Morgunblaðið - 26.10.1967, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKT. 1967
Fjármálaráðherra svarar
fyrirspurn um vísitöluna
Á FUNDI Sameinaðs Alþingis í
gær kom til umræðu fyrirspurn
Magnúsar Kjartanssonar (K) um
íhvernig vísitala sú, sem miðast
við neyzlurannsókn frá 1965
hefði breytzt síðan tekið var að
reikna hana út. Sagði Magnús
að hann hefði leitað til Hag-
stofustjóra um upplýsingar um
þessi mál, en hann hefði neit-
að um þær. Það væri sín skoð-
un að hér væri ekki um neitt
launungarmál, og óhæfa væri að
alþingismenn fengju ekki aðst
til þess að fylgjast með þeim út-
reikningum er fyrir lægju.
Magnús Jónsson fjármálaráð-
herra svaraði fyrirspuminni:
Ég tel ekki ástæðu til að fara
að ræða hér sérstaklega það
sem hv. þm. sagði um, hvernig
stæði á því, að Hagstofan hefði
ekki dreift fyrr út upplýsingum
vairðandf nýju vísitöluna. Ég
sagði það, þegar efnahagsmálin
voru hér á dagskrá og svaraði
þá fyrirspurn frá hv. þingm. að
ástæðan væri sú, að ráðuneytið
hefði ekki talið rétt meðan mál-
ið væri á algjöru athugunarstigi
að dreifa út einstökum
upplýsingum, nema þá væri
hægt að tatka málið til heild-
armeðferðar. Slíkt gat verið vill
andi og leitt til mjög óheppi-
legra umræðna um málið. Þar
sem hins vegar nú hefur verið
ákveðið að leggja til, að þessi
visitala verði lögfest, er að sjálf
sögðu ekkert, sem hindrar það
að allar upplýsingar um málið
séu gefnar, þá er hægt að ræða
það frá öllum hliðum og hefur
að sjálfsögðu aldrei staðið til,
þegar það skref yrði stigið, að
allair upplýsingar yrðu um mál-
ið gefnar.
Fyrirspurnin er þess efnis
hvernig vísitala sú, er miðast
við neyzlurannsókn frá 1965 hafi
breytzt síðan tekið var að reikna
hana út. Fyrirspurnin er nokkuð
óljós og kann svar mitt að bera
þess nokkur merki, vegna þess
að þegar rætt er um breytingar á
vísitölunni, er almennt talað um
heildarvísitöluna hvað hún hafi
toreytzt og ég hefi því miðað
ovör mín við það.
Samkv. þeim upplýsingum sem
liggja fyrir í aths. með frv. rík-
isstj. um efnahagsaðgerðir, voru
útgjöld hinna hundxað fjöl-
skyldina, sem tóku þátt í neyzlu
rannsókninni færð fram til verð
lags 1. febrúar 1966. Síðan hefur
þessi nýi vísitölugrunnur verið
reiknaður 3. hvern mánuð miðað
við verðlag 1. maí, og 1. nóv-
ember. Ef heildarútgjöld hins
nýja grundvallax 1. febrúar 1966
eru sett 100, eru samsvarandi
vísitölur síðan þá sem hér seg-
ir:
1. maí 1966: 103 stig, 1. ágúst
1966: 105,2 stig, 1. nóvember
1966: 106,1 stig, 1. febrúar 1967:
106,3 stig, 1. mai 1967: 106,7 stig,
og 1. ágúst 1967: 107,1 stig. Næsti
Tvö jorð-
söluirumvörp
LÖGÐ hafa verið fram tvö frum
vörp tffl. laga um jaxðasölur rík-
issjóðs. Fjallar aonnað frumvarjJ-
ið um heimild fyrir ríkisstjórn-
ina að selja eyðijörðina Hól í
Ölfusi í Árnessýslu, — flutnings-
maður er Guðlaugur Gíslason.
HiU frumvarpið gerir ráð fyrir
heimild ríkisstjóxnarinnar til að
selja eyðijörðina Holt í Dyrhóla-
hreppi i Veatur-Skaftafellssýslu
Flutningsmenn frumvarpsins eru
Guðlaugur Gíslason og Ágúst
Þorvaldsson.
útreikningur hins nýja grunns
verður miðaður við 1. nóvember
n.k.
Þess má geta um leið, að nú-
gildandi framfærsluvísitala
hækkaði á tímabilinu frá 1. febr.
1966 til 1. ágúst 1967 úr 133,1
stigi í 195,1 stig eða 6,6%, en
sú hækkun var tilkomin áður
en verðstöðvunaraðgerðirnar
komu til. Að öðru leyti vil ég
vísa hér til greinargerðar, sem
ég hefi látið útbýta til allra
þingmanna. Henni fylgir yfirlit
er sýnir meðalársútgjöld hinna
100 fjölskyldna, annars vegar
miðað við 1. febrúar og hins veg
ar 1. ágúst 1967 með skiptingu
í neyzluflokka. Þar er og hlut-
fallsleg skipting neyzluútgjalda
samkv. hinum nýja vísitölu-
grunni borinn saman við skipt-
ingu útgjalda samkv. gildandi
framfærsluvísitölu. Nú skal ég
ekki um það fullyrða hvort
þessar upplýsingar fullnægja að
öllu leyti því, sem hv. þm. var
að ræða um. Ég býst að vísu
ekki við. að þær fullnægi að því
leyti til, að það sé birt, hvaða
breyting hafi orðið á þvi tíma-
bili, sem ég gat um á hverjum
einasta lið vísitölunnar. Það er
auðvitað hægt að komast eftir
því líka, ef menn vilja, en eins
og hv. þingm. sagði, er þetta
svo flókið mál og tölulegt, að
það er ómögulegt að vera að lesa
það hér upp, svo að ég valdi
heldur þann kost að láta útbýta
þessu skjiali og telji menn það
ekki fullnægjandi, er hægurinn
hjá, að frekari upplýsinga verði
aiflað í sambandi við frv. um
efnahagsaðgerðir þær, sem vísi
tölumálið er einmitt tekið til
meðferðar.
Frumvarp um
byggðajafnvœgi
Tilboð í Listahúsið, sem Reykja-
flokksins hafa lagt fram frum-
varp til laga um sérstakar ráð-
stafanir til að stuðla að vernd-
un og eflingu landsbyggðar og
boma í veg fyrir eyðingu lífvæn-
legra byggðarlaga. Flutnings-
mennirnir eru: Gísli Guðmunds-
son, Guðmundur Jónasson, Hall-
dór E. Sigurðsson, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Ágúst Þorvaldsson
og Sigurvin Einarsson.
1. kafli lagafrumvarpsins fjall
um tilgang laganna og störf
Byggðaj afnvægisnefndar og seg-
ir þar m.a. svo: „Tilgangur þess-
ara laga er, að stuðla að jafn-
vægi í byggð landsins með rann
sóknarstörfum, áætlunargerð og
fjárihagslegum stuðningi til fram
kvæmda og eflingar atvinnulífi
í þeim landshlutum, þar sem
bein, eða hlutfallsleg fólksfækk-
un hefur átt sér stað undanfarið,
eða er talin yfirvofandi.
Sameinað Aiþingi kýs, að lokn
um alþingiskosningum hverju
sinni, sjö rnanna Byggðajafnvæg
isnefnd og jafnmarga til vara.
Nefndin lætur gera áætlanir
og stjórnar Byggðajafnvægis-
sjóði og ráðstafar eignar- og um-
ráðafé hans. Byggðajafnvægis-
nefnd safnar efni til skýrslu-
gerðar og lætur árlega gera
skýrsl.ur um þau atriði, sem
þykja máli skipta í sambandi
við verksvið hennar.
Stjórnarfrumvarp:
Breyting á
siglingarlögum
LAGT hefuT verið fram á Al-
þingi stjórnarfrumvarp um
breytingu á siglingalögum frá
Margþátta upplýsingar um
Tryggingastofnun ríkisins
■ komu fram í svari félagsmálaráðherra við fyrirspurn
EGGERT G. Þorsteinsson félags
málaráðherra svarið í gær á
fundi Sameinaðs Alþingis fram-
kominni fyrirspum frá Skúla
Guðmiundssyni um Trygginga-
stofnun ríkisins S Reykjavík. Var
fyrirspum Skúla eftirfarandi:
Hvað eru margir starfsmenn
hjá Tryggingastofnun ríkisins í
Reykjavík árið 1966?
Hvað námu launagreiðslur til
þeirra mikilli fjárhæð samtals
á þvi ári?
Hve mikill var annar kostnað
ur við rekstur stofnunarinnar í
Reykj'a vík það ár?
Hvað voru margir umboðs-
menn og starfsmenn Trygginga-
stofnunarinnar utan Reykjavíkur
árið 1966?
Hver voru helztu störf þeirra?
Hve miklu námu greiðslur til
þeirra fyrir unnin störf í þágu
stofnunarinnar alls á árinu?
Hve miklu samtals nam ann-
$r kostnaður stofnunarinnar utan
Reykjavíkur, á því ári ef ein-
hver var?
Eggert G. Þorsteinsson félags-
málaráðherra svaraði á þessa
leið:
I desember 1966 voru fastráðn
ir starfsmenn við aðalskrifstofu
1 Reykjavík og bótagreiðslur hjá
Tryggingastofnun ríkisins 52.
Lausráðnir 28, en á árinu höfðu
aiub þess 67 menn tekið greiðsl-
ur, sem færðar hafa verið á
launakostnað fyrir stjórnarstörf,
nefndarstörf, endurskoðun, tíma-
toundin sumarstörf og ræstingu
og höfðu hætt störfum á árinu.
Launagreiðslur til þessara aðilja
námu allt árið 14 millj. 917 þús.
64®,78 kr. Annar kostnaður við
stofnunina nam 15 millj. 525 þús.
809,02 kr. En þar er í falið
greiðsla til úthlutunarnefnda at-
vinnuleysisbóta, umboðsmanna
og ríkissjóðs vegna starfa á skrif
stofu umboðsmanna kr. 8 millj.
647 þús. 142,71 kr. og er því
kostnaður skriflstoíunnar í
Reykjavík 6 millj. 878 þús. 666,
3>1 kr.
Samkv. 1. eru sýslumenn og
bæjarfógetar umboðsmenn stofn
unarinnar og hefur það verið
■túlkað svo, að þar sem sérstak-
ir lögreglustjórar starfa, svo
sem í Bólshreppi og Keflavíkur-
flugvelli séu þeir einnig umboðs
menn stofnunarinnar. Þessir um
boðsmenn eru 25 talsins, og
starfsmenn þeirra, sem vinna að
tryggingarmálum, eru starfs-
menn ríkisins og ekki skráðir á
starfsskrá hjá Tryggingastofnun
inni sérstaklega, enda ríkissjóði
greitt samtals 6 millj. kr á áirinu
1966 vegna starfa þeirra manna,
og annars kostnaðar þar að lút-
andi. Aðalstörf umboðsmanna
eru umboðsstörf fyrir lffeyris-
tryggingar móttaka bótaum-
sókna, úrskurður bóta annarra
en heimildarbóta, útborgun og
reikningsskil. Allir þessir um-
iboðsmenn eru innheimtumenn
ríkissjóðs og sem slíkir inn-
heimta þeir iðgjöld til stofnun-
arinnar hver í sínu umdæmi og
framlög sveitarfélaganna. Sýslu
menn eru formenn stjórna hér-
aðssamlaga. en það eru störf
fyrir hlutaðeigandi sjúkrasam-
lög, sem þó hlíta um sjón og yf-
irstjórn Tryggingastofnunarinn-
ar. Tryggingastofnunin leitar
að jafnaði til þeirra um aðrar
upplýsingar, sem nauðsynlegar
eru úr umdæminu. Umboðsmenn
eiga að endurskoða bótaúrskurði
í héraði til atvinnuleysingja og
greiða til úthlutunarnefnda. Fyr
ir þessi störf greiðir Trygginga-
stofnunin eins og áður segir rík-
issjóði 6 millj. kr. á árinu 1966,
en umboðslaun og innheimtu-
laun og annar kostnaður utan
Reykjavíkur greiddur á árinu
1966, nam 2 millj. 647 þúsund
142,71 kr. eða samtals kostnað-
ur utan Reykjavíkur 8 millj. 647
millj. 647 þús 142,71 kr. Það
skai fram tekið, að umboðsmenn
hafa nokkur afskipti af slysa-
tryggingu og að jafnaði eru slysa
toætur greiddar til embættanna
sem skila þeim til bótaþega. Eins
og þegar er fram tekið, eru um
boðsstörfin fyrst og fremst og að
allega unnin vegna lífeyristrygg-
inga, en lífeyristryggingarnar
toera lögum samkv. kostnað
vegna umsjónar og yfirstjórnar
sjúkratrygginga. Önnur starf-
semi á vegum Tryggingastofnun
arinnar eru slysatryggingar,
erfðafjársjóður, byggingarsjóð-
ur aldraðs fólks, afgreiðsla og
reikningshald atvinnuleysistrygg
Framhald á bls. 2
des. 1963. Var frumvarp þetta
flutt á sl. Alþingi, en hlaut þá
ekki afgreiðslu. f greinargerð
frumvarpsins segir m.a., að
frumvarp þetta sé flutt af því
tilefni, að ríkisstjórnin telur
nauðsynlegt vegna íslenzkra
hagsmuna, að fsland gerist að-
xli að alþjóðasamþykkt um tak-
mörkun á ábyrgð útgerðar-
manna, sem gerð var í Brússel
10. okt. 1957. Er jafnfraniit þessu
frumivarpi borið fram annað
frumvarp um heimild handa rík-
iisstjórninni til að staðfesta
greinda alþjóðasamþykkt fyrir
íslands hönd. En breyting á nú-
gildandi ákvæðum siglingalaga
um takmarkaða ábyrgð jútgerð-
armanna, er skilyrði fyrir því, að
Ísland geti gerzt aðili að henni.
Fyrirspurnir
leyfðor
Á FUNDI Sameinaðs Alþingis í
gær var ákveðið, að um fram-
komna þingsályktunartillögu um
friðun Þingvalla verði viðhöfð
ein umræða. Þá var ennfremur
leyfð fyrirspurn um verndun
hiýgningarsvæða með 42 sam-
hljóða atkvæðum og fyrirspurn
.um dreifingu sjónvarps með 48
samhljóða atkvæðum.
RITSTJÓRN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA*SKRIFSTOFA
SÍMI 10-100
Skipverjar af varðskipinu Albert eru þarna komnir
unum að vélarhúsinu. (Ljósm.: Leif Bryde).
borð i Straumnesið og beina slöng-
Sjá frétt á blaðsíðu 11.