Morgunblaðið - 26.10.1967, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKT. 19«7
KLAK- OG ELDISSTÖÐ HÚSAVÍKUR
VÆNIR LAXÁR - LAXAR KREISTIR
1. Kristján á Hólmavaði og Jak-
ob Hafstein athuga 18 punda
hrygnu rétt fyrir kreistingu.
2. Kristján Óskarsson og Hall-
mar Helgason taka „Seltanga-
Iaxinn“, 26 punda hæng upp úr
eldiskerinu til frjóvgunar.
3. Birgir Lúðvíksson hefur hand-
samað 20 punda hæng til frjóvg-
unar.
4. Kristján á Hólmavaði að
kreista 18 punda hrygnuna en
Bragi Eiríksson heldur á skál-
inni, sem hrognin eru kreist í.
Kristján Óskarsson og Jakob
Hafstein fylgjast með af áhuga.
5. Kristján á Hólmavaði og
Bragi búa sig til að kreista 16
punda hrygnu, veidda á Haga-
bökkum á flugu hinn 1. ágúst.
Jóhann, sonur Braga fylgist
spenntur með því, sem er að
gerast.
6. Nafnamir Kristján á Hólma-
vaði og Krist.ján Óskarsson
skola hrognin, eftir frjóvgun,
áður en þeim er dreift í klak-
kassana.
7. Séð yfir hluta klakkassanna
— tandurhreina og fallega —
undir plasthlíf — en þeir eig-
endurnir eru í baksýn, með
gestum sínum, talið frá vinstri:
Hallmar Helgason, Kristján á
Hólmavaði, Helgi Bjarnason,
Bragi Eiríksson, Kristján Óskars
son, Birgir Lúðvíksson og Jakob
Hafstein.
HAUSTIÐ 1966 stofnuðu fimm
áhugamenn um laxaræktarmál
í næsta nágrenni við Laxá í Að-
aldal með sér samtök um að
koma á fót klak- og eldisstöð á
Húsavík. Þessir menn eru þeir
félagarnir Kristján Óskarsson,
vélstjóri við Fiskiðjusamlag
Húsavíkur, Kristján Benedikts-
son, bóndi að Hólmavaði í Aðal-
dal og þrír kunnir laxveiðimenn
á Húsavík, þeir Hallmar Helga-
son, Helgi Bjarnason og Birgif
Lúðvíksson. Þeir félagar ein-
beita klaki- og eldi að laxi úr
Laxá í Aðaldal og bleikjtx af
Mývatnskyni. Starfsemi þeirra
fyrsta árið mótaðist af gætni og
fyrirhyggju, hreinlæti og um-
hyggju, enda var’ð árangurinn
frábær. Á síðastliðnu sumri gat
þessi litla stöð látið af mörk-
um 23 þúsund seiði til Laxár
og 17 þúsund bleikjuseiði í
Botnsvatn, rétt ofan við Húsa-
vík.
í sumar var framhaldið undir-
búið með mikilli forsjá. Þeir
öfluðu sjálfir klakfisksins á stöng
í veiðileyfitíma í Laxá, og
geymdu laxinn í kistum í umsjá
Kristjáns bónda að Hólmavaði.
Fyrir hálfum mánuði síðan
fluttu þeir svo laxana í eldiskei;
stö’ðvarinnar á Húsavík og eftir
rúmlega vikudvöl þar var hafizt
handa um kreistingu og frjóvg-
un. Alls höfðu þeir yfir að ráða
rúmlega 20 hrygnum frá 11 til
18 punda og 19 hængjum, allt
upp í 26 punda. Áætlað er að
úr þessum löxum fáist það mik-
ið magn af laxahrognum að fram
leiðsla stöðvarinnar muni 5—6
faldast frá því í fyrra.
Þeir félagarnir óskuðu eftir
því við formann Félags áhuga-
manna um fiskirækt, Braga Eir-
íksson forstj. og sinn gamla sveit
unga og veiðifélaga Jakob Haf-
stein, lögfr. og höfund bókarinn-
ar um Laxá í Aðaldal, að þeir
kæmu norður til Húsavíkur s.l.
laugardag, til þess að fylgjast
með kreistingunni og frjóvgun
hrognanna.
Fréttaritari Morgunblaðsins á
Húsavík, Sigurður P. Björnsson
útibússtjóri Landsbankans þar,
hefur sent blaðinu meðfylgjandi
myndasamstæðu úr klakstöðinni: