Morgunblaðið - 02.12.1967, Side 8

Morgunblaðið - 02.12.1967, Side 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DES. 19«7 Lofjleidir Loftleiðir h.f. ætla frá og með apríl/maí mánuði n.k. að ráða allmargar nýjar flug’- freyjur til starfa. I sambandi við væntan- legar umsóknir skal eftirfarandi tekið fram: ■jr Umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára — eða verði 20 ára fyrir 1. júlí n.k. — Umsækjendur hafi góða almenna menntun, gott vald á ensku og einhverju Norðurlandamálanna — og helzt að auki á þýzku og/eða frönsku. ir Ekkert er því til fyrirstöðu, að giftar konur, sem eiga vel heimangengt, sæki um starfið, t. d. yfir sumartímann, 1. apríl — 1. nóvember. ir Umsækjendur séu 162—172 cm á hæð og svari líkamsþyngd til hæðar. ir Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöld- námskeið í febrúar n.k. (3—4 vikur) og ganga undir hæfnispróf að því loknu. ★ Á umsóknareyðublöðum sé þess greinilega getið, hvort viðkomandi sæki um starfið til Iengri eða skemmri tima. ★ Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum félagsins Vesturgötu 2 og Reykjavíkurflugvelli, svo og hjá umboðsmönnum félagsins út um land, og skulu umsóknir hafa borizt ráðningardeild félagsins Reykjavíkurflugvelli fyrir 15. desember n.k. Fhigfreyjur „Stjórnendum vinnuvéla nauö- synlegt að hafa góða þjálfun" — segir yfirmaður þjálfunarstöðva Caterpillarverksmiðjanna í Cenf ÖRYGGISEFTIRLIT ríkisins 1 og Dagsbrún gengust fyrir / skömmu fyrir námskeiði, þar 1 sem kennd var meðferð i þungavinnuvéla, og verða | menn hér eftir að hafa skír- / teini til að stjórna slíkum 1 tækjum. Heildverzl. Hekla \ var beðin aðstoðar og brást i hún vel við, útvegaði ekki í einungis tæki, heldur fékk ) hingað Mka tvo sérfróða menn l frá Caterpillar verksmiðjun- 4 um, til þess að aðstoða vi'ð i námskeiðið. 7 Annar þeirra, Joe Court- 1 right er yfirmaður mikillar ( þjálfunarstöðvar sem Cater- í pillar hefur í Genf, en hinn / er Ron Little, fulltrúi Cater- 1 pillar í Skandinavíu. Frétta- t maður Morgunblaðsins hitti l þá að máli, og ræddi við þá / nokkra stund um störf þeirra 1 og fyrirtæki. \ „Jarðvinnsluvélar þær sem i Caterpillar framleiðir eru / margar hverjar geysi stór- 1 virkar og nærri því tröllsleg- 1 ar í útliti“ segir Courtright. i „En það er samt tiltölulega / auðvelt að stjórna þeim. Ég \ get nefnt þér sem dæmi, að i fyrir nokkru fórum vi'ð með / allt skrifstofufólkið okkar í J Genfar-skrifstofunni til að 1 sýna því hvernig vélamar i ynnu. Og eftir smá kennslu- / stund var það orðið fært í i flestan sjó. Það kann að hafa \ verið broslegt að sjá litla fín- i gerða einkaritara fara æðandi í fram og aftur á heljarstórum / trukkum, en þeim gekk ágæt- J lega. Til þess að stjórna þess- i um vélum á réttan hátt, og fá sem bezta nýtingu, þarf þó allgóða þjálfun, og við leggjum okkur alla fram við að hjálpa viðskiptavinum okkar í þvi efni. Þáð er t.d. alls ekki óálgengt, að fara í svona ferðir, eins og til ís- lands núna, til þess að aðstoða við kennslu, og hér fyrr á árum flæktist ég heimsenda milli í þeim tilgangi. Fyrir fyrirtæki eins og Ca- terpillar, sem selur fram- leiðslu sína út um allan heim, er ákaflega mikilvægt, að hafa sem bezta þjónustu og þessvegna erum við t. d. að l setja upp skrifstofu í Hong / Kong fyrir Austurlpnd fjær. Á þetta reynir kannski sér- staklega í sambandi við skip. Ef við tökum sem dæmi ís- lenzkt skip með Caterpillar vél, sem yrði fyrir bilun úti í heimi, þá gæti skipstjórinn haft samband við næstu skrifstofu og fengið þar fyr- irgreiðslu. Og eins er þetta hér á íslandi. í sumar kom t. d. norskt skip inn á ein- hvern austfjar’ðanna ykkar með bilaða vél, og umboðið í Reykjavík kom strax til hjálpar. Hér var þó aðeins um smábilun að ræða.“ „Þið hafið sem samt um- boðsmenn vítt og breitt um heiminn?" „Já, ég held að umboðs- menn Caterpillar séu 514 utan Bandaríkjanna, og alltaf að bætast við, t. d. erum við núna að selja mikið af afl- vélum og nokkrar stórar ýt- ur til Rússlands. Þetta eru fyrstu kaup Rússa af okkur, eftir heimsstyrjöldina sí'ðari.“ „Þú sagðir að þið selduð aflvélar, eruð þið svo með sérstakar samansetningarverk smiðjur?" „Já, við setjum að sjálf- sögðu allt saman í eigin verk smiðjum. En við framleiðum einnig svo til allt sem í okk- ar vélar þarf, kaupum eigin- lega ekkert utanfrá.“ „Takið þið að ykkur áð framleiða vélar til sérstakra hluta, samkvæmt kröfum kaupenda?“ „Við setjum ógjarnan upp nýjar verksmiðjur, nema eitt- hvað stórfellt sé um að ræða. Hinsvegar gerum við ýmsar breytingar fyrir viðskipta- vini, ef þá vantar tæki til sérstakra starfa, og einnig framleiðum við eftir sérpönt- unum fyrir herinn. Fyrirtæk- ið hefur sínar eigin rannsókn- arstofur og sextíu og fimm milljónum dollara er árlega varið til þeirra. „Hvernig er það í Banda- ríkjunum, þurfa menn þar skírteini til að stjórna stór- virkum jar'ðvinnsluvélum?" „Já, þeir verða að hafa rétt- indi. Það eru til skólar sem kenna slíkt, og útvega svo nemendum sínum atvinnu þegar náminu er lokið. Það er nauðsynlegt að hafa færa menn við stjórn slíkra tækja, þeir verða að kunna sitt fag. Þetta eru dýrar vélar, sem þeir eru settir yfir, og þeir veða að geta nýtt getu þeirra til fullnustu. Ef menn hafa ekki fengið góða kennslu geta þeir heldur ekki gætt fyllsta öryggis, svo að ég tel að þetta námskeið, sem hér var haldfð, hafi verið mjög gagnlegt, og æskilegt að þau yrðu fleiri. Courtright, Ingimundur Sigfússon (Hekla heildv.) og Little. Steinleirkerasmiðian ,1300° áC.‘ FYRIR nokkru tók til starfa ný I son, en hann hefur lært leirkera leirkerasmiðja í Reykjavík og er iðn í Skotlandi í tvö ár, ásamt hún til húsa að Bergstaðastræti því að leggja stund á teikningu. 4. Eigandi er Haukur Dór Sturlu ' Einnig s.tundaði Haukur Dór Haukur Dór Sturluson og Ástrún Jónsdóttir standa hjá nokkr- um munum sem þau hafa gert. nám í akademíunni í Kaup- mannahöfn í tvö ár. Kona Hauks, Ástrún Jónsdóttir, vinn- ur með honum að leirkeragerð og einnig gerir hún haglega gerð kerti og skrautleg. Haukur Dór vinnur úr steinleir, sem hann flytur inn frá Bretlandi, en hann hefur einnig með góðum árangri notað islenzkan leir og blandað saman við erlenda leirinn. ís- lenzki leirinn er fenginn á Reykjanesi, rétt hjá nýja hvera- svæðinu og hann er mjög járn auðugur og gefur skemmtilegan blæ. Haukur Dór kallar fyrir- tækið „1300° á C“ og eins og fyrr segir er það staðsett við Berg- staðastræti 4, annarri hæð og er sölubúð á verkstæðinu sjálfu. Steinleirmunirnir verða til sölu þar og einnig í verzluninni „ís- lenzkur heimilisiðnaður". Hauk- ur Dór er félagsmaður í SUM, félagi ungra listamanna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.