Morgunblaðið - 28.10.1967, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. OKT. 1967
5
Námskeið fyrir rjúpnaskyttur
NAMSKEIÐ fyrir rjúpnaskyttur
og aðra fcrðamenn. Hjálparsveit
skáta hélt fyrir skömmu nám-
skeið í meðferð áttavita og
ýmsum atriðum í sambandi við
ferðalög fjarri mannabyggðum.
Hjálparsveitin stóð fyrir tveim
slíkum námskeiðum í fyrra og
voru þau mjög vel sótt.
Námskeiðið fór þannig fram
að bókleg kennsla var eitt kvöld
og verklegt annað. Meðferð
áttavita kenndi Jón Þóroddur
Jónsson og einnig leiðbeindi
Tryggvi Friðriksson. Kennt var
í einni af kennslustofum I'ón-
skólans, en verklegi hlutinn var
fólginn í því að komast að nóttu
til frá Geithálsi og yfir Reynis-
vatnsheiði og að Reynisvatni.
Blm. og ljósmyndari slógust
í för með mönnum frá Hjálp-
arsveitinni ásamt þátttakendum
s.l. miðvikudagskvöld, þegar
verklegi hlutinn fór fram. Farið
var í bifreiðum frá Iðnskólan-
um og haldið að Geithálsi. Þar
fóru síðan tveir og tveir sam-
an yfir Reynisvatnsheiðina og
áttu þeir að rata eftir kompás.
Vegalengdin á þessari leið er
um 7 km. og var áætla'ð að
göngumenn yrðu u.þ.b. 45 mín.
á leiðinni. Þátttakendur voru
allir komnir heilu og höldnu að
bifreiðunum við Reynisvatn
laust fyrir miðnætti. Annað
námskeið hefst n.k. mánudags-
kvöld og eru þátttakendur
beðnir að tilkynna þátttöku í
Skátabúðina.
Tryggvi Friðriksson, býr sig af stað.
Göngumennirnir.
Vetrarstarisemi Sálarrannsókn-
ariélagsins í Hainariirði
Á SlÐASTLIÐNU vori eða nán-
ar tiltekið 25. maí, var stofnfund
ur að Sálarrannsóknarfélagi í
Hafnarfirði.
Á þeim fundi mætti stjórn
Sálarrannsóknarfélags íslands.
Forseti þess, Guðmundur Einars-
son, verkfræðingur flutti ávarp
og mælti með stofnun slíks fé-
lags. Á þeim fundi flutti og séra
Sveinn Víkingur erindi. Þá var
kosin 7 manna bráðabirgða-
stjórn, er hafa skyldi það verk-
efni að ganga frá drögum, að
lögum fyrir félagið og efna til
framhaldsstofnfundar Sá fundur
var haldinn 15. júní. Þar voru
samþykkt lög fyrir félagið og
stjórn kosin, sem var bráða-
birgðastjórnin óbreytt, en hana
skipa:
Hafsteinn Björnsson, form.,
Hulda Helgadóttir, ritari,
Oliver Steinn, gjaldkeri,
Bergljót Sveinsdóttir,
Eiríkur Pálsson,
Óskar Jónsson og
Soffía Sigurðardóttir.
Á fundi þessum flutti Jónas
Þorbergsson, fyrrverandi útvarps
stjóri erindi. Samkvæmt félags-
skrá er tala stofnenda 143.
Tilgangur félagsins er að efla
áhuga almennings á andlegum
málum yfirleitt, en þó sérstak-
lega að veita fræðslu um árang-
ur af sálarrannsóknum. Þessum
tilgangi hyggst félagið að ná með
fyrirlestrum, frásögnum af dul-
rænum fyrirbærum, stuðningi
við miðilsefni og stuðla að þjálf-
un þeirra.
Félagið hefur fengið loforð
fyrir Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði
síðasta mánudag hvers mánaðar
nú í vetur og verður fyrsti fé-
lagsfundur vetrarins mánudag-
inn 30. okt., n. k. Þar flytja er-
indi Grétar Fells, rithöfundur
Elínborg Lárusdóttir, skáldkona
og Sigfús Halldórsson leikur á
píanó.
Hilmar Hjartarson og Sigurþór Valdimarsson, rétt áður en
þeir leggja af stað yfir Reynisvatnsheiði.
Konur í Styrktarfélagi vangefinna halda
SKEMMTUN
í Súlnasal Hótel Sögu, sunnudaginn 29. október 1967 kl. 3
og kl. 8.30 e.h.
Skemmtun fyrir alla fjölskylduna
EFTIRMIÐDAGSDAGSSKRÁ
KVOLDDAGSSKRÁ
1. BARNATÍZKAN:
Sýnd verða föt frá Verzl Ýr,
Grettisgötu og Teddybúðinni,
Laugavegi.
2. SKÓSÝNING:
Sýndir verða skór frá Steinari
Waage og Sólveigu, Hafnar-
stræti,
3. DANSSÝNING:
Nemendur úr Ballettskóla Eddu
Scheving.
4. Guðrún S. Birgisdóttir (11
ára syngur lög úr Mary Popp-
ins og Sound of Music.
5. PÍANÓLEIKUR:
Kolbrún Sæmundsdóttir og
Eygló Haraldsdóttir leika fjór-
hent á píanó.
6. 10 stúlkur úr Dansskóla
Hermanns Ragnars, sýna nýj-
ustu táningadansana.
1. DANSSÝNING:
Nemendur úr Ballettskóla Eddu
Scheving.
2. BARNATÍZKAN:
Börn á aldrinum 3ja-13 ára sýna
fatnað trú VeKtl. Ýr, Grettis-
götu og Teddybúðinni, Lauga-
vegi.
3. SKÓSÝNING :
Sýndir verða skór frá Steinari
Waage og Sóiveigu í Hafnar-
stræti.
4.
Guðrún S. Birgisdóttir (11 ára)
syngur lög úr Mary Poppins og
Sotmd of Music.
5. NÝJUSTU BARNADANS-
ARNIR:
Nemendur úr Dansskóla Her-
manns Ragnars.
6. Leikir og keppni fyrir börn.
Allur ágóði rennur til kaupa á húsbúnaði,
leik- og kennslutækjum fyrir vistheimili van-
gefins fólks.
Magnús Pétursson leikur á píanó milli atriða:
Kynnir: Hermann Ragnar.
GLÆSILEGT LEIKFANGAHAPPDRÆTTI með 250 vinning-
um verður á skemmtuninni um miðjan daginn, en á kvöld-
skemmtuninni verður skyndihappdrætti með 100 vinningum.
Aðgöngumiðasala verður í anddyri Súlnasalsins laugardag frá
kl. 2—5. Borð tekin frá um leið.
Verð aðgöngumiða á skemmtunina kl. 3 kr. 75.— fyrir fullorðna
og kr. 35.— fyrir börn..
Verð aðgöngumiða á skemmtunina kl. 8.30 kr. 100.—
Húsið opnað kl. 7 fyrir matargesti. — Dansað til kl. 1.
Hljómsveit Ragnar Bjarnasonar. — Skemmtun fyrir alla
fjölskylduna, styrkið gott málefni.
FJÁRÖFLUNARNEFNDIN.