Morgunblaðið - 23.11.1967, Side 28
FIMMTUDAGUR 23. NÓVEMBER 1967.
Brezkur togari strandar, meðan
ráðizt er á hafnsögumanninn
Hafnsögumaðurinn er mikið
skaddaður í andliti og á höfði
ísafirði 22. nóv.
BREZKI togarinn Blackburn
Rovers frá Grimsby strandaði í
dag utarlega í Sundunum á fsa-
firði og er svo skammt frá
landi, að trúlega má ganga um
borð í hann þurrum fótum á
fjörunni. Togarinn er fastur í
hælinn, og verður gerð tilraun
til að ná honum út á flóðinu
um kl. 22.30 í kvöld, og takist
það, mun hann sigla til Rvíkur.
Strand þetta varð með allsögu
legum hætti. Togarinn hafði
komið hingað til smávægilegrar
viðgerðar og tók hafnsögumann
rétt fyrir hádegi. Mikil ölvun var
meðal skipverja, og þegar hafn-
sögumaður hafði leiðbeint togar-
anum út Sundin og skipið var
komið hér um bil út úr þeim,
réðust einhverjir skipverja á
hafnsögumanninn og veittu hon
um verulega áverka, bæði í and-
liti og á höfði. Skipti engum tog
um, að skipið tók niðri og mun
vélin þá hafa verið komin á fulla
Varð undir búnt-
um uf steypu-
júrni
VINNUSLYS varð inn við
Kleppsveg seinni hluta dags í
gær, þar sem unnið er að bygg
ingu vöruskemmu Eggerts Krist-
jánssonar. Þar var verið að hífa
upp í bygginguna 150 stk. steypu
styrktarjárn — 10 metra löng —
í nokkrum búntum. Þegar híft
hafði verið upp í um 4—5 metra
hæð, slitnaði vírinn, sem híft var
með, með þeim afleiðingum að
búntin féiiu ofan á manninn. er
stjórnaði krananum. Hann mun
hafa fótbrotnað, auk þess sem
hann kvartaði undan verkjum í
öxl, og var hann fluttur á Landa
kotsspítala.
ferð aftur á bak.
Nokkrir skipverjar komust í
land á gúmbát og lögreglunni
var gert viðvart, enda hafði tog-
arinn þeytt eimpipu sína í sí-
fellu, eftir að hann tók niðri.
Lögreglan fór á vettvang og tók
á móti skipverjum, sem flestir
komust í land á lífbátnum, eða
á gúmbát, og var þeim komið
fyrir í gistiheimili Hjálpræðis-
hersins. Um sex-leytið í kvöld
munu þó þrír eða fjórir skip-
AÐALFUNDUR Kaupfélags
Árnesinga var haldinn s. 1.
mánudag og hófst kl. 13.00.
Fundinn sátu stjórn félags-
ins, endurskoðendur, fram-
kvæmdastjóri og fulltrúar
hinna ýmsu deilda félagsins
en þeir eru um 80 talsins. Fe-
lagsmenn Kaupfélags Árnes-
inga eru um 1800 og starfs-
menn þess nálega 350.
Fundarstjóri var kjörinn Þor-
steinn Sigurðsson bóndi á Vatns-
leysu og fundarritari Óskar Jóns
son félagsmálafulltrúi K. Á.
Fundurinn hófst með því að
Oddur Sigurbergsson kaupfélags
stjóri flutti skýrslu stjórnar um
rekstur ársins 1966 og las og
skýrði reikninga félagsins. Velta
kaupfélagsins nam um 270 millj.
króna á árinu, rekstrarhalli á
aðalrekstrarreikningi nam 26
| verja enn hafa verið um borð.
Eftir því sem komizt verður
næst munu skipverjar hafa
verið ófúsir að halda úr höfn
og viljað snúa við. Ekki liggur
ljost fyrir, hver eða hverjir réð-
ust á hafnsögumanninn, en hann
er mikið skaddaður í andliti og
á höfði.
Undanfarna mánuði hafa ver-
ið veruleg brögð að því, að
brezkir togarasjómenn gerist
ölvaðir og uppivöðslusamir hér
í bæ og hefur þetta valdið hinu
fámenna lögregluliði bæjarins
miklum erfiðleikum á stundum.
HT.
milljónum rúmum. (Tölur eru
taldar í milljónum).
Kaupfélagsstjórinn skýrði
rekstrarhallann allýtarlega eftir
að hann hafði afsakað, hve seint
þessi aðalfundur væri haldinn,
sem stafaði af því, hve mikið
Eigendur
smyglsins
fundnir
RANNSÓKN smyglmálsins i
Brúarfossi er nú að mestu lokið.
Samkvæmt upplýsingum ra'nn-
sóknarlögreglunnar hefur nú tek
izt að hafa upp á öllum eig-
endum smyglsins, en þeir reynd-
ust vera sex talsins. Málið verð-
ur væntanlega sent saksóknara
nú á næstunni.
Aðalfundur Kaupfélags Árnesinga:
Reikningar K.Á.
26 millj. kr. halla
„Vanreiknuð gjöld frá fyrri
árum, kr. ... 15.936.848.0446
Verkfallsheimildir ýmist
felldar eða samjtykktar
Frá fundum flugvirkja, matreiðslumanna
ratvirkja, prentara og verksmiðjufólks
FUNDIR voru haldnir í fimm
stéttarfélögum í gær og fyrra-
dag, þar sem tekin var afstaða
til vinnustöðvunar nú hinn 1.
desember. Félag flugvirkja sam-
þykkti að bíða átekta með allar
aðgerðir í launa- og kjaramál-
um. Félag matreiðslumanna
felldi heimild til verkfallsboð-
unar, en hins vegar var hún sam
þykkt af Félagi íslenzkra raf-
virkja, Hinu íslenzka prentara-
félagi (63 atkv. gegn 52, en 5
seðlar auðir) og af Iðju, félagi
verksmiðjufólks.
Flugvélavirkjar héldu félags-
fund í gær, og var þar samþykkt
að biðja félagsstjórnina að beita
sér fyrir þvi, að hérlendis yrði
sköpuð aðstaða til að vinna ýmis
verkefni, sem hingað til hefur
orðið að vinna erlendis, enda
þótt mannskapur sé hér fyrir
hendi, og að öðru leyti var sam-
þykkt að bíða átekta með allar
aðgerðir í launa- og kjaramálum.
Félag matreiðslumanna felldi
með öllum greiddum atkvæðum
á félagsfundi í fyrradag að heim
ild til vinnustöðvunar 1. desem-
ber skyldi veitt. Á hinn bóginn
samþykkti Félag íslenzkra raf-
virkja að veita stjórn og trún-
aðarmannaráði heimild til vinnu
stöðvunar 1. desember.
Á fundi í Hinu íslenzka prent-
arafélagi, sem haldinn var síð-
degis í gær, var samþykkt tillaga
um boðun verkfalls 1. desember
n.k. Verkfallssamþykktin var
gerð með 63 atkvæðum gegn
52, en 5 seðlar voru auðir.
Meirihluti stjórnar HÍP mælti
gegn tillögunni og taldi nægja
að hafa í höndunum áður sam-
þykkta heimild til verkfallsboð-
unar. Vildi meirihluti stjómar-
innar bíða átekta og sjá hvernig
þróun mála yrði á næstunni.
Almennur fundur í Iðju, félagi
verksmiðjufólks, í gærkvöldi
samþykkti samhljó'ða ákvörðun
trúnaðarmannaráðs um vinnu-
stöðvun 1. des. og um samstöðu
með öðrum verkalýðsfélögum
um það. Þá samþykkti fundur-
inn áskorun á ríkisstjórn og Al-
þingi um að lækka tolla á inn-
fluttum hráefnum til iðnaðar um
jafnháan hundraðshluta og geng-
ið kann að verða fellt, m.a. til að
halda stöðugu ver’ðlagi innan-
lands.
Víkingur II, sem rak á land í ofviðrinu á ísafirði á laugardags-
kvöldið, sést á myndinni við bólverkið undan vöruskemmu
Kaupféíags ísfirðinga. (Ljósm. Sturla Halldórsson).
1966 færðir með
verk hefði verið að fara yfir
reikninga félagsins og koma þeim
saman, en til þess að svo mætti
verða hafði hann þurft að leita
talsvert aftur í tímann og fara
yfir reikninga fyrri ára.
Halli kom fram á öllum úti-
búum félagsins, bifreiðarekstri,
brauðgerð, efnagerð og lyfjabúð.
Beinn rekstrarhalli ársins 1966
nam 10 milljónum og kvaðst
kaupfélagsstjóri þá hafa tekið
fullar afskriftir allra eigna, svo
sem lög stæðu til, og næmu þær
5,3 milljónum, einnig hefði hann
afskrifað allar vörubirgðir um
30% og hækkað afskriftir af vöru
birgðum ársins 1965 upp í 30%.
Á rekstrarreikningum er tölu-
liður VIII, sem nefnist „van-
reiknuð gjöld frá fyrri árum“.
Nemur þessi liður 16 milljónum
króna. Kaupfélagsstjórinn skýrði
þennan lið svo, að tæpar 6 millj.
79 skrúðir
ntvinnulnusir
ú Akureyri
Akureyri 22. nóv.
VIÐ atvinnuleysisskráningu í
vinnumiðlunarskrifstofu Akureyr
ar, sem fram fór dagana 1.—3.
nóvember sl. voru alls 79 ein-
staklingar skráðir atvinnulausir,
33 verkamenn og 46 verkakon-
ur. r
Greiddar atvinnuleysisbætur á
þessu ári hér í bæ námu þá um
1,5 millj. kr. Sv. P.
af honum væru vanreiknaðar
afskriftir af vörubirgðum, en af-
gangurinn mistök, eða óná-
kvæmni í bókhaldi.
Kaupfélagsstjórinn kvað það
skoðun sína, að rétt væri fyrir
kaupfélagið að losa sig við eitt-
hvað af fyrirtækjum þeim, er
það nú ræki, og nefndi í því
sambandi sérleyfisrekstur og
hitaveitu. Hins vegar kvað hann
næsta verkefni að rannsaka
rekstur allra deilda félagsins og
með hverjum hætti bæta mætti
hann.
Velta verzlana félagsins á Sel-
fossi nam 135 milljónum og var
það 11% aukning frá árinu áð-
ur. Vinnulaunagreiðslur jukust
úr 51 milljón króna í 61 milljón,
en fækkað var um einn starfs-
mann.
Rekstrar- og efnahagsreiknihg
ur er undirritaður af kaupfélags-
stjóra sjálfum og segir þar „Fram
anskráðan rekstrar- og efnahags
reikning hef ég undirritaður sam
ið eftir bókum félagsins."
Þetta er annar þáttur, en
venja hefir verið að hafa á hjá
fyrirtækinu, þar sem reikning-
ar hafa verið lagðir fratm af lög-
giltum endurskoðanda fram til
þessa.
Félagskjörnir endurskoðend-
ur, þeir Páll Diðriksson bóndi
á Búrfelli og Helgi Kjartansson
bóndi í Hvammi undirrituðu
reikningana með svofelldri bók-
un:
„Við undirritaðir höfuim yfir-
farið rekstrár- og efnahagsreikn-
ing þennan og borið saiman við
fylgisskjöl. Komið hefur í ljós
eftir mjög tímafreka og ná-
Framhald á bls. 27
Hitaveituæð sprakk
á Skothúsvegi
Olli miklum truílunum í Vesturbænum
A 12. TÍMANUM í fyrrakvöld
sprakk hitaveituæð í Skothús-
vegi sunnan við Hallargarðinn
svonefnda og olli það talsverðum
truflunum í sunnanverðum Vest-
urbænum, þar sem hér var um
aðalæð að ræða. Viðgerð lauk
síðdegis í gær.
Jóhannes Zoega, hitaveitu-
stjóri, gaf Mbl. eftirfarandi upp-
lýsingar í gær: Bilanir af þessu
tagi hafa komið fyrir áður á
þessu svæði og á svipuðum stöð-
um. Bilunin varð á aðalæðinni
frá geymunum á öskjuhlíðinni,
sem liggur um Miklatorg, Hring-
braut, Laufásveg, Skothúsveg og
um Tjarnarbrú vestur Hring-
braut. Hún kom til af því, að
vatn hefur runnið á milli gang-
stéttarhellna ofan í stokkinn og
valdið tæringu á rörinu. Slíkt
kemur oft fyrir, sérstaklega þó
á þeim æðum, þar sem gangstétt-
arhellur voru jafnframt notaðar
sem lok á hitaveitustokkana.
— Þessar aðalæðar hafa veríð
endurnýjaðar smám saman, þar
á meðal mikill hluti þessarar æð-
ar og verður lokið við að endur-
nýja hana á næsta sumri, en end
urnýjun aðalæða verður að fara
fram í áföngum að sumrinu.