Morgunblaðið - 26.10.1967, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. OKT. 1967
23
Tryggvi Gunnarsson
— Minningarorð
TRYGGVI Gunnarsson, glímu-
konungur, er fallinn fyrir æðra
valdi en mannlegum mætti.
Því læt ég þennan titil fylgja
nafni hanS, að við hann var
hann tengdur og þekktur meðal
samtíðarmanna sinna í hinni
gömlu Reykjavík, frá því er
hann sigraði á sínum tíma hinn
> >
IÞIHITTAFRITTIR nt«U»
mikla íþrótta- og glímugarp,
Sigurjón Pétursson í íslands-
glímunni og fékk þarmeð titil-
inn glímukóngur íslands, þá nýr
og lítt þekktur á íþróttasviðinu.
Með þeim sigri byrjaði hans
frægi íþróttaferill, sem varði
þar til hann yfirgaf íþróttavang-
inn „ósigraður".
Tryggvi tók þátt í flestum í-
þróttagreinum, sem voru þá iðk-
aðar, og bar allstaðar hæstan
hlut. Enda hafa ýmsir íþrótta-
frömuðir,s em þekktu hreysti og
hæfni Tryggva, haldið því fram,
að hann hafi verið jafnvigasti í-
þróttamaður, sem hefur komið
fram á sjónarsviðið á þessari
öld og, jafnvel þótt lengra sé
farið.
Hann fæddist í þennan heim
10. júní 1895 og var því fullra
72 ára, er hann lézt í Landsspít-
alanum eftir stutta legu, 19. þ. m.
Tryggvi Gunnar Júní Gunn-
arsson, en það var hans fulla
nafn, var einn þeirra manna,
sem settu stóran svip á hina
gömlu Reykjavík, því auk sinn-
ar íþróttafrægðar, var maðurinn
óvenjulega glæsilegur, ungur
maður að vallarsýn, svo að það
sópaði að honum, hvar sem hann
fór, fríður sýnum, hár vexti,
limaléttur með mjúkar hreyfing
ar, og samsvaraði sér vel, hvar
sem á hann var litið.
Þessa lýsingu á hans ytra per-
sónugervi, ætla ég að flestir
hinna eldri bæjai'manna undir-
skrifi.
Um hið innra gervi verða að
sjálfsögðu skiptar skoðanir eins
og gengur eftir misnánum kynn-
um, og mati á eðlisþáttum við-
komanda.
Ég hafði ekki hugsað mér að
fjölyrða um okkar persónulegu
kynni ,og sízt að leggja þau und-
ir dóm fjöldans. En þau voru
orðin hálfrar aldar gömul og að
sjálfsögðu kennir margra grasa
á svo löngum tíma. Einn eðlis-
kost hins framliðna vil ég þó
sérstaklega undirstrika, sem ekki
er ríkur hjá þorra manna, að
hann var mjög vægur í dómum
sínum um bresti í fari náungans.
Tryggvi kvæntist gjörvulegri
konu, Guðrúnu Guðmundsdótt-
ur, og átti með henni 12 mynd-
arleg börn og eru 10 þeirra á
lífi, 2 dóu ung. Guðrún reyndist
manni sínum óvenjulega góð og
fórnfús kona, sem oft kom sér
vel í lífinu, í uppeldi svona
margra barna o. fl. erfiðleika,
sem steðjuðu að eins og oft vill
ganga, og henni vil ég gefa þann
titil, sem nákunnugur öll þessi
ár: „Hún var hetja“, sem dugði
bezt, þegar á reyndi mest.
Og það veit ég að Tryggva var
ljóst, þótt hann hefði ekki mörg
orð þar um. Enda var það hans
háttur að vera fámáll um sín
einkamál.
Ég vil svo að lokum þakka
þær góðu stundir, sem við átt-
um saman þennan langa tíma í
lífinu, sem að sjálfsögðu voru
margar, því við Tryggvi þekkt-
umst á sínum tíma betur og dáð-
um hvorn annan meir en al-
mennt gerist.
Svo óska ég þér, gamli vin,
góðrar heimferðar til ljóssins
heima á landi eilífðarinnar, og
vona að þú haldir þar áfram
þinni sigurför sem þú byrjaðir
hér.
Hjörleifur M. Jónsson.
í DAG er jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju Tryggvi Gunnarsson,
bílstjóri, fyrrum glímukappi.
Með honum er genginn mikill
afreksmaður og drengur góður,
sérstæður persónuleiki, eftir-
minnilegur þeim, er honum
kynntust.
ísland hefur átt marga frækna
íþróttamenn, en vafasamt tel ég,
hvort margir hafi fæðzt á þessu
landi, sem voru jafn mörgum
íþróttum búinn og Tryggvi Gunn
arsson. Allir, Sem eitthvað
þekkja til íslenzkrar glímu, vita,
að Tryggvi var glímukappi ís-
lands á sinni tíð, glímukóngur,
eins og það var þá kallað. Hitt
vita ef til vill færri, að á þeim
árum var hann jafnframt — og
ekki síður — fræknastur allra
frjálsíþróttamanna hér í bæ.
Tryggvi var slíkur, að hann
hljóp hraðar en aðrir menn,
stökk hærra og kastaði spjóti
lengra en aðrir. Hann var sterk-
ari en flestir aðrir, en hann var
ekki vöðvafjall, þótt hann væri
afrenndur af afli, herðibreiður
og beinvaxinn. Hann hafði til
að bera fjaðurmýkt og styrkleika
stálsins, snerpu og mýkt, — allt
í senn.
Vafalaust geymist þessi mynd
af Tryggva Gunnarssyni lengst
í hugum okkar, sem þekktum
hann, og það er ánægjulegt að
eiga slíka mynd af þessum ítur-
vaxna manni, sigurvegaranum á
glímupallinujn og íþróttaleik-
vanginum. Og þrátt fyrir allar
framfarir á sviði íþróttamála,
betri keppnis- og þjálfunarað-
stöðu, íþróttakennara, þjálfara,
þrekmælitækja og allt annað,
sem nú heyrir til, — er mér til
efs, að fjölhæfari íþróttamaður
hafi verið uppi á þessari öld en
Tryggvi Gunnarsson.
Tryggvi var mestan hluta ævi
sinnar vínhneigður, og er þetta
hvorki sagt honum til lasts né
lofs. Hér með er ekki varpað
rýrð á mínningu hans með því
að geta þess. Minningin um hann
bliknar ekki af þeirri sök, frem-
ur en margra mætra manna, sem
þannig hafa verið gerðir.
Það mun hafa verið árið 1940,
að ég kynntist Tryggva Gunn-
orssyni. Að vísu hafði ég þekkt
hann af orðspori sem frábæran
íþróttamann, kappann, sem hafði
lagt að velli snjöllustu glímu-
menn landsins og borið frægðar-
orð af hlaupurum og spjótköst-
urum sinnar tíðar. Kunnings-
skapur okkar hélzt alla tíð síð-
an, þótt fundum okkar bæri
sjaldan saman síðustu fimmtán
árin. En á árunum 1941—51 tók-
um við oft glas saman, en því
nefni ég það, að vínið bar
Tryggva aldrei ofurliði, smækk-
aði hann ekki, eða gerði hann að
lítilmenni eða hrotta. Stundum
bar það við, að menn vildu
bekkjast til við Tryggva í öldur-
húsi, en aldi-ei vissi ég til, að
hann neytti yfirburða krafta
sinna, — hann stjakaði í hæsta
lagi hvimleiðum nöldurseggjum
frá með styrkum handlegg sín-
um, brosti máske og bað ófrið-
armanninn um að fara eitthvað
annað með tilburði sína. Þannig
minist ég Tryggva, mannsins,
sem aldrei neytti kraftanna til
þess að sýnast eða til þess að
meiða.
Tryggvi Gunnarsson var far-
sæll maður, —- hann eignaðist
Framhald á bls. 24
Grófur varnarleikur 1. deildarliðs Fram hefur verið gagnrýndur hér á siðunni. En þessi mynd,
tekin i leik Fram gegn ÍR sl. laugardag í 3. flokki, sýnir að hinir ungu Framar eru í engu eftir-
bátar þeim eldri. Þó tveir Framarar séu innan teigs — og tveir haldi í ÍR-inginn, var aðeins
dæmt aukakast. Segið svo að að dómarar geti ekki ráðið úrslitum leikja.
íþróttir
Framhald af bls. 30
sá á undan og einkenndist af
hörku og hraða og virðast ungu
stúlkurnar vera búnar að ná
lagi á því að brjóta af sér, enda
voru dæmd alls 6 víti í þessum
stutta leik.
KR skoraði fyrsta markið, en
Fram jafnaði og náði forskoti og
í hálfleik stóð 3-2 fyrir Fram. f
seinni hiálfleik skioruðu bæði lið-
in 2 mörk og endaði leikurinn
4-4. —
Hjá KR voru beztar Guðrún,
Rósa og Kolbrún, en tvær síðast
nefndu skoruðu 2 mörk.
Hjá Fram bar Oddný af hvað
skot snerti, en hún skoraði 3
mörk. Aðrar eru og ágætar.
1. flokkur kvenna,
KR — Fram, 6-6
Segja má að þetta hafi verið
daufasti leikur kvöldsins, enda
lítill baráttuvilji fyrir hendi og
mega 1. flokks stúlkurnar taka
á, ef þær ætla ekki að láta yngri
stúlkurnar skjóta sér ref fyrir
rass.
KR hafði forystu allan fyrri
hálfleik, eri Fram jafnaði fyrir
hlé. í seinni hálfleik hafði Fram
forystu, en KR tókst að jafna
fyrir leikslok, 6-6.
Líflegastar hjá Fram voru
Erla og Sigrún, skoruðu báðar
2 mörk, en hjá KR var Sigrún
skothörðust með 4 mörk, hin tvö
skoraði Edda.
3. flokkur karla,
Valur — ÍR, 7-5
Drengjaleikirnir buðu enn sem
fyrr upp á hraða, hörku og
spennu og var það mjög ríkjandi
í leik Vals og ÍR.
Hinir knáu ÍR-ingar hófu leik-
inn af miklum hraða, en Valur
svaraði með harðri vörn, en IR-
ingarnir voru samt yfir í hálf-
leik, 4-3. í seinni hálfleik jafn-
aði Valur strax og jókst spennan
af miklum mun og mátti vart á
milli sjá, en þá brást vörnin hjá
ÍR og Valur skorar 2 mörk. Við
það harðnaði leikurinn enn
meira og missti dómarinn öll tök
á leiknum, sem endaði með á-
flogum og 7-5 fyrir Val.
ÍR-ingarnir byrjuðu leikinn
vel, en voru ekki nógu harðir í
lokin og urðu þar af leiðandi að
láta í minni pokann. Aðalstoðir
liðsins eru Tryggvi, Gunnar og
tvíburarnir Hörður og Haukur,
en markhæstir voru tveir fyrr-
nefndu með 2 mörk hvor.
Valur hagnaðist verulega á
bröturium í þessum leik, en átti
þó skilið að vinna að þessu sinni.
Sigurður skoraði 3 mörk og
Kristinn á línunni 2.
3. flokkur karla,
Ármann — Víkingur, 9-7
Víkingur tók forystu í upphafi
og stóð 5-3 fyrir þá í hálfleik. í
síðari hálfleik unnu svo Ármenn
ingarnir á og tóku leikinn smám
saman í sinar hendur og jöfnuðu
metin, 6-6, og náði spennan þá
hámarki. Var nú hraðinn orðinn
geysimikill og harkan eftir því,
en úthald Víkinga var á þrotum
og fengu þeir á sig 3 mörk á
móti einu og vann Ármann þar
með annan leik sinn í mótinu.
Úthaldsleysi Víkinga gerði út
um leikinn, en annars á Víking-
ur góðum liðsmönnum á að
skipa. Hjá þeim skoruðu Krist-
inn 3 mörk og Guðgeir 2.
Ármenningar byrjuðu rólega,
en hertu sig undir lokin og áttu
sigur fyllilega skilið. Beztur var
Ingólfur í markinu þó hann
kæmist ekki almennilega „í
gang“ fyrr en í seinni hálfleik
og Ólafur, sem skoraði 3 lagleg
mörk. Snorri á linunni er mjög
sterkur sakir hæðar sinnar.
3. flokkur karla,
Fram — KR, 10-7
í síðasta leik kvöldsins, sem
var mjög skemmtilegur og harð-
ur, tókst Fram að sigra 10-7 eftir
að leikurinn hafði verið mjög tví
sýnn allt fram í miðjan seinni
hálfleik, enþ á fór KR-vörnin úr
skorðum og sóknin einkenndist
af fumi og skoruðu Framarar
létt síðustu 4 mörkin í röð.
Fram slapp miklu betur frá
þessum leik, en við ÍR á síðasta
leikkvöldi. Beztur er Jón Helgi,
en hann skoraði 3 mörk, öll af
línu, Guðmundur, Stefán og
Gunnlaugur einnig góðir, skor-
uðu 2 mörk hver.
KR-ingar st.óðu sig vel fram-
an af meðan þeir héldu í við
Fram, en voru ofurliði bornir í
lokin. Haukur skoraði 3 mörk og
er hann og Magnús virkustu
menn liðsins.
Dómararnir Birgir og Helgi
Þorvaldssynir áttu yfirleitt mjög
slæmt kvöld, en þeir virtust
ekki kunna nægileg skil á brot-
um eða alls ekki sjá þau og
misstu þeir völdin á leikjunum
hvað eftir annað og töpuðu sum
liðin mjög á því.
Kr. Ben.
Réttarhöld gegn
Mafíu-mönnum
Catanzaro, 2'5. okt. — AP-NTB
UM 150 manns hafa verið dregn-
ir fyrir rétt í borginni Gatanzaro
á Ítalíu, ákærðir fyrir fjölda-
morð og hryðjuverk á vegum
Mafíunnar á Sikiley. Þessir
menn unnu allir fyrir Mafíuna
á eynni, sem klofnaði í tvo stríð-
andi neðanjarðarflokka árið
1962, þegar Mafíu-foringinn
„Lucky“ Luciano lézt. Valdabar-
átta þessara tveggja hópa hefur
kostað a.m.k. 20 manns lífið, þar
af sjö lögreglumenn.
Foringjar þessara hópa, Angeio
la Barbera og Pietro Torretta,
ganga enn lausir og fara, að sögn
lögreglunnar, huldu höfði. Við
hryðjuverk sín notuðu glæpa-
mennirnir vélbyssur, eða komu
sprengjuhleðslum fyrir í bilvél-
um. Lögreglumennina sjö'myrtu
þeir í nánd við Palermo fyrir
fjórum árum með því að koma
fyrir dinamíthleðslu í bifreið
þeirra. Þessi morð ollu um.fangs-
mestu lögreglurannsóknum gegn
Mafíunni á árunum eftir siðari
heimsstyrjöldina og margir
þeirra, ,sem nú verða leiddir fyr-
ir rétt voru handteknir þá. Rétt-
arhöldin munu, að sögn, taka
sex mánuði.
— íþróttir
Framhald af bíls. 30
sem eftir eru í keppninni um
Evrópubikar meistaraliða. — En
hægt er að tapa með sæmd og
fullri virðingu, ástæðulaust að
gefast upp og gefa allt á bát-
inn. Það kostar stundum dálítið
að vera íslandsmeistari! — En
flestir hlutir hjá ísl. liðum eru
heppni háðir. — A. St.
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4*8Q