Morgunblaðið - 02.12.1967, Síða 4

Morgunblaðið - 02.12.1967, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DES. 1967 P Hverfisgötu 103. Súni eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstræti 11. Hagstætt leigugjald Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748 Sigurður Jónsson BÍLALEIGAiM - VAKUR - Sundlaugavegi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. Ite]O.WGir RAUOARARSTÍG 31 S(MI 22022 Hreinsum rúskinnskápur, jakka og vesti. Sérstök meðhöndlun. Efnalaugin Björg, Háaleitisbr. 58—65, sími 31380, útibú Barmahlíð 6, sími 23337. í Morgunblaðinu BEZT að auglýsa AU-ÐVITAÐ ALLTAF HilÍÍ HÍÍ!!llilllffii!|l!!iinH!l!iiiÍilIll!l!ll!lÍ!!lllllÍl!l!!ll!l!ll!lll!llllIllli :::::::: :::::::: :::::::: ★ Raunsannur og hlýlegur þáttur S.J. skrifar: „Almennt er það í bréfum til Velvakanda að fundið er að ýmsu sem þykir ekki tafcast vel, en þess síður getið, sem vel er gert í sambandi við þetta álit mitt vil ég nefna leikritið Árni í Hraunkoti, sem nú er flutt sem framhaldsleikrit í útvarp- ið. Að mínu áliti hefur flutning ur þessa leikrits tekizt mjög vel og verið hlustendum til mikillar ánaegju. Höfundi leikritsins hefur tekizt að bregða upp skýrri mynd af fyrirmyndarheimili, eins og þau gerðust fyr- ir 20—30 árum. Síðasti þátt- ur leikritsins „Heim í jólaleyf- inu“, sem leikinn var sunmudag inn 26. þ.m. var hugþekkur og hlýr, er fjölskyldan í Hraun- koti var að taka á móti jólagest unum. Þessi þáttur, sem var raunsannur og hlýlegur, mun engum gleymast, sem á hann hlustaði . Tel ég að höfundurinn Ár- mann Kr. Einarsson eigi þakk- ir skilið fyrir þetta ánægjulega framhaldsleikrit, sem vakið hefur mikla athygii. í leikritinu koma fram marg- ir þekktir leikarar, sem allir fara sérstaklega vel með sín hlutverk, en eitt erfiðasta hlut- verk leikritsins Olli ofviti er þó leikið af ungum leikara, sem sjaldan hefur far:ð með stór eða erfið hlutverk en skilar þessu vandasama hlutverki af miklum ágætum. Leikrit þetta er íslenzkt og þjóðlegt og má telja það höfuð- kost, þótt þýdd leikrit geti líka verið ágætt útvarpsefni, ef vel er til alls vandað. Leikstjórinn, Klemens Jóns- son á þakkir skilið fyrir ágæta, hóflega leikstjórn, enda er hann vel þekktur fýrir stjórn sína á barnaleikritum. S.J. ic Brezka konan og eplin I>á hefur Velvakanda bor izt bréf um löngu liðinn at- burð, á þessa leið: Haustið 1939 fór SÚÐIN, strandferðaskip ríkisins, með saltkjötsfarm til Noregs. Það hafði hún gert undanfarin ár. Nú var seinni heimsstyrjöldin skollin á og síðar um veturinn fór skipið tvær ferðir til Grims by með ísvarinn fisk, en þriðja var farirí vorið 1940 og fiskin- um landað í Fleetwood. í þeirri ferð var ákveðið að skipið tæki heim saltfarm, sem átti að lesta í Runcorn, en sá staður er við Manchesterkanalinn. Þegar þangað kom var SÚÐIN kyrr- sett um óákveðinn tíma. Or- sökin var sú, að þá hertóku Þjóðverjar Danmörku og Noreg. Enginn vissi þá opinber- lega hvað yrði um ísland, en það kom síðar á daginn hvað var í undirbúningi. SÚÐIN kom heim til Reykjavíkur dag- inn áður en landið var hernum ið. SÚÐIN lá í Runcorn í tvær vikur ásamt b.v. REYKJA- BORG sem einnig átti að lesta salt. Þegar leyfi fékkst til burt ferðar létti yfir okkur, því að dvölin þarna var nokkurs kon- ar stofufangelsi. Eins og venja er hjá sjómönn um, ætluðum við að kaupa sitt af hverju til að gieðja ástvin- ina við heimkomuna, en á þessum tímum var erlendur gjaldeyrir takmarkaður og landlegan orðin nokkuð löng. Við fórum m.a. í ávaxtabúð og keyptum þar epli o.fl. Það sem vakti sérstaka athygli okkar (og hefur oft komið í huga minn síðan), var viðskiptamóti konunnar sem afgreiddi okkur. Á gólfinu var upptekinn epla- kassi með um % af innihaldi hans og svo annar kassi óupp- tekinn. Innihald opna kassans nægði ekki alveg fyrirhuguð- um kaupum okkar svo að það varð að taka dálítið úr hin- um kassanum. Þá sagðl konan okkur að eplin í lokaða kassan- um hefðu komið í búðina þá um morguninn og að þau væru hálfu pennyi dýrari hvert pund. Við þetta höfðum við ekkert að athuga, en við vor- um hrifnir af heiðarleik kon- unnar, því að henni var í lófa lagið að selja okkur úr báðum kössunum á hærra verðinu, því við höfðum ekki hugmynd um verðbreytingu og vorum þar að auki erlendir sjómenn. Ekki vissum við hvort kon- an átti búðina eða var annarra þjónn, eða hvort þetta hugar- far í viðskiptum er almennt meðal Breta, eða aðeins und- antekning. Hvað sem um það er, þá er sú þjóð sannarlega vel á vegi stödd, sem á marga þegna með slí'ku hugarfari, í hvaðá stétt eða stöðu sem þeir eru meðal þjóðar sinnar. Július Ólafsson. ■+C Um skýrslugerðar- vélar Frá skýrslugerðarvélum ríkisins og Reykjavíkurborgar hefur borizt eftirfarandi at- hugasemd: í dálkum Velvakanda laugar daginn 18. nóvember sl. er þess réttilega getið til að skýrslu- gerðarvélar eigi sök á því, að eigi er ávallt rituð komma yf- ir staf á nafnskírteinum, skatt- skýrslum og fleiri skýrslum. Með hliðsjón af hagkvæmni Skýrslugerðarvéla var hafin notkun þeirra, þó svo að ekki væri mögulegt að fá vélar, sem skrifað gætu alla islenzku stafi, en í þær vélar, sem vér notum nú, vantar 4 stafi þ.e. í, ó, ú og ý- Skýrslugerðarvélar hafa ver ið í notkun hér á landi í að minnsta kosti 15 ár og í þær hefur vantað mismunandi marga íslenzka stafi án þess að það hafi komiö að sök eða valdið misskilningi, en notkun skýrslugerðarvéla hefur farið ört vaxandi hin síðari áu'. Hunangsdropar við skalla Einar Einarsson skrifar: Kæri Velvakandi. Það var upplífgandi og von- vekjandi að heyra spjallið Stefáns fréttamanns og Þór- bergs rithöfundar í útvarpinu um daginn. Á ég þar einkum og sérílagi við þá sögn Þór- bergs, að hæruskotinn kollur hans væri tekinn að roðna æskulit af nýju, þrátt fyrir ald ur, og mætti rekja þau undur til hunangsdropa, svo og ein- hvers annars, sem inn væri tek ið, en ég bréfritarinn gremdi ekki, hvað heitir né hvurs kyns væri eður ættar. Er nú ekki fyrir það að synja, að ég hýrnaði um brána og sá fyrir mér, að stemmt yrði stigu við tunglkomu og ennishækkun þeirri, sem breið- ist út um mitt höfuð og fer í tvær áttir, upp að framan og upp að aftan. Mér er því í mun, kæri Velvakandi, að þú innir Þórberg gjörr eftir kostu- legum litarefnum höfuðs hans, svo að einhverjir okkar ætt- manpa hans að holdinu mættu og yngjast íð ytra og ið innra ásamt með Þórbergi og syngja lífinu nýjan söng. Þess er ég fullviss, að þú ljærð honum rúm í urtagarði þínum, eður dálkum. Það eru til aðrir hunangs- dropar, sem og drjúpa af og til, en ekki oft og of sjaldan. Þeir eru andlegir, og þeirra getur í blaði þínu. Ég á við „Svar mitt“ eftir þann merktíega Billy Graham. í upphafi birt- ingar „Svaranna" var að skilja, að úti í löndum væru „Svörin“ daglegur þáttur. Þess sér eigi stað í blaði þínu. Þess sakna ég, því þarna drýpur hressi- legur andlegur elexír í hæfi- legum skömmtum, skammur og þó ekki of skammur og hug- vekjandi. Góði láttu þá drjúpa oftar! Gullkálfiur stendur hér á stalli, en honum er lífs vant, ag eykst fátækt hjartans við dýrkun hans. „Svörin" beina huganum þangað, sem fylling er að fá. Mættum við fá meira að heyra? Einar Einarsson. Til söfu - Skoda - gamla verðið Höfum til sölu tvær notaðar Skodabifreiðar, Skoda Octavia 1960 og Skoda Octavia 1964, er við bjóð- um á sama verði og fyrir gengisfellingu. Hagstætt verð — hagstæð kjör — bifreiðar ný- skoðaðar — lán vaxtalaus. Bezt að kaupa SKODA hjá SKODA. Tékkneska Bifreiðaumboðið h.f. Vonarstræti 12 — Sími 19345. Ensk gólfteppi Verð kr. 350.— pr. ferm. og kr. 608.— pr. ferm. Fljót og góð afgreiðsia. LITAVER S.F. Grensásvegi 22—24, sími 30280, 32262. snittur smurt braud braudtertur LAUGALÆK 6 opid frá kl. 9-23:30 ST SIMI 30941*é**»næg bílastæöii

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.