Morgunblaðið - 26.10.1967, Blaðsíða 1
1
32 SIÐUVt
54. árg. 243. tbl.
FIMMTUDAGUR 26. OKTÓBER 1967
Prentsniiðja Morgunblaðsins
DG GAULLE:
Ánægöur með
Luxemborgar-fundinn
Yfirmaður alls egypza heraflans, Mohamed Fa wzi, (fyrir borðsendanum) situr hér á taii vlð
sjóliðsforingiana þrjá, sem sökktu ísraelska t undurspillinu Eilat 21. okt. sl. Eins og komið
hefur fram í fréttum veitti Nasser, Egyptalan dsforseti, þremenningunum heiðursmerki fyrir
dáðina. Mennirnir eru frá vinstri: Mahmond Fa hmi, kafteinn; Ahmed Shaker, kafteinn og
Massam Amin liðsforingi. (AP-mynd).
París, 25. okt., AP.
DE GAULLE, Frakklandsfor-
seti, sagði á ríkisráðsfundi í
dag, að hann væri allánægð-
ur með viðbrögð Efnahags-
bandalagslandanna fimm við
afstöðu Frakka til umsóknar
Breta um aðild að ERE. Upp-
lýsingamálaráðherra Frakk-
lands, George Gorse, sagði,
að forsetinn hefði látið svo
ummælt á fundinum, að þótt
skilmálar Frakka hefðu ekki
verið ræddar til hlítar á ráð-
herrafundinum í Luxem-
bourg þá hefðu bandamenn
<S>-
Öryggisráöiö ræöir Suez-bardaga
— Cífurlegt tjón at eldi í olíuhreinsunar-
stÓBvum Egypta — Sovézk
herskip til Port Said
Tel Aviv, Waghington og víð-
ar, 26. okt., AP-NTB.
GÍFURLEGIR eldar loga enn
í egypzku olíuhreinsunar-
stöðvunum við borgina Súez
við suðurenda skurðarins, en
fsraelsmenn eyðilögðu þær í
þriggja stunda stórskotaliðs-
orrustu í gær. ísraelsmenn í
borginni Ismailia í 80 km.
fjarlægð frá brunasvæðinu,
segja, að eldarnir hafi sézt vel
aðfaranótt miðvikudagsins.
í þessum olíuhreinsunar-
stöðvum, El-Nasr og Suez,
var unnið 80-90% þess magns
af brennsluolíu, benzíni, gasi
og paraffíni, sem Egyptar
nota. Tilkynnt var um brun-
ann formlega á fundi Öryggis
ráðsins í dag og vildu Sovét-
ríkin fá Öryggisráðið til að
fordæma ísraelsmenn sem
frumkvöðla að bardögunum í
gær. Arabísk dagblöð réðust í
dag heiftarlega á þá ákvörð-
un Bandaríkjamanna, að
hefja á vopnasendingar til
ísraels, og segja þau, að
Bandaríkin ætli að taka þátt
í hefndarráðstöfunum ísraels
manna gegn Egyptum fyrir
eldflaugaárásina á tundur-
spillinn Eilat sl. laugardag.
Bandaríkin senda einnig
fimm Arabaríkjunum vopn,
en meðal þeirra eru hvorki
Egyptaland né Jórdania.
(Heimildir í Washington og Tel
Aviv segja, að ísrael hefði ekki
beðið Bandaríkin um annan
Framhald á bls. 211
Frakka í EBE allavega tekið
þá til nákvæmra athugana.
De Gaulle hafði fátt að athuga
við skýrslu de Murville, utan-
ríkisráð-herra, sem sat furudinn
af háQfu Frakka, en lýsti yfir
ánægju sinni vegna frammi-
stöðu ráðherrans De Murville
sagði á funidinum, að áður en
samningaviðræður við Breta
gætu hafizt yrðu þeir að leysa
efnahagsvandamái sín og
tryggja hlutverk sterlingspunds-
ins sem alþjóðlegs gjaldeyris-
varasjóðs á þann hátt, sem aliir
aðilar EBE gætu sætt sig við.
Gorse sagði, að forsetinn hefði
hrósað de Murviiie íyrir snjall-
ar og yfirvegaðai röksemda-
færslur hans á fundinum.
Kanzlari V-Þýzkalands, Kurt
Kiesinger, sagði á fundi með
erlendum fréttamönnum í Lund-
únum í dag, að hann vonaði að
samningaviðræður við Breta
um aðild að EBE gætu hafist
sem allra fyrst, en ekki væri
hægt að vinna bug á amdstöðu
de Gaulles með því einu að
berja hnetfanum i borðið. Hann
sagði, að brezkum liagsmunum
væri bezt þjónað, ef Bretlands-
Framhald á bls. 21
Hussein í París
París, 25. okt — AP
HUSSEIN, Jórdaniukonungur,
sagði í dag, að hann hefði fært
de Gaulle, Frakklandsforseta,
Nýjar árásir á Phuc-Yen
Thailand sendir liðsauka til Vietnam
Saigon, 25. okt. — AP-NTB
BANDARÍSKAR orrustuþotur
gerðu í annað sinn loftárásir á
stærsta flugvöllinn í N-Vietnam,
Phuc-Yen, í dag og eyðilögðu
alls níu MIG-þotur, að sögn tals
manna bandaríska heraflans í
Saigon. Flugvöllur þessi er norð
vestur af Hanoi og var áður á
lisfa yfir þá staði, seim banda-
rískum þotum var bannað að
ráðast á. Þoturnar flugu í gegn-
Loka sendi-
ráðinu í Peking
Djakarta, 25. okt. — NTB
RÍKISÚTVARPH) í Djakarta til
kynnti í dag, að indónesíska
stjórnin hefði lokað sendiráði
sínu í Peking. Samkvæmt upp-
lýsingum utanríkisráðuneytisins
var sendiráðinu lokað vegna
þess, að starfsmenn þess gátu
ekki gegnt störfum sínum vegna
ógnana Kínverja.
Utanríkisráðherra Indónesíu,
Adan Malik, sagði, að þetta væri
nýr þáttur í þeirri ákvörðun
stjórnar sinnar, að rjúfa sam-
band landanna algjörlega. Indó-
nesískir diplómatar í Peking
fóru þess á leit vjð stjórmina
þar í ágúst sl., að hún veitti
þeim brottfararleyfi, en hún vís
aði beiðnum þeirra um vega-
bréfsáritanir á toug og eru þeir
enn í Peking, þrátt fyrir hörð
og ítrekuð mótmæli stjórnarinn-
ar í Djakarta.
um ákafa skothrið frá jörðu og
a.m.k. tvær MIG-þotur hófu sig
á loft til að ráðast gegn þeim.
Bandarisku flugmennirnir til-
kynntu, að þegar hefði verið
fyllt upp í sprengjugiganna í
flugvellinum frá deginum áður
með mold og steypu.
Thailandsstjórn hefur ákveðið
að senda liðsauka til Vietnam en
ekki hefur enn verið ákveðið
hvenær það verður gert og
hversu margir hermenn verða
sendir. Thailand sendi 2.500
manna liðsauka til S-Vietnam i
síðasta mánuðL Thanom Kitti-
kachorn, forsætisráðherra Thai-
lands, tjáði fréttamönnum eftir
fund með öryggisráði landsins,
að á hinn bóginn verði stjórn
Thailands að hafa fyrst í huga
öryggi landsins áður en hún
sendir mikinn liðsauka til S-
Vietnam á ný.
Morðinginn í Lock Haven látinn
Lézt af völdum skotsára
í viðureign við lögregluna
Dock Haven, Pennsylvaniu,
25. október — AP
FJÖLDAMORÐINGINN Leo
Held, lézt í dag í sjúkrahúsi í
Lock Haven af völdum skotsára,
sem hann hafði hlotið í snarpri
skothríð við lögregluna á mánu-
dag.
Held, sem var 40 ára að aldri,
var ákærður fyrir að hafa myrt
sex manns og sært sex aðra í
æði, sem greip hann í gær.
Dauði hans veldur því, að aldrei
verður komizt að raun um, hvað
olli morðæði því, sem greip
hann. Hann hafði ekki verið yfir
heyrður af lögreglunni vegna
þess, hve hættulega særður hann
var.
Vinir hans og ættingjar hafa
skýrt frá því, að þeim sé það
fullkomlega hulið, hvað olli
morðæði hans á mánudag. Flest
ir þeirra sögðu, að hann hefði
þakklæti alls hins arabíska
heims fyrir aðstöðu Frakklands
í deilunum fyrir botni Miðjarðar
hafs. Hussein hélt stutta ræðu
af þrepum Elysée-hallarinnar
eftir hádegisverð með de Gaulle,
og sagði konungur þá m.a.: „Af
hálfu allra leiðtoga og þjóða
hins arabíska heims lýsi ég þakk
læti mínu og aðdáun á forseta
frönsku þjóðarinnar, sem hefur
næmt réttlætisskyn grundvallað
á heilbrigðum meginreglum".
Konuingur kvað það hafa glatt
sig, að heyra skoðanir de Gaull-
es og fá ráðleggingar hans. Hann
gat þess á hinn bóginn ekki um
hvað þeir hefðu rætt.
Sem kunnugt er ákærði de
Gaulle ísrael fyrir að hafa haf-
ið styrjöldiina fyrir botni Mið-
jarðarhafs í júní sl„ við mikinn
fögnuð Arabaþjóðanna en mikla
gagnrýni landa sinna, sem flest-
ir styðja málefni ísraels.
verið geðgóður, en aðrir sögðu
að hann hefði verið skapofsa-
maður og stundum þunglyndur.
Held var handtekir.n fyrir ut-
an heimili sitt, þar sem skot-
hríð hans og lögreglunnar hafði
hafizt. Varð hann loks afvopnað
ur, eftir að kúlur úr byssum löig-
reglunnar höfðu sært hann m.a.
í handleggina, þar sem hann iá
á jörðinni og skaut af byssum
í báðum höndum. Auk þess vaið
hann einnig fyrir byssukúlum
annars staðar, svo i*m í kvið og
er hann nú, sem að framan grein
ir, látinn af völdum skotsáranna.