Morgunblaðið - 28.10.1967, Blaðsíða 26
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. OKT. 1967
FYRSTI LEIKUR
DANANNAí DAG
f DAG kl. 4 síðdegis leika
dönsku handknattleiksmennirn-
ir frá Stadion, sem hingað koma
í boði Víkings sinn fyrsta leik.
Mæta þeir í dag gestgjöfum sín
um, Víkingum.
Eins og fram hefur komið er
Stadion nú eitt af beztu félags-
liðum Dana, hafnaði í 3. sæti á
sl. vetri, en hefur nú þegar unn
ið það lið er næst kom á eftir
Danmerkurmeisturunum, HG.
Liðsmenn eru uiigir og vaxandi
leikmenn og verður skemmti-
legt að fá samanburð á leik
þeirra og ísl. féiagsliða.
Liðið leikur hér alLs 3 leiki,
hinn fyrsta gegn Víking í dag,
síðan við Fram og FH á sunnu-
Símtal
í dag
Enn hafa ekki tekizt loka-
samningar miili Valsmanna
og stjórnenda Vasas Buda-
pest um leiki liðanna í 2. um
ferð keppninnar um Evrópu
bikar meistaraliða. En Elías
Hergeirsson form. knatt-
spyrnudeildar Vals tjáði Mbl.
að árdegis á laugardag myndi
gert út um málið er Björgvin
Schram form. KSÍ ræða við
Ungverjana í síma.
Enn sem fyrr er það fyrsta
tilboð Valsmanna að báðir
leikirnir fari fram erlendis
Val að kostnaðarlausu. Ef
ekki semst um það vilja Vals
menn samþykkja tilboð Ung
verja um leik í Reykjavík 5.
nóvember og í Budapest 15.
nóv.
Norðuilandomóf-
ið rætf og atgr.
í SAMBANDI við Norðurlanda-
mót kvenna í handknattleik í
Næstved í Danmörku um miðj-
an nóvember verður haldin
norræn ráðstefna meðal for-
ystumanna handknattleiks á
Norðurlöndum. Af íslands hálfu
sækja ráðstefnuna Axel Einars
son, form. HSÍ og Valgeir Ár-
sælsson gjaldkeri HSÍ.
Meðal mála sem þetta nor-
ræna þing mun endanlega af-
greiða er áætlunin um Norður-
landakeppnina í handknattleik
— 4 ára keppnina sem skýrt
hefur verið frá.
Landslið kvenna á Norður-
landamótið í nóv. valið
— 14 stúlkur fara utan
LANDSLIÐ kvenna í handknatt
leik, sem þátt tekur í Norður-
landamóti kvenna í næsta mán-
uði hefur verið valið. Fjórtán
stúlkur og tveir fararstjórar
fara utan. Keppnin stendur 17.-
UMFI heldur landsmót á Eiðum
HAFINN er undirbúningur að
13. landsmóti U.M.F.Í. og er ráð-
gert að halda það um aðra helgi
júlímánaðar. 1968, á Eiðum.
Ungmennafélag fslands hefur
frá árinu 1909 gengist fyrir 12
landsmótum í íþróttum. Fyrsta
mótið var háð á Akureyri 17.
júní 1909, en hið síðasta á Laug-
arvatni 3.—4. júlí 1965. Á mót-
um þessum er keppt í frjálsum
íþróttum, glímu, sundi, knatt-
spyrnu, handbolta og starfs-
íþróttum.
Landsmót U.M.Í. eru ekki að-
eins vettvangur íþróttakeppni,
heldur einnig sýnir.ga. Þar hafa
farið fram hópsýningar karla og
kvenna í fimleikum, þjóðdansa-
sýningar og á siðasta móti var
söguleg leiksýnirg. Landsmótin
eru nú orðin vinsæl hátíð, s’nj
unga fólkið fiykkist á tol keppni
og leikja og fuíiorðnir og aðrir,
sem íþróttum unna leggja í lang-
ar ferðir landsnorna á milli til
að sjá það sem fram fer. Til-
gangur landsmótanna er marg-
þættur, en einn aðaltilgangur
þeirra er, að lyfta undir lif-
andi starf í ungmennafélögun
um. Mönnum er eflaust í minni
12. landsmót U.M.F.Í., sem hald-
ið var á Laugarvatní fyrir
tveimur árum, en þar iagðist
allt á eitt til að skapa ógleym-
anlega keppni og mannfagnað:
ágætur undirbúningur, mikill
fjöldi þátttakenda, góð aðstaða
til sýninga og keppni, traust
stjórn og skipulagning með
ágætum. Síðast en ekki sizt
sýndu veðurguðimir hollustu
fram úr öðrum hvað snerti
glæsibrag. Formaður 12. lands-
móts var Stefán Jasonarson,
en framkvæmdastjóri var Haf-
steinn Þorvaldsson.
Fyrir nærri tveimur árum
var það ákveðið, að Ungmenna
og íþróttasamband Austurlands
sæi um 13. landsmót U.M.Í. Var
þá þegar ákveðið, að mótið yrði
haldið að Eiðum, hinu gamla
menntasetri Austurlands.
13.LAMOSIVIÓT
U IVt F i AÐ
EIQUM 1968
Landsmótsnefnd var kosin á
þingi . U.Í.A. haustið 1966, en
hana skipa Bjcrn Magnússon
formaður, Jór. Ólafsson Eski-
firði, Sveinn Guðmundsson
Hrafnabjörgum, Magnús Stef-
ánsson Fáskrúðsfirði, Sigurður
Blöndal Hallormsstað, Elma
Guðmundsdóttir Neskaupstað
allir frá U.Í.A. og frá U.M.F.Í.
Hafsteinn Þorvaldsson Selfossi.
Undirbúningur hófst með því
að íþróttavöllurinn að Eiðum
var endurbættur og sáð var í
sína með fegursta veðri sem
hægt var að hugsa sér. Má segja
að þetta lanösmót hafi farið
hann sl. vor. Þá hafa einnig
verið gerðir knattspyrnu og
handboltavellir. Allir þessir
veilir eru grasvellir, aðalvöllur-
inn ræktaður upp með fræi, en
hinir þökulagðir. Unnið hefur
verið að því að tryggja lands-
mótinu þá aðstöðu, sem til er
á Eiðum og hefur málaleitun og
fyrirgreiðslu verið tekið frá-
bærlega vel. Merki landsmóts-
ins hefur verið gert og er það
teiknað af Þórarni Þórarinssyni
yngra frá Eiðum. Teiknaði
hann merkið eftir beiðni móts-
nefndar.
Fyrri dag mótsins er aðallega
keppt í íþróttum, en seinni dag-
inn verður sérstök hátíðardag-
skrá svo sem venja hefur verið
á síðustu mótum, og er þegar
hafinn undirbúningur þeirra
atriða, sem þar fara fram. Má
þar nefna hópsýningu pilta í fim
leikum, sem Þorvaldur Jó-
hannsson íþróttakennari á Seyð
isfirði mun stjórna og þjóðdansa
sýningu, sem frú Elín Óskars-
dóttir á Eskifirði mun stjórna.
Þá mun og fara fram söguleg
leiksýning og kórar syngja.
Innan vébanda U.M.F.Í. eru 23
félög starfandi á landinu og
skiptast þau á að halda lands-
mótin. Allur kostnaður er
greiddur af ungmennafélögunum
sjálfum, en ýmsir aðilar hafa
reynt að leggja hönd á plóginn
og greiða götu þeirra á ýmsan
hátt.
19. nóvember í Næstved en hóp-
urinn heldur utan 15. nóvember
Liðið sem utan fer er þannig
skipað:
Sigrún GuðmundsdóttÍT, Val
Sigrún Ingólfsdóttir, Val
Ragnheiður Lárusdóttir, Val
Björg Guðmundsdóttir, Val
Hansina Melsted, KR
Jenný Þórisdóttir, KR
Elín Guðmundsdóttir, Víking
Jóna Þorláksdóttir, Ármann
Díana Magnúsdóttir, Ármann
Edda Halldórsdóttir Breiðabl.
Arndís Björnsdóttir, Breiðabl.
Jónína Jónsdóttir FH
Guðrún Theodórsdóttir, Fram
Ása Jörgensdóttir, Ármann
Faranstjórar verður Jón As-
geirsson og Þórarinn Eyþórs-
son.
Dómari af íslands hálfu í mót
inu verður Hannes Þ. Sigurðs-
son — en á mótinu verður not-
að tveggja dómara kerfið.
Martin
Peters, einn af ensku heims-
meisturunum í knattspyrnu.
Hann vippar knettinum í
mark Wales með vinstri fæti
— en það er fyrsta mark
Englendinga í landsleiknum
sl. laugardag, en einmitt
þann leik munum við sjá í
sjónvarpinu í dag. Englend-
ingar unnu 3-0 en voru mjög
heppnir. T.d. bjargaði Banks
markvörður þrívegis mjög
snilldarlega — og segja blaða
menn að ekki hefði verlð
hægt að álasa honum, þó öll
þa.u þrjú skot hefðu „legið
Pressuleikur í
hundbollu
ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna
til „pressuleikja" í handknatt-
leik 5. nóvember n.k. Verður
það síðasta reynsla kvenna-
landsliðsins sem til Norður-
landamótsins fer, en einnig verð
ur „pressuleikur" í karlaflokki.
Þá hefur verið breytt um leik
daga í fyrirhuguðum landsleikj
um við Tékka. Verða leikirnir
3. og 4. des, en ekki 2. og 3.
eins og áður var ákveðið. Staf-
ar breytingin af vetraróætlun
í flugi.
Tveir atvinnumenn
í 6 vikna „bann“
SKOZKU landsliðsmennirnir
Denis Law (Manchester United)
og Ian Une (Arsenal) hafa feng
ið þyngsta dóm sem um getur
meðal atvinnuknattspyrnu-
manna hjá ensku knattspyrnu-
deildinni (The Football League)
eða alls 6 vikna „straff“. Þessir
leikmenn eru góðir knattspyrnu
menn með afbrigðum, en skap-
stórir báðir tveir.
Keppnisbannið hefst frá og
með mánudegi n.k., sem þýðir
að þeir mega leika í dag með
sínum félögum, en síðan ekki
koma nærri knattspyrnu, fyrr
en 11 des. n.k.
Law og Ure hafa báðir kom-
ist í hann krappan í þessum
efnum áður og það oftar en einu
sinni. Þeim rann í skap í leik
Manchester Utd. og ' Arsenal á
dögunum og létu þá hnefarétt-
inn ráða í lokin, sem lauk með
ósigri beggja, þ.e. báðum var
vísað út af. íþróttafréttamaður
brezka útvarpsins (BBC) sagði
í gærkvöldi að þetta þýddi um
90 þús. króna launatap hjá hvor
um.