Morgunblaðið - 28.10.1967, Page 4

Morgunblaðið - 28.10.1967, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. OKT. 1967 5 a* IMAGIMÚSAR SKIPHOLT»21 SÍMAR 21190 eftir lokuri slmi 40381 ’ »á£» SIM11-44-44 m/UF/M Hverfisgötu 103. Sími eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BILALEIGAN - VAKUR - Sundaugaveg 12 - Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. RAUOARARSTÍG 3 • SlMI 22022 Riiskinnshreinsun Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, sími 23337. AU-ÐVITAÐ ALLTAF ★ Leyfilegur fjöldi í veitingahúsum „Krummi" skrifar (nöfn felld niður): „Vökull Velvakandi! Það hefur nú í tvígang ver- ið lokað kl. 23.3ö að XXX um helgi. Sem fyrrverandi starfs- maður og tíður gestur þessa ágæta húss, þá langar mig til að benda á þá staðreynd, að hin leyfða mannfjöldataia nær engri átt.Sem sagt: Það er alls ekki hægt að leyfa aðeins 265 manns að fara inn; það er bók staflega ekki „ballfært". Væri ekki hægt að endurskoða þetta „£ermetrasystem“ með hlið- sjón af byggingarlagi veitinga húsa? Svo og mætti athuga betur töluna hjá (sumum), sem eru byggð eins og tófu- gren, þar sem hægt er að hleypa fólkinu út á ótal vegu. Krummi". ★ Fuglatekja Færey- inga í Andey Oddný Bjarnadóttir skrif ar: „Kæri Velvakandi! Húsmóðir kvartaði í dál'kum þinum undan sláturaðferðum Færeyinga, sem sýndar voru í sjónvarpinu. Ég fékk nú fjarska svipaðar hugmyndir um þær fyrir næstum sextíu árum. Það rnun hafa verið ár- ið 1910, að við á Kolfreyju- stað fórum til göngu í Andey að vori til, eins og venja var þar. Og er við komum í eyj- una, var fuglinn svo stygg- ur, að ég get því ekki með orð- um lýst, og var það óvenju- legt, því að hann var vanur að vera svo spakur og hreyfa sig hvergi, þótt nærri væri komið. Sást undireins, að þar hefðu óboðnir verið á ferð. Svo fórum við að hefja göng- ur, en þegai upp á eyjuna kom, var ljótt um að líta. Þar stóð prik uppi á barði, og flýtt um við okkur þangað. Gleymi ég þeirri sjón ekki. Þar var stór snærisflæja á bakkanum, og þegar farið var að draga, komu átján æðarkollur hengd ar á eitt snæri og einn bliki. Til viðbótar þessum verknaði höfðu þeir (hér höfðu Færey- ingar verið á ferð) troðið um hreiðrin, þar sem farið var að unga út. Það er langt síðan þetta var, en ákveðna hug- mynd hef ég haft um Færey- inga síðan. Þessu get ég ekki gleymt, þó að ég sé komin hátt á nirætt. Oddný Bjarnadóttir.** Krían Velvakandi „Fuglavinur“ skrifar: „Kæri Velvakandi! Fyrir nokkrn var rætt um það hér, að sjónvarpið hefði kallað fugl einn „brúnternu.“ Fannst bréfritara einum það dönskulegt nafn, en Velvak- andi spurði, hvort ekki hefði verið rætt um „brúnþernu", en svo heitir Kría ein í Fugla bók Alir.enna bókafélagsins. og „þerna“ er gamalt, norrænt heiti á kríu; sbr. Þerney hér inni á Sundum (imdan Álfs- nesi). Ekki sá ég þennan sjónvarps þátt, en mér hefur dottið í hug, hvort ekki hafi verið átt við kríutegund, sem Englendingar nefna ýmist „sooty tern“, þ.e. sótþernu eða sótkríu, eða „wide-awake“, en það er ná- kvæm þýðing á nafni þínu, Velvakandi góður. Ekki er kría þessi jafn vinsæl og þú. Hún finnst helzt á Uppstigningardagsey, (Ascension Island)-, í Suður- Atlantshafi, þar sem flugvél- ar brezka flughersins höfðu oft viðkomu á styrjaldarárun- um seinustu, og var þar þá oft ill-lendandi fyrir kríuplágu. Sent þér til gamans og fróð- leiks. Fuglavinur." ýkr Svar til „stráka með áhuga“ Velvakandi treystist ekki til þess að kveða upp úrskurð í deiluefninu. Hvernig væri að skrifa íþróttaráði Reykjavikur eða fþróttasambcmdi íslands? Vinnan í Straums- vík „Einn óánægður“ skrifar m.a.: „Ég var einn af vélamönn- um hjá Strabag-Hochtief í Straumsvík, og greiddi ég fyrir atvinnuleyfi til Hlífar í Hafn- arfirði fyrir að £á að vinna á staðnum við sléttun landsins. Þegar því starfi var lokið, feng um við Reykvíkingar og aðrir starfsmenn loforð fyrir því að fá forgangsrétt á vinnu frá formanni Hlífar í Hafnarfirði, en það er ég hræddur um að hafi brugðizt hjá þeim góða manni. Þar sem ég lít á þetta sem þjóðarfyrirtæki, eins og ísfixðingurinn, sem skrifað hefur þér um þetta, en ekki sem prívatfyrirtæki Hlifar i Hafnarfirði, finnst mér þetta hart aðgöngu, einkum eftir gefið loforð. Ég segi eins og annar, sem hefur skrifað þér um þetta: Hvar er nú Guð- mundur J. og umhyggja Dags brúnar fyrir reykviskum laun- þegum? Einn óánægður." ic Mjólkurhyrnurn- ar enn „Húsmóðir** skrifar: „Velvakandi góður! Þú botnlausa tunna skamm- arbréfa og ómælanlega skart- gripaskrín ritsnilldarinnar! Má ég senda þér bréf til varð- veizlu í annarri hvorri þessari hirzlu. Minn hugur stefnir ekki hátt, hann dvelur við lífsins gagn og nauðsyn, þ.e. mjólk- ina og umbúðir hennar. Billiard borð Af sérstökum ástæðum er nýlegt follegt billiard- borð til sölu. Stærð 4x8 fet. Uppl. í símum 33131 og 37029. LAUS STAÐA Hjá lögreglustjóraembœttinu í Reykjavík er laus staða aðalritara, sem jafnframt annast skjalavörzlu. Góð æfing í vélritun og nokkur kunnátta í Norð- urlandamálum og ensku nauðsynleg. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist embættinu fyrir 10. nóvember n.k. Laun samkvæmt hinu almenna launakerfi opin- berra starfsmanna. Lögreglustjórinn í Reykjavík. 25. okt.óber 1967. Ég hef tillögu fram að færa. Flestar okkar þrá þessa marg- borgar hata hyrnurnar, eins og pestina. Hefur þú, eða nokkur annar, hitt fyrir þá húsmóður, sem gerir sig ánægða með þessa mjólkurpakkningu? Flestar okkar þrá þessa marg- lofuðu, 10-útra kassa, sem þeir hafa á Akureyri. Fyrir hönd kvenþjóðarinnar skammast ég mín fyrir, að við skulum láta faia svona með okkur. Ein og em kona, þó að hún rísi upp á afturfæturna, má sín lítils gagnvart svo mögn- uðu fyrirtæki sem Mjólkursam salan er. Hvar eru nú samtök kvenna? Erum við virkilega svo miklar einstaklingshyggju konur hér í henni Reykjavík, að við getum ekki staðið sam einaðar, í jafn einhuga máli og þetta er? Ég skora hér með á kven- félög höfuðborgarinnar og öll önnur samféiög kvenna, að taka þetta mál á dagskrá sína, hið allra bráðasta. Gerum mjólkurinnkaupa-verkfalL Setj um verkfallsverði við hverja mjólkurbúðardyr. Tökum fyrir öll mjólkurinnkaup, nema handa ungbörnum. Sýnum Mjólkursamsölunni óánægju okkar í verki. Sönnum henni það, að við látum ekki fara svona með okkur. Þig ávallt lesandi. Húsmóðir." -Jr „Andrarímur þykja mér góðar“ „XX“ skrifar: „Velvakandi góður! Viljið þér koma því á fram færi við Ríkisútvarpið og sjón varpið, að hraði lesturs og sýn inga verði tempraður — og umfram allt látið konur ekki lesa upp né kynna dagskrár. Ég er allur með kvenfólkinu, en þeirra elskulegu raddir hljóma illa i þessum svoköll- uðu „fjölmiðlunartækjum“. Ég vandist „baðstofulestri“ á uppvaxtarárum mínum, en ég man aldrei eftir að konur læsu. Látið þær gera eitthvað annað, en latið Þorstein ö. Stephensen, Loft Guðmunds- son, Séra Svein Víking, Vil- hjálm Þ. Gíslason og fleiri ágæta lesara skemmta okkur með sögulestri á kvöldin. Úr nógu er að velja. íslendinga- sögur, Sturlunga, Einar Hjör- leifsson, Gunnar Gunnarsson, Stephan G. Stephanson, o.fI. o. f.l. — Ekki þessar nýtízku skrípasögur. sem fáir Lesa og enginn hlustar á. XX.“ Áhrif þess ósýni- lega á nútimalif nefnist erindi, sem Júlíus Guðmund sson flytur í Að- ventkirkjunni (Ingólfs- stræti 19) sunnudaginn 29. okt. kl. 5. Kór Aðventukirkjunnar syngur. Jón H. Jónsson syngur einsöng. Barnagæzla í félagsheimili U.M.F. í kjallara kirkjunn- ar meðan á samkomunni stendur. Allir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.