Steinunn og Pál
ey eru ógiftar, en Páley er ein
í föðurgarði.
Með Braga Geirdal er genginn
góður drengur og dugmikill með
an heilsa og kraftar entust, en
varð að leiðarlokum að sæta
þungum öriögum langvarandi
heilsubrests.
Pétur Ottesen.
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM
KVIKMYNDIR
________\__
StjörWubíó
Stund hefndarinnar
Amerísk kvikmynd byggð á
sögu eftir Emeric Pressbiurg-
er.
Framleiðandi og leikstjóri:
Fred Zinnerman
Höfnðhlwtverk:
Gregory Peck
Antony Quinn
Omar Sharif
Borgarastyrjöldin á Spáni
1936—1939 hefur orðið mörgum
rithöfundum uppspretta sagna-
gerðar, og er kvikmynd þessi
byggð á einni slíkri sögu. •—
Manúel Artiguez er fyrrverandi
hetja úr her lýðveldisstjórnar-
innar, en hafði flúið yfir landa
mærin til Frakklandis, er Fal-
angistar unnu fullnaðarsigur.
Býr hann í litlu þorpi, en hef-
ur fyrr á árum oft gert smá-
herhlaup snður í hið kúgaða
ættland sitt og gert yfirvöld-
um þar ýmsa skráveifu. Nú er
hann hættur að nenna slíku,
enda farinn að reskjast og bar
áttuólgan í blóðinu tekin að
dvína.
Einn er sá maður, sem Manu
el hefur átt í mestum útistöð-
um við á ferðum sínum suður
á Spán. Það er lögreglustjórinn
í lítilli á borg á Norður-Spáni.
(Leikinn af Antony Quinn).
Embættismaður þessi, sem er
nú kannski ekki alveg eins og
sýslumenn ættu að vera í lifn-
aðarháttum sínum, og hefur
sett metnað sinn í það að leggjai
Manuel að velli: Horfur virð-
ast þó ekki miklar á því, um
það bil, sem myndin hefst, að
lögre'glustjóra takist að full-
nægja þeirri metnaðarþrá sinni.
Til þess verður Manuel þó alla
vega að koma suður yfir landa
mærin.
Ungur drengur kemur dag
nokkurn til Manuels. Var það
landflótta Spánverji. Áður-
nefndur lögreglustjóri hafði
látið drepa föður hans, þar eð
hann vildi ekki gefa upplýs-
ingar eru Manuel, en þeir höfðu
áður verið vinir og vopnabræð
ur. Eggjar stráksi Manuel ó-
ispart til að hailda suður yfir
landamærin og hefna föður
isíns með þyí að drepa lögreglu
stjóra. En Manuel varpar
dren.gnum á dyr.
Það er ekki fyrr en hann
fréttir, að öldruð móðir hans
liggi fyrir dauðanum suður á
Spáni, að hann tekur að hug-
leiða nýja suðurför ....
Mynd þessi er talsvert efnis-
mikil, þótt segja megi, að það
efni sé fremur einhæft. Hún er
spennandi, framvinda atburða
svona mátulega hröð. — Lögð
er nokkur áherzla á samspil
hins geistlega og borgaralega
vaildis á Spáni. enda munu hin-
ir æðri menn kirkjunnar yfir-
leitt, hafa veitt Franco sið-
ferðilegan, ef ekki efnahags-
legan styrk í borgarastyrjöld-
inni. Kirkjan sem stofnun tók
því á sig mynd sameiginlegs
óvinar í augum hinna land-
flótta Spánverja. Úr þessum
staðreyndum er snúinn efnivið
ur, sem á að þjóna því hlut-
verki að mynda andstæður og
gefa myndinni sem mesta
spennu og raunar einnig ákveð
inn boðskap.
Höfundi er mikið í mun að
sannfæra menn um, að kirkj-
unnar þjónar séu, ekki allir að
minnsta kosti, svo óhumanist-
iskir andstæðingar og einsýnir
og hinir trúlitlu útlagar og
skæruliðar álíta. Sá boðs'kapur
er út af fýrir sig óþarfur, en
þar sem hann er einnig eitt að
•ailtæki höfundar til að skapa
spennu í efniþráðinn. þá virð-
it mér ekki anngjarnt að gagn-
rýna það, þótt þar séu endur-
•tekin sannindi, sem flestum eru
vel kunn fyrir. Það er víst til
fullmikils ætlazt að fara fram
á opinberun nýrra lífssanninda
lí hverri kvikmynd.
Ekki verka allir hlutir jafn-
trúlega í þessari mynd. Til dæm
is hin snögga hugarfarsbreyting
drengsins og svo hin óvænta
ákVörðun Manuels undir lok
myndarinnar. En eins og mynd
in er uppbyggð, þá er raunar
síðasttalda atriðið nauðsynlegt,
til að hún fái dramatískan endi,
Og vissulega gerist það víðar
en í kvikimyndum eða skáldsög
ium, að menn taki ák'varðanir,
sem erfitt er að greina tilgang-
dnn á bak við. í heild verður
ekki annað en mælt með mynd
þessari. Aðalleikendurnir eru
líka engir aukvisar. — Gjarn-
an hefði ég viljað sjá Antony
Quinn í betri vist en kvik-
mynda.stjóri hefur áthlutað hon
um. En einhverjir verða að
taka að sér óþverrastörfin, og
efast ég um, að Gregory Peck,
til dæmis, hefði hentað betur
í þann starfa.
Islenzkur texti fylgir, en
er allsditróttur á köflum.
Fjiármálaráðherrann Vasily F. Garbuzov skýrir frá varn-
armálafjárlögum Sovétrikjan na á þingi á dag. Á myndinnl
sjást Kosygin forsætiráðherra og oPdgorny, forseti.
‘ AP-mynd).