Morgunblaðið - 28.10.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.10.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. OKT. 1987 E. J. Knapp, liðsforingi, afhendir Guðmundi Magnússyni straumdeilinn. Aðgerðir til þess að draga úr greiðsluhc lla við útlönd: 15-25% innborgun bundin í 3 mán. — Rekstrar- og hrávörur undanþegnar í FRÉTTATILKYNNINGU frá Seðlabanka fslands er frá því skýrt, að Seðlabank- inn hafi birt nýjar reglur um innborganir vegna innflutn- ings, í framhaldi af breytingu á reglugerð um skipan gjald- eyris- og innflutningsmála. Um leið og sala gjaldeyris fyrir innflutningi fer fram skal greiða 15% innborgun, sem bundin verður í þrjá. mánuði enda sé ekki um greiðslufrest að ræða. Sé vara flutt inn með greiðslu- fresti, en án ábyrgðar hækk- ar innborgun um 15% þ.e.a.s. úr 10%, sem í gildi er í 25%. Innborgun þessi skal standa meðan greiðslufrestur varir, þó ekki skemur en þrjá mán uði. Undanþegnar þessum ákvæðum verða allar helztu rekstrar- og hrávörur. Ákvörðun þessi tekur gildi n.k. mánudag 30. okt. Til- gangur þessara aðgerða er að draga úr sívaxandi halla á greiðsluviðskiptum við út- lönd en á fyrstu níu mánuð- um þessa árs var útflutning- ur rúmlega 1000 millj. lægri en á sama tíma í fyrra en innflutningur um 3% hærri. í viðtali við Mbl. í gær- kvöldi minnti dr. Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri á, að verulegar innborganir hefðu verið í gildi fram á árið 1962, en með öðrum hætti en nú er ráðgert. Seðlabankastjórinn sagði jafnframt, að þrátt fyrir lækkun útflutningstekna hefði ekki dregið úr innflutn ingi, en nauðsynlegt væri að svo yrði. Fréttatilkynning Seðla- bankans fer hér á eftir í heild: í FRAMHALDI af breytingu á reglugerð um skipan gjaldeyr- is og innflutningsmála o.fl., sem gefin var út af viðskiptamála- ráðuneytinu í dag, hefur Seðla- bankinn birt auglýsingar um nýj ar reglur um innborganir vegna innflutnings. í hinum nýju reglum felst að greiða þarf 15% innborgun, um leið og sala gjaldeyris fyrir inn flutningi fer fram, enda sé ekki um greiðslufrest að ræða, og verður innborgunin bundin í þrjá mánuði. Sé vara flutt inn með greiðslufresti, en án á- byrgðar, hækkar innborgun um 15%, þ.e.a.s. úr 10% sem nú er í gildi, í 25%. Innborgun þessi stendur, á meðan greiðslufrest- ur er, en þó ekki skemur en þrjá mánuði. Undanþegnar þess Framh. á bls. 27 Til Kísiliðjunnar á síðustu stundu EINN af hlutum þeim, sem átti að fara til Kísiliðjunnar í Mý- vatnssveit, lenti í örlagaríkri villu, sem nær hafði valdið því, að ekki yrði hægt að gangsetja verksmiðjuna á fyrirhuguðum tíma. Var hér um að ræða straum deili, sem vegur um þrjú tonn og keyptur var frá Bandaríkjun- um. Vegna rangrar afgreiðslu var straumdeilinum beint til Perú í stað Bjarnarflags og komust þessi mistök ekki upp fyrr en á föstudaginn var. Þá var of seint að fá tækið bingað með skipi, þess að flugvélar íslenzku flug- félaganna gætu tekið það. Var því leitað til yfirmanns Bandaríkjahers í Keflavík, F. B. Stones aðmíráls, og hann beð- inn um aðstoð við flutning straumdeilisins til landsins. Brást hann vel við og sl. miðvikudag kom straumdeilirinn til Kefla- víkurflugvallar með flugvél frá Bandaríkjaher. Var þegar í stað haldið með hann á bíl áleiðis til Mývatnssveitar. Hinn almenni kirkju- fundur hefst á morgun HINN almenni kirkjufundur stendur yfir í Reykjavík dagana 29. okt. til 1. nóv. Aðalmál fund- arins eru tvö: Ábyrgð þjóðarinn- ar á æsku, trú og tungu og í öðru lagi minning siðbótarinnar. Á sunnudagsmorgun kl. 11 verð- ur hátíðamessa í Dómkirkjunni. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson prédikar og minnist siðbótarinnar, organleikari er Ragnar Björnsson og dómkórinn syngur. Sama dag kl. 17 verður fundurinn settur í Dómkirkjunni. Við fundarsetningu syngur Kammerkórinn undir stjórn Ruth Little Magnússon lög frá sið- bótaröld. Dr. Róbert A. Ottósson kynnir efni þeirra. Þá flytur Þórhallur Höskuldsson stud. theol. erindi eftir séra Heimi Steinsson um siðbót og móður- mál. Almennur söngur er í upp- hafi fundar og við fundarlok. Á mánudag hefst fundur með morgunbænum kl. 9,30, en kl. 10—12 verða flutt framsöguer- Sjálfstæðisfélag Oarða- og Bessa staðahrepps ANNAÐ spilakvöld félagsins verður mánudaginn 30. þ.m. í samkomuhúsinu á Garðaholti kl. 20.30. Góð verðlaun verða veitt. indi um aðalmál fundarins. Fram sögumenn verða Hannes J. Magn ússon, rithöfundur, séra Ingólfur Guðmundsson og séra Jón Bjarman. Kl. 14—16 fyltja frams. erindj frú Lára Sigurbjörnsdóttir og séra Helgi Tryggvason og kl. 17—19 flytja framsöguerindi Árni Böðvarsson cand mag., Helga Magnúsdóttir kennari og flutt verður erindi eftir séra Pét- ur Sigurgeirsson á Akureyri. Á þriðjudag hefst fundur með morgunbænum kl. 9,30 og kl. 10 flytur Hjörtur E. Guðmundsson framsöguerindi og umræ.ður verða. Kl. 11 lagðir fram frum- drættir að álitsgerð. Kl. 14—16 flytja dr. Árni Árnason og Ást- ráður Sigursteindórsson og al- mennar umræður verða. Kl. 17 sama dag flytur Jóhann Hannes- son prófessor erindi um kenn- ingu Lúthers um góð verk. Á miðvikudag verður skilað álits- gerð og kosið í nýja undirbún- ingsnefnd og fundarslit um kvöld ið. EKIÐ var á bifreiðina Y-2319 þar sem hún stóð fyrir utan hús ið Borgarholtsbraut 54. Þetta mun hafa gerzt á tímabilinu frá kl. 21—8 aðfaranútt föstudags. Skemmdist hægra afturbrétti bifreiðarinnar ásamt hurð. Þeir sem einhverjar upplýsingar gætu gefið eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Kópá vogi. Valgarð Briem, formaður fram kvæmdanefndar H-umferðar, ásamt sænsku H-mönnunuim, þeim Backlud, Göran Tholerus, Ott osson og Eiworth. Upplýsingamiðstöð um H-umferð senn opnuð Sœnsku H-mennirnir hafa gert áœtlanir um 5 áróðursherterðir UPPLÝSING AMIÐ STÖÐ hægri umferðar verðlur opnuð aður en langt um líður, en hún mun ann ast kynningarstarfsemi á fyrir- Scmkomulag í Öryggisrúðinn New York, 27. október. AP FULLTRÚAR sex ríkja í Öryggisráði SÞ hafa náð samkomulagi um ályktunar- tillögu þess efnis, að Sam- einuðu þjóðirnar sendi sér- stakan fulltrúa til Austur- landa nær til þess að finna frambúðarlausn á deilumál- unum austur þar. Tillagan, sem er borin fram af fulltrúum Indlands, Brasilíu, Argentínu, Nígeríu, Mali og Eþíópíu, verður lögð fyrir fulltrúa fjögurra annarra ríkja, sem kjörnir eru í ráðið — þ.e. Kanada, Japans, Danmerkur og Búlg- aríu. Alls eiga 15 ríki full- trúa í ráðinu. Ekki hefur verið skýrt frá efni tillögunnar í einstökum atriðum, en talið er að hún sé í höfuðatriðum samhljóða tillögu, sem Indverjar hafa borið fram. hugaðri breytingu til skóla og fjölmiðlunartækja, svo og getur ailur lalmenningur leitað þangað um upplýsingar varðandi hægri umferðina. Pétur Sveinbjamar- son, umferðarfulltrúi Reykjavík- urborgar, og Ragnar Kjartans- son, framkvæmdastjóri, munu hafa yfirumsjón með þessa mið- stöð. Ekki er talið, að meiri erfið- leikar verði bundið að kóma hægrj umferð á hér á íslandi en í Svíþjóð, og jafnvel auð- veldara. Ekki er heldur óttast, að aukning verði á slysum í um- ferðinni þegar breytingin hefur verið framkvæmd. Er þar aðal- lega miðað við reynslu Svía í þessum efnum, en þar hefur slysahlutfallið eftir breytinguna ekki verið eins lágt undanfarin átta ár. Allt þetta kom fram á blaða- mannafundi með framkvæmda- nefnd hægri umferðar og fjór- um Svium, sem hér eru stadd- ir til aðstoðar íslenzkum aðilum er annast munu breytinguna. Eru Svíarnir þeir Gunnar Back- lund, upplýsingafulltrúi sænsku hægri nefndarinnar, Roland Ei- worth, frá sænska ríkisútvarp- inu, en hann hafði yfirumsjón með upplýsingamiðlun í útvarpi og sjónvarpi þar. Göran Thole- rus og Bengt-Áke Ottoson, sem höfðu forstöðu með upplýsinga- miðlun almennt. Hefur þeirra þáttur í umferðarbreytingunni í Svíþjóð þótt mjög heillaríkur, og þeirra starf við kynningar og dreifingu upplýsinga er talið eiga drjúgan þátt í því, hve breyt ingin þar yfir í hægri umferð tókst veL Þeir hafa dvalizt hérlendis í vikutíma, og verið til skrafs og ráðagerðar við ýmsa aðila. Þeir sendu á undan sér bráðabirgða- tillögu um áætlun varðandi dreifingu upplýsinga og kynning ar á fyrirhugaðri breytingu hér. Eftir komuna hafa þeir leiðrétt ýmislegt varðandi þessa áætlun, og m.a. gert nákvæma tímasetn- ingu á fyrirhugaða dagskrá. Er hún til meðferðar hjá fram- kvæmdanefndinni og verð— ur tekin ákvörðun um hana inn an skamms. Áætlun sinni skipta Svíarnir í fimm áróðursherferðir, ef svo má að orði kveða. Fyrsta her- ferðin hefst 15. nóvember til 10. desember og er þar lögð aðal- áherzla á að fá fram jákvæð viðhorf hjá almenningi gagnvart breytingunni og kynna því hvað gert hefur verið og hvað muni gerast. Hinn 10. desamber til 15. febrúar er svo fyrirhugað að kynna fólki umferðarreglurnar og hegðun í umferðinni. Þriðja herferðin stendur yfir allan marzmánuð, og þar er lögð meg- ináherzla á að kynná hvernig breytingin yfir í hægri fer fram í smáatriðum. Hinn 10. maí og fram að H-degi, 26. maí, er lögð aðaláherzla á að skýra fólki frá Framh. á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.