Morgunblaðið - 28.10.1967, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. OKT. 1967
ErJ^ndur Jónsson
skriíar um
BÓKMENNTIR
Samtíningur og sitthvað
Magnús A. Arnason: GAM-
ANÞÆTTIR AF VINUM
MÍNUM. 200 bls. Helgafell.
Reykjavík, 1967.
„EINU sinni,“ segir Magnús Á.
Árnason í nýútkominni bók
sinni, Gamanþættir af vinum
mínum, „maetti ég Vilhjálmi (frá
Skáholti) á Laugaveginum. Hann
var við vín, en ekki mjög drukk-
inn. Hann gekk rakleitt til mín,
rak hnefann fyrir brjóst mér og
sagði með miklum þjósti:
„Það er eitt sem þú mátt ekki
gera, Magnús, og það er að „kom
pónera“, því það tefur þig frá
að mála.“
Ég hafði nákvæmlega sömu
umsvif og Vilhjálmur, rak hnef-
ann í brjóst honum og reyndi að
segja með jafn miklum þjósti:
„Og það er eitt sem þú mátt
ekki gera, Villi, og það er að
p-kja, því þáð tefur þig frá að
drekka.“
Með þessu svari þykist ég hafa
svarað í eitt skipti fyrir öll
þeim, sem legið hafa mér á hálsi
fyrir að skipta mér of mikið.
Það verður hver og einn að
vinna %ins og andinn blæs hon-
um inn, og það er hægt að
skipta sér á marga vegu.“
Magnús Á. Ámason hefur ver-
ið þúsundþjalasmiður í listinni,
líkt og þeir voru, listamennirn-
ir á endurreisnartímabilinu í
Suður-Evrópu. Nú síðast hefur
hann gerzt rithöfundur. í fyrra
sendi hann frá sér ferðabók um
Mexíkó.
Nú kemur þessi, Gamanþættir
af vinum mínum. Óneitanlega
virðast ritverk Magnúsar gjalda
þess að vera samin af manni,
sem „skiptir sér á marga vegu“,
eins og hann orðar það sjálfur.
Magnús gæti tekið undir með
stúdentinum í Tannpínu frænku
H. C. Andersens, sem sagði: „Ég
er nú gæddur ýmsu, sem skáld
má prýða, en það er ekki nóg.“
Magnús kann að segja skemmti
lega frá einu *og einu atviki.
Þegar hann ræðir um menn og
málefni, finnst manni hann
stundum — í fáum orðum —
hitta naglann á höfuðið. Hann
bregður fyrir sig hreinskilni,
þegar honum býður svo við að
horfa. Hann kann líka að vera
dálítið ísmeygilegur, þegar hon-
um finnst það eiga vi'ð. Stund-
um er hann ákjósanlega ná-
kvæmur. Annað veifið dettur
hann oná að vera hnyttilega
gagnorður.
Allir mega þeii; eiginleikar
„prýða“ rithöfund. En Magnúsi
eru líka mislagðar hendur. Sum-
ir — jafnvel skástu þættir hans
— eru alltof endasleppir, eins
og höfundurinn hafi ekki mátt
vera að ljúka þeim sómasam-
lega, heldur hespað þá af í
flýti, jafnvel snarað þeim af á
því andartakinu, þegar hann
þurfti fyrst að vanda sig svo
um munaði.
Sá ágalli kann að orsakast af
öðrum ágalla; semsé þeim, hve
Ma^núsi virðist ósýnt að skipu-
leggja verk sitt sem heild.
Að lesa bók hans er eins og
a’ð skyggnast inn á vinnustofu
listamanns, þar sem saman ægir
— auk fáeinna nokkurn veginn
fullunninna smáverka, frum-
drögum og hálfunnum verkum,
sumum svo misheppnuðum, að
ekki væri til annars en fleygja.
Fáum listamönnum kæmi til hug
ar að auglýsa þess háttar dótari
sem sýningu.
Fróðlegt er að skyggnast óboð-
inn inn á slíka vinnustofu, engu
síður. Og það má einmitt segja
um Gamanþætti Magnúsar, að
þar ber á góma sitthvað fróð-
legt og skemmtilegt þrátt fyrir
skipulagsleysið og ringulreiðina.
Magnús byrjar bók sína á
„nokkrum orðum til afsökunar".
Þar segir hann, að það hafi verið
„fyrir margendurteknar áeggjan-
ir margra kunningja minna, áð
ég hef látið tilleiðast að festa
eftirfarandi endurminningar á
blað.“
Sjálfsagt er þessi „afsökun"
skrifuð í alvöru. Kannski er hún
líka sönn. En af ýmsu skemmti-
legu, sem í bókinni leynist, er
þessi athugasemd það langfyndn
Magnús A. Arnason
asta. Hvort munu ekki brosa í
kampinn þessi mörgu „kunningj-
ar“, sem hafa nú unnið sér það
til frægðar að láta rithöfund
„tilleiðast", höfund, sem annars
hefði að öllum líkindum legið
á hæfileikum sínum ónotuðum
sakir hlédrægni?
En sleppum útúrdúrum. Sú af-
sökun, að höfundur hafi „látið
tilleiðast” hefur svo oft verið
viðhöfð, að hún hefur í rauninni
öðlazt nýtt gildi, eins og gömlu
rokkarnir, sem voru nauðsynja-
gripir í baðstofunum, lágu í
ruslageymslum á póleraða tíma-
bilinu, en hefur nú verið stillt
upp í setustofum sem forngrip-
um.
Maður, sem nú á timum „læt-
ur tilleiðast" að gerast rithöf-
undur, er í sjálfu sér afar fynd-
inn maður, enda þó hann geri
sér það kannski ekki ljóst sjálf-
ur.
Vera má, að Magnús Á. Árna-
son sé í mæltu máli lipur sögu-
maður. Sé svo, kunna þættir
hans bæði að njóta þess og
gjalda. Það er vandi áð koma
munnlegri frásögn til skila í rit-
uðu máli. Og erfitt er að dæma
um, þegar saga er sögð, hvort
hún muni yfirleitt njóta sín rit-
uð.
Margt bendir til, að frásagn-
ir Magnúsar nytu sín betur sagð-
ar en skrifaðar. Og eflaust hefðu
Gamanþættir orðið allt önnur
og betri bók, ef kunnáttumaður
hefði fært þá í letur eftir munn-
legri frásögn sögumanns. Stutt-
ar gamansögur, sem Magnús hef-
ur eftir öðrum mönnum, missa
t. d. algerlega marks, eins og þær
eru skráðar í bók hans.
En þessir þættir, þó stórgall-
aðir séu, hafa einnig sína kosti.
Magnús hefur frá æði mörgu áð
segja. Hann hefur kynnzt fjölda
ólíkra manngerða. Og hann hef-
ur tekið eftir. Stöku sinnum tekst
honum að koma eftirtekt sinni
hrakfallalaust yfir til lesandans.
En hlutlaus er hann ekki allt-
af. Sumum er hann svo velvilj-
aður, að hann vill auðsjáanlega
lítið um þá segja nema meining-
arlítil lofsyrði. Aðra lætur hann
hafa það óþvegið. Hrikalegastar
eru frásagnir hans af Jóni Eng-
ilberts. Ávirðingarnar, sem hann
eignar þeim manni, eru svo
klunnalega grátbroslegar, sumar,
að Engilberts stendur eftir eins
og nokkurs konar revíu-skugga-
sveinn, í senn stórkostlegur og
ævintýralegur rusti — það er að
segja, ef frásagnir Magnúsar
eru skildar bókstaflega.
Langbezt tekst Magnúsi upp,
þegar hann segir frá fólki, sem
honum virðist vera hvorki vel
né illa við. Til dæmis er dágóð
frásögn hans af Sigurbirni
Sveinssyni — svo langt sem hún
nær. Hún væri meir að segja
ágæt, ef hún væri fyllri, ýtar-
legri. Svipuðu máli gegnir um
frásagnir af Ásmundi frá Skúfs-
stöðum og Jóni Pálssyni frá
Hlíð.
Þátturinn um Kjarval ber með
sér að vera skrifaður sem af-
mælisgrein fyrir dagblað (þess
er að sjálfsögðu getið með þætt-
inum) og er lítilfjörlegt bókar-
efni. Þátturinn um Stein Stein-
arr er ekki allsómerkur, en eyk-
ur þó fáu við þá hugmynd, sem
almenningur hefur þegar gert
sér af Steini. Vilhjálmur frá
Skáholti er afgreiddur á einni
síðu. Meira er honum ekki
skammtað. Erlendi í Unuhúsi
eru helgáðar fjórar síður, en
enginn verður fróðari um Erlend
af lestri þeirra blaðsíðna.
Síðustu kaflar bókarinnar
fjalla svo um „bræður í listinni."
Og sem við lesum þá kapítula,
hljótum við að hyggja aftur að
nafni bókarinnar: Gamanþættir
af vinum mínum. Því sumt, sem
drepið er á í þeim þáttum er
óneitanlega grátt gaman og kær-
leikurinn að sama skapi mis-
þenkilegur.
Sé freistað að draga saman
fáorða skilgreining á Gaman-
þáttum Magnúsar Á. Árnason-
ar, má segja, að þeir séu bæði
gó'ðir og vondir. Mikill hluti
efnisins er hlutgengt bókarefni.
Úrvinnslan er á hinn bóginn
hræmulega endaslepp.
Þó þarf enginn að sjá eftir
tíma þeim, sem það tekur að
lesa þessa bók. Hún er lesandi.
Og að lestri hennar loknum er
maður þó örlítið fróðari um
menn og málefni í listinni síð-
ustu áratugina.
Erlendur Jónsson.
Axel Eyjólfsson stendur þarna við einn skápinn, sem verk-
stæðismenn voru 5 mínútur að setja saman.
Framleiösla nýrra fataskápa
HÚSGAGNAVERZLUN Axels
Eyjólfssonar, Skipholti 7, hefur
nú hafið framleiðslu og sölu á
stöðluðum fataskápum, sem eru
sérstaklega þægilegir til flutn-
ings, ef þörf krefur.
Danskir ungl-
ingar hjálpa
liðhlaupum
Kaupm.höfn, 26. okt. — NTB
ÞRJÚ pólitísk æskulýðssamtök í
Danmörku munu veita bandarísk
um hermönnum í Vestur-Þýzka-
landi virka aðstoð ef þeir vilja
gerast liðhlaupar til þess að
komast hjá því að verða sendir
til Víetnam, að sögn Kaupmanna
hafnarblaðsins Politiken í dag.
Á flugmiðum sem dreift hef-
ur verið í herstöðvum Banda-
ríkjamanna í Vestur-Þýzkalandi
er skorað á hermennina að
hringja í stjórnmálasamtökin
„Fri ungdom“, „Sosialistisk Ung
doms Forum“ og „Radikal Ung-
dom“ í Danmörku eða komm-
únistablaðið „Land og Folk".
Forstjóri húsgagnaverzlunar-
innar sagði, að þeir hefðu orðið
varir við það, að fólk vantar
mjög oft fataskápa í eldri íbúð-
ir. „Er þá mjög hentugt að geta
fengið skáp, sem hægt er að setja
saman á skömmum tíma. Eins
vill oft dragast, af ýmsum á-
stæðum að smíða skápa í hús
um leið og þau eru byggð. Er þá
minna umstang að fá svona
skáp“.
Skáparnir eru framleiddir í 4
stærðum og viðartegundir verða
tekk, álmur, eik, og sama verð
á öllum þessum viðartegundum.
Einnig mun húsgagnaverzlunin
smíða skápa í öðrum stærðum
I STLTTL IVIALI
Náðanir í Sovétríkjunum
Moskvu, 26. október. NTB.
Hæstiréttur Sovétríkjanna
hefur tilkynnt, að fjöldi manns
verði náðaður í tilefni bylting-
arafmælisins í næsta mánuði,
en eingöngu smáafbrotamenn fá
sakaruppgjöf. Óljóst er hvaða
flokkar fanga verða náðaðir og
ekki er vitað hvort rithöfund-
amir Sinjavsky og Daniel vehða
látnir lausir.
Heath vinsælli
en Wilson
London, 26. októiber NTB-AP
Edward Heath, leiðtogi brezka
íhaldsfloksins, er vinsæll meðal
al brez'kra kjósenda en Harold
Wilson forsætisráðherra, og for-
skot flokksins fram yfir Verka-
mannaflokkinn hefur aukizt í
11% eða um sem svarar 8% á
tveimur vikum, samkvæmt skoð
anakönnun, sem birtist í „Daily
Telegraph" í dag. Þetta er í
fyrsta sinn sem Heath er vin-
sælli en Wilson. Um 43% þeirra
sem spurðir voru töldu Heath
standa sjg vel sem leiðtoga stjórn
arandstöðunnar miðað við 36%
fyrir tveimur vikum.
Wilson forsætisráðherra gerði
í dag tilraun til að koma í veg
fyrir að sonarsonur Sir Winston
Churchills og alnafni hans nái
kosningu í aukakosningum sem
fram fara í Gordon-hverfi í Man
chester 2. nóvember er hann
sendí framtojóðenda Verkamanna
flokksins, Kenneth Marks, sér-
s'takan boðskap. Þar sagði hann
að þeir sem kysu hann kysu
nýtt Bretland, sem stöðugt væri
í mótun og einkennast mundi af
framsýni, samúð, djörfung og
dug.
og viðartegundum eftir sér-
stakri pöntun viðskiptamanna.
Þess má geta, að svona færan-
legir fataskápar eru mjög al-
gengir á vörumörkuðum ná-
grannalandanna. Axel sagði, að
verðið á þessum skápum, miðað
við þá sem næstum eingöngu
hafa verið notaðir hér til þessa,
virtist vera hagstætt. Þeir skáp-
ar eru í flestum tilfellum byggð
ir á milli veggja, þannig að ekki
eru í þeim hliðar, undir- eða
yfirstykki eða annað bak ' en
veggur. Það sem smíðað er, eru
venjulega skilrúm og hurðirnar
og tilheyrandi. Algengt verð á
þessum skápum er um 12.000,00
kr., fullgerðum og uppsettum
pr. breiddarmetra. Skápar þeir
sem nú er hafin framleiðsla á
eru spónlagðir og lakkaðir utan
og innan og kosta um 10.000,00
kr. pr. breiddarmetra.
„Hfimjfemen44
ógna öryggi
New York, 26. október. — NTB
MEÐLIMIR Minutemen, félags
hægrisinnaðra öfgamanna í
Bandaríkjunum, munu ekki hika
við að ryðja úr vegi kunnum
mönnum, sem þeir telja hlið-
holla kommúnistum, segir ríkis-
saksóknarinn í New York, Louis
Lefkowitz, í skýrslu um starf-
semi félagsins er birt var í dag.
Hann Ieggur til að samtökin
verði bönnuð og meðlimir þess
verði látnir sæta refsingu, allt
að 15 ára fangelsi.
Rannsóknin hefur tekið níu
mánuði og hófst þegar mikið
vopnabúr er tveir „minute-
menn“ áttu fannst í fyrra. Lef-
kowitz segir, að rannsóknin hafi
leitt margt uggvænlegt í ljós,
t.d. starfsemi er nánast megi
kalla skæruhernað. Samtökin
geta ógnað lögum og reglu í
New York og öðrum ríkjum.
Meðlimir félagsins búa sig af
kappi undir einkastyrjöld, sagði
hann.