Morgunblaðið - 29.11.1967, Page 10

Morgunblaðið - 29.11.1967, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. NÓV. 1987 Er það minn eða þinn vettlingur? VETRARKOMA hefur á seinni árum orðið mér allt annað en var hér fyrrum. Þá var þetta einhver skemmtilegasti tími árs- ins, hálfgert millibilsástand, sumarvinnu lokið og alvara náms ins ekki búin að ná á okkur föst- um tökum. En þetta er nú allt breytt, eins og gefur að skilja, starfs- sviðið orðið annað, má reyndar segja, að ég sé komin í aUt ann- an heim. Því er það, að í mínum núver- andi heimi hefur vetrarkoma fengið nafnið „vettlingatími“, og eins og nafnið bendir til, nefnt eftir þeim þarfa hlut, sem við látum á hendur okkar, er kóln- ar í veðri, — en þetta er ekki neinn tilhlökkunartími lengur. Vettlingar eru mesta þing, eins og allir vita, og sjálf gæti ég ekki lifað af veturinn án þeirra. En að sjá Vz dúsíni af bömum á mismunandi aldri fyr- irv ettlingum vetrarlangt, er ær- Tizkuteiknararnir eiga það sameiginlegt í ár að vilja hafa hvitt og svart saman, bæði á kvöld og dagfötum. Lanvin-kvöldkjóll, snotur, út- saumaður með hvítu. Patou-kjóll úr svörtu flaueli, hvítur kragi. stroff framan i ermum. inn starfi fyrir eina konu, og þarf ekki að reikna með mikl- um tíma til annars. Börnin mín hafa þá undar- legu tilhneigingu að taka af sér vettlingana á ýmsum stöðum og gleyma þeim þar. Nú skal eng- inn halda, að ég geti bara brugð- ið mér út í skóla og gengið þar að vettlingi, sem vantar á móti einum heima. Ónei, málið er nú ekki svo einfalt, uppáhaldsstaðirnir til að skilja eftir vettling eru einhvers staðar úti við, þar sem ef til vill er numið staðar augnablik til að binda skóna sína eða til að dytta að hjólinu. En hvar þessi staður var nákvæmlega, er aldrei hægt að komast að og hversvegna að- eins annar var tekinn upp af jörðinni aftur liggur heldur aldrei ljóst fyrir. Þegar þurrt er nægir kannski eitt par af vettlingum handa hverju barni yfir daginn, þ.e.a.s. ef það er einn af þessum óvenju- Cardin-kjóll úr svörtu flau- eli, hvítur stór organgikragi. Dior-dragt úr svörtu satíni, hvít blússa með pifum og blúndum á. legu dögum, þegar allir koma heim með þá vettlinga, sem þeir fóru með út. En þegar rigning er eða snjór, vandast málið, það getur orðið hreint vandræða- ástand. Auðvitað fara allir með hreina og þurra vettlinga í skól- ann að morgni, en þeir haldast ekki lengi í slíku ástandi. Það þarf ekki að hnoða margar snjó- kúlur í frímínútunum til þess að gera vettlingana rennandi blauta og koma með þá þannig heim. Ekki ættu það nú að vera mikil vandræði, kynni einhver að segja, og satt er það, ef blaut- ir vettlingarnir eru settir á mið- stöðvarofninn til að þurrka þá. En þeir lenda bara alls ekki þar nema sárasjaldan, en mun oftar eru þeir samanvöðlaðir ofan í vasa á buxum, sem farið var úr um leið og inn var komið og finnast þar, auðvitað blautir, þegar á að fara að nota ,þá aftur eftir matinn. Annað par af vettl- ingum, takk! En í þessu vettl- ingastríði mínu þarf ég að passa upp á fleiri börn en mín eigin, og ég sé á því, að flestar mömm- ur hljóta að lenda í þessu meira og minna. Hingað kemur mikill fjöldi vina og félaga barnanna, SARDÍNUR Sardínur og baunir í jafningi. 1 ds. sardínur 1 ds. sveppasúpa 1 bolli mjólk 2 matsk. hveiti 1 bolii grænar baunir salt og pipar rústykki, paprika. Sardínurnar látnar í sigti, skornar í smábita. % bolli af mjólk sett út í súpuna og það síðan hitað þax tffl súpan þykikin- ar, hrært stöðugt í á meðan. — Hveitinu og því sem eftir er af mjólkinni hrært saman og bætt út í súpuna. Sardínum, baunum, salti og pipar bætt út í og hitað vel. Þetta er síðan sett á brauðið og papriku dreift yfir. Þreföld samloka með sardinum og eggjum. Eggjasalaf búið tifl. úr majonn- aise og simátt brytjuðum eggjum (harðsoðnum). — Brauðið þarf helzt að vera sandwiohbrauð eða stórt formibrauð, þunnt sneitt. Á fyrstu sneið er smurrt eggjasal- ati, önnur sneið sett otfan á, smurð á þeirri hlið, sem upp snýr, þar ofan á er sardiínum bomið fyrir, graslaukur settur ytfir. Þriðja sneiðin smurð með majonnaise og sinnepi og sú hlið látin otfan á sardiínurnar. Smá- pinna stungið í til að halda brauðinu saman, skorið í bross' yfir sneiðina, svo það verði 4 lítifl stybki. Bakað sardínubrauð Ristaðar brauðsneiðar smurð- ar með majonnaise, otfan á þær eru settar þunnar tómatsneiðar, síðan sardínur (1—2 ds.). Etfst eru settar ostsneiðar og þetta síð an sett í otfn, bakað þar til ost- urinn er runninn. Sardinu-eggjasalat. Sardínur, sem lögurinn hefur runnið atf, harðsoðin egg í sneið um, lauksneiðar, settar í smátt- og auðvitað eru þau með vettl- inga eins og mín börn. Eins og gefur að skilja, geta þau ekki öll verið að því að taka með sér vettlinga sína aftur, slíkt væri nær óhugsandi. Það eru margar ferðirnar, sem ég hef hlaupið út á hlað á eftir einhverjum litla gestinum til að spyrja, hvort hann eða hún eigi vettlinga, sem ég sá liggja í forstofunni, og komu mér ókunnuglega fyrir sjónir. En ég er ekki svo heppin að vera alltaf stödd við útidyrn- ar, þegar vinirnir fara og því er það, að hér er talsvert af vettl- ingum, sem skildir hafa verið eftir og ganga ekki út þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, réttir eigend- ur finnast ekki. Eiginlega ætti nú einhver góð kona að opna vettlingamiðstöð, þar sem við mæður barna, er glopra niður vettlingum, gætum endurheimt okkar, ef einhver hefur þá fundið þá, og komið á framfæri óskila-vettlingum frá okkur. Kannske ég ætti að athuga þetta sjálf, — nei annars, ég hef of mikið að gera við að þvo, staga og prjóna vettlinga það sem eftir er vetrar! saxað hvítkál eða salatblöð. Yfir þetta er sett majonnaise eða „sal a'tdiressing“, sem ofurl'ítið karrý hetfuir verið bætt L Sardíniur hitaðar á pönnu. Sardiínur (hér er miðað við tvær dósir), iátnar á sigti, svo að drjúpi af þeiim, hitaðar vel á pönnu, og síðan settar á ristað brauð og borið með því blanda % bolla smjöri, 2 matsk. atf smátt brytjaðri steinseiju, IV2 tsk. sítrónusafa og salti og pipar eft- ir smekk. Sardínu-tómat réttur 1 laukur i sneiðum 1 ds. sardínur í olíu 2 tsk. sinnepsduft 1 ds. tómatsúpa 125 gr. rifinn ostur salt og pipar ristað brauð Laukurinn steiktur í olíunni atf sardínunum, sinnep, sardínur og súpa sett út í á pönnuna og allt hiltað þaT tifl hann er bráðn- aður. SaLt og pipar sett í, bland- an síðan borin fram á ristuðu brauði. Steikt franskbrauð með sardínum Franebbrauðið steikt í miklu smjöri á pönnu o.g haldið heitu á meðan sardínurnaT eru hitað- ar. Sardínunum raðað á brauðið. Tómatpuré og dáMtið af rjóma sett á pönnuna, hitað og hellt ytfir brauðið. Sardínumauk Sardínurnar eru settar á sigti, svo að oMan drjúpi atf, síðan er þeim nuddað gegnum sigtið og sinneþi og sí'trónusatfa hrært sam an við. Hrærðu smjöri bætt í svo auðveldara sé að sprauta þessu á brauðið. Sítrónusneið borin með. Sardníusmjör 1 ds. sardínur V-i bolli smjörlíki Smjörlíbið hrært vel, smátt sbornar sardánur settar í, sítrónu satfa og etf viB sinnepi bætt í. — Mjög gott í brauðtertur. Falleg svunta Hér á myndinni er svunta, sem búin er til úr skrautlegri diskaþurrku. Á minni myndinni er rangan á þurrkunni, efri horn in eru brett inn og saumað í mitt stykkið band, sem í er sett teygja. Síðan eru sett bönd í hálsinn og í mittið. Sést á þessu, hvernig hægt er að búa sér til svuntu með lítilli fyrirhöfn. Húsmóður- starfið NÚ orðið eftir tilkomu sjúlf- virkra véla, sem hjálpa til við heimilisstörfin, heyrist sjaldan á það minnzt, að húsmóðirin vinni erfitt starf. Rétt er það, að þvottabalinn og brettið eru víð- ast hvar horfin. En þrátt fyrir það, hafa nýafstaðnar rannsókn- ir leitt í ljós, að fá störf eru eins þreytandi og umönnun barna og heimilis, og jafnast fyllilega á við hin erfiðustu ahd- legu störf, sem karlmenn koma þreyttir heim frá eftir daginn. Það sem aðallega er talið or- saka þreytu húsmæðra, eru stöð- ugar truflanir við það, sem þær eru að fást við, Óteljandi deil- ur, sem þarf að jafna og ákvarð- anir, sem þarf að taka á stund- inni. Við það bætist leiði á vanabundnum húsverkum og skortur á uppörvandi verkefn- um. Þarf nú engan að undra lengur, að konan getur verið þreytt eftir að hafa „setið“ heima allan daginn. Matarmikil eggjakaka (omelet) Hráar kartöflur skornar í mjög þunar sneiðar, sömuleiðis dáMtið af lauk. Hvort tveggja gegnumsteikt á pönnu. Kjötaf- gangur, pylsur eða skinka skor- ið smátt og aðeins brugðið á pönnuna með. Síðan er „omelet- deigi“ helt yfir og þegar neðri helmingur er orðinn liósbrúnn, er rétturinn tilbúinn. SVART OG HVÍTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.