Morgunblaðið - 02.12.1967, Side 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. DES. 1967
Útgefandi: Hf. Árvakur, R'eykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðaistræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími. 22-4-80.
I lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
KJARADÓMUR
IZjaradómur hefur nú kveð-
ið upp dóm um laun op-
inberra starfsmanna og er
meginefni hans að launakjör
skuli að mestu haldast ó-
breytt en þó eru smávægileg-
ar breytingar gerðar á vinnu-
tímareglum og aldurshækk-
anir verða nú örari en áður.
Sú meginniðurstaða Kjara-
dóms, að laun skuli haldast
óbreytt, er eðlileg miðað við
það ástand sem ríkt hefur í
launamálum nú um nokkurt
skeið. Segja má, að launa-
kjör hafi haldizt óbreytt í
landinu frá sumri 1966, þeg-
ar samningar voru gerðir til
1. október það ár en síðan
hefur engin breyting orðið á,
fyrr en verðlagsuppbótin var
greidd nú hinn 1. des. og
hafa opinberir starfsmenn
því orðið aðnjótandi hennar
ekki síður en aðrir.
Formaður BSRB hefur lát-
ið þá skoðun í ljós í blaða-
viðtali, að þessi dómur sýni,
að opinberir starfsmenn geti
ekki unað þeirri skipan mála,
sem nú ríkir um ákvörðun á
launakröfum þeirra. Sú yfir-
lýsing er furðuleg í ljósi
þeirra miklu hagsbóta, sem
opinberir starfsmenn hafa
hlotið eftir að núverandi
skipulag var upp tekið og er
skemmst að minnast' Kjara-
dómsins 1963, sem stórhækk-
aði laun opinberra starfs-
manna og ruddi raunar braut
ina fyrir almennum launa-
hækkunum í landinu.
Á sama hátt og úrskurður
Kjaradóms 1963 varð til þess
að hleypa nýrri skriðu af
stað ber þess nú að vænta,
að það sem síðar kann að
gerast í launamálunum a. m.
k. framan af gengislækkun-
artímabilinu verði að veru-
legu leyti í samræmi við
þennan úrskurð.
RÖDD UNGRAR
SKÁLDAKYN-
SLÓÐAR
í síðustu Lesbók Mbl. birt-
■*• ist athyglisvert viðtal við
hið unga ljóðskáld Jóhann
Hjálmarsson. í svari við
spurningu um hlutverk
skálds í þjóðfélaginu segir
hann m.a.:
„Rg er gegn því, að hlut-
verk skálds eigi að vera ein-
hvers konar þjónusta við
kommúnismann eða marxism
ann, en það er mjög útbreidd
skoðun hér á íslandi. Það er
eins og íslenzkum höfundum
gangi illa að slíta barnsskón-
um í þessu tilliti. Mér finnst
nauðsynlegt að spyrna gegn
því, að fáeinir menn hafi bók-
menntalegt vald til að for-
heimska almenning í þessu
tilliti. Ég álít að sjónarmið
Kristins Andréssonar, sem ég
var að mótmæla í blaðagrein
nýlega séu hjákátleg nú á tím
um.
Hitt er allt annað mál, að
skáld getur haft þjóðfélags-
legan tilgang með verki sínu
og samið ádeilubókmenntir,
en þegar á að fara að beina
huga rithöfunda að einhverju
ákveðnu marki, eins og reynt
hefur verið að gera, er ástæða
til að segja nei takk. Þessir
draumórar um pólitískan til-
gang skáldskapar ganga að
vísu alltaf aftur og þá venju-
lega í nýrri mynd, undir nýj-
um merkjum og það er óvið-
kunnanlegt að vekja upp aft-
ur gömul viðhorf og gamla
trú, sem er engan veginn í
samræmi við líf okkar í dag.
Sjálfur hef ég ákaflega litla
tilhneigingu til að segja rit-
höfundum fyrir verkum.“
Þetta er rödd hinnar ungu
skáldakynslóðar, ákveðin,
djörf en skynsöm.
ALMENN
AFBOÐUN
VERKFALLA
]VTær öll þeirra verkalýðsfé-
laga, sem boðuðu verk-
fall frá 1. des. hafa nú afboð-
að slíkar aðgerðir og aðeins
er vitað um eitt verkalýðs-
félag á landinu, sem efnt
hefur til verkfalls, Verka-
kvennafélagið í Vestmanna-
eyjum og er deiluefnið fyrir-
komulag á launagreiðslum í
tveimur frystihúsum.
Það er sérstök ástæða til
þess að fagna þessum mála-
lokum, og án alls efa er þeim
fagnað af svo til öllum lands
mönnum og ekki sízt þeim,
sem áttu að leggja út í verk-
fallsbaráttuna. Fólkið vildi
ekki verkfall. En varla fer
það framhjá nokkrum, hverj-
ir það voru sem vildu verk-
föll og hyerjir sátu eftir með
sárt ennið þegar þeim var af-
lýst.
A BkiII1 ■■■■. -m rAM IId urmi
; U IAN UK HtlMI
Eyðilegging eftir andkínverskar óeirðir í Rangoon.
Síversnandi sambúð Kína
— við Burma og önnur
ríki Suðaustur-Asíu
SNEMMA í nóvembermánuði
stigu hópar kínverskra tækn-
issérfræðinga kuldalegir á
svip um borð I flugvélar á
flugvellinum við Rangoon í
Burma og flugu heim á leið.
Þeir skildu eftir að baki sér
verksmiðjur af ýmsu tagi, svo
sem pappírs- og trjávinnslu-
verksmiðjur og önnur mann-
virki á mismunandi byggingar
stigi. Hin skyndilega brottför
þeirra, sem fyrirskipuð hafði
verið í Peking sem áminninig
til ríkisstjómarinnar í Burma,
var síðasta og ef til vill áhrifa
ríkasta dæmið um, hve sam-
búð Kína við nágranna sína
alls staðar í Asíu fer hrað-
versnandi.
Frá því að menningarbylt-
ingin hófst fyrir tveknur ár-
tim hefur Pekingstjórninni
tekizt að gera sér fráhverfar
í rauninni hverja eimustu
stjórn í Suður- og Suðausbur-
Asíu. Stjórnmálasambandi hef
ur verið slitið við Indóniesíu,
vinátta Kambodia og Kína
hefur kólnað til mikilla muna.
Jafnvel stjórnarvöldin í Norð-
ur-Víetnam hafa gagnrýnt
persónudýrkun — sem er
óbein árás á Mao Tse Tung
sjálfan.
Um Burma gilti sérstöku
máli. Árum saman hafði engin
þjóð í Asíu sýnt meiri vin-
áttu né verið fúsari til þess
að fallast á forystu Peking-
stjórnarinnar en Burma. Kína
sýndi í staðinn þakklæti sitt
með því að kalla þessa fyrir-
myndarnágranna sína frænd-
þjóð. Þess vegna hafa vinslit
þessa tveggja ríkja fyrir
skemmstu borið svip allrar
þeirrar beizkju, sem einkenn-
ir ættardeilur.
Vináttan tók að kólna 1966,
þegar hinn „sterki maður“
Burma, Ne Win hersöfðingi
tók að líta í kringum sig í
því skyni að finna lausn á
himum vaxandi efnahagserfið-
leikuim lands síns. Á meðan
Kína var önnum kafið vegna
gliundroðans í símum eigin
málum heima fyrir flaiug hers
höfðinginn til Washimgton til
viðræðna við Johnson forseta.
Þegar hann sneri til baka,
lýsti Ne Win því yfir, að
Burma væri fúst til þess að
þiggja vestræna aðstoð og sem
merki um, að hann væri reiðu
búinn til þess að slaka á hern-
aðareinræði sínu, Leysti hann
U Nu, fyrrverandi forsætisráð
herra úr fangelsi.
Á meðan þetta var að ger-
ast, tóbu stjórnvöld í Burrna
að verða kvíafull vegna
þeirra áhrifa, sem hin ofsa-
fengna menningarbylting var
frain að hafa á þá hálfu millj.
íbúa Burma, sem eru af kín-
versku bergi brotnir. Sam-
kvæmt fyrirskipun herstjórn-
ar Ne Wins var Kínverjum í
landinu bannað að bera Mao-
merki fara í skrúðgöngur eða
kenna kenningar Maos í skól-
um sínum. Þegar Kínverjarnir
snerust andvígir gegn þessu
banni og trömpuðu opinber-
lega á fána Burrna, brutust
sjálfkrafa út andkínverskar
óeirðir í Rangoon og sagt er,
að meira en 100 Kínevrjar
hafi látið lífið í þeirn.
Pekingstjórnin var ekki
lengi að svara fyrir sig. Blöð
í Kína vöruðu í reiðitón við
því, að það skyldl endurgold-
ið, að blóði hefði verið út-
hellt, og þegar stjómin í Ran-
goon neitaði að verða við
kröfum Pekingstjórnarinnar,
sem var í fáum liðum — þ.
á. m., að beðizt yrði afsökun-
ar opinberlega vegna hinna
andkínversku óeirða — kall-
aði Pekingstjórnin alla tækni-
sérfræðinga sína í Burma. 390
að töLu, heim og hætti aLlri
aðstoð.
Það, sem var þó enn meira
ógnverjandi, var, að Peking-
stjórnin lót það skýrt í ljós,
að hún væri reiðubúin til þess
að styðja á alla vegu þann
arm kammúnistaflokksins í
Burma, sem aðhylltist Mao.
Lýsti hún því yfir, að sökum
þess að Ne Win-klíkan hefði
greitt fyrsita höggið í andstöð
unni við Kína, hefði kínverska
þjóðin öðlast rétt til gagnárás-
ar. Kommúnistar í Burrnia
hafla líka sannarlega aukið
skæruliðastarfsemi sína í
landinu síðustu mánuði með
því að sprengja upp járnbraut
arlestir, sitja fyrir fljótabát-
um og ráðast á einangruö
þorp. Fréttir haía og borizt
um, að frá Kína sjálfu, en
Landamæri þess og Buima eru
100 mílur á lengd, hefðu út-
sendarar tekið að laumast
inn í tvö af minni fylkjum
Burma — Kaohin og Shan —
og leibur grunur á, að þeir
muni reyna að koma á fót
„frelsuðum" svæðum.
Almennt er ekki reiknað
með því í Burma, að Kínverj-
ar rmuni gera beina innrás yf-
ir Landamærin, en málgagn
stjórmarinmar í Burrna hefur
spáð því, að kínverska komm-
únistastjórnin muni senda
kommúnistum í Burma vopn
og skotfæri og ef til vill senda
hernaðarlega ráðunaiuta frá
Kína. Með tilliti til þeirra
framtíðarhorfa, að land hans
kunni að Lenda í stórfelldri
styrjöld, hefur Ne Win snúið
sér til Bandaríkjanna um að-
stoð. Þegar hafa bandarískar
flutningaflugvélar flutt tals-
vert magn til Rangoon og fyr-
ir skömmu fór sjö manna hóp
ur að nokkru með leynd frá
Ramgoon í því skyni að skoða
sýninguna á bandarískum
vopnum, sem hafði verið kom
ið sérstaklega upp í banda-
rískri bækistöð í Japan.
Óeirðii í
Knlkútto
Kalkútta, 30. nóvember.
NTB, Reuter.
ÆPANDI múgur fór um hluta
Kalkúttaborgar í dag, kveikti í
járnbrautarvögnum og kastaði
grjóti að strætisvögnum, meðan
stóð yfir sólarhrings allsherjar-
verkfall. Er það annað í röðinni
á vikutíma.
Opinberar heimildir segja, að
verkfallið í dag hafi ekki verið
nándar nærri eins víðtækt og
það sem gert var í vikunni á
undan. Þá biðu 8 manns bana, er
vinstrisinnaðir hópar skipulögðu
aðgerðir til að mótmæla því, að
fylkisstjórinn vék fylkisstjórn-
inni frá, en kommúnistar höfðu
tögl og hagldir innan hennar.