Morgunblaðið - 29.11.1967, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. NÓV 1967
27
Stjórnarfr. um verðlagsuppbót á
laun og verðlagsnefnd afgreidd
STJÓRNARFRUMVARPIÐ
um verðlagsuppbót á laun og
fleira var í gær afgreitt til
ríkisstjórnarinnar sem lög frá
Alþingi. Skýrt hefur verið
frá fyrstu umræðu málsins í
neðri deild, en við aðra um-
ræðu, er fram fór í fyrra-
kvöld, mælti Guðlaugur
Gíslason fyrir áilti meiri
hluta fjárhagsnefndar, sem
1 mælti með að frumvarpið
yrði samþykkt óbreytt. Lúð-
vík Jósepsson mælti fyrir
minnihluta álitinu,' og bar
fram breytingatillögur. Frek-
ari umræður urðu ekki um
málið og var það afgreitt til
efri deildar.
Á fundi efri deildar í gær
mælti forsætisráðherra, Bjarni
Benediktsson, fyrir frumvarp-
inu og rakti efni þess. Enn-
fremur tóku til máls við 1.
umræðu þeir Björn Jónsson,
Einar Ágústsson og Páll Þor-
steinsson. Var 'frumvarpinu
síðan vísað til 2. umræðu og
fjárhagsnefndar er kom þegar
saman til fundar. Síðdegis í
gær mælti svo Pétur Bene-
diktsson fyrir áliti meiri
hluta nefndarinnar og Bjami
Guðbjörnsson fyrir minni
hluta álitinu, auk þess sem
hann gerði grein fyrir breyt-
ingartillögum. Við atkvæða-
greiðslu voru breytingartillög
urnar felldar með 11 atkvæð-
um gegn 9, en frumvarps-
- KYPUR ,
Framhald af bls. 1.
ur mátt sinn á áberandi hátt
úti fyrir ströndum Kýpur og
yfir eynni. Mörg tyrknesk
herskip, þar á meðal tundur-
spillar, sigldu í tvær klukku-
stundir meðfram norður-
strönd Kýpur, rétt fyrir utan
12 mílna landhelgi eyjarinn-
ar, og tyrkneskar þotur flugu
lágt yfir Nicosiu.
Á meðan sendifulltrúi John-
sons Bandaríkjaforseta, Cyrus R.
Vance, reyndi allt hvað hann
mátti að koma á samkomulagi
milli stjórnanna í Aþenu og
Ankara, sem myndi afstýra hætt
unni á styrjöld, var haft eftir
heimildum frá stjórnarvöldum
Kýpur, að Makarios erkibiskup,
forseti eyjarinnar, væri andvíg-
ur brottflutningi grísks herliðs
frá eynni, nema því aðeins að
þeir 950 grísku hermenn og 650
tyrknesku hermenn, sem leyfi-
legt er að hafa á Kýpur, verði
fluttir þaðan.
Tyrkir hafa hafnað þessu og
halda því fram, að það væri
sama og að skilja hið tyrkneska
þjóðarbrot varnarlaust gagnvart
lögregluliði grískra Kýpurbúa,
ef Tyrkir flyttu liðsveit sína
burt.
Þá jók það enn á spennuna í
dag, að grískur lögreglumaður
særðist, er hann varð fyrir byssu
kúlu við línu þá, sem skiptir
höfuðborginni milli grísku- og
tyrkneskmælandi Kýpurbúa.
Gríska stjórnin hélt fund í
kvöld, þar sem allir ráðherrar
hennar voru mættir. í AP-frétt
i í kvöld, sagði að hún hefði ekki
ekki fallizt á kröfur Tyrkja og
að þeir aðilar, sem unnið hefðu
að samkomulagi milli Tyrkja og
Grikkja af hálfu vestrænna ríkja
hefðu þegar tekið ákvörðun um
að leggja að nýju af stað til
INicosiu og Ankara til þess að
reyna að greiða úr því, sem bæri
á milli.
Utanríkisráðherra Grikkja,
Pipinelii sagði eftir fundinn, að
enn hefði ekki verið samþykkt,
að verða við kröfum Tyrkja.
Pipinelli sagði, að ekkert sam-
greinarnar samþykktar ó-
breyttar. Var málið síðan tek-
ið til þriðju umræðu og
kvaddi þá enginn sér hljóðs
og var frumvarpið samþykkt
til ríkisstjórnarinnar sem lög
frá Alþingi.
Á kvöldfundi neðri deildar
í fyrrakvöld mælti Gylfi Þ.
Gíslason, viðskiptamálaráð-
herra, fyrir stjórnarfrumvarp
inu um breytta skipun verð-
lagsnefndar. Kom m.a. fram í
ræðu ráðherra, að ríkisstjórn-
in vildi hafa sem nánast sam-
ráð við verkalýðshreyfinguna
í því skyni að gengisfellingin
rýrði ekki hlut launþega
meira en óhjákvæmilegt
reyndist. Alþýðusamband fs-
lands hefði borið fram þá ósk
við ríkisstjórnina að fulltrúar
þess fengju aðild að verð-
lagsákvörðunum og hefði rikis
stjórnin talið rétt að verða
við þeirri málaleitan. — Gert
væri ráð fyrir að sú skipan
verðlagsráðs sem frumvarpið
gerði ráð fyrir gilti aðeins í
eitt ár, eða til ársloka 1968,
en þá ætti áhrif gengisfell-
ingarinnar að vera komin
fram að fullu.
Halldór E. Sigurðsson (F)
taldi rétt að Bandalag starfs-
manna ríkis og bæja fengi að-
ild að ráðinu, en menntamála-
ráðherra svaraði því að óskin
væri fram borin af ASÍ og því
eðlilegt að einungis fulltrúar
þess ættu sæti í ráðinu.
^ Var málinu síðan vísað Jtil
2. umræðu.
Guðlaugur Gislason mælti
fyrir áliti meiri hluta fjár-
hagsnefndar, er málið kom til
2. umræðu, og mælti með að
frumvarpið yrði samþykkt ó-
breytt. — Lúðvík Jósepsson
mælti fyrir minni hluta áliti,
og kom fram í ræðu hans að
ASÍ vildi gefa einn af fjórum
fulltrúum sínum eftir til
BSRB. Flutti Lúðvík breyt-
ingartillögu þess efnis. Við
atkvæðagreiðslu var sú tillaga
felld. Málið var síðan afgreitt
til 3. umræðu og á öðrum
fundi deildarinnar var það af-
greitt til efri deildar, og þar
var það tekið til umræðu í
gær. Mælti þá Gylfi Þ. Gísla-
son, viðskiptamálaráðherra,
fyrir því, en við fyrstu um-
ræðu tók einnig til máls Ól-
afur Jóhannesson. Eftir að
fjárhagsnefnd hafði fjallað
um málið var flutt breyting-
artillaga frá nefndinni, þess
efnis að fulltrúi BSRB fengi
aðild að ráðinu og ASÍ þá að-
eins þrjá menn. Það var Jón
Ármann Héðinsson sem mælti
fyrir áliti nefndarinnar. —
Breytingartillagan var sam-
þykkt við atkvæðagreiðslu og
eftir 3. umræðu var málið aft-
ur sent til neðri deildar, sem
mun fjalla um breytingu þá
er efri deild gerði á því.
komulag hefði náðzt við Tyrki
og að ástandið væri nú „hættu-
legt og viðkvæmt“. Aðspurður
að því, hvort hann teldi styrjöld
hugsanlega, svaraði hann: „Já,
það er mögulegt“.
Hann átti viðræður við Cyrus
R. Vanoe. sem síðan tók ákvörð
un um að fara flugleiðls til Nicos
iu kl. 1 eftir miðnætti (ísl tími)
gneinilega í því skyni að ræða
við Makarios forseta um sum
þeirra atriða, sem máli skipta
varðandi deiluna um brottflutn-
ing gríska herliðsins.
Pipinelli átti einnig viðræður
að nýju við Manlio Brosio aðal-
framk væmdast j óra Atlantshafs-
bandalagsins, en að þeim viðræð
um loknum ákvað hinn siðar-
nefndi að fara flugleiðis til Ank
ara annað hvort einhvern tím-
ann í nótt eða morgun.
Grænlonds-
kynning
f KVÖLD, miðvikudag, verð-
ur í Góðtemplarahúsinu í Reykja
vík kvöldvaka. Þar mun Guð-
mundur Þorláksson, magister
flytja erindi um Grænland og
sýna litskuggamyndir þaðaft og
Lára Rafnsdóttir leikur einleik á
píanó.
Það eru góðtemplarastúkurnar
Einingin, Frón og Verðandi, sem
efna til þessarar kvöldvöku, en
hún er öllum opin endurgjalds-
laust. Kvöldvakan hefst klukkan
8,30 e. h. í lok hennar verður
kaffisala í húsinu.
Cin- og klaufaveikin í Bretlandi:
Hermenn búnir
sóttvarnariyfjum
— hindra útbreiðsiu veikinnar
London, 28. nóvember. NTB.
HERMENN útbúnir sóttvarnar-
lyfjum koma í.dag upp 130 km
langri varnarlinu frá austri til
vesturs meðfram Thamesánni til
þess að reyna að koma í veg
fyrir, að gin- og klaufaveikin
nái að breiðast út til Suður-
Englands. Samtímis var hvers
konar veðreiðum aflýst alls stað-
ar í Bretlandi, en þar er nú búið
að slátra nær 210.000 gripum á
þeim sex vikum, sem þessi far-
aldur hefur geisað.
Brezka veðreiðasambandið á-
kvað í dag, að hætta öllum veð-
reiðum alls staðar í landinu, að
svo stöddu, eftir áskorun þar að
lútandi frá landbúnaðarráðu-
neytinu, en þar er óttazt, að hinn
mikli áhorfendastraumur kunni
að áuka á smithættu. Veðreið-
arnar eru mjög útbreiddar í
Bretlandi og nemur velta þeirra
mörgum milljónum punda.
f Eire, írska lýðveldinu, yfir-
veguðu stjórnarvöld í dag, að
setja bann við komu fólks frá
Bretlandi, unz gin- og klaufa-
veiki væri þar úr sögunni, en á
írlandi ríkir mikill ótti nú af
þessum sökum, vegna hins mikla
kvikfjárstoffts landsins og hins
mikilvæga kjötiðnaðar þar.
f dag voru uppgötvuð þrjú
sjúkdómstilfelli gin- og klaufa-
veiki á þeim svæðum, þar serp
sýkinnar hefur þegar orðið vart
og þar með er tala þeirra býla,
þar sem veikin hefur komið upp,
orðin 1192. Vegna hinnar miklu
slátrunar kvikfjár, sem yfirvöld-
in hafa látið fram fara með
harðri hendi, er gert ráð fyrir,
að þær bætur, sem ríkið verður
Hernaðaraðstoð Sovétríkjanna
við Jemen?
Moskvu, 28. nóvember, AP.
Alexei Kosygin, forsætisráð-
herra Sovétríkjannr, ræddi í dag
við sendinefnd frá Jemen, sem
ým.sir telja að muni undirrita
samning um hernaðaraðstoð Sov
étríkjanna við Jemen. í tilkynn-
ingu sem birt var um fundinn
sagði þó aðeins, að rætt hefði
verið um frekari samskipti ríkj-
anna tveggja.
að greiða, muni nema að minnsta
kosti 10 millj. punda.
Hermenn tóku sér stöðu á 13
brúm yfir Thames frá útjaðri
London í vesturátt til Gloucester
shire til þess að reyna að koma
í veg fyrir, að veikin nái að
breiðast yfir fljótið og smita
fleira af kvikfé landsins, sem
nemur 35 millj. talsins. Hjól-
barðar allra þeirra ökutækja,
sem fara yfir brýmar, eru sótt-
hreinsaðir í varúðarskyni, svo að
veikin geti ekki breiðzt út með
þeim.
— Umíerðarmeiki
Framhald af bls. 28
Þetta hefur óíhjákvæmilega í
för með sér nokkur vandamál,
og eitt af þeim er akstur út-
lendinga úti á þjóðvegunum.
Fraimkvaemdanefndin hefur því
látið útfbúa litið spjald, þar
sem greint er frá ástæðunum
fyrir því, að umferðarmerkin.
eru víða hægra megin á vegin-
urn. Útskýringar eru á fjórum
tungumálum.
Alls hafa nær þrjú þúsund
umferðarmerki verið færð en
þau merki, er ekki verða færð
fyrr en nóttina fyrir H-daginri,
eru þrjú: Stöðvunarskyldumerk-
ið, biðskyldumerkið og akibraut-
armerkið.
Jafntframt því sem Vegagerð-
in hefur annazt um fræðslu
umferðarmerkjanna hefur hún
séð um að setja niður tréstaura
fyrir merki, sem minna eiga á
H-daginn. Eru merki þessi sett
niður við þá vegi, þar sem um-
ferð var saman'lagt meira en 100
bflar á sólarhring í báðar áttir
í júlímánuði í sumar.
Þá gátu forráðamenn hægri
umferðar þess, að litilsiháttar
breytinga væri þörf að gera á
vegamótum í nágrenni við borg-
ina. Enrafremur kváðu þeir vera
von á H-merki, með endurskini
á dökkbláum fleti frá Svíþjóð.
Loks gátu þeir um það. að að-
vörunanmerki á blindfhæðum
yrðu flutt samdægurs, þar sem
um tvískiptar akbrautir væri að
ræða, og að það kostaði frá 50
til 200 þúsund krónur að ganga
frá bliftdihæð fyrir breytinguna.
Benedikta
giftir sig
3. febrúnr
Kaupmannahöfn,
28. nóv. — NTB:
BENEDIKTA Danaprinsessa, önn
ur dóttir dönsku konungshjón-
anna, systir Margrétar ríkisarfa
og önnu Maríu Grikkjadrottn-
ingar, mun ganga að eiga unn-
usta siran, Richard-Casimir. prins
af Sayn-Wittgenstein-Berleburg.
3. febrúar nk. Eirk biskup Jen-
sen, hirðprestur dönsku konungs.
hjónanna gefur brúðhjónin sam-
Ekki er enn ákveðið hverjir
sækja muni veizlu þá, sem hald-
in verður í tilefni þessa en talið
að boðsgestir verði um hundrað.
Sagt hefur verið að nær eingöngu
verði boðið fjölskyldum brúð-
hjónanna og nánustu vinum, en
þar í hópi er margt kóngafólk
og aðalsættað úr Svíþjóð, Nor-
egi, Þýzkalandi, Bretlandi. Hol-
landj og Belgíu, með afa Bene-
diktu, Gústaf Svíakonung VI Ad
olf efstan á blaði.
T
„Slíkar náttúruhamfarir
hafa ekki oröiö hér lengi“
— segir Kirsten Thorberg, sem búsett er
i Lissabon
.,ÞAD HAFA ekki komið rign
ingar, sem þessar, hérna í
mörg herrans ár“ sagði Krist
en Thorberg, íslenzk kona,
sem búsett er í Lissabon, þeg-
ar Morgunblaðið talaðl við
hana í gærmorgun. .,Frá kl.
sex á laugardag til miðnættis
rigndi 92 mm“.
„Þér hafið ekki orðið fyrir
neinu tjóni af völdum vatns-
flaumsins?"
„Nei, ég bý í miðborginni,
en aðaláföllin urðu í úthverf-
unum. Ég var að lesa í morg-
uinblöðunum áðan. að vitað
væri um 300 manns, sem látizt
hefðu í þessum ósköpum, en
um eignatjón er ekki vitað,
nema hvað það varð mjög mik
ið. Það er enn unnið að björg-
unarstörfum og Rauði kross-
inn hefur hafið hjálparetarf
til að liðsinna þeim mörgu,
sem misstu heimili sín og eign
ir.
En eiras og ég sagði áðan
varð tjónið aðallega í úthverf.
uraum en við í miðborginni
sluppum alveg, þannig að ég
veit eiginlega lítið meir. en
það sem stendur í blöðunum.
En slíkar náttúruhamfarir
hafa ekki orðið hér leragi og
tjónið, sem nú varð, er gífur-
legt“.
Kirsten Thorberg