Morgunblaðið - 26.10.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKT. 1967
V
IMAGIMÚSAR
SKIPHOLTI21 símar 21190
eftirlokun simi 40381
"Ml 1-44-44
\tmmiR
Hveríisgötu 103.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundawgaveg 12 - Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
f~f==*BUAir/eA/r
Irt&iuyiæp
RAUÐARARSTlG 31 SlMI 22022
Hreinsum rúskinnskápur,
jakka og vesti. Sérstök
meðhöndlun.
Efnalaiugin Björg,
Háaleitisbr. 58—65, súni
31380, útibú Barmahlíð 6,
sími 23337.
AU-ÐVITA0
ALLTAF
Vatnsleysið í Kópa-
vogi
„tbúi á Digraneshálsi“
skrifar:
„Heiðraði Velvakandi!
Hvernig ætli standi á því, að
fólk hér má alltaf búast við
vatnsleysi í húsum sínum, hve-
nær sem er sólarhringsins og
án nokkurrar viðvörunar? >að
er anzi hart, að bæjarfélagið
skuli ekki geta sinnt frum-
stæðustu þörfum hverrar
mannabyggðar, þ. e. a. s. út-
vegun á vatni. En ef nauðsyn-
legt er að taka vatnið af íbú-
unum æ ofan í æ, væri þá
lágmarkskrafa, að þeim væri
tilkynnt um þa'ð fyrirfram.
Fólk er með dýrar vélar í
gangi, svo sem þvottavélar og
uppþvottavélar, þegar allt í
einu er orðið vatnslaust. Frétzt
hefur, að Rafmagnsveita
Reykjavíkur ætli að bæta raf-
magnsvélar á heimilum, sem
skemmzt hafa við spennufall.
Er því augljóst, að Kópavogs-
kaupstaður verður skaðabóta-
skyldur, ef vélar skemmast hér
vegna skyndilegs vatnsleysis.
Dæmið er alveg hliðstætt.
Að lokum vil ég beina því
til bæjaryfirvalda hér, að þau
reyni a. m. k. að tilkynna fyrir-
fram, hvenær vatnið ver'ði tek-
ið af og hvenær það komi
aftur. Sá auglýsingakostnaður
verður minni en greiðslu
skaðabóta nemur.
íbúi á Digraneshálsi".
Jc Áfengi og skólar
„Móðir“ skrifar:
Kæri Velvakandi!
Ég hefi aldrei skrifað þér
fyrr, en langar nú til að biðja
þig að birta þessar línur. Mig
langar fyrst til að gera fyrir-
spum, ef ég gæti fengið svar
við henni:
Eru til í landi okkar nú skól-
ar, sem taka við eftir mfðskól-
ana, er við getum treyst fyrir
börnunum okkar, þ e. að þau
neyti ekki víns, meðan þau
dveljast þar, og að skólinn geri
það sem í hans valdi stendur
til að þroska nemendurna, svo
að þeir neyti síður víns, þegar
út í lífið er komið?
Hæfir það sumum mennta-
stofnunum, að þegar nemend-
urnir hafa náð lokaprófi, er
það haldið hátfðlegt með
skemmtunum, þar sem vín er
meira og minna haft um hönd?
Er slíkur verknaður þakklæti
til Drottins eða menning, sem
hæfir kristnu þjóðfélagi? Svo
maður tali nú ekki um þá
sorg, er slíkt veldur bindindis-
sömum foreldrum.
Við sjáum, að það er sama,
hvort við menntum börn vor
eða ekki, þau neyta jafnt víns-
ins, — skólinn sem við sendum
þau í, virðist ekki vera því hlut
verki vaxinn að geta skilað
nemendunum þannig frá sér,
að þau stæ'ðust þessa ómenh-
ingu. Úr því að menntastofn-
anir lands vors eru ekki færar
Vinna
Piltur 14—16 ára óskast til afgreiðslustarfa.
Uppl. í dag kl. 6- 7 í síma 36757.
um að hjálpa unglingunum,
sem þar dveljast til að standazt
þessa vínöld, þarf þá nokkurn
að undra þótt æskan drekki í
dag?
Það er aðeins þessi stóra
spurning: Gleymdu ekki skól-
arnir að hafa Drottin með sér
í starfi?
Að endingu þetta: Kæru
prestar og kennarar, takið
höndum .saman, með Guðs
hjálp og útrýmið víninu frá
okkar fallegu ungmennum!
Móðir“.
Jc Mjólkurmálin á
Skagaströnd
„Húsmóðir á Skaga-
strönd' skrifar Mjólkursölunni
á Blöndósi og bi'ður Velvak-
anda fyrir bréfið:
„Kæri Veivakandi!
Mig langar til að biðja þig
um að koma þessum línum á
framfæri fyrir mig sem fyrst,
þetta er okkar hjartans mál
hérna og óþolandi að fá það
ekki á hreint. Og eru þessi orð
skrifuð til Mjólkursölunnar á
Blönduósi.
Hvers eigum við Skagstrend-
ingar o. fl. o. fl. að gjalda í
þessum mjólkurmálum okkar?
Hver vegna fáum við fimmta
flokks vörur frá ykkur, ekki
aðeins endrum og eins heldur
samfleytt í mörg ár? Áður en
þið tókuð að ykkur mjólkur-
söluna til okkar, fengum vi'ð
smjör og skyr óætt, smjörið var
úklið og skyrið var svokallað
graðhestaskyr.
Svo tókuð þið við mjólkur-
sölunni, og er mjólkin súr og
ódrekkandi, þegar ykkur þókn-
ast að senda okkur hana; segj-
um annað hvert skipti".
Hér er sleppt úr mjög harð-
orðum kafla bréfsins, en inn-
tak hans er, að kvartanir und-
an þessari framkomu hafi eng-
an árangur borið. Nú sé svo
komið, að húsmæ'ður verði að
„gera sínar ráðstafanir“, ef
ekki verði ráðin bót á tafar-
laust. „að er hart að þurfa að
hella niður 8—10 lítrum af
mjólk og fá enga leiðréttingu
á því“. Húsmæðurnar á Skaga-
strönd vilji fá mjólkina ó-
skemroda, svo að þær þurfi
ekki að henda henni, og sama
gildi um aðrar vörur.
Að lokum vill húsmóðir fá
svar við þessari kvörtun á
opinberurrt vettvangi og eins
svar við því, hvers vegna mjólk
in sé bara send þrisvar í viku,
en ekki á hverjum degi, eins
og annars staðar tíðkist.
'Á' Hvernig fisk á að
veiða?
„Kæri Víkverji!
Fyrir stuttu birtust fregn
ir í Morgunblaðinu um að
Norðmenn væru að útrýma ís-
lendingum af saltfiskmarkaðn-
um í Brazilíu. Samkv. upplýs-
ingum S.I.F. eru það sérstakar
stærðir af fiski, sem Brazilíu-
menn vilja kaupa. Þar sem
margir fiskimenn og fiskkaup-
endur hafa ekki góða aðstöðu
til að íylgjast með, hváða
stærðarflokkar og fisktegundir
ganga bezt á hin ýmsu mark-
aðslönd, væri æskilegt að fá
upplýst í dagblöðunum, eftir
hvaða fisktegundum og stærð-
um menn eiga helzt að leggja
sig eftir að veiða og verka.
Með fyrirfram þökk fyrlr
birtinguna,
Væntanlegur fiskframleiðandi".
Einhver getur væntanlega
svarað þessari spurningu.
Bréfið er stílað til Víkverja,
sem sá um dá’.ka svipaða Vel-
vakandadálkunum hér í Morg-
unblaöinu um fjöldamörg ár.
Velvakanda berast alltaf ann-
að veifið bréf til Víkverja, og
er gaman, hve margir minnast
hans enn.
Húsgögn
Sófasett, svefnbekkir, svefnsófar.
Klæði gömlu húsgögnin, hef góð og falleg áklæði.
Bólstrun Ásgríms, Bergstaðastræti 2,
Sími 16807.
Sýningarsalur
óskum að taka á leigu 70—100 ferm. húsnæði í
Miðborginni sem mætti nota sem sýningarsal (má
vera í bakhýsi). Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt:
„2860.“
Hárgreiðslustofa
Til leigu er rúmgott og bjart húsnæði fyrir hár-
greiðslustofu. Húsnæðið er í verz’unarmiðstöð í
Austurborginni. Lysthafendur leggi nöfn sín á
afgr. Mbl. merkt: „Hárgreiðslustofa 466.“
Iðnaðarhúsnæði
um 80—100 ferm. óskast. Sími 15376 og 36141.
Síldarstúlkur
Óskast til Vopnafjarðar strax. Uppl. í síma 34580
og 52577.
Stúlka - ábyrgðarstarf
Stúlka, 25—40 ára, óskast í ábyrgðarstöðu hjá stóru
fyrirtæki í Reykjavík. Þyrfti að kunna vélritun og
geta unnið nokkuð sjálfstætt. Laun eftir samkomu-
lagi. Tilboð, er greini, aldur, menntun og fyrri
störf, vinsamlegast sendist afgreiðslu blaðsins
fyrir föstudagskvöld, merkt: „Ábyrgðarstarf 465.“